Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 32

Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 32
Nýliðun loðnu og heildarloðnuafl i frá 1980 2.000 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 200 175 150 125 100 75 50 25 0 8 g 6 g 4 g 2 g Júní-september Október-desember Janúar-mars '80 '84 '88 '92 '96 '00 '04 '08 '12 '16 '20 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 '80 '85 '90 '95 '00 '05 '10 '15 Vísitala ungfi sks 1980-2020 Meðalþyngd 1 árs loðnu að hausti 1979-2020 (grömm) Heildarloðnuafl i Milljarðar fi ska Þús. tonn Engar loðnuveið- ar 2019 og 2020 og skv. ráðgjöf ekki í vetur, 2021 2020: Hæsta vísitala ungfi sks síðan 1995 Hæsta vísitala síðan 2010 Heimild: Hafrannsóknastofnun Meðaltal FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Væntingar eru um góða loðnuvertíð veturinn 2022 og eru þær vonir byggðar á mælingum á ungloðnu núna í september, en hún myndar hrygningar- og veiðistofn á vertíð- inni sem hefst eftir rúmt ár. Hversu stór vertíðin verður leiðir tím- inn í ljós, en af- rán, fæða og umhverfisskilyrði í hafinu ráða miklu um hvernig þessum árgangi loðnunnar reiðir af og hversu sterkur hann verður þegar hann kemur til hrygningar í febrúar og mars 2022. Á heimasíðu Hafrannsóknastofn- unar er að finna grein um stofnmat þar sem segir að ekkert upphafs- aflamark sé sett ef vísitalan er lægri en 50. Aflamarkið vaxi síðan línulega þar til vísitalan sé 127, en þá sé sett þak á upphafsaflamarkið, 400 þús- und tonn. Alþjóðahafrannsóknaráðið gefur út ráðgjöf um upphafs- aflamark 30. nóvember. Um og yfir milljón tonn Í leiðangrinum í haust mældust um 146 milljarðar einstaklingar, vísitala 146, eða 734 þúsund tonn af ókynþroska loðnu. Samkvæmt því ætti upphafsaflamark vertíðarinnar 2022 að verða 400 þúsund tonn. Það verður síðan endurskoðað næsta haust og aftur í ársbyrjun 2022 og gæti ráðgjöfin hækkað eða lækkað eins og dæmin sýna. Í fyrrahaust mældust tæplega 83 milljarðar af ungloðnu eða 608 þúsund tonn af ókynþroska loðnu en samkvæmt aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt sé með upphafsaflamarki. Fyrir 20-30 árum þegar vísitala ungloðnu var í kringum 100 veiddust iðulega um og yfir milljón tonn á næsta fiskveiðiári á eftir. Í fyrra- haust var vísitalan 82.6 og gefið var út upphafsaflamark upp á 170 þús- und tonn, sem nú hefur verið dregið til baka. Birkir Bárðarson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, viðurkennir að nokkur bjartsýni ríki í kjölfar mælinganna á ungloðnu í haust og að upphafsaflamark fyrir 2021/2022 gæti orðið eins og hér hefur verið lýst. Sú ráðgjöf er nú í vinnslu og verður yfirfarin af Alþjóðahafrann- sóknaráðinu. Hann leggur þó áherslu á að langt sé til þessarar vertíðar og fróðlegt verði að sjá hvað mælist í næsta haustleiðangri. Birkir segir að nokkrir þættir hafi verið jákvæðir í leiðangrinum í haust. Þannig hafi fjöldi einstaklinga ungloðnu verið mun meiri núna heldur en síðustu ár og sá næstmesti í sögunni, aðeins 1995 hafi fjöldinn verið meiri. Þá hafi dreifing ungloðnu í Græn- landshafi verið meiri og jafnari held- ur en í fyrrahaust, en mest var af ungloðnu vestast og sunnantil á svæðinu. Í fyrrahaust voru vísbend- ingar um óvissu í ungloðnumæling- unni en óvissan er ekki talin eins mikil nú. Birkir segir að meðalþyngd ung- loðnunnar hafi verið nokkru lægri í haust heldur en síðustu fimm ár. Undanfarin ár, þegar stofninn var í lægð, hafi meðalþyngdin verið há í sögulegu samhengi án þess að það hafi skilað nægilega stórum hrygn- ingarstofni til að heimila veiðar. Mergð af ungri loðnu „Ef við skoðum meðalþyngd ung- loðnunnar í sögulegu samhengi þá var meðalþyngdin frekar lág á ár- unum fyrir aldamótin þegar loðnu- stofninn var mjög stór og miklar loðnuveiðar voru stundaðar,“ segir Birkir. „Meðalþyngdin núna nálg- aðist það sem var á árum áður og það ásamt hárri vísitölu með mergð af ungri loðnu eru því þættir sem voru svipaðir þegar stofninn var stór, en við verðum að horfa á þetta í ljósi þess að aðstæður hafa breyst og því ekki hægt að alhæfa um fram- vinduna þó margir voni vissulega að hlutirnir séu að færast í fyrra horf.“ Birkir segir að lág meðalþyngd geti verið afleiðing mikils þéttleika loðnunnar í uppvextinum. Einnig hafi verið uppi vangaveltur um hvort hluti loðnuungviðis geti verið að lenda í óhagstæðum uppvaxtarskil- yrðum, t.d. tengt aukinni hrygningu fyrir norðan. Síðustu ár hafi verið af- mörkuð dæmi um hægvaxta loðnu t.d. fyrir norðan og austan land. Sömuleiðis hafi hægvaxta loðna fundist við Færeyjar í vor sem hugs- anlega gæti tengst því, en eftir sé að staðfesta að hún hafi komið frá Ís- landi. Birkir segir að þetta geti sýnt að hluti stofnsins hafi lent í erfiðum vaxtarskilyrðum. Breyttar aðstæður í hafinnu „Umhverfisaðstæður í hafinu eru ekki þær sömu og á árunum fyrir aldamót. Þannig hefur orðið nokkur hlýnun og útbreiðslusvæði loðnunn- ar og göngumynstur hafa breyst, en reyndar hefur hlýnunin að einhverju leyti gengið til baka allra síðustu ár,“ segir Birkir. „Það sem þarf að gerast á mánuðunum fram að vertíð- inni 2022 er að skilyrðin í hafinu verði loðnunni hagstæð, en umhverf- ið, fæðuframboðið og át afræningja munu síðan skera úr um það hvað verður eftir í ársbyrjun 2022.“ Loðnan er lykilfæðutegund í vist- kerfinu við landið og ber þangað mikla orku norðan að þegar hún kemur inn yfir íslenska landgrunnið og verður aðgengileg nytjastofnum eins og t.d. þorski, ufsa og ýsu sem þurfa sitt ásamt sjávarspendýrum og fuglum. Væntingar um góða vertíð 2022  Mælingar á ungloðnu í haust lofa góðu um vertíð eftir rúmt ár  Sambærilegt við stærstu árganga  Búist við að veitt verði ráðgjöf um 400 þúsund tonna upphafsaflamark  Gæti hækkað eða lækkað Ljósmynd/Birkir Bárðarson Vísindi Greining og mæling fiska í nýafstöðnum loðnuleiðangri Hafrannsóknastofnunar, frá vinstri eru Ragnhildur Ólafsdóttir rannsóknamaður, Warsha Shing vistfræðingur og Sólrún Sigurgeirsdóttir líffræðingur. Birkir Bárðarson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Að óbreyttu verður ekki loðnuvertíð í vetur þar sem mælingar haustsins gáfu niðurstöður undir þeim mörk- um sem sett eru í aflareglu. Yrði það þá þriðja veturinn í röð, sem loðnubrestur verður hér á landi, en slíkt hefur aldrei gerst áður. Hafrannsóknastofnun mun samkvæmt venju mæla veiðistofn loðnu í janúar/febrúar 2021 og endurskoða ráðgjöfina í ljósi þeirra mælinga. Þrátt fyrir vonbrigði með niðurstöðu mælinganna í haust sögðust útgerðarmenn, sem rætt var við í síðustu viku, vera vongóðir um vertíð. Bentu þeir á góða ung- loðnumælingu á árganginum frá 2019 fyrir ári og að haf- ís á norðanverðu rannsóknarsvæðinu hefði hindrað áætl- aða yfirferð þar að hluta nú í haust. Í sumum tilfellum hafi loðnu verið að finna í námunda við hafísinn. „Því gæti verið um að ræða vanmat á magni kynþroska stofn- hlutans, en ekki er unnt að meta umfang þess,“ sagði frétt frá Hafrannsóknastofnun fyrir í síðustu viku. Útgerðarmaður sem rætt var við í vikunni sagðist bjartsýnn á vertíð í vetur, bæði vegna þess að ekki hefði tekist að komast yfir allt útbreiðslusvæðið þar sem loðnu hefði verið von. Einnig með það í huga að síðasta áratug þegar upphafsaflamark hefði verið gefið út hefði alltaf orðið vertíð rúmlega ári seinna. Stundum hefði ungloðnumæling gefið núll, en eigi að síður hefðu veiðar verið leyfðar. Gildandi aflaregla byggir á því að skilja eftir 150 þús- und tonn til hrygningar í mars 2021 með 95% líkum. Í henni er tekið tillit til óvissumats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk afráns þorsks, ýsu og ufsa á loðnu. Vongóðir þrátt fyrir ráðgjöf  Vanmat vegna hafíss  Upphafsaflamark lofaði góðu Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíðin 2016 Beitir NK og Venus NS á miðunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.