Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 60

Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 60
60 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 ✝ Gréta Margitfæddist í Sø- vang í Køge í Dan- mörku 28. júlí 1938. Hún lést á Nesvöllum í Reykjanesbæ 10. október 2020. Foreldrar henn- ar voru Alda Valdemarsdóttir, f. 1. júlí 1911, d. 2. febrúar 1970, og Jakob Emil Vilhelm Frede- riksen, f. 27. júlí 1902, d. 5. sept- ember 1994. Systkini Grétu: Kristján, f. 3. nóvember 1931, d. 10. mars 2015, Inga, f. 5 október 1934, Henning, f. 3 desember 1939, d. 3. júní 2007. Systkini sammæðra: Hilmar, f. 23. ágúst 1930, d. 9. júní 2009, Ingibergur, f. 25. júlí 1950, og Kristín, f. 26. nóvember 1951. Gréta giftist 6. júní 1959 Karli Einarssyni frá Klöpp í Sandgerði, f. 8. júlí 1936, d. 27. júlí 2017. eiga þau 3 börn og 4 barnabörn. Alda Karlsdóttir, f. 8. maí 1974, gift Danté Kubischta og eiga þau 4 börn. Gréta og Kalli byggðu sér hús að Vallargötu 21 í Sandgerði og ólu upp öll sín börn þar og bjuggu þar allan sinn búskap. Gréta ólst upp í Køge til 10 ára aldurs. Eftir skilnað for- eldra sinna flutti hún með móð- ur sinni og systkinum til Íslands, þar sem móðir hennar stofnaði heimili með seinni manni sínum, Magnúsi Bjarnasyni, f. 6. ágúst 1914, d. 16. ágúst 1995. Gréta kom til Sandgerðis 15 ára gömul, þau hjón áttu útgerð 1965-1982 og var hún heima- vinnandi þar til börnin komust á legg og fór þá út á vinnumark- aðinn. Gréta greindist með alzheim- ers og flutti á Nesvelli í Reykja- nesbæ 2014. Útför Gretu fer fram frá Sandgerðiskirkju í dag, 23. október 2020, kl. 13. Streymt verður á slóðinni: https://tinyurl.com/y4k9b9wj Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á https://www.mbl.is/andlat Foreldrar hans voru Ólína Þ. Jóns- dóttir, f. 24. sept. 1899, d. 27. des. 1980, og Einar Helgi Magnússon, f. 8. feb. 1902, d. 27. okt. 1985. Gréta og Karl eignuðust 7 börn sem eru: Ólína Alda, f. 16. mars 1955, á hún 4 börn, 13 barnabörn og 1 lang- ömmubarn, unnusti hennar er Guðfinnur Karlsson. Snæfríður, f. 26. maí 1956, gift Pétri Guðlaugssyni og eiga þau 7 börn og 20 barnabörn. Margrét Helma, f. 26. jan. 1959, gift Karli Ólafssyni og eiga þau 4 börn og 7 barnabörn. Reynir Karlsson, f. 23. apríl 1960, giftur Júlíu Óladóttur og eiga þau 3 börn og 7 barnabörn. Helgi, f. 16. júlí 1964, d. 20. sept. 1985. Karl Grétar, f. 20. nóv. 1967, giftur Margréti Jónasdóttur og Hún gefur skjól og frið, þessi kona Og hún á mitt þakklæti og ást, það allir sjá því hún er þar þegar allt virðist svart og hún huggar þá er skuggar fara á stjá. Ég vaki um miðdimma nótt og hvergi er ljóstýru að sjá þá veit ég að ekkert mig hendir því ætíð hún verður mér hjá Hún veitir skjól og frið, þessi kona Og hún er sú sem leiðir mig hvert sem ég fer hún er þar bæði í gleði og sorg Og hún gefur, um mig vefur, hún er hér Hún er þar bæði í gleði og sorg Og hún gefur, um mig vefur, hún er hér Hún gleður mig senn og fer þessi kona en hún er í hjarta mér allt þetta líf Hún er þar og þar verður um stund hún mun vaka, við mér taka hún mun vaka og taka mig á sinn fund. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Takk, elsku mamma, fyrir að vera mér og börnum mínum allaf svo góð. Takk fyrir allar okkar góðu, dýrmætu stundir. Takk fyrir alla gleðina, hláturinn og húmorinn. Hann var einstakur. Í mínum huga ertu dýrmætasta perlan. Þú varst frábær elsku mamma og ég mun alltaf sakna þín. Farðu í Guðs friði. Þín dóttir, Ólína Alda. Elsku besta mamma mín. Nú er komið að kveðjustund og mikið sakna ég þín. Mér er efst í huga þakklæti að hafa átt þig sem móður. Eins og ég segi svo oft: þú ert besta mamma í heimi, svo ljúf og góð. Þú varst svo létt í lund og alltaf hægt að leita til þín með allt, enda varstu skjól okkar systkina, það var allt- af gaman þar sem þú varst hrók- ur alls fagnaðar. Elsku mamma mín, þú varst svo mikil hetja í öll- um áföllum sem gengu yfir, vakt- ir yfir Helga bróður dag og nótt, algjör klettur því það reyndi svo sannarlega á, og ekki minna þeg- ar Pétur Snær fór. Það var svo yndislegt að sjá hvernig þú tal- aðir við barnabörnin, já bara alla, allir jafnir í þínum augum. Ég veit að þú ert komin í sumarland- ið til pabba og þið dansið áfram í takt. Margar yndislegar minn- ingar ylja manni. Elsku mamma, síðustu ár hafa verið erfið fyrir okkur en þú auð- vitað mildaðir þau með hlátri þín- um og söng, alltaf svo glöð og þrátt fyrir þennan sjúkdóm sem alzheimer er þá tók hann ekki góða skapið þitt. Mamma mín, ég veit að þú ert búin að hitta hóp- inn þinn hinum megin og það hafa verið fagnaðarfundir trúi ég. Þú ert gull og gersemi elsku besta mamma mín. Dyggðir þínar dásami eilíflega dóttir þín. Vandvirkni og vinnusemi væntumþykja úr augum skín. Hugrekki og hugulsemi og huggun þegar hún er brýn. Þrautseigja og þolinmæði kostir sem að prýða þig. Bjölluhlátur, birtuljómi barlóm lætur eiga sig. Trygglynd, trú, já algjört æði. Takk fyrir að eiga mig. Hvíldu í friði, elsku mamma mín, og takk fyrir allt og góða ferð í sumarlandið. Elska þig. Þín dóttir, Margrét Helma. Elsku hjartans mamma mín. Það eru ekki til nógu mörg orð í orðabókinni sem geta sagt hvað ég elska þig mikið og það eru ekki til nógu mörg lýsingarorð til að lýsa því hversu yndisleg og elskuleg mamma þú varst. Ég sakna þín svo, ekki bara sem mömmu, heldur líka sem bestu vinkonu. Þetta eru svo þung skref að stíga núna elsku mamma mín, en ég veit að nú líð- ur þér vel. Elsku mamma mín, ég vil þakka þér fyrir alla ástina og um- hyggjuna sem þú gafst mér, það var engin betri móðir en þú. Ég vil þakka þér fyrir börnin mín, það var engin betri amma en þú. Einhvern daginn hittumst við aftur, þá fæ ég að kyssa þig, knúsa og kreista aftur, það fannst okkur best, og að syngja hvor fyrir aðra. Það var ekkert betra en að kúra uppi í rúmi hjá þér og strjúka fallega vangann þinn á meðan þú vafðir örmum þínum utan um litlu stelpuna þína, elsku fallega mamma mín. Hjarta mitt er mölbrotið eftir að hafa ekki mátt kveðja þig, bara einn koss, eitt knús og segja við þig hvað ég elskaði þig mikið, en ég sagði þér það í símann og það voru mín seinustu orð til þín, þú heyrðir í mér elsku hjartað mitt. Elsku mamma mín, þú varst svo sannarlega hetjan mín og fyrirmynd, alveg eins og elsku pabbi. Það er stórt skarð í hjarta mínu eftir að hafa misst ykkur elsku fallegu foreldra mína með svo stuttu millibili, sár sem aldrei mun gróa, ekki einu sinni tíminn mun lækna það. Nú ertu komin í faðm elsku pabba og Helga aftur, elsku mamma mín. Elsku mamma mín, takk fyrir allt og allt. Ég sakna þín svo sárt en fallegu minningarnar um þig eru svo óteljandi margar og þeim mun ég svo sannarlega halda á loft þar til við sameinumst á ný. Elsku fallega mamma mín, góða ferð í Sumarlandið. Megi þín fallega sál hvíla í friði elsku mamma mín. Ég man það elsku mamma mín, hve mild var höndin þín. Að koma upp í kjöltu þér var kærust óskin mín. Þá söngst þú við mig lítið lag, þín ljúf var rödd og vær. Ó, elsku góða mamma mín, þín minning er svo kær. Ég sofnaði við sönginn þinn í sælli aftanró. Og varir kysstu vanga minn. Það var mín hjartans fró. Er vaknaði ég af værum blund var þá nóttin fjær. Ó, elsku góða mamma mín, þín minning er svo kær. Og ennþá ómar röddin þín, svo rík í hjarta mér. Er nóttin kemur dagur dvín, í draumi ég er hjá þér. Þá syngur þú mitt litla lag, þín ljúf er rödd og vær. Ó, elsku hjartans mamma mín, þín minning er svo kær. (Jenni Jóns) Góða nótt elsku hjartað mitt. Ég elska þig. Þín dóttir, Alda. Halló, er Magga heima? Það á engin Magga heima hérna en þú getur fengið að tala við Margréti. Þannig var okkar fyrsta samtal er ég hringdi á Vallargötuna og vildi fá að tala við Margréti. Síð- an eru liðin 43 ár og þú verið tengdamóðir mín síðan og góður vinur. Við náðum alltaf vel sam- an, þú stuðningsmaður númer eitt alveg sama hvaða vitleysu maður gerði, alltaf varðir þú það. Þegar ég hugsa til allra þess- ara ára koma fyrst upp í hugann allar skemmtilegu stundirnar, bæði ferðir erlendis og hér heima, sem fjölskyldan fór sam- an. Setningin „sælla er að gefa en þiggja“ lýsir þér vel því gjafmild- ari kona en þú er ekki til, varst alltaf að hugsa um aðra og rétta öllum hjálparhönd. Öll barna- börnin elskuðu að heimsækja ömmu og afa á Valló, fá mjólk og köku eða sitja og spjalla því þið gáfuð þeim alltaf nógan tíma, eða horfa á enska boltann með afa – þá þurftir þú endilega að fara að ryksuga eða þurrka af í stofunni! Íslenskir málshættir og þú voru alveg sérkafli, oft var mikið hleg- ið því þú breyttir þeim alveg ómeðvitað. Svona er hægt að ylja sér við góðar minningar. Þegar allur hópurinn ykkar kom saman þá var oft fjör á Valló. Þú hafðir mikið gaman af að dunda þér í garðinum þínum við blóma- og trjárækt meðan heilsan leyfði. Seinni árin voru þér erfið; fyrst dó Helgi sonur þinn, síðan Pétur Snær, barnabarnið þitt, þá sá maður hversu sterk kona þú varst, bognaðir en brotnaðir ekki. Síðan veiktist þú af alz- heimer fyrir 12 árum og heilsan versnaði með hverju árinu en alltaf varstu með sama góða skapið, hlæjandi og syngjandi. Ég kveð þig með miklum söknuði elsku Gréta. Þinn tengdasonur, Karl Ólafsson (Kalli). Elsku amma. Ég get skrifað niður fullt af minningum en ég vil bara fá að segja bless og takk. Takk fyrir ástina og hlýjuna sem mætti manni alltaf þegar maður kom til ömmu á Valló. Takk fyrir allan sönginn og hláturinn. Takk fyrir að vera amma mín og vinkona. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Núna ertu kominn aftur í faðm afa, Helga og Péturs Snæs. Núna eru þið öll sameinuð. Bless amma á Valló. Ég elska þig. Guðrún. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau, er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið mesta gafst þú hverju sinni. Þinn traustur faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra, nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá, í hljóðri sorg, og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku yndislega amma okkar, takk fyrir allt. Takk fyrir að vera besta amma í heimi. Nú ertu komin til afa. Við söknum ykkar svo mikið en við vitum að þér líður betur núna, og afi hefur tekið vel á móti þér. Við elskum þig elsku amma okkar og góða nótt. Þín Alexandra Margit, Eva María, Christopher Helgi og Christian Karl. Elsku besta amma mín, Þú varst einstök manneskja. Og betri ömmu hefði ekki verið hægt að hugsa sér. Ávallt til staðar fyrir alla, dáðir stóra hóp- inn þinn og hefðir gert allt fyrir okkur öll. Þú varst mér oft svo miklu meira en amma, þú varst líka vinkona mín. Alltaf gat ég leitað þín og talað við þig um allt. Takk fyrir alla ástina og alla umhyggjuna, alla gleðina og endalausa hláturinn, allar sög- urnar, öll spilin, öll ferðalögin - að vera til staðar fyrir mig og fjölskyldu mína. Minningar ylja og mun ég halda þeim á lofti við börnin mín. Ég mun segja þeim skemmtileg- ar sögur af ömmu og afa á Valló. Takk fyrir allt elsku amma mín, ég elska þig. Þín Ólína Þuríður. Elsku amma. Það er svo margt sem ég get skrifað því þú varst svo yndisleg amma, alltaf þegar ég kom til þín þá tókstu á móti mér með stóru ömmuknúsi, mér hlýnar um hjartarætur að hugsa um það. Ég kom alltaf til þín til að spila ömmukapal, þú lést mig alltaf gefa á meðan þú smurðir brauð með alltof miklu smjöri sem ég skóf af þegar þú sást ekki til. Þegar þú fékkst svo leiða á því að spila þá byrjaðir þú alltaf að tala dönsku, það tók ekki langan tíma fyrir mig að láta mig hverfa því ég kunni ekkert í dönsku og þú vissir það. Það sem stendur hæst hjá mér er þegar þú stalst til að skutla mér í skólann, þú varst ekki með bílpróf þannig að þetta var bara ævintýri út af fyrir sig. Ég man ennþá hláturinn í þér þegar þú keyrðir þessa stuttu ferð, það tók okkur nokkrar mínútur að labba þetta alla daga en þarna varst þú alveg harðákveðin í að skutla. Þú varst eins og barn í sælgætis- verslun. Þrátt fyrir veikindin sem þú hefur þurft að berjast við þá varstu alltaf svo ánægð að sjá krakkana mína, alltaf brosandi og hlæjandi þegar þú sást þau. Agnes Von var samt alltaf svo föst við þig, vildi alltaf sitja í fanginu á þér og þú vildir alltaf fá hana til þín. Þegar Emma Karín kom þá tókstu alltaf utan um hana og ætlaðir aldrei að sleppa. Pétur Snær fær að kynnast lang- ömmu í gegnum sögur sem ég get sagt honum um þig. Emma Karín elskar þig og saknar þín mjög mikið. Agnes Von segir að þú verðir alltaf vinkona hennar. Góða nótt, elsku amma mín, elska þig og sakna þín. Helena Sirrý Pétursdóttir. Elsku amma mín, ástkær vin- kona og sálufélagi í gegnum lífið. Það er sárt að nú skuli vera kom- ið að leiðarlokum. Minningarnar hellast yfir og söknuðurinn er svo sár. Ég gat alltaf leitað til ömmu með allt. Amma var kær- leiksrík, hjálpsöm, fordómalaus og dásamlegur kennari. Guð var mér góður þegar hann gaf mér ykkur afa. Á Vallargötunni var til endalaust af ást og kærleik. Og eins og þið sögðuð alltaf: Þar sem er rúm í hjartanu, þá er alltaf til pláss. Elsku amma mín, guð varðveiti fallegu sálina þína. Ég veit að afi og Helgi þinn tóku vel á móti þér í sumarlandinu. Takk fyrir allt. Hvernig er hægt að þakka það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (Sigríður Dúa) Ástarkveðja. Þín ömmustelpa og nafna, Gréta. Elsku systir, nú hefur þú fengið hvíldina. Það hefur örugg- lega verið vel tekið á móti þér í Sumarlandinu af þeim sem á undan þér eru farnir. Ég vil þakka þér allar samverustund- irnar, bæði hér á landi sem og erlendis, en þær voru ófáar og eftir lifa yndislegar minningar um skemmtilegan tíma. Við systur voru svo heppnar að makar okkar voru góðir vinir og þar af leiðandi áttum við margar góðar stundir saman, t.d. að spila bridge og fara í ferðalög. Þegar við misstum móður okkar var ég mjög ung og þá var gott að geta leitað til þín og alltaf varst þú reiðubúin að gefa mér góð ráð. Ég mun ætíð sakna þín og að geta ekki lengur séð fallega brosið þitt og finna hlýjuna sem þú áttir svo mikið af. Elsku Gréta, takk fyrir allt. Guð geymi þig, minningin um þig mun lifa. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V.Br.) Elska þig. Þín systir, Kristín María. Fjögurra, fimm ára hef ég verið þegar ég kynntist kærustu Kalla frænda, henni Grétu. Allar minningar um hana frá bernsku- árunum hafa á sér svo jákvæðan og líflegan blæ – þar sem hún stóð við eldhúsborðið og hjálpaði ömmu við húsverkin, þar sem hún leiddi mig yfirfýldan til myndtöku í barnaskólanum, þar sem hún æpti og skrækti undan stríðni og hrekkjum kærastans! Alltaf var heimili þeirra Grétu og Kalla opið og margir sem kíktu við. Þar ríkti skemmtilegt andrúmsloft hressileika og alúð- ar eins og flestar ljósmyndir þaðan bera með sér. Þau voru bæði örlát og stungu oft að manni pening þó svo að þröngt væri í búi hjá þeim sjálfum. Og glatt var á hjalla þegar safnast var saman í eldhúsinu og gantast fram og aftur. Og ekki skemmdu hin ýmsu mismæli Grétu fyrir! „Ha, slakk sprangan?“ – afi lét hana aldrei gleyma þessu! Gréta og Kalli áttu miklu barnaláni að fagna, bæði að magni og gæðum – afkomend- urnir orðnir nálægt 70 talsins! Í veikindum þeirra hjóna var þeim einstaklega vel sinnt af börnum sínum og öðrum ástvinum. Síðustu árin þegar Gréta var farin að missa minnið og gat ekki verið í eðlilegu sambandi við aðra var hún samt svo blíð, björt og brosmild við hvern sem gaf sig að henni. Hún var í raun svo gefandi þó hún virtist vera svo týnd varðandi flest annað – bros- ið! Nú kveðjum við Grétu bless- aða. Elsku ættingjar og vinir: Guð gefi ykkur, ástvinum henn- ar, blessun og styrk í „hinni sælu von“ um endurfundi og eilíft líf. Efst í huga er þakklæti til þess- arar elskulegu konu og þeirra hjóna beggja, sem reyndust mér svo undursamlega vel alla ævi. Þökk sé þeim báðum fyrir ein- staka samfylgd. Einar Valgeir. Gréta Frederiksen HINSTA KVEÐJA Til langömmu: Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Guð varðveiti fallegu sál- ina þína elsku langamma. Þín Viktor Patrik, Sóldís Kara og Brynja Dís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.