Morgunblaðið - 28.10.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2020
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með ára-
langa reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum
tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn
544 5151
tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Þjónustuaðilar IB Selfossi
Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu
Allar almennar
BÍLAVIÐGERÐIR
fasteignaverdmat.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Áfengislagabreytingar úr ráðuneyti
Óvíst um afgreiðslu í ríkisstjórn og þingflokkum Netverslun víns og sala í brugghúsum fyrirætluð
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Frumvarp til breytinga á áfengislög-
um er nú komið úr dómsmálaráðu-
neyti og er til yfirlestrar í forsæt-
isráðuneyti og fjármálaráðuneyti.
Ekki er gert ráð fyrir að veigamiklar
athugasemdir verði gerðar við það
þar og að það ætti því að öðru jöfnu
að geta farið á þingmálalista nú í
nóvember.
Hins vegar á eftir að leggja það
fram í ríkisstjórn, en þrátt fyrir að
það kunni að hljóta samþykki þar er
óvíst um hvernig málinu reiðir af í
þingflokkum stjórnarflokkanna, svo
það geti orðið stjórnarfrumvarp.
Í frumvarpi Áslaugar Örnu Sigur-
björnsdóttur dómsmálaráðherra er
lagt til að rekstur innlendra vefversl-
ana með áfengi í smásölu til neyt-
enda verði heimilaður. Þá er einnig
lagt til að smærri brugghúsum verði
gert kleift að selja áfengt öl í smá-
sölu á framleiðslustað.
Sé litið til sögunnar hafa breyting-
ar á áfengislögum ekki átt greiða leið
í gegnum ríkisstjórnir, en ýmislegt
bendir þó til þess að mál af þessu
tagi kunni að eiga víðtækari stuðn-
ing en oftast, þótt tæplega ríki fullur
einhugur um þau í nokkrum þing-
flokki stjórnarinnar. Í því samhengi
má nefna tvennt, sem ýtir á það.
Annars vegar vilja brugghús, sem
mörg eru á landsbyggðinni, geta selt
veigar til ferðamanna þegar þeir
fara að koma til landsins á ný, en
hins vegar eru uppi áhyggjur af því
að vínkaupmenn eða brugghús
freisti þess að leita réttar síns hjá
EFTA-dómstólnum.
Stjórnarandstaðan gæti
hlaupið undir bagga
Komist málið á dagskrá, hvort
sem það verður sem stjórnarfrum-
varp eða þingmannamál, mun það
ekki aðeins komið undir atkvæðum
stjórnarþingmanna, því það mun
njóta nokkurs stuðnings í stjórnar-
andstöðunni líka. Hanna Katrín
Friðriksson, þingflokksformaður
Viðreisnar, segist ekki gera ráð fyrir
öðru en flokkur hennar muni styðja
það. Eins er talið að Píratar muni
ekki leggjast gegn því, en í Miðflokki
og Samfylkingunni liggur ekki fyrir
nein afstaða og mun beggja sjónar-
miða gæta, með og á móti.
Nokkur áhugi og skiptar skoðanir
eru um málið, líkt og sjá mátti af 147
umsögnum í samráðsgátt.
Morgunblaðið/Eggert
Bjór Skálað í bjór á brugghúsinu
þar sem hann var búinn til.
„Ég tel að við þurfum alveg sér-
staklega á því að halda núna, í þessum
faraldri sem hefur dregist svolítið
mikið á langinn, lengur en flestir
reiknuðu með. Það er alveg með ólík-
indum hvað frískleg hreyfing getur
haft góð áhrif á andlega líðan og gert
okkur léttari bæði í skapi og léttari á
okkur,“ segir Ágústa Johnson, fram-
kvæmdastjóri Hreyfingar.
Næstu vikurnar ætla Hreyfing og
mbl.is að taka höndum saman og
koma með líkamsræktina heim í stofu
til þín. Alls er um að ræða 10 þætti
þar sem áherslan er lögð á fjöl-
breyttar æfingar til að styrkja líkama
og sál. Þættirnir munu birtast á
mbl.is á mánudags-, miðvikudags- og
föstudagsmorgnum. Þátttakendur
þurfa ekki að eiga neinn búnað til að
framkvæma æfingarnar en þeir sem
eiga lóð geta nýtt þau með.
„Þetta eru fjölbreyttar æfingar
fyrir konur og karla á öllum aldri sem
vilja hreyfa sig, styrkja vöðvana, auka
þolið og liðleikann og bæta heilsuna,“
segir Ágústa sem segir það vera mik-
ilvægt fyrir alla að hreyfa sig, gjarn-
an daglega. „Til þess að halda lík-
amanum í góðu ástandi, stuðla að
bættri heilsu, bæta ónæmiskerfið og
ekki síst andlegu heilsuna.“
Fjölbreyttar æfingar sem hægt er að gera heima í stofu
Frískleg hreyfing hefur góð áhrif á andlega líðan fólks
Æfingaþættir á mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bætt heilsa Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar, segir að mik-
ilvægt sé fyrir alla að hreyfa sig daglega. Nýir þættir á dagskrá mbl.is.
Riða á bæjunum Grænumýri, Syðri-
Hofdölum í Blönduhlíð og Hofi í
Hjaltadal hefur verið staðfest. Sauð-
féð sem riðan greindist í kom frá
Stóru-Ökrum þar sem riða var stað-
fest í síðustu viku. Ákvörðun um
niðurskurð liggur ekki fyrir að svo
stöddu en frekari rannsóknir standa
yfir, að því er fram kom í tilkynn-
ingu frá Matvælastofnun í gær.
Í tilkynningunni segir enn fremur
að um tvö þúsund sýni hafi verið tek-
in úr sauðfé innan Tröllaskagahólfs
frá því grunur um riðu kom upp,
ásamt því að kortleggja flutninga
sauðfjár til og frá bæjum innan
hólfsins.
Upplýst verði um frekari niður-
stöður um leið og þær liggja fyrir.
Riða stað-
fest á þrem-
ur bæjum
Sauðfé Riða hefur verið staðfest á
þremur bæjum. Rannsókn í gangi.
Ekkert ákveðið
enn með niðurskurð
Morgunblaðið/Árni Torfason
Verðlaun Norðurlandaráðs voru afhent í gær-
kvöldi. Vegna kórónuveirunnar var ekki hægt
að halda verðlaunahátíðina hér á landi eins og til
stóð en þess í stað fór hún fram með stafrænum
hætti. Íslendingar sem hlutu tilnefningu komu
saman í Norræna húsinu í gær en engin verðlaun
féllu Íslendingum í skaut að þessu sinni. Vík-
ingur Heiðar Ólafsson og Of Monsters and Men
voru meðal þeirra sem tróðu upp.
Verðlaun Norðurlandaráðs afhent
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðlaunafhending með nýstárlegum hætti