Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Barna kuldaskór Verð: 16.995.- Vnr. 2A-20027 Herra kuldaskór Verð: 24.995.- Vnr. 2A-53642 KULDASKÓR ÖRUGGARI Í HÁLKUNNI Dömu kuldaskór Verð: 22.995.- Vnr. 2A-550360 Dömu kuldaskór Verð: 22.995.- Vnr. 2A-416 kuldaskórnir eru með innbyggðum smellu mannbroddum S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE KRINGLAN - SMÁRALIND VIÐTAL Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnesi Í Borgarnesi hafa mæðgurnar Andr- ea Maria Sosa Salinas og Silvia Di- nora Salinas Martinez nýlega stofn- að fyrirtæki utan um sultugerð úr grænum tómötum. „Ég segi að Oliviás Gourmet hafi byrjað með mikilli blessun, en án þess að vera sérstaklega að leita eft- ir því fengum við tækifærið upp í hendurnar. Ég hafði látið í ljós löng- un til að komast yfir græna tómata til sósugerðar sem ég vildi blanda með latín-salvadoríska kryddinu okkar. Þessi ósk náði eyrum góðra garðyrkjubænda og við fengum tals- vert magn af tómötum eða um 30 kíló með því skilyrði að við próf- uðum eitthvað sniðugt í matargerð. Fyrst fórum við að þróa sósu en svo fengum við enn fleiri tómata og þá fórum við að hugsa um hvað við gætum gert, hvernig við gætum nýtt þetta ágæta hráefni,“ segir Andrea sem hefur orð fyrir þeim mæðgum. Prófuðu sig áfram ,,Þá datt okkur í hug að prófa sultugerð og sjóða niður tómata og útkoman varð afar ánægjuleg, bragðlaukarnir tóku við sér, því þetta er ferskt á bragðið, nýstárlegt og framleitt úr hágæða hráefni.“ Þær prófuðu sig áfram í vöruþró- un þangað til þær komust niður á lokaafurðirnar sem eru þrjár teg- undir af tómatsultu, ein með myntu, önnur með appelsínu og sú þriðja með chili. Framleiðslan fer fram í eldhúsi Matarsmiðju Vesturlands, sem þeim finnst stórkostlegt að skuli vera til staðar. Garðyrkjubúið sem tómatarnir eru ræktaðir á hefur yfir 80 ára reynslu í tómataræktun, og hráefnið mjög gott, segir Andrea. Önnur innihaldsefni kaupa þær í verslunum hér og leggja áherslu á að finna það besta og ferskasta, enda eru vörurn- ar alveg án rotvarnarefna. Þær mæðgur hjálpast að við framleiðsl- una, markaðssetningu og viðskiptin en hafa fengið ómetanlega aðstoð frá tveimur kærum vinkonum. Þær eru Signý Óskarsdóttir, sem hjálp- aði þeim að teikna upp viðskipta- hugmyndina og ýmis praktísk atriði, og Monica Gomez, sem sá um graf- íska hönnun og netbirtingu. Þær auglýsa á samfélagsmiðlum og heimasíða er í vinnslu. „Allt hefur gengið vel, en eina vandamálið er geymsla á hráefni, þá á ég við hvar við eigum að geyma tómatana áður en við notum þá,“ segir Andrea og hlær. „Það má segja að reynsla okkar af því að byrja þessa vegferð hafi verið mjög adrenalín-aukandi. Mað- ur myndi kannski ekki halda að það væri mjög erfitt að hanna þessa vöru, en trúðu mér þetta hefur verið strembið,“ segir Andrea, „og bættu svo daglegu lífi við og það að vera móðir með lítið barn. En við höfum samt notið þessarar vinnu og tökum stoltar áfram þau skref sem þarf.“ Núna eru vörurnar á kynning- arverði og þær selja tvær krukkur saman á 950 kr. Hægt er að panta hjá hjá þeim á Facebook https:// www.facebook.com/oliviasgour- met310. Þær eru einnig á Instagram á slóðinni @oliviasgourmet310. „Við viljum að vörurnar verði þekktar og viðurkenndar sem ný- stárlegar vörur á íslenskum markaði og við stefnum mögulega á að fram- leiða fleiri matvörur síðar.“ Það má segja að vörurnar séu sameining tveggja matar-menning- arheima, íslenskt hráefni með latín- salvadorísku bragði. Þess má geta að nafnið á vörunum „Olivia‘s gour- met“ er innblásið af nafni dóttur Andreu sem er heitir Olivia og er bráðum sjö mánaða. Láta nýja drauma rætast Mæðgurnar, sem koma upp- runalega frá El Salvador, fluttu til Íslands árið 2016 og síðan hefur fjöl- skyldan stækkað. Andrea giftist Ey- þóri manni sínum sumarið 2019 og þeim fæddist dóttirin Olivia sl. vor. „Ísland er landið okkar núna, hér hefur verið vel tekið á móti okkur með ást og góðvild sem hefur gert okkur kleift að eignast nýtt líf og láta nýja drauma rætast.“ Fengu tækifærið upp í hendurnar  Frumkvöðlar að störfum í Borgarnesi  Mæðgur frá El Salvador framleiða sultur úr grænum tómötum  „Ísland er landið okkar núna“  Með aðstöðu í eldhúsi Matarsmiðju Vesturlands Morgunblaðið/Guðrún Vala Mægður Andrea Maria Sosa Salinas ásamt móður sinni, Silvíu Dinora, og sjö mánaða dóttur, Oliviu, sem vörulínan er nefnd eftir, Olivia’s Gourmet. Sultur Svona líta krukkurnar út sem þær mæðgur í Borgarnesi framleiða. Hráefni Tómatar sem notaðir eru í sulturnar frá þeim mæðgum. Fyrsta íbúðarhúsið sem byggt hefur verið á Fáskrúðsfirði frá því fyrir bankahrun er að rísa. Raunar hafa tveir grunnar verið teknir við sömu götuna frá því í sumar. „Konan mín er fædd hér og uppalin og starfar sem aðstoðar- skólastjóri. Ég er úr Reykjavík. Við bjuggum hér í nokkur ár og eigum tvo drengi. Meirihluti fjöl- skyldunnar réð því að hér mun- um við búa, í kyrrðinni. Það eru allt önnur skilyrði að búa hér en í Reykjavík, við fjallið og sjóinn,“ segir Róbert Óskar Sigurvalda- son framkvæmdastjóri sem er að byggja einbýlishús við Stekkholt ásamt konu sinni, Önnu Marín Þórarinsdóttur. Hann segir að fá ný hús hafi verið til sölu og þá hafi þurft að byggja. Róbert rekur fyrirtæki sem er í fjárfestingum í Reykjavík og seg- ist geta unnið að hluta til fyrir austan en tekið líka skorpur í vinnunni í Reykjavík. „Ég er mik- ill Reykvíkingur en eftir að hafa verið fastagestur hér í fimmtán ár, frá því við Anna byrjuðum saman, sé ég hvað færist mikil ró yfir þegar maður kemur á firð- ina. Þar er ekki sama stressið, í raun annar þankagangur,“ segir Róbert. helgi@mbl.is Meirihlutinn ræður búsetu  Fyrstu íbúðarhúsin frá því fyrir bankahrun eru að rísa á Fáskrúðsfirði  „Færist ró yfir þegar komið er á firðina“ Morgunblaðið/Albert Kemp Sökklar steyptir Karl Georg Kjartansson, Róbert Sigurvaldason og Grétar Geirsson í grunni einbýlishúss sem verið er að byggja fyrir Róbert.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.