Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
ÚRVAL ÚTILJÓSA
líffærin útvortis. „Ég fer strax í að-
gerð við fæðingu og gekk hún mjög
vel. Ég var þó greind með vitlausan
sjúkdóm við fæðingu og fann út
þegar ég var orðin unglingur að ég
væri með Omphalocele eftir að hafa
lesið mér endalaust til á netinu. Ég
var frekar heilbrigð sem barn en
þó alltaf lítil og létt. Það var ekki
fyrr en á unglingsárunum sem ég
fór að finna fyrir verkjum og kvill-
um en ég er einmitt núna í sterkri
lyfjameðferð út af smávegis veik-
indum en kippi mér ekki mikið upp
við það. Þegar ég er í áttunda bekk
byrjaði ég að fá svakalega maga-
krampa. Ég er sífellt slöpp og verð
ótrúlega ólík sjálfri mér. Ég hætti
að geta borðað ákveðna fæðu og við
vissum hvorki upp né niður. Ég
hafði af og til verið slöpp sem
krakki en ekkert þessu líkt. Ég
slapp mjög vel undan þessum fæð-
ingargalla en börn sem fæðast með
hann geta til dæmis orðið langveik
eða lömuð. Í kjölfarið á þessum
veikindum á unglingsárunum grein-
ist ég með magabólgur, alvarlega
sýkingu í maga og gallsteina sem
endaði með því að gallblaðran mín
var fjarlægð, ég kviðslitnaði, tók
illa upp vítamín og þurfti að fá
bæði járn og b-12, annaðhvort í æð
eða sprautuformi. Vegna vítamín-
skorts leið reglulega yfir mig og
svo var ég einnig eina og jafnvel
fyrsta manneskjan á Íslandi með
tvær starfandi, stórar og heil-
brigðar lifrar,“ segir Elenora af
fullkomnu æðruleysi.
Mótlæti og
persónulegir sigrar
Lífið er allskonar eins og við vit-
um öll og Elenora segist alltaf hafa
verið vinmörg og hamingjusöm sem
hún sé þakklát fyrir. „Ég lenti þó
af og til í því að það var gert grín
að naflanum mínum þegar ég var á
leið í íþróttir eða í sund. Ég á mjög
sára minningu um mig þegar ég
kom grátandi heim úr skólanum
einn daginn og vildi lýtaaðgerð á
naflanum mínum. Ég er sem sagt
með heimatilbúinn nafla eins og
læknarnir mínir og mamma kalla
hann en út af því að líffærin mín
voru utan líkamans þegar ég fædd-
ist þá var ég ekki með nafla.
Mamma reyndi vel og lengi að
sannfæra mig um að ég væri ein-
stök og fullkomin eins og ég væri
en það dugði ekki. Læknarnir mín-
ir höfðu alltaf sagt mér að ég ætti
rétt á að láta laga hann seinna svo
ég gerði það og sé alls ekki eftir
því,“ segir Elenora brosandi. Henni
hefur oft verið líkt við fiðrildi eða
jafnvel sjálfa Mary Poppins enda
framúrskarandi jákvæð og hvetj-
andi í öllu sem hún gerir. Hún seg-
ir þó að það hafi ekki alltaf verið
þannig. „Ég varð fyrir miklu mót-
læti þegar ég var í tíunda bekk
sem hafði mikil áhrif á mig. Ég fór
úr því að vera glöð og ham-
ingjusöm yfir í að vera mjög brotin.
Við tóku erfiðir tímar þar sem
elsku hugrakka og sterka mamma
mín tók á honum stóra sínum og
hægt og rólega og með ótrúlega
góðri hjálp frá góðu fólki tókst mér
að byggja mig upp á ný. Ég fór á
Dale Carnegie-námskeið sem
breytti lífi mínu og út frá því hófst
vegferðin sem ég er á í dag. Ég fór
að trúa því að ég gæti allt sem ég
ætlaði mér og upp frá því hef ég
umkringt mig með fólki sem hefur
jákvæð og hvetjandi áhrif á mig.
Það má segja að ég hafi end-
urfæðst að einhverju leyti þar því
þetta var vendipunktur í lífi mínu.
Þjálfararnir mínir, þær Sylvía og
Eydís, bókstaflega breyttu lífi mínu
með sínum heilsteyptu, fallegu og
góðu ráðum um lífið. Að end-
urheimta sjálfstraustið var svo dýr-
mætt og í kjölfarið fer ég að baka.
Eydís taldi mér trú um að ég gæti
allt sem ég ætlaði mér og Sylvía
pantaði fyrstu kökuna hjá mér. Það
var ómetanlegt.“
Elenora segist alin upp við
bakstur og segir að mamma sín sé
framúrskarandi bakari. „Uppá-
„Það fer algjörlega eftir því
hvað ég er að búa til og hversu illa
það misheppnast. Erum við að tala
um einhvað sem ég var mjög fljót
að búa til og get reddað eða erum
við að tala um eitthvað sem ég
lagði hjartað í, eyddi mörgum
klukkutímum í og var svo spennt
fyrir. Ef það er þetta seinna sem
á við þá byrja ég yfirleitt á að há-
gráta,“ segir Elenora og það er
ekki annað hægt en að dást að því
hvað hún er opin og einlæg. „Ég
er svakalega tilfinningarík og hef
tamið mér það að leyfa öllum til-
finningum að koma alltaf þegar
þær vilja. En svo þegar ég er búin
að syrgja þá reyni ég aftur. Ég
reyni aftur og aftur, rýni í það
sem fór úrskeiðis og reyni þar til
þetta heppnast. Þannig var ferlið
með uppskriftirnar í bókinni, ég
gerði þær aftur og aftur þar til
þær voru nákvæmlega eins og ég
vildi. Ég get verið mjög þrjósk og
er ekki þekkt fyrir að gefast upp
og þá sérstaklega ekki þegar kem-
ur að bakstri.
Ljósmynd/Elenora Rós Georgesdóttir
Bakstursbiblían Í bókinni er að finna ítarlegar leiðbeiningar og nákvæmar uppskriftir.
haldsminningarnar mínar úr æsku
eru að hlaupa heim til mömmu eft-
ir skóla og þá var hún búin að
baka einhvað gott fyrir mig í
kaffinu. Bakstursáhuginn kom því
snemma enda ekkert betra en
lyktin af nýbökuðu bakkelsi heima
hjá sér. Ég fór fljótlega að baka
kökur og skreyta, kaupa allskyns
bakstursdót og horfa á allskyns
þætti. Það var svo eftir alla hvatn-
inguna sem ég fékk á Dale Carne-
gie að ég skrái mig á mat-
vælabraut í MK og byrja þar í
bakaranum strax næsta haust.“
Fríkar út þegar
frægt fólk fylgir henni
Elenora hefur verið vinsæl á
samfélagsmiðlum og hefur fylgj-
endafjöldi hennar vaxið jafnt og
þétt. Hún segir að það hafi þó
gerst eiginlega óvart og segir að
boltinn hafi byrjað að rúlla eftir
fyrsta viðtalið hennar á K100. „Ég
fer þar inn ofboðslega stressuð en
gleymdi mér síðan alveg því það
var svo gaman. Þegar ég geng út
hafa um 500 nýir fylgjendur bæst
við. Í kjölfarið birtist grein á
mbl.is sem skólinn minn og margir
fleiri deila. Mér brá ólýsanlega en
ég tók þessu samt fagnandi. Eftir
það hélst fylgjendahópurinn frem-
ur óbreyttur þangað til bókaferlið
byrjaði. Þegar ég tilkynnti síðan
að ég væri að gefa út bók sprakk
allt! Þá voru svo margir að deila
fréttinni, fréttin fór á mbl.is, í
Morgunblaðið og svo var viðtal við
mig á K100. Núna, bara síðan
bókaferlið byrjaði eða síðan í apr-
íln hafa um 1.200 fylgjendur bæst
í hópinn. Það er alltaf ánægjulegt
að sjá nýtt fólk streyma inn og
stundum fríka ég út þegar þekktir
einstaklingar byrja að fylgja mér,“
segir Elenora en hún er þekkt á
Instagram sem Bakaranora.
Allir geta bakað
ef uppskriftin er góð
Að baka eru heilmikil vísindi og
oft hefur verið sagt að það sé ekki
á allra færi að baka. Elenora er
allsendis ósammála því. „Bakara-
meistarinn minn sagði mér einu
sinni að á bak við alla góða bakara
væru góðar uppskriftir. Flóknara
væri að ekki. Svo lengi sem fólk er
með góðar uppskriftir geta allir
bakað. Með rétt hráefni, góð tæki
og tól og nákvæma bragðgóða
uppskrift er ekkert mál að baka
einhvað ljúffengt. Þetta getur tek-
ið tíma og þolinmæði en það er svo
sannarlega þess virði á endanum,“
segir hún en þeir sem þekkja hana
vita að það er bráðfyndið þegar
eitthvað misheppnast hjá henni í
bakstrinum. Elenora sé þekkt fyr-
ir gefa tilfinningum sínum lausan
tauminn og því sé hún óhrædd við
þær allar. Spurð að því hversu
miður sín hún verði ef eitthvað
misheppnast segir hún að það fari
eftir ýmsu.