Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 68
68 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Undankeppni EM kvenna
F-riðill:
Svíþjóð – Lettland.................................... 7:0
Staðan:
Svíþjóð 5 4 1 0 32:2 16
Ísland 5 4 1 0 21:2 13
Ungverjaland 6 2 1 3 10:17 7
Slóvakía 4 1 1 2 2:9 4
Lettland 6 0 0 6 2:37 0
C-riðill:
Wales – Færeyjar..................................... 4:0
Bríet Bragadóttir dæmdi leikinn, Rúna
Kristín Stefánsdóttir og Eydís Einarsdótt-
ir voru aðstoðardómarar og Bergrós Unu-
dóttir var fjórði dómari.
Noregur 15 stig, Wales 11, Hvíta-Rúss-
land 6, Norður-Írland 5, Færeyjar 0.
I-riðill:
Grikkland – Svartfjallaland..................... 1:0
Þýskaland 18 stig, Írland 13, Grikkland
7, Úkraína 6, Svartfjallaland 0.
Evrópudeild UEFA
A-RIÐILL:
CSKA Sofia – CFR Cluj .......................... 0:2
Young Boys – Roma................................. 1:2
B-RIÐILL:
Rapid Vín – Arsenal ................................ 1:2
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður Arsenal.
Dundalk – Molde ...................................... 1:2
C-RIÐILL:
Leverkusen – Nice ................................... 6:2
Hapoel Beer Sheva – Slavia Prag........... 3:1
D-RIÐILL:
Lech Poznan – Benfica ............................ 2:4
Standard Liege – Rangers ...................... 0:2
E-RIÐILL:
PAOK – Omonia Nikósía ........................ 1:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
PSV Eindhoven – Granada...................... 1:2
F-RIÐILL:
Napoli – AZ Alkmaar .............................. 0:1
Albert Guðmundsson kom inn á sem
varamaður á 88. mínútu hjá AZ.
Rijeka – Real Sociedad ............................ 0:1
G-RIÐILL:
Leicester – Zorya Luhansk..................... 3:0
Braga – AEK Aþena ................................ 3:0
H-RIÐILL:
Celtic – AC Milan ..................................... 1:3
Sparta Prag – Lille................................... 1:4
I-RIÐILL:
Maccabi Tel Aviv – Qarabag ................... 1:0
Villarreal – Sivasspor............................... 5:3
J-RIÐILL:
Ludogorets – Antwerpen ........................ 1:2
Tottenham – LASK Linz ......................... 3:0
K-RIÐILL:
Wolfsberger – CSKA Moskva ................ 1:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA en Arnór Sigurðsson
var frá vegna meiðsla.
Dinamo Zagreb – Feyenoord.................. 0:0
L-RIÐILL:
Hoffenheim – Rauða stjarnan................. 2:0
Slovan Liberec – Gent.............................. 1:0
Kasakstan
Astana – Tobol ......................................... 1:0
Rúnar Már Sigurjónsson lék ekki með
Astana vegna meiðsla.
Tyrkland
B-deild:
Istanbulspor – Akhisarspor ................... 2:2
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn með Akhisarspor.
Spánn
B-deild:
Real Oviedo – Rayo Vallecano............... 0:0
Diego Jóhannesson var ekki í leik-
mannahópi Real Oviedo.
Danmörk
B-deild:
Silkeborg – Viborg.................................. 1:2
Stefán Teitur Þórðarson kom inn á sem
varamaður á 84. mínútu hjá Silkeborg.
Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark
Viborg.
Svíþjóð
B-deild:
Brage – Ljungskile.................................. 0:1
Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik-
mannahópi Brage.
Handknattleikssamband Íslands
staðfesti í gær að stefnt væri að því
að hefja keppni á Íslandsmótinu á
nýjan leik 11. nóvember. Þeim leikj-
um sem áttu að fara fram frá 3. til
10. nóvember er því frestað eins og
öðrum sem frestað hafði verið fram
að þeim tíma.
Alls eru það fjórar umferðir í
hvorri deild, Olísdeildum karla og
kvenna, sem fresta þurfti vegna
takmarkana á aðgangi að íþrótta-
húsum vegna sóttvarna. Í haust var
búið að leika fjórar umferðir í
karladeildinni og þrjár í kvenna-
deildinni þegar keppni var stöðvuð.
Handbolti frá
11. nóvember
ÞRÍÞRAUT
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þríþrautarkonan Guðlaug Edda
Hannesdóttir keppti á dögunum á
sterku móti á Arzachena á Ítalíu.
Hafnaði hún í 36. sæti. Guðlaug
Edda synti frábærlega en lenti í
skakkaföllum á hjólinu.
„Þetta gekk upp og niður myndi
ég segja. Ég var mjög ánægð með
sundið sem var frábært en ég var í
fimmta sæti eftir sundið. Hjóla-
brautin var erfið og þar var mikil
brekka. Hjólaðir voru þrír hringir
og þessi brekka kom því þrisvar við
sögu. Á fyrsta hring voru allir á
fullri ferð upp brekkuna en á þeim
tímapunkti eru allir að berjast fyrir
því að halda í við þær fremstu og
missa þær ekki frá sér. Ég var að
skipta um gír þegar keðjan datt af
hjólinu. Ég var kannski of áköf. Þá
þurfti ég að fara til hliðar, setja
keðjuna á og stilla gírana aftur. Þá
dróst ég mjög aftur úr og eyðilagði
nánast keppnina. Þetta var leiðin-
legt því maður vill keppa um efstu
sætin. Hlaupið hjá mér var síðan
allt í lagi.
Á heildina litið var þetta leiðin-
legt því dagurinn byrjaði svo vel.
Auk þess fær maður fá tækifæri til
að keppa á þessu ári vegna farald-
ursins. Þetta var mjög sterkt mót. Í
raun eins og heimsbikarmót miðað
við hverjar voru með. Ég er ánægð
með líkamlegt ásigkomulag. Það
sást til dæmis í sundinu en ég hef
líka sloppið við meiðsli og þess hátt-
ar. Maður veit að hluti af því að
keppa er að eitthvað getur farið úr-
skeiðis og maður verður bara að
halda áfram að bæta sig. Margt já-
kvætt er hægt að taka út úr þessu
og ég læri af hinu,“ sagði Guðlaug
Edda þegar Morgunblaðið spjallaði
við hana í gær. Hún tók sér stutt frí
eftir mótið en í næstu viku hefst æf-
ingatörn sem miðar að því að hún
komist inn á Ólympíuleikana í Tók-
ýó sem eiga að hefjast í júlí.
„Þetta var síðasta keppnin á
árinu hjá mér og það var ákveðið
fyrir nokkru. Ég tók ekkert frí á
árinu og æfði í gegnum veiru-
tímabilið í fyrstu bylgjunni. Nú tek-
ur við smá hvíld fyrir stórt ár á
næsta ári. Ég velti fyrir mér að
halda áfram vegna þess hve næsta
ár er mikilvægt en niðurstaðan er
sú að þetta sé rétti tíminn til að ná
einhverri hvíld.“
Gæti keppt næst í mars
Guðlaug Edda er í þeirri stöðu
sem stendur að vera alveg á mörk-
unum að komast á leikana í Tókýó
næsta sumar. Í þríþrautinni gildir
sérstakur styrkleikalisti sem er
kallaður ólympíulisti. Hann er frá-
brugðinn heimslistanum. Á heim-
listanum gilda öll mót sem kepp-
endur taka þátt í en einungis viss
mót gefa stig á ólympíulistann. Gild-
ir frammistaða tvö ár aftur í tímann
og stöðugleiki þríþrautarfólksins
skiptir því máli.
„Ég er einu sæti frá því að kom-
ast inn eins og er. Ég þyrfti að ná
góðri frammistöðu á einu til tveimur
mótum á næsta ári til að gulltryggja
farseðilinn. Ég þarf að vera dugleg
að fara í mót snemma árs því helst
myndi ég auðvitað vilja tryggja mig
inn sem fyrst. Ég veit um ein-
hverjar keppnir sem eru fyrirhug-
aðar en það er ekki fullmótað. Enda
þarf að taka tillit til faraldursins og
tryggja þarf öryggi keppenda. Þar
af leiðandi er spurning hvaða borgir
verða í stakk búnar til að taka á
móti fólki. Ég veit um keppni í apríl
í Mexíkó en mér finnst líklegt að
bætt verði við keppnum sem fram
muni fara fyrir þann tíma. Ég
reikna með að keppa í mars en það
á eftir að taka á sig betri mynd.“
Með grímu í upphitun
Spurð um hvort erfitt hafi verið
að fara til Ítalíu og keppa á tímum
kórónuveirunnar sagði Guðlaug
Edda það ekki hafa verið stórmál en
vissulega hafi margt verið öðruvísi
en hún er vön.
„Nei, í rauninni var þetta ekki
stórmál. Ég var stressuð yfir því
fyrst að þurfa að ferðast. Ég hafði
ekki farið í flugvél og gegnum flug-
velli í langan tíma og það er skrítið
að sjá flugvelli nánast tóma. Fyrir
mótið þurfti maður að sýna fram á
neikvætt kórónuveirupróf sem tekið
hefði verið 72 stundum fyrir keppni.
Þríþrautarsambandið krafðist þess
og það voru því ekki fyrirmæli frá
yfirvöldum á Ítalíu.
Á Ítalíu eru þó frekar strangar
reglur um þessar mundir. Við vor-
um með grímu og hanska nánast
hvert sem við fórum. Þeir voru stífir
varðandi það en það var allt í lagi.
Við vorum með grímu alveg fram að
keppni. Í upphitun er áhugavert að
vera með grímu þar sem maður fær
ekki mikið loft inn. Mér fannst það
skrítið en þetta fylgir því að keppa á
tímum kórónuveirunnar.“
Með bandarískan þjálfara
Guðlaug Edda skipti um þjálfara í
fyrra og æfir nú undir handleiðslu
Bandaríkjamannsins Ian O’Brien.
Guðlaug Edda er með bakgrunn úr
sundi og þar stendur hún afar vel að
vígi. Spurð út í áherslurnar varð-
andi æfingar segir hún að reynt sé
að nýta hennar styrkleika sem best.
„Sundið er mín sterkasta grein.
Við höfum ekki lagt of mikla áherslu
á eina grein af þessum þremur. Við
leggjum áherslu á mína styrkleika
sem eru sund og hjólreiðarnar. Við
reynum að nýta sundið mér í hag og
ég er í raun heppin að vera með
sundið sem bakgrunn. Sundið var
frábært í mótinu á Ítalíu og maður
þarf að vera með þeim fremstu frá
upphafi til að eiga möguleika í
sterkum mótum. Ég reyni auðvitað
að bæta mig í hlaupum en annars
snýst þetta um vinnusemi og stöð-
ugleika í æfingum til lengri tíma lit-
ið.
O‘Brien þjálfar fólk héðan og það-
an úr heiminum. Þríþrautarsam-
félagið á elítustigi er frekar lítið og
fólk veit hvað af öðru. Það var því
lítil mál að komast í samband við
hann. Í fyrra fannst mér vera kom-
inn tími á að breyta til, bæði varð-
andi aðstöðu og þjálfara. Ég heill-
aðist mest af hans áherslum þegar
ég fór að kynna mér hvað væri í
boði. Hann þjálfar þríþrautarfólk
sem er í fremstu röð í heiminum og
hefur þjálfað fleiri sem hafa farið á
verðlaunapall á stórum mótum,“
sagði Guðlaug Edda.
Stendur á þröskuldi
Ólympíuleikanna
Sennilegt að Guðlaug Edda Hannesdóttir muni keppa í þríþrautinni í Tókýó
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haustlitir Guðlaug Edda Hannesdóttir fór út að hlaupa í Kópavoginum í gær þótt hún sé í „fríi“ frá æfingum.
Svíþjóð vann í gær afar sannfærandi
7:0-sigur á Lettlandi í F-riðli í und-
ankeppni EM kvenna í fótbolta. Er
Ísland í öðru sæti sama riðils. Eliza
Spruntule og Karlina Miksone, leik-
menn ÍBV, léku með Lettum í leikn-
um. Pauline Hammarlund skoraði
tvö mörk fyrir Svíþjóð og þær Anna
Anvegard, Olivia Schough, Magda-
lena Eriksson og Filippa Curmark
skoruðu einnig. Svíþjóð er með 16
stig, þremur stigum meira en Ísland
en liðin mætast í Svíþjóð á þriðjudag
í leik sem gæti reynst algjör úrslita-
leikur um efsta sæti riðilsins.
Sjö sænsk mörk
í riðli Íslands
Morgunblaðið/Eggert
Sjö Lina Hurtig skoraði eitt af sjö
mörkum Svíþjóðar í gær.
Sigurinn á Rúmeníu í undan-
úrslitum umspils EM fleytti karla-
landsliðinu í knattspyrnu upp um
tvö sæti á heimslista FIFA sem birt-
ur var í gærmorgun. Ísland fór upp-
fyrir Rúmeníu og Norður-Írland og
er í 39. sæti af 210 þjóðum heims og
í 22. sæti af 55 Evrópuþjóðum. Auk
áðurnefndra þjóða eru Ástralía,
Noregur, Skotland og Tékkland í
næstu sætum á eftir Íslandi og síð-
an koma Ungverjar í 47. sæti. Þeir
fara upp um fimm sæti á einum
mánuði en Ísland og Ungverjaland
leika um sæti á EM 12. nóvember.
Ísland upp í 39.
sætið hjá FIFA
Morgunblaðið/Eggert
FIFA Ísland er í 22. sæti af Evr-
ópuþjóðum á listanum.