Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 80

Morgunblaðið - 23.10.2020, Side 80
PRÓFAÐU ÞÆGINDIN OG SLÖKUNINA SEM ÞÚ FÆRÐ Í NÝJU MODULAX HVÍLDARSTÓLUNUM NÝTT Á ÍSLANDI SÆKTU APPIÐ MODULAX OG SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI. JAMES STÓLL MEÐ SKEMLI verð 149.900 PANDORA RAFSTILLANLEGUR verð 219.900 Alla Modulax stóla er hægt að sérpanta sem lyftustóla. IRIS RAFSTILLANLEGUR verð 209.900 MODULAX HVÍLDARSTÓLAR HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI ZERO GRAVITY ZERO GRAVITY MODULAX • 3-mótora hvíldarstóll. • Handvirk og þægileg höfuðpúðastilling 42°. • Innbyggð hleðslu- rafhlaða. Endist 250 sinnum fyrir alla mótora. NÝTT! MODULAX MARGAR GERÐIR modulax.be BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM Á SVEFNOGHEILSA.IS FRÍR FLUTNINGUR UM ALLT LAND GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Upptaka af Hrafnagaldri Óðins, eftir tónskáldið Hilmar Örn Hilmarsson og hljómsveitina Sigur Rós, verður gef- in út í desember en verkið var unnið að beiðni Listahá- tíðar í Reykjavík árið 2002. Á plötunni sem gefin verður út í desember verður upptaka frá flutningi á verkinu á tónleikum í Grande Halle de la Villette í París árið 2002. Fyrsta lagið af plötunni kemur út í dag og nefnist það „Dvergmál“. Sigur Rós frumflutti verkið á Listahá- tíð í Reykjavík í maí árið 2002 með Hilmari Erni og Steindóri Andersen kvæðamanni. Hrafnagaldur Óðins er kvæði í stíl Eddukvæða sem varðveitt er í handritum frá síðari hluta 17. aldar. Hrafnagaldur Óðins gefinn út FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 297. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir er mjög nálægt því að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíu- leikunum sem fram eiga að fara í Tókýó sumarið 2021. „Ég er einu sæti frá því að komast inn eins og er. Ég þyrfti að ná góðri frammistöðu á einu til tveimur mót- um á næsta ári til að gulltryggja farseðilinn. Ég þarf að vera dugleg að fara í mót snemma árs því helst myndi ég auðvitað vilja tryggja mig inn sem fyrst,“ segir Guð- laug Edda í viðtali í blaðinu í dag. »68 Einu sæti frá Ólympíuleikunum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Alþjóðadagur psoriasis er 29. október og þá skipuleggja Samtök psoriasis- og exem-sjúklinga á Íslandi, Spoex, ráðstefnu í samráði við alþjóða- samtökin, IFPA, til að vekja athygli á sjúkdómnum og afleiðingum hans. „Vegna kórónuveirunnar verður hún á rafrænu formi í ár,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, starfandi stjórnar- formaður Spoex. „Psoriasis er miklu meira en húð- sjúkdómur,“ leggur Þorsteinn áherslu á. Hann vísar meðal annars til þess að Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin, WHO, hafi viður- kennt psoriasis sem alvarlegan ge- netískan sjúkdóm 2014. „sem og liðagigt auk þess sem sjúkdómurinn hefur mikil sálræn áhrif“. Talið er að um 3% jarðarbúa séu með psoriasis og um níu til tíu þúsund hér á landi, að sögn Þorsteins. Sér- stök ljósameðferð sé mikilvæg til að bregðast við sjúkdómnum, krem gagnist sumum og undanfarin ár hafi góð líftæknilyf komið á markað. „Leitin að lausn er einstaklings- bundin og endalaus,“ segir hann og leggur áherslu á mikilvægi þess að psoriasis-sjúklingar hafi aðgang að öllum mögulegum meðferðar- úrræðum. „Þetta er einstaklings- bundinn sjúkdómur og það sem hent- ar einum virkar ekki endilega fyrir annan. Til þess að halda sjúkdómnum niðri þarf að sinna honum og nú er meðal annars rætt um erlendis að best sé að byrja strax á líftæknilyfj- um, ráðast strax á sjúkdóminn með bestu úrræðum í stað þess að beita hefðbundnum tröppugangi.“ Streita versti óvinurinn Frá 2004 hefur IFPA ásamt aðild- arfélögunum, sem nú eru 56 víðs vegar um heiminn, minnt á sjúkdóminn með ýmsum hætti á alþjóðadegi psoriasis. Þemað í ár er „Verum upplýst“, en þriggja ára herferð hófst í fyrra með þemanu „Verum tengd“. Á næsta ári verður lögð áhersla á sameiningu. Ingvar Ágúst Ingvason, fyrrverandi formaður Spoex, er varaforseti IFPA. Upplýsingafundur Spoex verður klukkan 17.30 til 19.30 þann 29. októ- ber. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra flytur ávarp. Ásta Frið- riksdóttir fjallar um líftæknilyf og Alvotech. Bárður Sigurgeirsson segir frá framhaldsrannsókn í sambandi við genatengingar við psoriasis, sem dr. Helgi Valdimarsson vann að í mörg ár. Erla Björnsdóttir greinir frá mikilvægi svefns með tilliti til heilsu. Skráning á fundinn er á heima- og Facebook-síðu félagsins (spoex.is). Spoex var stofnað 1972 með það að markmiði að gæta réttar psoriasis- sjúklinga og stuðla að betra lífi þeirra með fræðslu og kynningu. UngSpoex fyrir fólk á aldrinum 15 til 35 ára var stofnað 2016. Líknarfélagið rekur skrifstofu og göngudeild, sem starfar undir eftirliti sérfræðings í húð- sjúkdómum, í eigin húsnæði í Bolholti 6 í Reykjavík. Þar er boðið upp á UVB-ljósameðferð samkvæmt til- vísun frá húðsjúkdómalæknum klukkan 11.30 til 18.30 virka daga (9.30 til 16.30 á föstudögum). Þorsteinn leggur mikla áherslu á að meðferðin sé regluleg og ekkert trufli hana. „Streita er einn alversti óvinur þessa sjúkdóms,“ segir hann. „Það er lykilatriði fyrir okkur að halda okkur frá henni.“ Psoriasis er meira en húðsjúkdómur Morgunblaðið/Eggert Starfslið Eygló Héðinsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson og Steinunn Oddsdóttir.  „Verum upplýst“ er þemað á Alþjóðadegi psoriasis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.