Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fimmta breiðskífa hljómsveitar-
innar Mammút, Ride The Fire, kem-
ur út í dag, 23. október, og var hún
tekin upp í tveimur löndum, annars
vegar á Íslandi og þá bæði í Reykja-
vík og úti á landi og á Englandi, nán-
ar tiltekið í höfuðborginni London.
Árni Hjörvar var upptökustjóri en
hann er einnig bassaleikari rokk-
sveitarinnar The Vaccines. Sam
Slater sá um
hljóðblöndun en
hann er þekktur
í tónlistarheim-
inum og hefur til
að mynda unnið
með Hildi
Guðnadóttur.
Um hljóðjöfnun sá Mandy Parnell
sem er að sama skapi þekktur og
hefur t.d. starfað með Björk og Sig-
ur Rós.
Síðasta plata Mammút, Kinder
Versions, kom út árið 2017 og hlaut
þrenn verðlaun við afhendingu
Íslensku tónlistarverðlaunanna árið
2018. Verður forvitnilegt að sjá
hvort nýja platan fylgir þeirri vel-
gengni eftir en blaðamaður fékk að
hlusta á vandaðan gripinn áður en
hann ræddi við bassaleikara sveit-
arinnar, Ásu Dýradóttur, sem gekk
til liðs við Mammút árið 2006. Auk
hennar eru í hljómsveitinni söng-
konan Katrína Mogensen, gítarleik-
ararnir Arnar Pétursson og Alex-
andra Baldursdóttir og trommarinn
Valgeir Skorri Vernharðsson en Val-
geir tók við kjuðunum af Andra
Bjarti Jakobssyni. Segir í tilkynn-
ingu að tilfinningaríkur og hljóm-
mikill trommuleikur hans passi vel
við leitandi hljóðheim sveitarinnar.
Gátu dólað sér í stúdíói
Ása hefur tekið þátt í gerð allra
platna Mammút fyrir utan þá fyrstu.
Hún segir hljómsveitina hafa byrjað
að gefa út plötur þegar eðlilegt þótti
að fimm ár liðu á milli platna. Nú séu
hljómsveitir og sólólistamenn að
gefa út plötur árlega en hljómsveitin
Mammút sé ekki á þeim hraða.
En hver er ástæðan fyrir því að
mörg ár líða milli platna hjá sveit-
inni? „Það er snúið að fanga sköp-
unarkraft fimm ólíkra aðila á sama
tíma. Við semjum flestallt saman og
höfum oftast gert allt í sameiningu,
fyrir utan lagatextana,“ svarar Ása.
„Við höfum alltaf tekið okkur rosa-
lega mikinn tíma í að semja og út-
færa og höfum verið svo heppin að
geta dólað okkur í stúdíóinu líka.“
Lagatextarnir eru verk Katrínu
en Ása segir aðra í sveitinni hafa
blandað sér örlítið í textasmíðina.
Hún bætir við að allir í hljómsveit-
inni sinni öðrum störfum meðfram
tónlistinni og séu auk þess með fjöl-
skyldur sem skýri líka hvers vegna
mörg ár líði milli platna.
Þurftu að treysta og hlusta vel
Í tilkynningu segir að á plötunni
kveði við nýjan hljóm að mörgu leyti
þar sem hljómsveitin hafi í fyrsta
sinn tekið upp plötu í tveimur lönd-
um. „Þetta óhefðbundna upptöku-
ferli leiddi til þess að liðsmenn sveit-
arinnar unnu að lagahlutum hver í
sínu lagi en ferlið skapaði þó ekki
fjarlægð á milli þeirra heldur þvert á
móti styrkti það traustið á milli
þeirra og gaf þeim meira frelsi og
vald til þess að spinna og umbreyta
jafnvel lagasmíðum hver annars,“
segir þar.
Ása bætir við að þetta sé allt önn-
ur nálgun og að hljómsveitinni hafi
þótt hún spennandi tilbreyting.
„Auðvitað tókum við líka tímabil þar
sem við vorum límd saman svo dög-
um skipti en okkur fannst þetta
skemmtilegur vinkill upp á það að
gera að maður gat krukkað í hlutum
einn og sent áfram og fengið álit.
Þetta var svolítið eins og að púsla
púsluspil saman, við þurftum að
treysta hvert öðru vel og hlusta með
vel opnum eyrum,“ segir hún.
Enginn æsingur
–Hefur einhver breyting átt sér
stað frá síðustu plötu?
„Það er mjög mikil breyting, þótt
hún sé líka á ensku eins og Kinder
Versions sem kom út 2017. Við vor-
um búin að túra plötuna mikið og
það voru frábærir túrar og tvö ár
sem fylgdu en tók mikið á andlega
hjá okkur öllum.
Þetta var svolítið mikið til við-
bótar við öll hin lífin okkar og við
ákváðum því að gera þessa plötu í
meiri rólegheitum og væntingarnar
voru aðrar. Maður er ekki beinlínis
að bíða eftir að allur heimurinn opn-
ist fyrir manni þegar maður gefur út
plötu í dag, við vorum meira að gera
hana fyrir okkur og okkar nánasta
umhverfi. Sú var tilfinningin, það
var enginn æsingur og ég held að
það heyrist á plötunni, þótt hún sé
þung á köflum þá er hún líka léttari.
Það er húmor á henni, leikur og
stemning,“ svarar Ása.
Heyra má að nostrað var við plöt-
una og segir Ása að sveitin og Árni,
eiginmaður hennar og upptökustjóri
plötunnar, hafi legið yfir henni. „Við
höfðum þennan tíma og aðgengi að
stúdíói og svo er Árni sjálfur tón-
listarmaður og gat nýtt glufurnar
milli túra í að liggja yfir þessu með
okkur.“
Dúkrista við hvert lag
Lögin á Ride The Fire eru sögð
sérstaklega myndræn og út frá þeim
myndræna heimi skapaði hljóm-
sveitin persónur sem fylgja plötunni
og eru hluti af sjónrænni umgjörð
hennar en Ása, sem er líka mynd-
listarmenntuð, gerði svarthvítar
dúkristur við hvert lag. Hún segir að
hljómsveitin sjálf hafi alltaf séð um
flesta þá myndlist og hönnun sem
hefur fylgt plötunum í áranna rás.
Platan mun koma út á vínyl og
segir Ása að fyrirkomulagið á söl-
unni á dúkristunum muni brátt
liggja fyrir og skal áhugasömum
bent á vef hljómsveitarinnar,
mammut.is og einnig Facebook-síðu
hennar.
Því má að lokum við bæta að
Mammút kemur fram á stafrænu
tónlistarhátíðinni Live from Reykja-
vík 13. og 14. nóvember, hátíðinni
sem Iceland Airwaves heldur í sam-
starfi við Íslandsstofu, Reykjavíkur-
borg, RÚV, Icelandair, Einstaka öl-
gerð og Landsbankann.
Ljósmynd/Saga Sig.
Mammút Valgeir Vernharðsson, Ása Dýradóttir, Alexandra Baldursdóttir, Arnar Pétursson og Katrína Mogensen.
Húmor, leikur og stemning
Mammút fagnar fimmtu breiðskífu sinni, Ride The Fire Unnin í tveimur löndum „Það er
snúið að fanga sköpunarkraft fimm ólíkra aðila á sama tíma,“ segir bassaleikarinn Ása Dýradóttir
Grafík Ein af dúkristum Ásu Dýra-
dóttur fyrir plötuna Ride The Fire
sem kemur út í dag. Þessa ristu
gerði hún fyrir lagið „Pow Pow“.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, mun bjóða fimm nýjar
hryllingsmyndir til leigu nú um
helgina en þær komu inn á vefleigu
RIFF á miðnætti miðvikudags.
„Allt eru þetta splunkunýjar
myndir frá árinu 2020,“ segir í til-
kynningu. Tyrkneska myndin Veiðin
(e. The Hunt) fjallar um konu sem er
á flótta undan fjölskyldu sinni sem
ætlar sér að drepa hana, Upp á yfir-
borðið (e. Breaking Surface) er
sænsk-norsk hrollvekja sem fjallar
um hálfsystur sem festast í grjót-
hruni og Hunskastu út (e. Get the
Hell Out) er uppvakningahrollvekja
frá Taívan. Skaginn (e. Peninsula) er
frá Suður-Kóreu og fjallar einnig um
uppvakninga og fimmta myndin,
Spútnik, er rússnesk og fjallar um
sovéskt geimskip og hættulega fylgi-
hluti. „Hrollvekjur og furðusögur
hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem
hluti af kvikmyndahátíðum víða um
veröld og slíkar kvikmyndir eru hér
í sérstöku kastljósi. Áhersla er lögð
á norðlægan hroll í bland við verk
frá ólíkum heimshornum sem draga
fram fjölbreytileika hrollvekjunnar í
allri sinni blóðugu dýrð,“ segir í til-
kynningu frá RIFF.
Þar segir einnig að vegna Cov-
id-19 og fleiri áfalla sem dynji nú yfir
land og þjóð hafi verið ákveðið að
halda áfram að sýna vinsælustu ís-
lensku heimildarmyndirnar sem
sýndar voru á RIFF í ár, þ.e.
Humarsúpu, Sirkusstjórann, Á móti
straumnum og Þriðja pólinn auk
þess sem heimildarmyndir um Hel-
mut Newton, Alvar Aalto og Rock-
ville verða áfram sýndar um helgina.
Frekari upplýsingar má finna á
riff.is.
Hrollvekjandi Úr rússnesku hrollvekjunni Sputnik sem er á leigu RIFF.
Hryllingsmyndahelgi
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
JÓLAVÖRURNAR
HEKLA kerti
1990,- HEKLA viskastykki – 2950,
HEKLA svervíettur – 990,-
KLA djásn – 5790,-HE
Hekla jólaköttur
lítill – 10.900,-
stór – 21.900,-
komnar í verslanir okkar
-