Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 44
Marta María
mm@mbl.is
„Þegar skógarnir vaxa verður þörf á að grisja
skógana og er það hluti af heilbrigði skóga til
að gera hann sterkari gegn vindum. Einnig
verður skógurinn fallegri og bjartari útivist-
arskógur fyrir vikið. Við grisjum skógarins
fellur til timbur sem við hjá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur erum að læra að nýta. Fyrir
nokkrum árum komum við okkur upp flettisög
en með henni náum við að búa til viðarborð.
Ári síðar fjárfesti Skógræktarfélag Reykja-
víkur í klefa til að þurrka timbur. Þetta er sem
sagt tölvustýrður klefi þar sem skynjarar
skynja rakainnihald viðarins á meðan þurrkun
á sér stað. Töluverð fræði eru á bak við að
vinna timbur úr skóginum. Gæta þarf að því að
viðurinn springi ekki við þurrkun. Þetta gerir
það að verkum að nú getum við afgreitt inni-
þurran við í fyrsta skipti. Skemmtilegt dæmi
um nýtingu viðarins úr Heiðmörk er baðher-
bergisinnrétting sem Ari Þorleifsson gerði úr
ösp úr Heiðmörk,“ segir Auður Kjartans-
dóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur.
Arkitektinn, Ari Þorleifsson, segist hafa val-
ið ösp vegna þess hve falleg hún er og nokkuð
sérstæð í útliti. Hann segir að öspin hafi lítið
sem ekkert verið notuð og því gaman að prófa.
Viðurinn sé mjúkur og fínt að vinna með hann.
Hann starfar hjá arkitektastofunni Basalt og
segir mikið lagt upp úr því að nota umhverf-
isvæn efni í verkefnum sem stofan tekur að
sér.
Basalt hannaði til dæmis VÖK Baths sem
stendur við Urriðavatn hjá Egilsstöðum. Böð-
in hafa algerlega slegið í gegn og þykja ein-
staklega fallega hönnuð. Þar var lerki úr ná-
grenninu notað í klæðningu og palla. Ari segist
oft leggja það til við viðskiptavini að notað sé
timbur, gjarna íslenskt, og fólk sé spennt fyrir
því. Áhuginn á að nota íslenskt timbur í hvers
kyns byggingar er svo sannarlega fyrir hendi
að mati Ari, en helst spurning um magn og að
auðvelt sé að nálgast efniviðinn.
Íslensk ösp úr Heiðmörk
prýðir baðinnréttinguna
Íslenskir skógar framleiða sí-
fellt meira af gæðatimbri og
góðum smíðavið. Þessi bað-
herbergisinnrétting er gott
dæmi um hvernig megi nýta ís-
lenska ösp sem felld var í Heið-
mörk í byrjun árs. Arkitektinn
Ari Þorleifsson hjá Basalt arki-
tektum á heiðurinn af hönn-
uninni.
Vinsælt VÖK Baths hafa notið mikilla vin-
sælda eftir að baðstaðurinn var opnaður í
fyrra. Basalt arkitektatofan hannaði staðinn. Veljum íslenskt Skógræktarfélag Reykjavík-
ur er með öll tæki og tól til að vinna íslensk tré
svo þau geti orðið að fallegum innréttingum.
Einstök hönnun Ari hjá Basalt arkitektastofunni hannaði þessa innréttingu en viðurinn úr henni kemur beint úr Heiðmörk en um ösp er að ræða.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
SUNNUDAGSSTEIK
Heilt lambalæri á gamla mátann.
Við eldum, þú sækir, tilbúið beint á borðið hjá þér!
Takmarkað
magn í
boði
Pantaðu í síðasta lagi föstudaginn 23. okt. á
info@matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000
Afhent milli 17.30 og 19.00 á sunnudaginn
• Meðlæti: Koníaksbætt sveppa-piparsósa,
kartöflugratín, rauðkál og salat
• Eftirréttur: Marengsbomba
Fyrir 4-6 manns
Verð 12.990 kr.