Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 71

Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is MÖGNUÐ MYND SEM GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI : ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ Roger Ebert.com San Fransisco Cronicle The Playlist 88% SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALISÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Kvikmyndaheimurinn get-ur verið harður hús-bóndi. Kanadíski leik-stjórinn Sean Durkin sendi frá sér hina stórgóðu frum- raun Martha Marcy May Marlene árið 2011 og hlaut meðal annars leikstjóraverðlaunin á Sundance- kvikmyndahátíðinni fyrir verkið. Gagnrýnanda þótti myndin vera hápunktur á RIFF á sama ári og því er gleðiefni að sjá Durkin loks snúa aftur með Hreiðrið. Ótvíræð stjarna myndarinnar er þó leik- konan Carrie Coon sem á stórleik í aðalhlutverkinu. Hreiðrið hverfist um hjónaband og fjölskyldulíf hinnar bandarísku Alisson (Carrie Coon) og hins breska Rory O‘Hara (Jude Law). Börn þeirra eru tvö: unglings- stúlkan Sam (Oona Roche), sem Alisson átti áður en hjónin kynnt- ust, og hinn hálfstálpaði Benjamin (Charlie Shotwell) sem hjónin eiga saman. Sagan gerist undir lok ní- unda áratugarins en það má sjaldnast merkja á sögusviðinu. Í upphafi myndar lifir fjölskyldan þægilegu úthverfalífi vestanhafs og allt virðist með kyrrum kjörum. Alisson vinnur við reiðmennsku sem hún hefur mikla unun af en Rory fæst við viðskipti. Krakk- arnir eru í skóla og tómstundum og samgangur er milli fjölskyld- unnar og foreldra Alissonar. Draumafjölskyldufaðirinn Rory færir eiginkonu sinni kaffi í rúmið á morgnana og spilar fótbolta með stráknum úti í garði eftir skóla. Spennuþrungin tónlist og upp- bygging upphafsatriðarununnar gefur þó sterklega til kynna að ekki sé allt með felldu. Einfalt fjölskyldulíf er nefnilega ekki nóg fyrir viðskiptajöfurinn Rory, hann þarf eitthvað meira til að öðlast lífsfyllingu. Hann þarf meiri pening, meiri velgengni og það hefur honum ekki hlotnast í Bandaríkjunum. Hann tilkynnir eiginkonu sinni að gamall yfir- maður hans í fjárfestingarfyrir- tæki í London hafi boðið sér að snúa aftur til fyrri starfa. Hér sé tækifærið til að verða loksins rík og eignast eigið hesthús eins og þau hefur alltaf dreymt um. Alis- son hefur slæma tilfinningu fyrir áformum Rorys og vill ekki rífa fjölskylduna upp með rótum í enn eitt skiptið en lætur til leiðast. Við tekur átakanleg tilraun fjöl- skyldunnar til að aðlagast nýjum aðstæðum í Bretlandi. Rory hefur tekið á leigu stórt sveitasetur í Surrey, tryggt börnunum vist í einkaskólum í grenndinni, flutt inn hest og hafið byggingu á nýju hesthúsi. Fyrirætlun Rorys um skjótan gróða fer fljótlega út um þúfur og peningar fara að verða af skornum skammti. Á táknrænan máta stendur hesthúsið hálfbyggt á jörð sveitasetursins og endur- speglar þar með hjónaband sem stendur höllum fæti. Í kynningarefni um myndina er Hreiðrið, líkt og fyrri mynd Durk- ins, framsett sem sálfræðitryllir. Styrkur myndarinnar liggur þó engan veginn í óvæntri framvindu enda virðist frá upphafi fremur augljóst í hvað stefnir. Myndin er á köflum einnig að leika sér að hugrenningartengslum við hryll- ingsgreinina og má greina hlið- stæðu milli óðalsetursins í Surrey og Overlook-hótelsins í The Shin- ing. Daðrað er við yfirnáttúruleg stef með húsakynnin og afdrif að- flutta hestsins en fóru þær þreif- ingar fyrir ofan garð og neðan hjá pistlahöfundi. Hesturinn og heilsu- brestir hans var eilítið ofnotuð og klunnalega beitt myndlíking fyrir hlutskipti Alisson. Sé hins vegar litið á Hreiðrið sem fjölskyldusögu og karakterstúdíu, þar sem sterk frammistaða leikarahópsins fær að njóta sín, eru kostir hennar umtalsverðir. Jude Law er hér á kunnulegum slóðum sem hinn útsmogni en sjarmerandi frjálshyggjufýr (hann er nokkurs konar andlegur bróðir Gordons Gekko úr Wall Street) og fjölskyldufaðir sem siglir undir fölsku flaggi. Rory er í raun alger- lega týndur maður sem mun aldrei finna hugarró með óbreyttum leið- um. Carrie Coon hefur áður sést í aukahlutverkum á hvíta tjaldinu (The Avengers: Infity War, Gone Girl og Widows m.a.) en stígur hér fram sem stórleikkona í sínu fyrsta bitastæða aðalhlutverki. Alisson er virkilega sterk persóna sem berst í bökkum við að halda fjölskyldunni og lífi sínu gangandi. Hún er skemmtilega blátt áfram og amerísk í samhengi bresku yfirstéttarinnar sem Rory vill svo gjarnan verða hluti af. Skemmti- legustu senurnar eru þegar Aliss- on er búin að átta sig á fölsku yfir- skyni eiginmanns síns og lætur allt flakka á fínu veitingastöðunum með viðskiptavinunum; drekkur eðalvínið af stút og segir liðinu að hún vinni við að moka flórinn á næsta sveitabæ til þess að skrimta fyrir helstu útgjöldum. Einmana- legur og kraftmikill dans hennar í næturklúbbssenu er annar há- punktur. Oona Roche og Charlie Shotwell standa sig fantavel í hlut- verkum barnanna. Allt kemur þetta saman undir sterkri handleiðslu Durkins. Leik- stjórn og handrit hans einkennast af hófsemi og treystir áhorfandan- um til þess að draga eigin álykt- anir um persónurnar og framvind- una. Stuttar samtalssenur aðal- persónanna við mæður sínar eru ekki nauðsynlegar fyrir fléttuna en draga upp ákveðinn bakgrunn þeirra og dýpka þá mynd sem áhorfandinn fær að ráða úr. Hreiðrið færir okkur hrífandi og klassíska frásögn um mannlegan breyskleika sem hefur sig til flugs þegar aðalleikkonan Carrie Coon er miðpunkturinn. Óskandi er að hún og leikstjórinn Sean Durkin fái sem fyrst fleiri tækifæri í bíó- heimum. Amerískt sprund í Surrey Stórleikur Rýnir segir Hreiðrið hrífandi og klassíska frásögn um mannlegan breyskleika sem hefji sig til flugs þeg- ar aðalleikkonan Carrie Coon er miðpunkturinn. Hér sést Coon með Jude Law sem leikur eiginmann hennar, Rory. Sambíóin Hreiðrið/The Nest bbbmn Leikstjórn og handrit: Sean Durkin. Kvikmyndataka: Mátyás Erdély. Aðal- leikarar: Jude Law, Carrie Coon, Charlie Shotwell, Oona Roche, Addel Akhtar. Bandaríkin, Bretland og Kanada, 2020. 107 mínútur. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.