Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Til stendur að gera breytingar á
húsinu Pósthússtræti 2, sem í dag-
legu tali hefur verið nefnt Eimskipa-
félagshúsið. Húsið er friðað og allar
breytingar á friðuðum húsum þurfa
samþykki þar til bærra yfirvalda.
Pósthússtræti 2 er steinsteypu-
hús reist árið 1919. Hönnuður var
Guðjón Samúelsson, arkitekt og
húsameistari ríkisins, og þykir húsið
eitt af mörgum meistaraverkum
hans. Húsið var stækkað til vesturs
árið 1979 í samræmi við frumteikn-
ingar Guðjóns. Hönnuður var Hall-
dór H. Jónsson arkitekt. Mennta-
málaráðherra friðaði húsið árið
1991. Eimskipafélag Íslands reisti
húsið fyrir skrifstofur félagsins. Ár-
ið 2004 var það selt og í framhaldinu
var því breytt í hótel sem fékk nafn-
ið Radisson Blu 1919.
Teiknistofan Tröð sækir um
leyfi fyrir breytingum á húsinu fyrir
hönd eigandans LF2 ehf. (Eik fast-
eignafélag). Erindið hefur verið til
umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg og
var samþykkt á fundi byggingarfull-
trúa sl. þriðjudag. Samkvæmt um-
sókninni stendur til að gera breyt-
ingar á 1. hæð Pósthússtrætis 2 og
hluta Hafnarstrætis 9-11 ásamt
minniháttar breytingum á kjallara
Pósthússtrætis 2.
Aðalinngangur hótelsins verður
eftir breytingarnar frá Hafnarstræti
en aðalinngangur veitingastaðar frá
Pósthússtræti.
Við suðaustur- og norðaustur-
horn hússins mótar fyrir dyrum sem
hefur verið lokað með fyllingu. Þess-
ar dyrafyllingar verða fjarlægðar og
í þeirra stað verða settir gluggar í
sama stíl og aðliggjandi gluggar.
Þannig verður fyrra útlit endurvakið
og birta innanhúss aukin.
Í umsögn Rebekku Guðmunds-
dóttur borgarhönnuðar er þessum
breytingum fagnað sérstaklega. „Á
þetta eftir að gera fallegt hús enn
fallegra og breyta ásýnd þess til hins
betra,“ segir borgarhönnuður.
Nýtt utanáliggjandi gler-
skyggni mun marka aðilinngang
veitingastaðar að Pósthússtræti. Öll
skilti utanhúss, fyrir utan skilti efst
á gafli, verða fjarlægð og ný sett upp
í staðinn. Þau verða baklýst með
LRD-ljósum.
Minjastofnun Íslands hefur lagt
blessun sína yfir þessar breytingar
en tiltekur að hafa þurfi samráð við
stofnunina um útfærslur breytinga á
yrta borði. Erindið var tekið fyrir á
fundi Húsfriðunarnefndar og fært
var til bókar að nefndin gerði ekki
athugasemdir við erindið. Hluti
fundarmanna lét hins vegar í ljósi
efasemdir um nauðsyn þess að reisa
glerskyggni yfir fyrrverandi aðal-
inngang hússins, jafnvel þótt um aft-
urkræfa breytingu sé að ræða.
Breytingar gerðar á
meistaraverki Guðjóns
Ljósmynd/Magnús Ólafsson
Eimskipafélagshúsið Mynd frá síðustu öld. Fremst má sjá hina frægu Steinbryggju sem hvarf undir landfyllingu 1940.
Fallegt hús Eimskipafélagsins verður „enn fallegra“
Breytt hlutverk Radisson Blu 1919
hótel hefur verið í húsinu síðustu ár.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hafa lagt til í borgarráði að um-
hverfis- og skipulagssviði verði falið
að ráðast í greiningarvinnu á fyrir-
sjáanlega auknu magni skrifstofu-
húsnæðis í miðborginni næstu árin.
„Hér mætti nefna þær þúsundir
skrifstofufermetra sem standa
munu auðar þegar Landsbankinn
flytur starfsemi sína í nýjar höfuð-
stöðvar að Austurbakka,“ segir í til-
lögunni.
Jafnframt er lagt til að í kjölfar
greiningarvinnu verði sviðinu falið
að útfæra tillögur að sveigjanlegum
lausnum er varða nýtingarmögu-
leika þeirra eigna sem um ræðir.
Þannig verði kannaðir möguleikar á
breyttri notkun mannvirkjanna, t.d.
hvernig þeim megi breyta í íbúðar-
húsnæði, gististaði, veitingahús eða
skólabyggingar, svo eitthvað sé
nefnt. Tillögurnar verði unnar í
samstarfi við hlutaðeigandi fast-
eignaeigendur og verði að endingu
bornar undir borgarráð. sisi@mbl.is
Skoðað verði hvort
breyta megi skrif-
stofum í íbúðir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur
hafnað hugmynd starfshóps um
uppbyggingu snjóflóðasafns á Flat-
eyri um að finna varðskipinu Ægi
stað við höfnina. Hafnarstjórn telur
plássið of takmarkað og bendir á að
höfnin sé óvarin fyrir snjóflóðum.
Snjóflóðasafn þar yrði því á hættu-
svæði vegna snjóflóða.
Málið er þó enn í athugun. Birgir
Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðar-
bæjar, segir að verið sé að skoða
ýmsar leiðir sem komi til greina.
Hann segir afstöðu hafnarstjórnar
skiljanlega, hún markist af því að
höfnin sé á snjóflóðahættusvæði og
þar sé ýmis önnur starfsemi.
„Við erum áfram í samtali við
þessa aðila um það hvort einhverjar
aðrar leiðir eru færar,“ segir Birg-
ir.
Von á tillögum um varnir
Ísafjarðarbær á von á því að fá
kynningu frá Ofanflóðasjóði og Veð-
urstofunni á næstu dögum. Þá verð-
ur væntanlega upplýst um tillögur
um nýjar varnir á Flateyri og hve-
nær hægt verður að ráðast í fram-
kvæmdir. Birgir vonast til að hægt
verði að framkvæma á næsta ári.
Í ljós kom í snjóflóðum sem féllu
á Flateyri síðastliðinn vetur að
snjóflóðagarðarnir verja ekki
byggðina að fullu. Þá er höfnin
óvarin og vegurinn til Flateyrar
sömuleiðis.
Nefnir Birgir að það samrýmist
illa útgerð og aukinni atvinnustarf-
semi, meðal annars vegna fiskeldis,
að geta ekki komið frá sér afurðum
og eiga trygga höfn. Þess vegna sé
lögð áhersla á að unnið verði sam-
hliða að því að verja byggðina,
höfnina og veginn.
Efnt verður til íbúafundar, vænt-
anlega rafræns, þar sem tillögur
Ofanflóðasjóðs og Veðurstofu verða
kynntar. Þá verður einnig kynnt
rýmingaráætlun vegna snjóflóða
sem notuð verður í vetur ef þörf
verður á.
Snjóflóðasafn verði
ekki á óvörðu svæði
Nýjar varnir á Flateyri undirbúnar
Varðskip Ægir var notaður við
björgunaraðgerðir vegna snjóflóða.
Kirkjumálasjóður hefur selt fast-
eignina við Laugavegi 31, sem hýst
hefur starfsemi þjóðkirkjunnar og
Biskupsstofu í tæpa þrjá áratugi. Í
tilkynningu frá Fyrirtækjasölunni
Suðurveri er ekki upplýst um kaup-
andann, annað en að það sé fjöl-
skyldufyrirtæki.
„Nýir eigendur segjast sjá tæki-
færi í þeirri þróun Laugavegarins að
færast meira yfir í göngugötu og
hyggjast koma á fjölbreyttri starf-
semi í húsinu,“ segir í tilkynning-
unni. Húsið, sem Marteinn Ein-
arsson byggði á árunum 1928-1930,
er á horni Laugavegar og Vatns-
stígs.
Kaupandinn hyggst færa húsið
meira til upprunalegs útlits auk þess
sem innra skipulagi verður breytt til
að mæta þörfum væntanlegra
rekstraraðila hússins. Á eftir hæð-
um verði skrifstofurými en á jarð-
hæð og 2. hæð verð rými fyrir versl-
un, viðburði og þjónustu.
Kirkjuhúsið í hendur
nýrra eigenda
Færa húsið til upprunalegs horfs
Morgunblaðið/Eggert
Kirkjuhúsið Biskupsstofa hefur nú
selt húsið nýjum eigendum.