Morgunblaðið - 28.10.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.10.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2020 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Túnikur • Bolir • Blússur Peysur • Ponsjó Snyrtivörumerkin okkar eru: M a d e i n I c e l a n d HAUSTVÖRUR Glæsilegar komnar Póstsendum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Óeirðir brutust út í nokkrum borg- um á Ítalíu í fyrrinótt eftir að mót- mæli gegn hertum sóttvarna- aðgerðum gegn kórónuveirunni fóru úr böndunum. Ástandið var einna verst í Tórínó og Mílanó, en þar fleygðu reið ungmenni grjóti og mólótoffkokteilum að lögreglubílum og brutu búðarglugga. Giuseppe De Matteis, lögreglu- stjóri Tórínóborgar, sagði í gær að óeirðirnar hefðu sett svartan blett á sögu borgarinnar, og vildi hann frek- ar tengja óeirðirnar við glæpastarf- semi en óánægju innan samfélagsins með hertar aðgerðir. Mótmælin beindust að ákvörðun- um ítalskra stjórnvalda um að neyða veitingastaði og búðir til þess að loka snemma. Hafa skipuleggjendur mót- mælanna boðað að þeim verði haldið áfram. Hertar aðgerðir á Skáni Ítalía er ekki eina ríkið í Evrópu sem hefur boðað hertar aðgerðir í skugga annarrar bylgju heimsfar- aldursins. Sóttvarnastofnun Svíþjóð- ar boðaði í gær að íbúar á Skáni ættu að forðast að hitta aðra en þá sem þeir deildu með heimili næstu þrjár vikurnar. Þá ættu þeir að forðast alla menningarviðburði, fundi, sem og að dveljast innandyra eins og á söfnum, bókasöfnum og líkamsræktarstöðv- um. Þetta eru sömu ráðleggingar og stofnunin veitti íbúum í Uppsölum í síðustu viku, nema þá giltu ráðlegg- ingarnar í tvær vikur. Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar, sagði að þetta væri erfitt haust og staðan yrði líklega enn erf- iðari áður en yfir lyki. Sagði hann að nýjum tilfellum hefði fjölgað um 70% á milli vikna, en það er ein mesta fjölgun tilfella í Svíþjóð í faraldrin- um til þessa. Rúmlega 115.000 tilfelli hafa verið skráð í Svíþjóð til þessa og 5.918 manns hafa látist af völdum kórónuveirunnar þar. „Léttara“ útgöngubann? Þýskir fjölmiðlar hermdu í gær að Angela Merkel Þýskalandskanslari vildi setja á „léttari“ útgáfu af út- göngubanninu sem Þjóðverjar beittu í vor til þess að stemma stigu við seinni bylgjunni. Merkel hyggst funda með leiðtogum sambandsland- anna 16 í dag, og er gert ráð fyrir að hún muni þar þrýsta á um að veit- ingahúsum og börum verði lokað og takmarkanir settar á mannamót, á sama tíma og búðir, skólar og dag- heimili fengju að vera áfram opin. Endanleg ákvörðun er þó í höndum sambandsstjórnanna sjálfra. Um 11.400 ný tilfelli greindust í Þýskalandi á mánudaginn og er ótt- ast að fyrir vikulok muni um 20.000 manns greinast á hverjum degi. AFP Óeirðir Lögregluþjónar í Tórínóborg höfðu í ýmsu að snúast í fyrrinótt. Kórónuóeirðir á Ítalíu  Hertar aðgerðir gegn kórónuveirufaraldrinum mælast illa fyrir  Tegnell varar við að ástandið muni enn versna  Merkel mælir fyrir „léttara“ útgöngubanni Bandaríkjastjórn lýsti í gær yfir von um að Frakkar og Tyrkir gætu létt á þeirri spennu sem ríkt hefur á milli ríkjanna undanfarna daga, en ríkin þrjú eru öll aðilar að Atlantshafs- bandalaginu. Sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins að deilur milli bandamanna þjónuðu engum tilgangi en styrktu einungis andstæðinga bandalagsins. Sagði hann hins vegar ekki hvaða afstöðu Bandaríkjastjórn hefði til deilnanna, sem blossuðu upp um helgina eftir að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, gagnrýndi Emmanuel Macron Frakklandsforseta fyrir um- mæli sín um íslamista og sagði hann þarfnast geðrannsóknar. Leiðtogar ýmissa Evrópuríkja fordæmdu ummæli Erdogans í fyrradag, en hann svaraði fyrir sig með því að líkja þjóðarleiðtogum Evrópu við fasista í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, sem stæðu að ofsóknum gegn múslimum. Viðvarandi spenna Samskipti Frakklands og Tyrk- lands voru stirð fyrir, þar sem Macr- on hefur verið óhræddur við að gagnrýna utanríkisstefnu Erdogans, þar á meðal afskipti Tyrkja í Sýr- landi, Líbíu og í átökunum í Na- gornó-Karabak-héraði. Þá hafa Frakkar lagt mikla áherslu á að Evrópusambandið standi við bakið á Grikkjum og Kýp- verjum í deilum þeirra við Tyrki um orkuauðlindir í austurhluta Miðjarð- arhafs. Ummæli Macrons hafa vakið nokkra reiði í ríkjum múslima, og voru fjölmenn mótmæli gegn Frökk- um í Bangladess í gær. Gengu um 40.000 manns um götur höfuðborg- arinnar Dakka í gær og hvöttu til þess að franskar vörur yrðu snið- gengnar og sendiherra Frakka vísað heim. Kalla eftir bætt- um samskiptum  Fjölmenn mótmæli í Bangladess AFP Mótmæli Um 40.000 manns eru sögð hafa mótmælt í Dakka. Tvær nýjar rannsóknir, sem birtar voru í tímaritinu Nature Astro- nomy á mánudaginn, benda til þess að mögulega sé vatn að finna á tunglinu í mun ríkari mæli en áður var talið. Casey Honniball, einn af höf- undum annarrar rannsóknarinnar, sagði við AFP-fréttastofuna að ef það væri rétt, og mögulegt væri að nýta, gæti það skipt sköpum fyrir geimferðalög, bæði til tunglsins og til annarra reikistjarna í sólkerfinu. Hún áréttaði hins vegar að hér væri ekki um vatnspolla að ræða heldur vatnssameindir sem væru mögulega fastar í glerperlum eða undir yfirborði tunglsins. GEIMVÍSINDI AFP Tunglið Leynist vatn þarna? Meira vatn á tungl- inu en talið var Mateusz Mora- wiecki, forsætis- ráðherra Pól- lands, varði í gær ákvörðun stjórn- lagadómstóls landsins, sem bannaði í raun fóstureyðingar í landinu nema ef getnaður væri kominn til eftir nauðgun eða þegar líf móðurinnar væri í hættu. Færri en 2.000 fóstur- eyðingar eru framkvæmdar í Pól- landi á ári hverju. Mótmæli gegn dómnum hafa nú staðið yfir í viku, og sagði Mora- wiecki tímabært að binda enda á „barbarismann“ og skemmdarverk sem fylgdu mótmælunum og varaði hann við því að lögreglan kynni að beita harðari aðgerðum, héldu mót- mælin áfram. PÓLLAND Mótmælendur láti af „barbarisma“ Mateusz Morawiecki Amy Coney Barrett sór embættiseið dómara við Hæstarétt Bandaríkj- anna í fyrrinótt eftir að 52 þingmenn repúblikana í öldungadeildinni sam- þykktu útnefningu hennar. Einungis einn repúblikani, Susan Collins frá Maine, greiddi atkvæði gegn skipan Barrett ásamt öllum 47 þingmönn- um demókrata, en Collins berst nú fyrir pólitísku lífi sínu í komandi kosningum, verandi fulltrúi ríkis sem jafnan styður demókrata. Andstæðingar fóstureyðinga fjöl- menntu fyrir utan hæstaréttarbygg- inguna í Washington og fögnuðu mjög, en talið er að skipan Barrett muni meðal annars geta haft áhrif á hvaða augum hæstirétturinn líti á löggjöf er varðar fóstureyðingar. Joe Biden, forsetaframbjóðandi demókrata, gagnrýndi í gær skipan Barrett svo stuttu fyrir kosningar, og sagði hana sýna hversu mikil- vægt það væri að fólk léti rödd sína heyrast í kosningunum sjálfum. Biden hefur heitið því að hann muni setja á fót þverpólitíska nefnd til að ræða umbætur við skipan dóm- ara, nái hann kjöri í forsetakosning- unum í næstu viku. Skipan Barrett staðfest í öldungadeildinni  Biden gagnrýnir skipan Barrett og hvetur fólk til að kjósa á þriðjudaginn AFP Embættisvígsla Amy Coney Barrett sver hér embættiseið sinn í fyrrinótt. Hæstaréttardómarinn Clarence Thomas (t.h.) sá um athöfnina, en Jesse M. Barrett, eiginmaður Amy, og Donald Trump Bandaríkjaforseti fylgdust með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.