Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Skrifstofustjóri
Skrifstofustjóri er yfirmaður skrifstofu Langanesbyggðar og heyrir beint undir sveitar-
stjóra og er staðgengill hans. Hann hefur faglega forystu og verkstjórn á daglegum
verkefnum skrifstofunnar. Hann hefur umsjón með stjórnsýslu, fjármálum og starfs-
mannahaldi sveitarfélagsins og stofnana þess í umboði sveitarstjóra.
Helstu verkefni eru:
• Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum skrifstofunnar.
• Umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins í umboði sveitarstjóra.
• Undirbúningur og frágangur funda sveitarstjórnar, nefnda og ráða.
• Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem gilda hverju sinni og heyra
undir sveitarfélagið.
• Tekur þátt í faglegri framkvæmd verkefna á grunni sérfræðiþekkingar sinnar.
• Umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins og birtingu fundargerða.
• Yfirumsjón og ábyrgð með leyfisveitingum, uppfærslum á samþykktum, reglum og
gjaldskrám.
Menntun:
• Á sviði viðskipta, stjórnsýslu eða lögfræði.
Reynsla:
• Úr stjórnsýslu og rekstri.
• Af stefnumótun og verkefnastjórnun æskileg.
• Á skjalastjórnunar- og bókhaldskerfum æskileg.
• Á sviði kjaramála, stjórnunar, og samningagerðar æskileg.
Hæfni:
• Í samskiptum.
• Frumkvæði og lausnamiðuð vinnubrögð.
• Greiningarhæfni ásamt hæfni í úrvinnslu og framsetningu talnalegra upplýsinga.
• Gott vald á íslensku og enskukunnátta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jónas Egilsson, sveitarstjóri - jonas@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2020 en æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.
Langanesbyggð leitar eftir
skrifstofustjóra
Langanesbyggð er öflugt og
vaxandi sveitarfélag með
spennandi framtíðarmöguleika.
Á Þórshöfn búa um 400 manns í
fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn
var endurnýjaður árið 2016 og
er öll aðstaða og aðbúnaður til
fyrirmyndar. Nýr leikskóli var
tekinn í notkun haustið 2019.
Gott íbúðarhúsnæði er til staðar
og öll almenn þjónusta er á
Þórshöfn.
Á staðnum er gott íþróttahús
og innisundlaug og stendur
Ungmennafélag Langaness fyrir
öflugu íþróttastarfi.
Í þorpinu er mikið og fjölbreytt
félagslíf. Samgöngur eru góðar,
m.a. flug fimm daga vikunnar til
Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta
nágrenni eru margar helstu
náttúruperlur landsins og ótal
spennandi útivistarmöguleikar,
s.s. fallegar gönguleiðir og stang-
og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á
öllum aldri, af báðum kynjum, með
margskonar menntun og reynslu.
Í samræmi við jafnréttisáætlun
Langanesbyggðar eru karlar jafnt
sem konur hvött til að sækja um
störf hjá sveitarfélaginu.
Lausar stöður til
umsóknar!
Forstöðumaður Smiðjunnar
Menntun: Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun
ellegar sambærileg menntun og reynsla er nýtist
í starfi forstöðu vinnustaðar með fólki með skerta
starfsgetu.
Náms- og starfsráðgjafi
Menntun: Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa
Umsækjendur ofantalinna starfa hafi m.a. til að bera:
Góða samvinnu- og samskiptahæfileika, jákvæðni
og frumkvæði, geti unnið sjálfstætt sem og í þver-
faglegu samstarfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Skriflegar umsóknir um störfin er tilgreini menntun,
starfsferil og umsagnaraðila, ásamt prófskírteini og
sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir
frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 12. nóvember 2020
Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær
www.fssf.is, sveinn@fssf.is
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á