Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími8.00-16.30
Hakk,
gúllas,
bjúgu,
folaldakjöt
og bara
nefndu það
Kjötbúð Kjötsmiðjunnar – Ekki bara steikur
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Frystitogarinn Örfirisey RE 4, sem
Brim hf. gerir út, hefur undanfarnar
vikur verið í Slippnum í Reykjavík.
Eftir barning í úthafinu mánuðum
saman var togarinn farinn að láta
verulega á sjá og mikil þörf á því að
taka hann rækilega í gegn.
Örfirisey RE kom til Reykjavíkur
að morgni 28. september sl. eftir
hefðbundna veiðiferð. Aflinn var
rúmlega 1.000 tonn ef miðað er við
fisk upp úr sjó. Þegar búið var að
landa úr Örfirisey var skipið tekið í
slipp þar sem fram undan var vél-
arupptekt, málun og hefðbundið við-
hald. Þeir vegfarendur sem hafa
reglulega átt leið um Slippsvæðið
hafa getað fylgst með því hvernig
ryð og skemmdir viku smám saman
fyrir björtum fánalitunum. Og þegar
þetta rúmlega þrítuga gamla skip
verður sjósett að nýju verður það
orðið eins og nýsleginn túskildingur.
Það mun halda á veiðar á ný fljót-
lega upp úr næstu mánaðamótum.
Örfirisey er stálskip, smíðað í
Kristiansund í Noregi árið 1988. Það
hét fyrst Pólarborg og var gert út
frá Færeyjum. En útgerðin varð
gjaldþrota og Grandi hf. keypti skip-
ið til landsins árið 1992. Síðar fékk
útgerðarfélagið nafnið HB Grandi
og enn síðar Brim. Ýmsar breyt-
ingar hafa verið gerðar á skipinu í
gegnum tíðina. Það var lengt um 10
metra í Póllandi 1998 og mælist eftir
það 1.845 brúttótonn. Árið 2014 voru
settir veltitankar í skipið, sem juku
sjóhæfni þess til muna.
Þess hefur verið gætt að hafa ætíð
nýjasta vinnslubúnað í skipinu, bæði
til að vinna aflann og frysta. Árið
2012 setti Kælismiðjan Frost nýtt
frystikerfi um borð í Örfirisey. Það
var fyrsta íslenska skipið sem skipti
yfir í umhverfisvænt NH3 (amm-
oníakskerfi) og aflagði eldra R22
freon-kerfi, en vegna ósoneyðandi
áhrifa var að mestu bannað að nota
R22 eftir 1. janúar 2014.
Brim gerir út tvo vel útbúna
frystitogara sem veiða grálúðu,
karfa, þorsk, ýsu, ufsa, gulllax og
makríl auk ýmissa annarra fiskteg-
unda. Aflinn er stærðarflokkaður og
ýmist flakaður eða frystur heill um
leið og hann kemur um borð.
Afar fengsæl systurskip
Auk Örfiriseyjar gerir Brim hf. út
systurskipið Höfrung lll. Bæði þessi
skip hafa aflað vel í gegnum tíðina
og verið í hópi fengsælustu togara
íslenska flotans. Aflaverðmætið
skiptir tugum milljarða í gegnum
tíðina. Skipstjórar á Örfirisey eru nú
Þór Þórarinsson og Arnar Æv-
arsson.
Það kemur sér vel fyrir Brim hf.
að hafa Slippinn í næsta nágrenni í
Gömlu höfnina í Reykjavík. Faxa-
flóahafnir sf. eiga tvær dráttar-
brautir á Slippsvæðinu. Dráttar-
brautirnar, ásamt lóðinni þar sem
brautirnar standa, eru í dag leigðar
Stálsmiðjunni til upptöku og við-
gerða á skipum.
Á þessu svæði hafa frá því að
hafnargerð hófst í Reykjavík fyrir
rúmri öld verið stundaðar upptökur
og viðgerðir á skipum og þar er að
finna samfellda sögu þessarar at-
vinnugreinar. Erlendir ferðamenn
hafa sýnt Slipnnum mikinn áhuga og
tekið þar ljósmyndir enda hafa
margir þeirra aldrei áður séð skip á
þurru landi.
Morgunblaðið/Eggert
Fyrir Þegar Örfirisey var komin í Slippinn beið manna mikil viðhaldsvinna.
Morgunblaðið/sisi
Eftir Nokkurra vikna vinna starfsmanna Slippsins hefur skilað sér í glæsilegu skipi, sem er núna orðið eins og nýtt.
Eins og nýsleginn túskildingur
Frystitogarinn Örfirisey orðinn fínn og flottur Slippurinn í Reykjavík hefur mikið aðdráttarafl
Afurðaverð á markaði
20. okt. 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 367,57
Þorskur, slægður 343,38
Ýsa, óslægð 289,55
Ýsa, slægð 278,74
Ufsi, óslægður 126,69
Ufsi, slægður 152,70
Gullkarfi 191,28
Blálanga, óslægð 226,17
Blálanga, slægð 140,11
Langa, óslægð 220,15
Langa, slægð 140,88
Keila, óslægð 38,08
Keila, slægð 81,42
Steinbítur, óslægður 333,31
Steinbítur, slægður 450,44
Skötuselur, óslægður 307,00
Skötuselur, slægður 514,89
Grálúða, slægð 166,63
Skarkoli, slægður 358,79
Þykkvalúra, slægð 547,18
Langlúra, óslægð 210,77
Sandkoli, óslægður 15,00
Bleikja, flök 1.469,22
Gellur 922,30
Hlýri, óslægður 100,00
Hlýri, slægður 314,39
Lúða, slægð 424,19
Lýsa, óslægð 20,59
Náskata, slægð 81,36
Sandhverfa, slægð 1.312,00
Skata, slægð 125,12
Stórkjafta, slægð 468,82
Tindaskata, óslægð 7,96
Trjónukrabbi 159,00
Undirmálsýsa, óslægð 103,23
Undirmálsýsa, slægð 152,62
Undirmálsþorskur, óslægður 126,34
Undirmálsþorskur, slægður 105,29