Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir þurft að sitja undir harðri
gagnrýni í dag. Leitaðu leiða til að stuðla
að því að allir fái jafnt af kökunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert í miklu keppnisskapi og stend-
ur líklega uppi með pálmann í höndunum.
Einbeittu þér að framtíðinni þannig að allt
takist sem best má verða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Til hvers að gera áætlun? Innsæi
þitt er svo öflugt að þér finnst sérhvert
skref færa þig nær markmiðum þínum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sársauki er órjúfanlegur hluti af til-
verunni, en við leggjum gríðarlega mikið á
okkur til þess að forðast hann. Nú er kom-
ið að því að gera hreint fyrir sínum dyrum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er aldrei hægt að gera svo að öll-
um líki né segja það sem allir samþykkja.
Hvað sem því líður hefur þér tekist að sigla
á milli skers og báru langa lengi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Tilfinningarnar sjást utan á þér og
þú mátt hafa þig alla/n við svo þær beri
þig ekki ofurliði. Nýttu þér allt sem þú
kannt til að sigra óvininn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú skalt eyða tíma með sjálfum/sjálfri
þér í rólegu umhverfi í dag.Búðu þig undir
að breyta um stefnu fyrirvaralaust. Sýndu
nú svolítinn kjark í litavali.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert friðsæl/l og í góðu
jafnvægi og hefur því góð áhrif á alla í
kringum þig. Ekki reyna að punkta neitt
nákvæmlega hjá þér, þú fangar augnablik-
ið ekki með því.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn í dag er kjörinn til
þess að falla fyrir freistingum. Hver segir
að allt þurfi að gerast í réttri röð? Búðu til
þína eigin röð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vekur líklega á þér athygli í
dag með einhverjum hætti. Betra er að
bíða svo þú þurfir ekki að sjá eftir kaup-
unum síðar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Aðstoð frá þínum nánustu kem-
ur á óvart. Fólk kann að meta það hvað þú
gerir hlutina af mikilli vandvirkni. Ekki þó
vera of smámunasöm/samur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þó að þú vitir hvað er þér fyrir
bestu, býr hjartað til sínar eigin reglur. Ást-
arsamband þitt er á góðri leið.
Þ
orleifur Markússon fædd-
ist í Reykjavík 23. októ-
ber 1940 og bjó fyrstu
tvö árin á Eyrarbakka.
„Ég man fyrst eftir mér
á Bessastöðum þar sem faðir minn
var bústjóri. Þótt ég hafi oft komið í
eldhúsið hjá forsetanum, Sveini
Björnssyni, man ég lítið eftir því, en á
minningu um traktor sem féll af brú í
hlöðunni og vinnumann sem bar mig
á háhesti frá Álftanesinu yfir í Gálga-
hraunið.“
Þrettán ára bílstjóri
Árið1945 flutti fjölskyldan til Ólafs-
víkur og þar gekk Þorleifur í barna-
skóla fram að fermingu.„Ég var alltaf
í sveit í Breiðuvíkinni á sumrin hjá
ömmu minni og systkinum pabba.
Bróðir pabba byrjaði að kenna mér
að keyra traktor og jeppa þegar ég
var átta ára gamall og þrettán ára var
ég orðinn með betri bílstjórum í
snjó.“ Þegar þurfti að fara yfir Fróð-
árheiðina þá keyrði pabbi Þorleifs að
heiðinni þar sem Þorleifur tók við.
„Ég tel mig alltaf vera Ólsara,“
segir Þorleifur. „Ég fór í Gagnfræða-
skólann við Hringbraut og fannst
ekkert sérstakt hérna fyrir sunnan,
meira að segja mjólkin var verri en
heima í Ólafsvík.“ En smám saman
fór Þorleifur að finna sig í bænum og
aðeins sextán ára fór hann að læra
vélvirkjun hjá Vélsmiðjunni Héðni.
Þorleifur tók sveinsprófið 1962 og
fór að vinna á Fáskrúðsfirði við upp-
byggingu fiskimjölsverksmiðju. For-
stjóri Héðins, Sveinn Guðmundsson,
útvegaði honum vinnu í Kaupmanna-
höfn til að læra um skilvindur, og það
varð úr að hann fór út í sérnám í eitt
ár.
„Þegar ég kom heim fór ég í Vél-
skólann og fór að vinna í Héðni við al-
mennar smíðar og að þjónusta og
selja skilvindur í skip og í fiskimjöls-
verksmiðjur. Ég var kallaður Skil-
vindu-Leifi, því ég var nánast eini
maðurinn á landinu með þessa þekk-
ingu.“
Ástin í Þórskaffi
„Fimmtudagarnir voru skemmti-
legir í Reykjavík því þá fór maður í
leikfimi í íþróttasal Jóns Þorsteins-
sonar, svo á Laugaveg 28 til að borða
og þaðan upp í Þórskaffi til að dansa
gömlu dansana.“ Þar kynntist Þor-
leifur eiginkonu sinni, Gunnhildi
Ágústu Eiríksdóttur. „Ég sá þessa
gullfallegu konu fyrst á Hótel Sögu,
en hélt hún væri kannski merkileg
með sig svo ég steig til hliðar. Síðan
hitti ég hana aftur á gömlu dönsunum
í Þórskaffi og bauð henni upp í dans
og við giftum okkur árið 1966.“
Ári síðar lauk Þorleifur við vélskól-
ann og eftir sumar á sjó réð hann sig
til ÍSAL, þar sem hann vann til ársins
1976. „Þá er ég fenginn til Land-
smiðjunnar að setja í gang þjónustu
fyrir skilvindurnar.“
Las skilvindur eins og bækur
Þorleifur ferðaðist út um allt land í
starfi sínu, því svo fáir voru með þetta
sértæka próf. Hann þótti afspyrnu
góður og það var nóg fyrir hann að
heyra ganginn í þeim eða fá útlistun á
bilun til að vita hvað þyrfti að gera. Í
eitt skipti átti að senda skilvindu í
Neskaupstað til Þýskalands í viðgerð,
en eftir að Þorleifur skoðaði hana
þurfti bara að laga einn segulloka og
skilvindan gekk vel næstu tíu árin. Í
annað skipti var hann kallaður til
fiskbræðslustöðvar í Bedford í Kan-
ada. „Eitthvað var skilvindan að
stríða þeim og ég flýg vestur og er
sóttur á flugvöllinn og við förum beint
í verksmiðjuna. Eftir hálftíma var
skilvindan komin í gang og ég náði
nánast sömu vélinni heim og ég fór
með út.“
Stuttu eftir að Þorleifur fór í
Landsmiðjuna ákváðu starfsmenn að
kaupa hana af ríkinu og hann var
settur sem stjórnarformaður. „Við
rákum Landsmiðjuna til 1992, en þá
kaupir Sindrastál hana af okkur og
við vorum fimm sem fylgdum með í
kaupunum.“ Þorleifur vann í Sindra-
stáli til sjötugs og mest í varahluta-
þjónustunni síðustu árin.
Gengur alla daga
Þorleifur er mikill útivistarmaður
og ber það með sér enda bæði ung-
legur og í góðu formi. Hann hefur
mikið gengið á fjöll og farið oft á
heimajökulinn sinn, Snæfellsjökul.
„Eftir að ég missti konuna dreif ég
mig í gönguhóp í Garðabænum, sem
fer alltaf af stað kl. 10 á morgnana og
þar ganga allir eins langt og þeir vilja
og alltaf hægt að beygja af leið ef
maður þreytist.“
Fjölskylda
Eiginkona Þorleifs var Gunnhildur
Ágústa Eiríksdóttir, f. 16.8. 1941, d.
13.6. 2019, lengst af símamær hjá Ís-
lenska Álfélaginu. Börn Gunnhildar
áður eru María Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, f. 9.12. 1959, húsmóðir í sam-
búð með Haraldi Owen. Þorbjörg Jó-
Þorleifur Markússon vélstjóri – 80 ára
Bílstjórinn Hér er Þorleifur í Flórída, en hann keyrir hvert á land sem er,
enda var hann, 13 ára, oft fenginn til að fara yfir Fróðárheiðina á vetrum.
Var alltaf kallaður Skilvindu-Leifi
Hjónin Þorleifur og eiginkona hans,
Gunnhildur, sem féll frá í fyrra.
Útivistin Þorleifur með barnabörn-
unum Dagmari (efri) og Gunnhildi.
Til hamingju með daginn
40 ára Jónína ólst upp
á Brúnalaug í Eyjafjarð-
arsveit, en býr núna á
Akureyri. Jónína er
heimavinnandi hús-
móðir og hún hefur
mikinn áhuga á mat-
argerð og bakstri og að
eiga góðar stundir með fjölskyldunni.
Síðan hefur hún gaman af því að fara í
ræktina, þegar tími gefst.
Börn: Reynir Franz, f. 2002; Tara Sól, f.
2006, Kevin Prince, f. 2010 og Victoria
Ronja, f. 2017.
Foreldrar: Anna Sigríður Pétursdóttir, f.
1957, frá Bolungarvík og Gísli Hall-
grímsson, f. 1957, frá Akureyri. Þau eru
garðyrkjubændur á Brúnalaug í Eyja-
fjarðarsveit.
Jónína
Gísladóttir
30 ára Pétur fæddist í
Reykjavík og er
að flytja í miðbæ
Reykjavíkur á næstu
dögum. Pétur er nýút-
skrifaður arkitekt frá
Tækniháskólanum í
Þrándheimi. Hann tók
grunnnámið í Listaháskóla Íslands en er
búinn að vera í tvö ár í Noregi í meist-
aranáminu. Pétur hefur mikinn áhuga á
allri byggingarlist en auk hennar eru
helstu áhugamálin fjallaskíði og útivist
Maki: Nadia Margrét Jamchi, f. 1994,
sjúkraþjálfari.
Foreldrar: Kristján Maack, f. 1967,
atvinnuljósmyndari og Birna Björns-
dóttir, f. 1968, starfaði í HR. Þau búa í
Kópavogi.
Pétur Andreas
Maack
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra