Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 53

Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 ✝ Tinna MaríaÓmarsdóttir fæddist í Reykjavík 26. ágúst 1982. Hún lést þann 9. október 2020. Foreldrar hennar eru Guð- laug Traustadóttir, fædd 6. desember 1960, og Valgeir Ómar Jónsson, fæddur 23. júlí 1955. Bróðir Tinnu er Jón Elmar Ómarsson, fæddur 17. ágúst 1984 í Reykjavík, maki hans er Elvý Ósk Guðmundsdóttir. Tinna ólst upp að hluta á Eskifirði, Kópaskeri, en mest í Reykjavík, þ.e. í Fossvoginum. Hún gekk í Fossvogsskóla og kláraði tíunda bekk í Réttar- holtsskóla. Kláraði stúdends- próf frá FB í Breið- holti og þaðan fór hún í Tækniskólann í margmiðlun og forritun. Tinna eignaðist þrjú börn: Með Stefáni Harðarsyni eignaðist hún Emil- íu Silfá, fædda 17. apríl 2005, nema í tíunda bekk. Giftist hún Geir Magnússyni (þau slitu samvistir) og eignaðust þau Sögu Þöll, fædda 26. febrúar 2013, og Ými Darra, fæddan 2. júlí 2015. Útför Tinnu Maríu fer fram í dag, 23. október 2020, klukkan 11. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu verða aðeins nánustu ætt- ingjar viðstaddir útförina. Hvað verður um litla laufið sem fauk og liggur á vegi mínum? Með tilkomu haustsins lífi þess lauk samt litvarpi heldur það sínum. En haustvindar kaldir því feykja um fold og finna því legstaðinn frjóa. En hringurinn lokast, það verður að mold og upp af því aftur mun gróa. (Ragnar Þorbergs) Hvíl í friði barnið mitt. Pabbi. Það er með djúpum söknuði og trega að ég rita minning- arorð um elsku frænku mína, jafnöldru og vinkonu. Tinna bjó yfir mörgum kost- um sem ég virkilega dáðist að; hún var áræðin, djörf og hafði til að bera leiftrandi kímnigáfu. Strax sem barn stóð hún fast á sínu og lét engan vaða yfir sig. Svo var hún einstaklega skemmtileg og uppátækjasöm. Það var aldrei lognmolla í kring- um hana. Það er því ekki að undra að margar af mínum ljúf- ustu æskuminningum tengjast henni. Uppi á svefnlofti hjá ömmu og afa varð hún að tígr- isdýri og ég að blettatígri og í þeim gervum skottuðumst við um hverfið. Þegar við hins veg- ar komumst í tæri við vatn breyttumst við hið snarasta í hafmeyjur - enda töldum við að kattardýr væru sennilega ekk- ert sérlega hrifin af vatni. Í huga okkar kom aldrei ann- að til greina en að við myndum búa saman þegar við yrðum stórar ásamt börnum okkar á ættaróðali ömmu og afa í Garðs- enda. Okkar eigin Ólátagarði. Sá þráður sem spunninn var í æsku rofnaði aldrei þótt leiðir okkar lægu á ólíkar brautir. Báðar bjuggum við erlendis um tíma, en aldrei misstum við sjónar hvor á annarri. Við sam- glöddumst yfir draumum sem urðu að veruleika og gerðum okkar besta í að veita hvor ann- arri stuðning þegar sumar skýjahallirnar hrundu. Minningarnar um Tinnu frænku verma og í hjarta mér mun ég ávallt varðveita öll skemmtilegu augnablikin tengd samverustundum okkar. Eitt af því mörgu góða við að eldast er að maður kann betur að meta það góða sem maður hefur þeg- ið og hefur mótað mann frá því snemma á lífsleiðinni. Slíkan fjársjóð skilur Tinna eftir hjá mér. Ég sendi börnum Tinnu, fjöl- skyldu og aðstandendum öllum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Sunna Ebenesersdóttir. Hælarnir hennar Tinnu voru dálítið eins og rendur tígursins. Hún fór ekkert án þeirra. Í logni og byl, í frosti eða yl. Allt- af var Tinna á háu hælunum. Það var líka alveg ótrúlegt hvað hún hélt alltaf góðu jafnvægi, því ekki voru hælarnir lágir. Fyrir henni var þetta þó bara staðalbúnaður og ekki ætlaði hún að láta sjá sig á flatbotna, jafnvel þótt stígurinn væri óstöðugur. Tígurinn fer ekki úr röndunum þótt á móti blási. Það var alltaf einhver kraftur sem fylgdi Tinnu. Stutt var í brosið og smitandi hláturinn. Hún var algjör töffari og bar það vel. Rauði varaliturinn og öll flottu húðflúrin voru til marks um það. Hún átti þó líka sínar mjúku hliðar og sást það helst í tengslum við börnin hennar, hún var svo ótrúlega stolt af þeim. Tinna var hug- myndarík, skapandi og listræn og eigum við báðar falleg verk eftir hana. Hún var forvitin, ófeimin og tók sjálfa sig ekki of alvarlega. Tinna var alltaf til í að taka þátt í góðu glensi með vinkvennahópnum. Okkur er sérstaklega minnisstætt þegar við áttum skemmtilegan gæsun- ardag með henni. Hún klædd í háa hæla, tígrisgalla og tjullpils, dansandi af innlifun við „Eye of the Tiger“. Oft fór Tinna sínar eigin leið- ir, en alltaf skaraðist hennar leið við okkar á einhvern hátt. Og vá hvað það var gaman þeg- ar við vorum á sömu leið. Þá fékk maður að finna þennan kraft sem fylgdi henni. Kraft tígursins. Elsku Tinna. Við misstum þig allt of fljótt. Það er svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Elsku fjölskylda. Þið misstuð Tinnu allt of fljótt. Elsku Emilía Silfá, Saga Þöll og Ýmir Darri. Þið misstuð mömmu allt of fljótt. Við samhryggjumst öllum þeim sem misstu hana. Áslaug og Eva. Elsku mamma mín. Sakna þín á hverjum degi og gæfi allt til að hafa þig ennþá hjá mér. Þó að ég sjái þig ekki þá veit ég að þú fylgist með mér þrosk- ast og upplifa drauma mína. Þú varst besta mamma í heimi og ég elska þig út af líf- inu. Emilía Silfá. Klukkan var kortér yfir eitt eftir miðnætti þegar ég fékk óvænt símtal frá mömmu, ég vissi að eitthvað var ekki í lagi og ég svara. Þegar mamma er að segja mér hvað kom fyrir, hringir pabbi í mig á hinni lín- unni. Ég svara og hann heyrir það strax að ég veit hvað hefur gerst. Nú þegar erfið og tilfinn- ingaþung vika er liðin, sit ég hérna heima með kassa af ljós- myndum sem ég tók úr dótinu þínu sem fylgdi þér. Mikið af myndum úr Vogalandinu sem var okkar æskuheimili og þótt við flyttum á Kópasker í stuttan tíma þá komum við aftur til baka í Vogalandið. Þar áttum við sameiginlega vini í Foss- vogshverfinu sem við hópuðum saman til að fara með í „eina krónu“ og fleiri leiki. Í kass- anum voru myndir af fyrstu ut- anlandsferðinni okkar, þegar við fjölskyldan sigldum frá Eskifirði til Danmerkur og ferðuðumst á bíl niður til Spánar. Myndir frá Afríku, þegar við fórum til Ang- óla og Suður-Afríku. Afríka var mikil upplifun fyrir okkur og áttum við þar ógleymamlegar fjölskyldustundir. Ekki vantaði upp á partímyndirnar og síst myndir af vinum þínum og sést hvað þú varst mikill vinur vina þinna. Hvert ár var mikil til- hlökkun að fara til Eyja á þjóðhátíð og sama hversu mikið óveður gekk yfir þá fórstu alltaf aftur og náðir vandræðalaust að redda þér miða í dalinn að ári liðnu. Í kassanum eru myndir frá því þú fórst með vinum þín- um til Grikklands í skemmtiferð og þegar þú fórst til Frakklands sem au-pair, því það var alltaf eitthvað við frönskuna sem heillaði þig. Við að fara yfir þessar ljósmyndir koma upp margar góðar minningar og sést hvað við vorum samrýnd sem krakkar, þó svo að við værum ólík á margan hátt. Þú varst stóra systir, ákveðin og stjórn- söm og ég var litli bróðir sem fór eftir því sem þú sagðir, svona oftast, en ætíð vorum við góðir vinir. Þú sást til þess að ég vaknaði á réttum tíma í skól- ann, passaðir upp á að ég ætti alltaf mjólkurmiða og þegar kom upp ósætti á milli okkar sagði mamma alltaf „hættið að rífast því þið eruð bara tvö og hafið bara hvort annað“. Ég hugsaði ekki mikið um þessa setningu þá en ég geri það núna. Elsku Tinna, ég mun aldr- ei gleyma þeim góðu stundum sem við áttum og kveð þig með sárum söknuði. Þinn bróðir, Jón Elmar. Tinna María Ómarsdóttir✝ Kristín Jóns-dóttir fæddist 21. maí 1934 á Hrí- sateignum í Reykjavík. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 13. október 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Þorkelsson, f. 14. nóvember 1908, verkstjóri hjá Skeljungi, og Guðríður Ein- arsdóttir, f. 2. nóvember 1911, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af á Grenimel 8 í Reykjavík. Þau þær stofnuðu saumaklúbb sem hefur haldið saman í 65 ár. Hún starfaði á rannsóknarstofu Málningarverksmiðjunnar Hörpu í 51 ár. Kristín hélt heimili með for- eldrum sínum á Grenimel 8 þar til faðir hennar lést 1990 en þá fluttist hún í í Blikahóla 2 og bjó þar uns yfir lauk. Kristín var ógift og barnlaus en hún átti gott samband við systkini sín og börn þeirra. Útför Kristínar fer fram frá Lindakirkju í dag, 23. október 2020, kl. 13. Streymt er frá út- förinni á https://www.promynd.is/live/ Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat eru bæði látin. Systkini Kristínar eru: Einar, f. 1935, látinn 2006, Þor- kell, f. 1940, Óskar, f. 1941, Þór, f. 1941, Örn, f. 1944, Svan- borg, f. 1947, Guð- mundur Ingi, f. 1949 og Ásgeir, f. 1951. Kristín lauk al- mennri skólagöngu og fór síðan í Húsmæðraskólann á Ísafirði 1952-1953. Þar eign- aðist hún góðar vinkonur sem hafa haldið hópinn alla tíð síðan, Við Elísabet kveðjum elskulega systur og mágkonu og þökkum fyr- ir hlýhug og einstaka samleið í gegnum lífsins veg. Þá horfði Guð á garðinn sinn, hann greindi auðan reit, og sá þitt andlit ofurþreytt er yfir jörð hann leit. Þig örmum vafði hann undurblítt og upp þér lyfti nær, í garði Drottins dýrðlegt er því djásnin bestu hann fær. Hann vissi hve þín þraut var þung hve þjáningin var hörð, þú gengir aftur aldrei heil með okkur hér á jörð. Hann sá að erfið yrði leið og engin von um grið. Með líknarorðum lukti brá og ljúfan gaf þér frið. Þótt sárt í huga sakni þín og syrgi vinur hver við heim til Guðs, er heldur þú í hjarta fylgjum þér. (Höf. ók.) Þór og Elísabet. Hvernig get ég bara verið að skrifa minningargrein um hana Kiddý frænku, hún sem alltaf hef- ur verið til? Hún var föðursystir mín, átti engin börn sjálf og giftist aldrei og ég man að ég vorkenndi henni soldið með það þegar ég var yngri. Mamma og pabbi ákváðu að skíra mig í höfuðið á henni og komu henni á óvart með það í skírninni og mamma sagði að hún hefði hrokkið mikið við þegar hún heyrði nafnið á stelpunni, en að henni hefði þótt vænt um það. Við fjölskyldan áttum heima í Búrfelli og gistum því oft á Grenó hjá ömmu og afa þegar við komum í bæinn og vorum þá í kjallaranum hjá Kiddý. Ég fékk oft að gista á Grenó og man þegar Kiddý kom heim úr vinnunni og byrjaði strax að elda með hattinn eða húfuna á sér, mér þótti það alltaf sérstakt. Hún Kiddý var eins og amma mín og eins og amma barnanna minna. Þegar ég byrjaði búskap og flutti til Reykjavíkur þá fórum við Kiddý saman rétt fyrir jólin og keyptum jólasteikina, það varð að vera hamborgarhryggur frá rétt- um framleiðanda, ég valdi og hún borgaði. Þessum sið héldum við nöfnurnar í 25 ár en í ár verð ég að kaupa mína steik sjálf. Hún var höfðingi heim að sækja og það var aldrei neitt lítið með kaffinu hjá henni. Og það gat verið erfitt fyrir móður með 4 ung börn að heim- sækja hana því að hún átti svo mik- ið af styttum á öllum borðum sem að allar voru dýrmætar. Við sein- ustu talningu voru stytturnar 106 talsins. En aldrei brutu þau neitt fyrir henni, umgengust heimilið hennar af virðingu. Þegar haldið var afmæli lagði hún það á sig að vakna kl. 7 á morgnana og bakaði heilan stafla af pönnukökum og mætti með það í boðið og þeir sem smökkuðu þær vita að það voru bestu pönnukökur í heimi. Hún hélt upp á 85 ára afmælið sitt árið 2019 í Lúxemborg hjá systur sinni, vildi vera að heiman og fóru mamma og pabbi með henni út þá eins og svo oft áður. Þetta var virkilega gaman en jafn- framt var þetta hennar síðasta ferð erlendis. Hún var soldið sérlunduð og það sem hún ákvað það stóð og henni varð ekki haggað, en það var henni ekki alltaf til góðs. Hún var ekki búin að vera nógu hress sl. 2 ár, en þetta hlaut að lagast bara sagði hún. Frá því í vor hafði heilsu hennar hrakað og sumarið var ekki gott fyrir hana. En eitt var það sem hún ætlaði sér, hún ætlaði sér í 50 ára afmælið mitt. Hún var lögð inn á Landspítalann 2. september og þegar ég heimsótti hana 2 dögum seinna þá leit hún betur út en hún hafði gert í marga mánuði. Hún varð svo glöð þegar ég kom og tók í höndina á mér og sagði: „Ég held barasta að ég komist í afmælið þitt.“ Mánudagskvöldið 12. október hrakaði henni það mikið að henni var ekki hugað líf og lést hún á gjörgæsludeildinni umvafin fjöl- skyldunni sinni þann 13. október á 50 ára afmælisdaginn minn. Hún náði afmælinu mínu og við vorum saman, en kannski ekki eins og við ætluðum okkur. Elsku Kiddý, takk fyrir sam- fylgdina í 50 ár upp á dag, allt sem þú gerðir fyrir mig, allt sem þú gafst mér og allt það sem þú varst mér. Farðu í friði og skilaðu kveðju í Sumarlandið. Kristín Þórsdóttir. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér, ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hjartans þakkir fyrir góðvild- ina, knúsin og hjálpsemina. Nú er komið að okkur að baka pönnukök- urnar fyrir öll afmælin og æfa okk- ur að steikja fiskibollurnar sem þú gerðir af mikilli snilld, ánægju og gleði fyrir okkur og börnin okkar. Minningarnar eru ótal margar enda hefur þú verið stór hluti af okkar tilveru alla okkar ævi og ver- ið okkur og strákunum okkar sem besta amma. Okkur þykir hálfund- arleg tilhugsunin að við eigum ekki eftir að eiga fleiri góðar stundir með þér. Takk fyrir allt og við biðjum að heilsa ömmu og afa í Sumarland- inu. Hulda og Guðríður Þórsdætur. Kiddý var æskuvinakona mömmu minnar Guðrúnar Katrín- ar Guðnýjar og þær fæddust báðar árið 1934. Guðríður og Jón leigðu hjá Thelmu afasystur minni á Reykjavíkurvegi 10 og þar fæddist Kiddý. Mamma fæddist í sama húsi nokkrum mánuðum síðar. Kiddý og mamma léku sér saman þar og þær rifjuðu oft upp þennan tíma í Skerjafirðinum. En vegna stækkunar flugvallar voru húsin flutt inn á Hrísateig árið 1941. Vin- konurnar áttu núna heima í Laug- arnesinu og bjuggu sín hvorum megin við götuna. Kiddý flutti ásamt foreldrum sínum og bræðr- um á Grenimel 8 og bjó þar í mörg ár. Hún fór eitt ár í Húsmæðra- skóla og eignaðist margar vinkon- ur sem hún hafði alltaf samband við því þær voru í saumaklúbbi. Hún var mikil hannyrðakona og verk hennar voru og eru ógleym- anleg. Ung að aldri fékk hún vinnu hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu og vann þar alla tíð þar til hún komst á eftirlaunaaldur. Hún vann með efnafræðingunum og var alltaf fljót að læra nýja hluti. Harpa var á Skúlagötunni og gekk Kiddý alltaf heim á Grenimel eftir vinnu . Kiddý var einnig skáti og stund- um hitti ég hana í Skátaheimilinu þegar dansskólinn minn var þar. Kiddý og mamma voru alltaf vinkonur sem nutu þess að hittast og margar stundir áttu þær sam- an heima hjá okkur eða á Greni- mel. Alltaf vorum við velkomin að koma í heimsókn og gestrisni hennar var einstök. Vinkonurnar fóru í mörg ár að hlusta á Karla- kór Reykjavíkur og nutu þess að hlusta á fallegan söng saman. Mamma lést skyndilega árið 2002 og Kiddý hafði alltaf samband við pabba og okkur systurnar og við komum oft í fínt bakkelsiboð til hennar og alltaf var yndislegt að heyra minningar hennar um hana og mömmu. Hún hélt upp á 85 ára afmælið hjá Svanborgu systur sinni í Lúxemborg og það var af- mæli sem hún talaði stundum um að hefði komið sér á óvart hve mannmargt boðið var. Hún flutti af Grenimelnum eftir lát foreldra sinna að Blikahólum, þar hún hafði fallega fjallasýn. Kiddý átti sjö bræður og eina systur. Einar elsti bróðir hennar bjó í Karfavogi og var hún þar oft að passa börn hans og Gerðar og leit inn hjá okkur í Gnoðarvogi á leiðinni þangað. Eitt sumar þegar við vorum í or- lofi á Akureyri var Kiddý þar ásamt Þóri bróður sínum og Elísa- betu mágkonu sinni og okkur var boðið til orlofshúss þeirra sem var á frábærum hæðum Akureyrar og áttum við þar saman ógleymanlega kvöldstund. Ég talaði síðast við Kiddý í byrj- un október því ekki mátti heim- sækja hana á sjúkrahúsinu en ég vissi ekki að þetta væri okkar síð- asta samtal. Ég sendi ástvinum Kiddýjar mínar innilegustu sam- úðarkveðjur á þessari kveðju- stund. Þakkir til Kiddýjar fyrir að hafa verið í mínu lífi frá upphafi og gefið mér svo margt í fjársjóð minninga. Dídí mamma mín elskaði Kiddý vinkonu sína og þær voru alltaf vin- konur sem glöddust saman og aldrei hækkuðu röddina. Helga Erlendsdóttir. Kristín Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Kiddý mín takk fyrir samfylgdina. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. Góða ferð í sumarlandið Þín mágkona, Guðrún.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.