Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 55

Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 55
inin sagði eitt okkar á sextugs- stúdentsafmælinu: Settleg Áslaug og jafnan á yfirveguðum nótum, sómdi sér ávallt og gjarnan réð yfir góðum ráðum, en vildi samt völdin gjarnan í sínum höndum hafa, en val hennar oftast deilum til heilla haga. Að mínu viti er þetta rétt því Áslaug var áhrifamikil í okkar hópi með sinni hógværu fram- göngu og við mátum ráð hennar og undum vel við. En Áslaug var meira, hún var sérlega greind og góðum námsgáfum gædd, kenn- ari og bókasafnsfræðingur, móðir á viðburðaríku heimili, traust og ráðgefandi prestsfrú. Án alls efa var það Áslaugu að þakka að bekkurinn okkar fékk sæmdartitilinn UNDRI í MA. Mér vitanlega lét hún ekki mikið til sín taka utan starfsvettvangs síns, en allt sem hún gerði leysti hún vel svo eftir var tekið. Hún var trúuð kona og virðu- leg í allri framkomu, þannig að í návist hennar „leyfðu menn sér ekki allt“ eins og sagt er. Hún hafði bætandi áhrif á umhverfi sitt og það fólk sem hún um- gekkst. Með trega í huga kveðj- um við mæta konu og ljúfa bekkj- arsystur og vin. Með sjálfskipuðu umboði fyrir hönd bekkjarsystkina, Sr. Lárus Þorvaldur Guðmundsson. Norræn samvinna á sér langa sögu og djúpar rætur. Hennar gætir í öllum lögum þjóðfélagsins og sameinuð standa löndin sterk- ari í samfélagi þjóðanna en hvert og eitt í sínu lagi. Og víst er það að líf okkar og samskipti á Norð- urlöndum væri allt annað, og stundum mun flóknara, ef hennar nyti ekki við. Norræna húsið hefur í rúm- lega 50 ár skipað veglegan sess í menningarlífi okkar Íslendinga, fært okkur heim nýja strauma úr menningu nágrannaþjóðanna og kynnt íslenska menningu erlend- is. Styrkur og velgengni hverrar stofnunar byggist á einstakling- unum sem þar starfa og sinna starfi sínu af áhuga og alúð. Áslaug Eiríksdóttir var traust- ur og góður starfsmaður Nor- ræna hússins um langt árabil. Hún átti sinn fasta sess í hjarta hússins, bókasafninu, og tók þar á móti gestum og gangandi, alltaf róleg og yfirveguð, en glöð í fasi. Hún var vel að sér um norræn málefni og fylgdist vel með því sem var efst á baugi. Hún var mikill lestrarhestur og var einkar lagið að ræða við gesti safnsins um nýjustu bækurnar, eða benda þeim á eldri bækur sem voru henni hugleiknar. Áslaug átti líka stóran sess í hjörtum okkar sem unnum með henni í Norræna húsinu. Það var alltaf gott að hitta hana og spjalla um daginn og veginn og eiga hana að í amstri dagsins, alltaf var hún hlý og traust og jákvæð. Við áttum líka margar góðar stundir saman við leik og störf í Húsinu og á ferðum innanlands sem utan, og stundum voru fjöl- skyldurnar með. Undanfarin ár höfum við hist reglulega, oftast í Norræna húsinu, og átt saman gott spjall yfir kaffibolla, og það leyndi sér aldrei að hún bar mikla umhyggju fyrir okkur og fólkinu okkar. Ég kveð Áslaugu með trega í hjarta og þakka henni frábært samstarf í tæpa tvo áratugi og ómetanlega vináttu í rúmlega fjóra. Ég veit að ég mæli fyrir munn okkar allra, sem unnum með Ás- laugu og áttum hana að vini, að hennar er sárt saknað og að hennar er minnst með miklum hlýhug og virðingu. Innilegar samúðarkveðjur og góðar óskir til Ingólfs og allrar fjölskyldunnar. Guðrún Magnúsdóttir (Dúna). MINNINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 ✝ Árni HelgiHólm Ragn- arsson fæddist á Sauðárkróki þann 3. október 1952. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki 12. október 2020. Foreldrar hans voru hjónin Ragn- ar Björnsson, f. 25. mars 1915, d. 28. maí 1990, og Oddný Egilsdóttir, f. 8. apríl 1916, d. 4. janúar 2015, búsett í Garðakoti. Árni var næstyngstur sex systkina sem eru: Egill Ingvi, f. 1939, Björn, f. 1943, d. 2010, Pála Sigríður, f. 1949, stúlka f. and- vana 1955, og Pálmi, f. 1957, d. 2018. Þann 18. júní 1988 kvæntist Árni Guðrúnu Elísabetu Bentsdóttur, f. 1967. For- eldrar hennar eru Benth Un- dall Behrend og Alda Sig- urbjörg Ferdínandsdóttir. 1984, faðir Birgir Arason, f. 1963. Maki Ingu Berglindar er Ívar Örn Björnsson, f. 15. júlí 1979. Börn þeirra eru Krister Máni, f. 24. maí 2005, Ellen Kara, f. 17. apríl 2007, og Birgir Björn, f. 9. september 2011. Árni ólst upp í Garðakoti í Hjaltadal og bjó þar fram eftir aldri, bæði á Ingveldarstöðum og Laufskálum. Hann var bæði bóndi og bílstjóri. Þegar þau hjón hætta búskap árið 2001 flutti hann ásamt fjölskyldu sinni á Sauðárkrók, þaðan í Hafnarfjörð en árið 2015 fluttu þau til Akureyrar þar sem þau hafa búið síðan. Vegna veikinda sinna fluttist hann á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki í júlí sl. og var hann þar þang- að til hann féll frá nú í októ- ber. Útför Árna fer fram í Ak- ureyrarkirkju í dag, 23. októ- ber 2020, klukkan 13.30 og verður henni einnig streymt á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju. Slóð á streymi: https://tinyurl.com/yybfk6f4 Virkan hlekk á slóð má nálgast á https://www.mbl.is/andlat Eignuðust þau einn son, Árna Bent, f. 17. ágúst 1985, maki Heiða Kristinsdóttir, f. 27. september 1977. Dóttir Árna Bents er Guðrún Sif, f. 16. júlí 2009, og er móðir hennar Kristrún Pétursdóttir. Árni og Guðrún skildu. Þann 13. desember 1997 kvæntist Árni eftirlifandi eig- inkonu sinni Margréti Huldu Rögnvaldsdóttur, f. 9. október 1962. Foreldrar hennar voru Rögnvaldur Jónsson, f. 23. febrúar 1918, og Hulda Jóns- dóttir, f. 1. september 1921. Árni og Margrét eignuðust þrjár dætur en þær eru; Katr- ín María, f. 22. október 1997, Fjóla Sigrún, f. 15. desember 1998, og Halla Bryndís, f. 28. janúar 2001. Fyrir átti Mar- grét eina dóttur, Ingu Berg- lindi Birgisdóttur, f. 8. maí Það var fyrir nær 25 árum er ég kynntist honum Árna mín- um fyrst. Í Skagafirði. Mamma var að hitta mann, eldri mann að mér fannst en þá var hann 44 ára. Ég þekkti vart svo full- orðið fólk í þá daga og fannst mér ráðahagur móður minnar með öllu óskynsamlegur. Mér var þó allri lokið þegar ég komst að því að þessi eldri maður átti áttræða móður sem var stálslegin og þegar ég hitti hana fyrst var hún á leið norð- ur á Akureyri í heimsókn til 101 árs gamallar móður sinnar sem enn bjó heima. Það var greinilega töggur í þessu nýja fólki sem var að koma inn í líf mitt en fyrir þessa fjölskyldu verð ég ævinlega þakklát. Góð- mennska þeirra, velvild og hjálpsemi í garð annarra er engu lík. Árni kom til dyranna eins og hann var klæddur og nákvæm- lega ekkert öðruvísi. Talsmát- inn var slíkur að ég hafði ekki heyrt annað og kann það að vera hjóm eitt að eftir smá tíma varð þessi grófa tunga nær vinaleg. Hann virkaði harður út á við en hjartalagið einstakt. Því þegar nýja stjúp- dóttirin átti erfitt á vorkvöld- unum eftir að hún kom með móður sinni í Laufskála var það Árni sem settist á rúmstokkinn og þurrkaði tárvotan vanga og sagði að allt yrði í lagi. Sem það svo varð, hvað annað? Mamma var ekki svo óskynsöm eftir allt. Hann var bæði vinnusamur og duglegur og stoppaði sjald- an við. Nú, ef hann stoppaði var það einn kaffi, tvær sígar- ettur og kannski kremkex með. Hann var ekki skaplaus, fuðr- aði fljótt upp og enn hraðar niður aftur. Las blöðin á ógn- arhraða og sérstaklega fletti hann hratt yfir minningar- greinar. Þær fannst honum hin mesta vitleysa því það var al- veg sama hve mikill skíthæll manneskjan var í lifanda lífi, hún breyttist í engil við það eitt að deyja. Í eitt sinn þegar hann var að þusa um þetta lofaði ég honum því að ég skyldi skrifa minningargrein um hann á hreinni íslensku og engu yrði þar logið. Það væri hægt að skrifa heila bók um Árna og hans orð- ræðu. Hvílík mállýska. „Ætlar þú ekki að koma og éta með okkur drengdjöfull?“ spurði hann Ívar minn þegar hann kom í fyrsta skipti í heimsókn. „Komdu til afa skaufi litli,“ vall upp úr honum þegar hann tók son minn í fangið nýfæddan. Það var okkur öllum sárt og erfitt að hann skyldi veikjast, þessi maður sem aldrei kenndi sér meins. Baráttan var hörð en hann var samt alltaf góður að eigin sögn. En með tímanum dró af honum þrátt fyrir að hann ætlaði ekki að láta það gerast. Á fallegu vorkvöldi sl. vor þegar ég var að hjálpa hon- um að hátta átti hann erfitt og sagðist verða hvíldinni feginn. Þá var komið að mér að strjúka hans tárvota vanga og segja að allt yrði í lagi. Sem það verður eftir einhvern tíma en skarðið hans Árna verður þó erfitt að fylla. Við lærum að lifa með hann á öðrum stað. Elsku Árni minn, elskulegi stjúpi minn og vinur. Hver ein- asti stafur sem hér hefur verið skrifaður er bæði sannur og réttur enda varst þú enginn skíthæll. Þú varst stórkostleg- ur maður í lifanda lífi og ég veit að þú heldur því áfram hvar sem þú ert en við vorum sam- mála um að þú færir á einhvern góðan stað. Einstakur afi sem börnin mín voru svo heppin að eiga. Ég hlakka til að hitta þig aftur og detta í hlýja faðminn þinn og taka í traustu höndina þína. Mikið sem ég á eftir að sakna þín, Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín Inga Berglind Daginn er tekið að stytta og skammdegið færist nær. Haustið hefur sett svip sinn á Hjaltadalinn með litskrúði sínu. Hlíðar Hnjúkanna glóa rauðar eða gulleitar. Tignarleg fjöllin kögruð hvítu hýjalíni, eru fyr- irboði þess sem koma skal. Lit- ir fegurðar, missis og söknuðar. Þetta ægifagra útsýni blasti við úr glugganum þínum Árni minn, undir það síðasta og þarna var þitt heima. Við Árni vorum jafnaldrar. Feður okkar voru bræður og mikill samgangur milli bæj- anna. Þegar ég sest á skóla- bekk níu ára gömul var farskóli í Hólahreppi. Við Árni vorum yngst og sátum saman. Okkur lynti vel og studdum hvort annað fyrstu sporin á menntabrautinni, þegar litir og blýantar úr pennastokknum dugðu ekki í samlagningunni þá voru notaðir fingur sessunaut- arins. Alltaf varstu kátur og traust- ur frændi minn og afar fram- kvæmdasamur. Aldrei stóð á svari hjá þér en ekki var það allt Guðsbarnahjal. Árin liðu og skólinn færðist heim að Hólum. Eitt vorið fórum við krakkarnir í gönguferð upp í Gvendarskál, þótti ekki tiltökumál að við færum ein. Þegar upp var kom- ið vildi einhver finna Gvend- araltarið, vissi að það var helg- ur staður. Leituðum við um stund en fundum ekki steininn. Höfðu nú einhverjir áhyggjur og töldu að senn liði að því að skólabíllinn færi að koma. Kvað Árni upp úr með að við þyrft- um nú ekkert að sjá þetta „steinhelvíti“. Var þá snúið of- an hlíðina. Þegar heim á Stað- inn kom var þar fyrir bílafjöld því yfir stóð bændafundur. Þar var Egill Bjarnason ráðunaut- ur, hann var ávallt á Volkswa- gen. Bíllinn stóð undir vegg íþróttahússins og gengu steypt- ar uppistöður fram úr veggnum og mynduðu innskot. Fær ein- hver þá hugdettu að færa bjöll- una inn í skotið sem var rétt rúmlega bíllengdin. Hvort Árni fékk hugmyndina man ég ekki en hann hefur örugglega verið fyrstur manna til að samþykkja aðgerðir. Bisum við nú við bíl- inn en ekkert gengur. Koma þá vinir okkar úr yngri deild Bændaskólans sem voru snögg- ir að leggja okkur lið og bíllinn flaug inn í skotið. Í sama bili kom skólabíllinn að sækja okk- ur. Hef ég aldrei síðan frétt af afleiðingum gjörða okkar þenn- an vordag. Í kringum þig frændi minn var aldrei lognmolla, þú varst sannur vinur vina þinna og fljótur að koma til hjálpar ef á þurfti að halda. Vinir og nágrannar nutu hjálpsemi þinnar og margt handtakið var það sem aldrei var ætlast til að fá borgun fyr- ir. Hvíldarstundin stutt og vinnudagurinn að sama skapi langur en aldrei var kvartað og áfram haldið. Samferðamenn- irnir fengu yfirlestur á hreinni íslensku ef á þurfti að halda en aldrei varstu ósanngjarn. Í fornsögum hefðir þú verið kall- aður drengur góður. Elsku Magga, dætur og Árni Bent og fjölskylda. Þið genguð með frænda mínum götuna löngu og grýttu og studduð hann með ást ykkar og um- hyggju. Hann sagði mér stund- um frá ykkur, Möggu sinni og börnunum sínum og ykkar hög- um. Sagði frá með væntum- þykju og stolti, hlýju sem var honum eðlislæg. Það er svo margs að minnast, það er svo margt sem yljar hjartanu þótt missirinn nísti. Guð styrki ykk- ur og leiði. Sigríður Garðarsdóttir. Kveðja frá Ingveldar- staðafólkinu Góður vinur hefur horfið á braut. Árni Ragnarsson er lát- inn. Það var vorið 1985 að Árni hafði samband við okkur systk- inin og falaðist eftir Ingveld- arstöðum í Hjaltadal til ábúðar. Hann væri kominn með konu, sagði hann, og vantaði nauð- synlega jörð. Árni varð þannig síðasti ábúandinn sem bjó á Ingveldarstöðum. Eftir að hann flutti að Laufskálum 1993, þar sem hann var með stórt kúabú, hafði hann Ingveldarstaði áfram fyrir sauðfé, geitur og geldneyti fram til ársins 2001 þegar hann brá búi. Geiturnar tímdi hann ekki að láta af hendi fyrr en ári síðar. Auðvitað minnkuðu sam- skiptin eftir að búskaparárum Árna lauk, en Arnaldur, sonur minn og fjölskylda hafa verið duglegust að halda sambandi við Árna og hans fólk. Þeir Árni fóru nokkrum sinnum í göngur á Arnarvatnsheiði fyrir bændur í Miðfirði og áður, um aldamótin 2000, voru þeir nokk- ur haust saman í göngum í El- liðanum í Kolbeinsdal, þar sem Árni var jafnan gangnastjóri. Ég átti þess aldrei kost að vera með Árna í haustgöngum en heyrði sögur af framgöngu hans. Nú eru allir gangnamenn með kalltæki og taka þannig við fyrirmælum frá gangna- stjóranum. En Árni var ekki með kalltæki og þurfti þess vís- ast ekki með. Lýsingar á beit- ingu hans á raddstyrk og orða- vali til að stjórna mönnum og hundum neðan frá grundum upp undir efstu brúnir Elliðans eru þjóðsögum líkastar. Um tíma vann Árni hjá rútufyrirtækinu Sterna. Eitt sinn þegar ég kom að Stað- arskála í Hrútafirði á norður- leið sá ég að rúta frá Sterna var á bílastæðinu. Ég flýtti mér að rútunni í von um að hitta Árna, en þá var annar bílstjóri á ferð. Ég spurði frétta af Árna og glampinn sem færðist yfir andlit hans þegar ég minntist á Árna líður mér seint úr minni. Ef lýsa á Árna í fáum orðum þá hafði hann til að bera létt- leika, hreinskilni og glettni sem gerðu öll samskipti hans við fólk auðveld og fylla nú minn- ingar okkar um hann. Minn- isstætt er hve hress og æðru- laus Árni var við síðasta fund okkar í byrjun ágúst sl. en hann var þá langt kominn í bar- áttu sinni við sjúkdóminn sem nú hefur dregið hann til dauða. Við sendum samúðarkveðjur til Margrétar Rögnvaldsdóttur og dætra, til sonar hans, Árna Bents, og til annarra aðstand- enda. Fyrir hönd fjölskyldnanna sem standa að Ingveldarstöðum í Hjaltadal, Gylfi Ísaksson. Nú þegar skuggar haustsins lengjast með hverjum deginum sem líður lauk baráttu Árna Ragnarssonar við illvígan sjúk- dóm. Sú barátta hafði staðið í nokkur ár og þótt Árni hafi verið ákveðinn í upphafi að sigrast á þessum vágesti, varð sú ekki raunin, því miður. Við andlát Árna mágs míns koma upp í hugann margar góðar minningar um liðnar samverustundir, þar sem gleðin var yfirleitt við völd og málin voru rædd af mismikilli alvöru, svo ekki sé farið nánar út í þá hluti. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefn- um og þeim varð ekki breytt, hann stóð jafnan fast á sínu. Árni var duglegur, ósérhlífinn og hann var einstaklega hjálp- samur og vildi allt fyrir alla gera. Hann stundaði lengi akstur ásamt búskapnum og þótt vinnudagurinn gæti verið lang- ur, þá var alltaf tími til þess að aðstoða þá sem þess þurftu, sama hver átti í hlut og sama hvað þurfti að gera. Hann sagð- ist þá bara sofa minna, enda taldi hann að mikill svefn væri ekki heppilegur fyrir heilsuna, hvað sem öðrum kann að finnst um þá skoðun. Árni hafði gam- an af að spila og oft skruppu þau Magga á spilavist jafnvel þótt yfir fjallveg væri að fara. Það má segja að hann hafi spil- að af lífi og sál og það var aldr- ei nein lognmolla í kringum hann og það gat komið fyrir að hann berði í borðið og það var ekki gert með hangandi hendi. Það var alltaf gaman að hitta Árna. Hann var jafnan hress og kátur, sagði vel frá og sá oftar en ekki einhverjar spaugilegar hliðar á hlutunum sem aðrir höfðu ekki tekið eftir. Árni var ekki smámunasamur í eðli sínu. Hann var alltaf hreinn og beinn, og kom ætíð til dyranna eins og hann var klæddur. Hann tjáði sig aldrei í hálf- kveðnum vísum, hann kvað jafnan fast að orðið og talaði kjarnyrta íslensku. Með þannig mönnum er gaman að eiga sam- leið og vinátta þeirra er manni mikils virði. Þótt heilsunni væri farið að hraka hélt hann lengi sínum fyrri lífsstíl, hann var fljótur til svars og lét mann ekkert eiga hjá sér. Hann stóð meðan stætt var. En nú eigum við bara minningarnar um þennan góð- an dreng sem alltaf var hress og lífgaði svo sannarlega upp á samfélagið. Það er komið að kveðjustund, við Binna þökkum Árna alla vin- áttu í gegnum árin og við send- um Möggu, Árna Bent og fjöl- skyldu, Katrínu, Fjólu, Höllu og Ingu Berglindi og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Minning þín lifir kæri vinur. Pálmi Rögnvaldsson. Árni Helgi Hólm Ragnarsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, RÚNAR INGI ÞÓRÐARSON smiður, lést á heimili sínu miðvikudaginn 14. október. Jarðarförin verður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 26. október klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer athöfnin fram með nánustu ættingjum og vinum, en streymt verður frá útförinni á https://youtu.be/OtlBcocTfYU Kolbrún Fjóla og Auður Inga Rúnarsdætur Steinunn Ingimarsdóttir Jónatan Eiríksson Arnar Þór Þórðarson Sigríður Amalía Þórðardóttir Árni Elvar Þórðarson Kristbjörg Heiður Olsen Lilja Margrét Olsen Arnar Eggertsson Rúnar Logi Arnarsson Vigdís Lára Arnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.