Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 52

Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 ✝ Þórir BarðdalÓlason fæddist í Reykjavík þann 31. október 1958. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans þann 14. október 2020. For- eldrar hans voru Sesselja Engilráð Guðnadóttir, f. 2.3. 1920, d. 25.4. 2017, og Óli Sigurjón Barðdal, f. 5.6. 1917, d. 22.2. 1983. Systkini Þóris eru: Jón Arnar Barðdal, f. 18.5. 1943, Hörður Barðdal, f. 22.5. 1946, d. 4.8. 2009, Reynir Barðdal, f. 21.6. 1949, Óli Sigurjón Barð- dal, f. 10.12. 1955, d. 27.6. 1961, unarskóla Íslands á sínum yngri árum og meðfram skóla vann hann á Seglagerðinni Ægi. Þór- ir stundaði nám við Myndlista – og handíðaskóla Íslands og síð- ar við Listaakademíuna í Stutt- gart í Þýskalandi og útskrif- aðist þaðan sem myndhöggvari. Þórir starfaði um skeið við höggmyndalist í Houston í Tex- as í Bandaríkjunum og í Portú- gal. Hann flutti aftur heim til Ís- lands árið 1996 og starfaði í nokkur ár við höggmyndalist og legsteinagerð og stofnaði stein- smiðjuna Sólsteina og Stein- smiðju Akureyrar. Þórir, ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Olsen, stofnaði hugleiðsluskólann Lót- ushús árið 2000, sem tilheyrir alþjóðlegu samtökunum Brahma Kumaris World Spiri- tual University, sem starfar enn í dag. og hálfsystir, Krist- ín Ragnheiður Er- lendsdóttir, f. 5.2. 1939. Árið 1989 giftist Þórir Sigrúnu Ol- sen, f. 4.5. 1954, d. 18.4. 2018. For- eldrar hennar voru Lilja Enoksdóttir, f. 7.9. 1928, og Ólaf Olsen, f. 27.6. 1924, d. 28.7. 1999. Dóttir Þóris er Sara Barðdal, f. 29.6. 1988, og eiginmaður hennar er Hákon Víðir Haraldsson, f. 23.6. 1988. Synir þeirra eru Alexand- er Úlfur, f. 30.9. 2013, og Balt- asar Máni, f. 9.9. 2016. Þórir stundaði nám við Versl- Elsku pabbi hefur kvatt okkur í bili. Það sem einkenndi hann var mikill léttleiki, gleði og umburð- arlyndi. Hann var umhyggjusam- ur og fullur af kærleika og visku. Hann var alltaf til í gott spjall um lífið og tilveruna og síðustu ár lærði ég ótrúlega margt af hon- um. Hann hvatti mig til að horfast í augu við allan minn ótta og sorgir til þess að heila þær og verða frjáls og gaf mér tólin og þekk- inguna til þess að komast þangað. Hann hafði velvilja til allra og sagði mér að allir væru alltaf að leika sitt fullkomna hlutverk og því ætti maður ávallt að hugsa vel til hvers og eins. Hann fór í gegnum veikindin sín á aðdáunarverðan hátt og tók öllu með miklu æðruleysi, sátt og öryggi. En hann treysti því 100% að dramað væri fullkomið og lífið akkúrat eins og það á að vera, þó svo að það komi upp erfiðleikar eða áskoranir. Hugrekki er orð sem kemur upp þegar ég hugsa til hans, því hann var tilbúinn að horfast í augu við allt. Hann vildi kveðja þetta líf hamingjusamur og friðsæll, sem hann gerði svo sannarlega. Ég mun sakna hans hrikalega mikið og er svo þakklát fyrir tímann sem við höfðum saman og alla þekkinguna og lær- dóminn sem hann gaf til mín í orðum og hvernig hann lifði lífinu sínu. Elsku pabbi, ég óska þér gæfu og alls hins besta í ferðalaginu þínu og nýjum komandi hlutverk- um. Takk fyrir allar góðu minn- ingarnar sem við náðum að skapa saman. Ég elska þig ávallt og veit að við munum hittast aftur seinna. Sara Barðdal Þórisdóttir. Elsku Þórir. Það er svo stutt síðan við kvöddum hana Sigrúnu systur mína eftir erfið veikindi. Þú hugs- aðir svo vel um hana og gerðir alla hluti fallega í kringum hana. Þið voruð í fallegasta sambandi sem ég hef séð. Það voru mín for- réttindi að vera með ykkur í hennar veikindum. Ég vissi alltaf að ég ætti góðan mág í þér, en þarna koma svo vel í ljós hversu yndislegur þú varst. Ein sú kær- leiksríkasta manneskja sem ég hef kynnst. Þú studdir hana syst- ur mína í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Ekki bara hana heldur okkur öll í fjölskyldunni. Þú tengdist sonum mínum öllum sterkum böndum. Sérstakt sam- band var á milli ykkar Brjáns þar sem hann átti ykkur hjónin nán- ast sem annað foreldrasett. Þú ásamt systur minn hafðir mikil áhrif á hans líf og þið voruð alltaf til staðar fyrir hann. Fyrir það er ég óendanlega þakklát. Þegar ég lít yfir líf ykkar hjóna þá var það einstaklega skemmti- legt. Þið unnuð alla tíð saman, voruð bæði miklir listamenn hélduð margar myndlistasýning- ar bæði hér á landi og erlendis. Þið voruð hugmyndarík og skap- andi, aldrei vandamál bara lausn- ir. Þið ferðuðust um öll heimsins höf. Á ferð ykkar um Indland fyr- ir rúmum 20 árum kynntust þið þekkingarskólanum Brahma Kumaris World Spiritual Uni- versity. Þá var ekki aftur snúið. Þið höfðuð fundið ykkar tilgang í þessu lífi. Þið stofnuðuð Lótus- hús þar sem þið rákuð hugleiðslu- skóla á Íslandi og átti hann hug ykkar allan, þar hjálpuðuð þið þúsundum landsmanna við að takast á við streitu og vanlíðan. Þú varst einn af þeim öðling- um sem vannst verk þín í hljóði. Það kom okkur öllum á óvart þegar þú greindist með ólækn- andi krabbamein skömmu eftir að konan þín lést. Við tók að reyna að koma í veg fyrir meinið, bæði með hefðbundnum og óhefðbundnum lækningum. Þeg- ar þú vissir að þú myndir ekki vinna þessa baráttu tókstu því með einstöku æðruleysi. Þú sagð- ir við mig „ekki vera sorgmædd, þetta er allt eins og það á að vera“. Þú varst óttalaus með öllu. Heppinn varstu þegar yndis- lega dóttir þín hún Sara flutti aft- ur til landsins. Hún hugsaði svo vel um þig í veikindunum og hélt í höndina þína þegar þú kvaddir. Hún syrgir nú pabba sinn og syn- ir hennar, Alexander og Baltasar, afa sinn. Missirinn er mikill. Ég sendi þeim mínar dýpstu samúð- arkveðjur. Elsku Þórir, takk fyrir allt og allt. Kveðja Linda mágkona. Mínar fyrstu minningar um Þóri voru þegar hann vísaði mér úr herberginu sínu á Rauðalækn- um þar sem hann bjó. Ég ætlaði bara aðeins að leika mér að stóru móteli af Apollo-eldflauginni sem hann var búinn að setja saman og mála. Hann var ekkert ánægður að ég væri að þvælast inni í her- berginu hans. Þegar ég var um 10 ára var ég „undirverktaki“ hjá honum í akk- orði að kósa netaflögg í Segla- gerðinni þegar hún var úti á Granda. Ég man að þetta voru mikil uppgrip fyrir mig. Þórir hvatti mig til dáða svo að ég hamaðist á kósavélinni, mér fannst frábær hugmynd að fá greitt fyrir hvern kós. Ég heimsótti Þóri til Þýska- lands þegar hann stundaði nám við myndmótunardeild Listahá- skólans í Stuttgart árið 1985. Þar kynntist ég Þóri sem hinum and- lega leitandi manni að innri friði. Þótti mér sú leit stundum nokkuð sérstök, til dæmis þegar við vor- um að teygja og brjóta saman rúmföt eftir kúnstarinnar reglum. Einnig þegar hann raðaði hin- um ýmsu litríku orkusteinum á mig sem áttu jú eflaust að veita mér andlegan styrk og innri frið. Það var skemmtilegt og áhugavert að fylgjast með honum og pælingum hans. Með honum í leit sinni var Sig- rún Olsen, eiginkona hans, sem eins og hann kvaddi of snemma. Þau ferðuðust víða um heim og bjuggu á ýmsum stöðum, meðal annars í Portúgal þar sem við Agnes áttum yndislegan og eft- irminnilegan tíma með þeim í fal- legu sveitaþorpi í bleika húsinu sem þau gerðu haglega upp. Þórir var mikill andans maður, frábær höggmyndalistamaður, frumkvöðull og lunkinn í við- skiptum. Hann var fylginn sér og laginn til verka hvort sem var að gera upp hús eða í listinni. Þegar ég hugsa um Þóri sé ég hann fyrir mér með sitt glettna bros og þægilega nærveru. Hann var ætíð tilbúinn að hlusta og vildi alltaf vel. Ef einhver hefur fundið svarið við lífsgátunni þá er það Þórir. Ég er ekki í vafa um að Þórir er nú kominn á góðan stað, því hann trúði því að það væri líf eftir þetta líf og að við værum í löngu þroskandi ferðalagi. Nú er hann eflaust lagður af stað í næsta ferðalag með Sigrúnu sinni. Við vottum aðstandendum og vinum okkar dýpstu samúð. Óli Þór og Agnes. Þórir Barðdal ✝ Þröstur H. Elí-asson fæddist í Reykjavík 21. júní 1945. Hann and- aðist á Hjúkr- unarheimilinu Eir 11. október 2020. Hann var sonur Guðsteins Elíasar Hannessonar, f. 15. júní 1918, d. 19. feb. 1975, og Bryn- dísar Leifsdóttur, f. 29. jan. 1925, d. 7. des. 1995. Bróðir Þrastar var Ragnar Leifsson, f. 1.12. 1943, d. 29.11. 2003. Hinn 25.12. 1966 giftist Þröst- ur Guðbjörgu Friðþjófsdóttur, f. 14.6. 1941, d 1.2. 2014, dóttur Friðþjófs Þorsteinssonar og Lilju Snæbjörnsdóttur. Þau eignuðust þrjú börn sem eru: 1) Lilja, f. 28.2. 1966, maki Skúli Fyrir átti Guðrún Rós dótturina Þóreyju Lovísu Sigurmunds- dóttur, f. 21.12. 1997, sambýlis- maður Gabríel Ponzi, f. 10.8. 1993. 3) Andvana fæddur dreng- ur 27.1. 1973. Þröstur ólst upp í Brekkukoti í Reykholtsdal hjá föðursystur sinni, Helgu Laufeyju Hann- esdóttur, og Guðmundi Guðjóns- syni og börnum þeirra. Þröstur og Bogga bjuggu á Patreksfirði til ársins 1983 en fluttust á Melabraut á Seltjarn- arnesi í upphafi árs 1984 og bjuggu þar síðan. Þröstur hafði unnið ýmsa vinnu á Patreks- firði, lengstum þó sem bílstjóri, og gerðist sendibílstjóri eftir komuna suður. Útför Þrastar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 23. október 2020, klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkanna verða aðeins nánustu aðstend- endur viðstaddir en athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/1vXk18tzkEE Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Þorsteinsson, f. 23.5. 1965. Þeirra synir: Arnór Freyr, f. 22.1. 1994, og Þröstur Már, f. 10.4. 1996. 2) Helgi Leifur, f. 1.6. 1971. Fyrri kona hans var Fanney Stein- þórsdóttir, f. 12.1. 1972. Þeirra börn: Steinþór, f. 4.11. 1989, sambýliskona Tinna Björg Hilmarsdóttir, f. 11.6. 1988. Börn: Baltasar Krummi, f. 17.9. 2019, og Frið- mey Lóa, f. 17.9. 2019. María Björk, f. 12.10. 1994. Barn henn- ar: Trausti Þór Atlason, f. 16.5. 2014. Helgi og Fanney skildu. Seinni kona Helga er Guðrún Rós Maríusdóttir, f. 10.6. 1970. Þeirra dætur: Sunna Dís, f. 3.12. 2002, og Birta Sól, f. 19.8. 2005. Þröstur ólst upp í Borgarfirði. Þar kynntist hann konu sinni Boggu sem kom þangað frá Pat- reksfirði til að vinna á símstöðinni í Reykholti og í eldhúsinu í Kleppjárnsreykjaskóla. Árið 1964 fluttu þau saman vestur á Patreksfjörð og bjuggu þar þang- að til 1983 að þau settust að á Sel- tjarnarnesi þar sem þau bjuggu síðan. Eftir að þau fluttu suður kynntist Þröstur hálfbróður sín- um Ragnari, sem hann hafði vitað af í mörg ár en aðeins hitt einu sinni. Tókst með þeim náið sam- band sem gaf Þresti mikið og mikil synd að þeir bræður fengu ekki lengri tíma saman. Fyrir 35 árum kom ég inn í fjölskyldu Þrastar og fór ávallt vel á með okkur. Allan þann tíma skammaði Þröstur mig aðeins einu sinni. Þá bjó ég hjá honum og Boggu konunni hans og var að bóna bílinn. Seinna um kvöldið kom karlinn og spurði mig hvort ég væri búinn að að bóna, sem ég taldi vera. Fór hann þá með mig út, opnaði bíldyrnar og sagði: „Kallar þú þetta hreinan bíl?“ Ég hafði gleymt fölsunum. Í júní á síðasta ári veiktist Þröstur illa og fyrstu vikuna var tvísýnt um líf hans. Þröstur var samt sko ekki tilbúinn að gefast upp frekar en fyrri daginn enda hörkunagli sem kvartaði aldrei og hlífði sér aldrei. Hann var alltaf fyrstur til að hjálpa ef einhverjar framkvæmdir voru í gangi. Ef hann var í vinnu þegar aðstoðar var þörf, sem var æði oft, kom hann eftir vinnu og þá með bakk- elsi í farteskinu. En hann talaði oft um það að vinnandi menn þyrftu að borða vel. Í félagsheimilinu Breiðfirð- ingabúð varði hann miklum tíma, sérstaklega eftir að Bogga féll frá árið 2014. Fékkst hann þá við ým- islegt eins og dans og skipulag ýmissa viðburða. Dans var reynd- ar líf og yndi Þrastar og skipti þá ekki máli hvort hvort það var línudans eða gömlu dansarnir, en hvort tveggja stundaði hann í Breiðfirðingi. Í sumar fórum við Lilja, dóttir hans, hringinn um landið og er komið var á Austfirðina, þangað sem við höfðum aðeins einu sinni komið, var hringt í Þröst og spurt hvað væri væri helst hægt að skoða, því hann og Bogga ferð- uðust mikið um landið. Þá stóð ekki á svörum. Í veikindum Þrastar fór Lilja á hverjum degi og stundum tvisvar á dag til að huga að pabba sínum. Þá talaði Þröstur um hversu mikil gersemi hún væri, en ég hef aldr- ei séð eins sterk tengsl á milli tveggja persóna eins og á milli þeirra feðgina. Kæri Þröstur, á svona tímum þar sem varla má hitta nokkurn mann, var mjög sárt að geta ekki heimsótt þig á Eir. Í byrjun sept- ember þegar þú varst í mat hjá okkur talaðir þú um hvað þú varst ánægður með 75 ára afmælið sem Lilja hélt upp á fyrir þig. Þá komu saman vinir þínir og ættingjar til að fagna með þér. Það sem þú baðst mig um þá, Þröstur minn, er bón sem ég mun ekki svíkja. Að lokum vil ég segja að þú varst ekki aðeins tengdafaðir minn heldur sannur vinur. Elsku Lilja, Helgi, Gunna, ætt- ingjar og vinir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og vona að guð styrki ykkur í sorginni. Þinn tengdasonur, Skúli. Góðmennska, gleði, hjálpsemi, gjafmildi, drifkraftur, jákvæðni, húmor. Þetta eru nokkur orð sem lýstu þér svo vel. Ég man einkar vel eftir bíl- túrnum sem við tveir fórum sam- an stuttu eftir að amma féll frá. Það var æðislegur dagur sem við áttum saman. Við rúntuðum um Borgarfjörðinn meðal annars. Áður en við komum að Hömrum þá sagði ég við þig að það væri fal- legur foss á hægri hönd, en ég mundi alls ekki hvað þessi foss var kallaður eða við hvaða veg hann var. En það breytti litlu, því þú fannst hann strax. Við stopp- uðum þar í nokkra stund og skoð- uðum fossinn og virkjunina sem er við fossinn áður en við héldum áfram för okkar. Við stoppuðum svo meðal ann- ars hjá Lóu frænku í Brekkukoti og skoðuðum dýrin eins og svo oft áður. Það var alltaf svo gaman að kíkja með þér til Lóu og fá að skoða dýrin. Hvort sem ég var 5 ára eða 26. Að sjálfsögðu heimtaðir þú að við fengjum okkur að borða sam- an áður en við héldum til baka, svo við stoppuðum í Borganesi og fengum okkur gott að borða. Elsku afi. Það sem ég mun sakna þess að fá ekki að hitta þig aftur. Takk fyrir alla bíltúrana sem við fórum í saman. Ég mun virkilega sakna þess að geta spurt þig til vegar, hvort sem það væri hér í bænum eða út á landi. Þú rataðir allt. Ég mun virkilega sakna allra kvöldanna þegar þú komst í heimsókn og sömuleiðis þegar ég kíkti í heimsókn til þín og fékk að kíkja í sjoppuna góðu. Það verður tómlegt að hafa þig ekki lengur með okkur á jólunum. Það var svo gaman að vera alltaf með ein- hvern fíflagang í gjöfunum sem ég og bróðir minn gáfum þér. En engar áhyggjur, ég mun halda fíflaganginum áfram við nafna þinn. Þú varst mjög mikill kleinu- kall. Og í hvert skipti sem ég mun fá mér kleinu hér eftir mun ég hugsa fallega til þín. Þú settir alltaf aðra í forgang og varst alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum í kringum þig. Mér fannst alltaf svo vænt um hvað þú og Clelia tengdust strax vel hvort öðru. Þú skildir hana ekki alltaf því hún talaði ensku en samt urðuð þið svo náin. Undir lokin sagðirðu mér frá fallegum stað sem heitir Þakgil. Þú vildir að ég færi með Cleliu og sýndi henni hann. Ég vildi óska að ég hefði getað tekið þig með okkur þangað. En ég lofa þér því að við munum fara þangað! Ef ég gæti erft þó ekki nema 10% af þeirri góðmennsku sem þú hafðir innra með þér. Þá væri ég ánægður með sjálfan mig. Þú lifðir fyrir dansinn og kántríið. Og ég vona og veit, að þú og amma eruð núna komin í dans- skóna, og eruð byrjuð að dansa saman undir fjörugri tónlist. Takk fyrir allar minningarnar, og takk fyrir allt sem þú kenndir mér, og takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Þú varst svo mikið meira en bara afi minn. Hvíldu í friði elsku vinur. Þinn vinur og barnabarn, Arnór Freyr. Við hjónin kynntumst á Pat- reksfirði laust fyrir 1970. Þá bjuggu þau Þröstur og Bogga fyrir vestan og áttu eftir að búa þar allmörg ár enn. Lilja og Bogga voru náskyldar og miklar vinkonur alla tíð og við hittumst því oft. Eftir að við fluttumst til Reykjavíkur heimsóttu Þröstur og Bogga okkur oftar en flestir aðrir Patreksfirðingar. Það eru áreiðanlega ekki miklar ýkjur að þau hafi heimsótt okkur í hvert sinn sem þau voru bæði á ferð hér syðra og Þröstur kom iðulega í kaffisopa þegar hann var hér einn í einhverjum flutningum eða slíkt. Okkur verður svo tíðrætt um þetta af því að það sýnir einn höf- uðkost Þrastar, tryggðina. Annar var greiðviknin. Hann keyrði sendibíl eftir að þau settust að á Seltjarnarnesinu og ævinlega var hægt að fá hann til að hjálpa sér ef þurfti að flytja húsgögn, timb- ur eða hvað sem var; meira að segja úldið og daunillt innvols úr ónýtri frystikistu. Allt var þetta jafnsjálfsagt. Hins vegar var ekki eins sjálfsagt að fá að borga fyrir viðvikið. Þröstur var mikill dugnaðar- forkur og jafnan kappsamur við verk. Og hann gat skotið aðeins á aðra ef honum þótti þeir hlífa sér fullmikið. Hann vildi láta alla hluti ganga og ganga hratt. Það var hans eðli. – En tryggðin var samt hans sterkasti eðlisþáttur. Þegar Bogga veiktist af alzheim- er kom í ljós að Þröstur átti til meiri þolinmæði og umhyggju, já, miklu meiri, en flestir höfðu búist við. Hann hugsaði um konu sína af slíkri natni og alúð að ekki var hægt að benda á neina misfellu þar á. Eins og fyrr sagði var Þröstur hamhleypa til allra verka og hon- um féll sjaldan verk úr hendi. Það voru því vond tíðindi þegar hann fékk heilablæðingu og lamaðist öðrum megin. En hann tók því af karlmennsku og æðruleysi. Ól raunar lengi í brjósti von, og jafn- vel vissu, um að hann mundi ná sér og geta snúið aftur til starfa sinna, margra, og tekið allnokkur dansspor inn á milli. Með Þresti er genginn góður vinur sem verður sárt saknað og við vottum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúð. Guðni Kolbeinsson og Lilja Bergsteinsdóttir. Þröstur H. Elíasson Elsku bróðir okkar og frændi, GUNNAR ÞORVALDSSON frá Hnífsdal, lést á hjúkrunarheimilinu Fellsenda sunnudaginn 11. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Systkini og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.