Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Við Fellsmúla | Sími: 585 2888 ÚRVAL ÚTILJÓSA líffærin útvortis. „Ég fer strax í að- gerð við fæðingu og gekk hún mjög vel. Ég var þó greind með vitlausan sjúkdóm við fæðingu og fann út þegar ég var orðin unglingur að ég væri með Omphalocele eftir að hafa lesið mér endalaust til á netinu. Ég var frekar heilbrigð sem barn en þó alltaf lítil og létt. Það var ekki fyrr en á unglingsárunum sem ég fór að finna fyrir verkjum og kvill- um en ég er einmitt núna í sterkri lyfjameðferð út af smávegis veik- indum en kippi mér ekki mikið upp við það. Þegar ég er í áttunda bekk byrjaði ég að fá svakalega maga- krampa. Ég er sífellt slöpp og verð ótrúlega ólík sjálfri mér. Ég hætti að geta borðað ákveðna fæðu og við vissum hvorki upp né niður. Ég hafði af og til verið slöpp sem krakki en ekkert þessu líkt. Ég slapp mjög vel undan þessum fæð- ingargalla en börn sem fæðast með hann geta til dæmis orðið langveik eða lömuð. Í kjölfarið á þessum veikindum á unglingsárunum grein- ist ég með magabólgur, alvarlega sýkingu í maga og gallsteina sem endaði með því að gallblaðran mín var fjarlægð, ég kviðslitnaði, tók illa upp vítamín og þurfti að fá bæði járn og b-12, annaðhvort í æð eða sprautuformi. Vegna vítamín- skorts leið reglulega yfir mig og svo var ég einnig eina og jafnvel fyrsta manneskjan á Íslandi með tvær starfandi, stórar og heil- brigðar lifrar,“ segir Elenora af fullkomnu æðruleysi. Mótlæti og persónulegir sigrar Lífið er allskonar eins og við vit- um öll og Elenora segist alltaf hafa verið vinmörg og hamingjusöm sem hún sé þakklát fyrir. „Ég lenti þó af og til í því að það var gert grín að naflanum mínum þegar ég var á leið í íþróttir eða í sund. Ég á mjög sára minningu um mig þegar ég kom grátandi heim úr skólanum einn daginn og vildi lýtaaðgerð á naflanum mínum. Ég er sem sagt með heimatilbúinn nafla eins og læknarnir mínir og mamma kalla hann en út af því að líffærin mín voru utan líkamans þegar ég fædd- ist þá var ég ekki með nafla. Mamma reyndi vel og lengi að sannfæra mig um að ég væri ein- stök og fullkomin eins og ég væri en það dugði ekki. Læknarnir mín- ir höfðu alltaf sagt mér að ég ætti rétt á að láta laga hann seinna svo ég gerði það og sé alls ekki eftir því,“ segir Elenora brosandi. Henni hefur oft verið líkt við fiðrildi eða jafnvel sjálfa Mary Poppins enda framúrskarandi jákvæð og hvetj- andi í öllu sem hún gerir. Hún seg- ir þó að það hafi ekki alltaf verið þannig. „Ég varð fyrir miklu mót- læti þegar ég var í tíunda bekk sem hafði mikil áhrif á mig. Ég fór úr því að vera glöð og ham- ingjusöm yfir í að vera mjög brotin. Við tóku erfiðir tímar þar sem elsku hugrakka og sterka mamma mín tók á honum stóra sínum og hægt og rólega og með ótrúlega góðri hjálp frá góðu fólki tókst mér að byggja mig upp á ný. Ég fór á Dale Carnegie-námskeið sem breytti lífi mínu og út frá því hófst vegferðin sem ég er á í dag. Ég fór að trúa því að ég gæti allt sem ég ætlaði mér og upp frá því hef ég umkringt mig með fólki sem hefur jákvæð og hvetjandi áhrif á mig. Það má segja að ég hafi end- urfæðst að einhverju leyti þar því þetta var vendipunktur í lífi mínu. Þjálfararnir mínir, þær Sylvía og Eydís, bókstaflega breyttu lífi mínu með sínum heilsteyptu, fallegu og góðu ráðum um lífið. Að end- urheimta sjálfstraustið var svo dýr- mætt og í kjölfarið fer ég að baka. Eydís taldi mér trú um að ég gæti allt sem ég ætlaði mér og Sylvía pantaði fyrstu kökuna hjá mér. Það var ómetanlegt.“ Elenora segist alin upp við bakstur og segir að mamma sín sé framúrskarandi bakari. „Uppá- „Það fer algjörlega eftir því hvað ég er að búa til og hversu illa það misheppnast. Erum við að tala um einhvað sem ég var mjög fljót að búa til og get reddað eða erum við að tala um eitthvað sem ég lagði hjartað í, eyddi mörgum klukkutímum í og var svo spennt fyrir. Ef það er þetta seinna sem á við þá byrja ég yfirleitt á að há- gráta,“ segir Elenora og það er ekki annað hægt en að dást að því hvað hún er opin og einlæg. „Ég er svakalega tilfinningarík og hef tamið mér það að leyfa öllum til- finningum að koma alltaf þegar þær vilja. En svo þegar ég er búin að syrgja þá reyni ég aftur. Ég reyni aftur og aftur, rýni í það sem fór úrskeiðis og reyni þar til þetta heppnast. Þannig var ferlið með uppskriftirnar í bókinni, ég gerði þær aftur og aftur þar til þær voru nákvæmlega eins og ég vildi. Ég get verið mjög þrjósk og er ekki þekkt fyrir að gefast upp og þá sérstaklega ekki þegar kem- ur að bakstri. Ljósmynd/Elenora Rós Georgesdóttir Bakstursbiblían Í bókinni er að finna ítarlegar leiðbeiningar og nákvæmar uppskriftir. haldsminningarnar mínar úr æsku eru að hlaupa heim til mömmu eft- ir skóla og þá var hún búin að baka einhvað gott fyrir mig í kaffinu. Bakstursáhuginn kom því snemma enda ekkert betra en lyktin af nýbökuðu bakkelsi heima hjá sér. Ég fór fljótlega að baka kökur og skreyta, kaupa allskyns bakstursdót og horfa á allskyns þætti. Það var svo eftir alla hvatn- inguna sem ég fékk á Dale Carne- gie að ég skrái mig á mat- vælabraut í MK og byrja þar í bakaranum strax næsta haust.“ Fríkar út þegar frægt fólk fylgir henni Elenora hefur verið vinsæl á samfélagsmiðlum og hefur fylgj- endafjöldi hennar vaxið jafnt og þétt. Hún segir að það hafi þó gerst eiginlega óvart og segir að boltinn hafi byrjað að rúlla eftir fyrsta viðtalið hennar á K100. „Ég fer þar inn ofboðslega stressuð en gleymdi mér síðan alveg því það var svo gaman. Þegar ég geng út hafa um 500 nýir fylgjendur bæst við. Í kjölfarið birtist grein á mbl.is sem skólinn minn og margir fleiri deila. Mér brá ólýsanlega en ég tók þessu samt fagnandi. Eftir það hélst fylgjendahópurinn frem- ur óbreyttur þangað til bókaferlið byrjaði. Þegar ég tilkynnti síðan að ég væri að gefa út bók sprakk allt! Þá voru svo margir að deila fréttinni, fréttin fór á mbl.is, í Morgunblaðið og svo var viðtal við mig á K100. Núna, bara síðan bókaferlið byrjaði eða síðan í apr- íln hafa um 1.200 fylgjendur bæst í hópinn. Það er alltaf ánægjulegt að sjá nýtt fólk streyma inn og stundum fríka ég út þegar þekktir einstaklingar byrja að fylgja mér,“ segir Elenora en hún er þekkt á Instagram sem Bakaranora. Allir geta bakað ef uppskriftin er góð Að baka eru heilmikil vísindi og oft hefur verið sagt að það sé ekki á allra færi að baka. Elenora er allsendis ósammála því. „Bakara- meistarinn minn sagði mér einu sinni að á bak við alla góða bakara væru góðar uppskriftir. Flóknara væri að ekki. Svo lengi sem fólk er með góðar uppskriftir geta allir bakað. Með rétt hráefni, góð tæki og tól og nákvæma bragðgóða uppskrift er ekkert mál að baka einhvað ljúffengt. Þetta getur tek- ið tíma og þolinmæði en það er svo sannarlega þess virði á endanum,“ segir hún en þeir sem þekkja hana vita að það er bráðfyndið þegar eitthvað misheppnast hjá henni í bakstrinum. Elenora sé þekkt fyr- ir gefa tilfinningum sínum lausan tauminn og því sé hún óhrædd við þær allar. Spurð að því hversu miður sín hún verði ef eitthvað misheppnast segir hún að það fari eftir ýmsu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.