Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 44
Marta María mm@mbl.is „Þegar skógarnir vaxa verður þörf á að grisja skógana og er það hluti af heilbrigði skóga til að gera hann sterkari gegn vindum. Einnig verður skógurinn fallegri og bjartari útivist- arskógur fyrir vikið. Við grisjum skógarins fellur til timbur sem við hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur erum að læra að nýta. Fyrir nokkrum árum komum við okkur upp flettisög en með henni náum við að búa til viðarborð. Ári síðar fjárfesti Skógræktarfélag Reykja- víkur í klefa til að þurrka timbur. Þetta er sem sagt tölvustýrður klefi þar sem skynjarar skynja rakainnihald viðarins á meðan þurrkun á sér stað. Töluverð fræði eru á bak við að vinna timbur úr skóginum. Gæta þarf að því að viðurinn springi ekki við þurrkun. Þetta gerir það að verkum að nú getum við afgreitt inni- þurran við í fyrsta skipti. Skemmtilegt dæmi um nýtingu viðarins úr Heiðmörk er baðher- bergisinnrétting sem Ari Þorleifsson gerði úr ösp úr Heiðmörk,“ segir Auður Kjartans- dóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Arkitektinn, Ari Þorleifsson, segist hafa val- ið ösp vegna þess hve falleg hún er og nokkuð sérstæð í útliti. Hann segir að öspin hafi lítið sem ekkert verið notuð og því gaman að prófa. Viðurinn sé mjúkur og fínt að vinna með hann. Hann starfar hjá arkitektastofunni Basalt og segir mikið lagt upp úr því að nota umhverf- isvæn efni í verkefnum sem stofan tekur að sér. Basalt hannaði til dæmis VÖK Baths sem stendur við Urriðavatn hjá Egilsstöðum. Böð- in hafa algerlega slegið í gegn og þykja ein- staklega fallega hönnuð. Þar var lerki úr ná- grenninu notað í klæðningu og palla. Ari segist oft leggja það til við viðskiptavini að notað sé timbur, gjarna íslenskt, og fólk sé spennt fyrir því. Áhuginn á að nota íslenskt timbur í hvers kyns byggingar er svo sannarlega fyrir hendi að mati Ari, en helst spurning um magn og að auðvelt sé að nálgast efniviðinn. Íslensk ösp úr Heiðmörk prýðir baðinnréttinguna Íslenskir skógar framleiða sí- fellt meira af gæðatimbri og góðum smíðavið. Þessi bað- herbergisinnrétting er gott dæmi um hvernig megi nýta ís- lenska ösp sem felld var í Heið- mörk í byrjun árs. Arkitektinn Ari Þorleifsson hjá Basalt arki- tektum á heiðurinn af hönn- uninni. Vinsælt VÖK Baths hafa notið mikilla vin- sælda eftir að baðstaðurinn var opnaður í fyrra. Basalt arkitektatofan hannaði staðinn. Veljum íslenskt Skógræktarfélag Reykjavík- ur er með öll tæki og tól til að vinna íslensk tré svo þau geti orðið að fallegum innréttingum. Einstök hönnun Ari hjá Basalt arkitektastofunni hannaði þessa innréttingu en viðurinn úr henni kemur beint úr Heiðmörk en um ösp er að ræða. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 SUNNUDAGSSTEIK Heilt lambalæri á gamla mátann. Við eldum, þú sækir, tilbúið beint á borðið hjá þér! Takmarkað magn í boði Pantaðu í síðasta lagi föstudaginn 23. okt. á info@matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Afhent milli 17.30 og 19.00 á sunnudaginn • Meðlæti: Koníaksbætt sveppa-piparsósa, kartöflugratín, rauðkál og salat • Eftirréttur: Marengsbomba Fyrir 4-6 manns Verð 12.990 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.