Morgunblaðið - 28.10.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 28.10.2020, Síða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2020 ✝ ValgarðurBaldvinsson fæddist á Grund í Eyjafirði 28. októ- ber 1928. Hann lést að morgni 20. októ- ber 2020 á hjúkr- unarheimilinu Grenilundi á Greni- vík. Foreldrar hans voru Baldvin Pálmason frá Sam- komugerði í Eyja- firði, húsasmiður á Akureyri, fæddur 19. júlí 1900, dáinn 18. febrúar 1998, og Þórdís Benja- mínsdóttir frá Hrísum í Eyja- firði, ljósmóðir í Hrafnagils- hreppi og síðar húsfreyja á Akureyri, fædd 25. september 1892, dáin 29. september 1957. Bróðir Valgarðs er Gunnar Ingvi Baldvinsson verkfræð- ingur, búsettur í Kópavogi, fæddur 20. apríl 1932. Eig- inkona hans er Jónína Guð- Valgarður varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1949. Hann nam viðskipta- fræði við Háskóla Íslands á ár- unum 1949-1954. Valgarður vann alla sína starfsævi hjá Ak- ureyrarbæ. Hann var aðalbók- ari á árunum 1954-1957, bæj- argjaldkeri frá 1957-1963 og bæjarritari frá 1964-1998 er hann lauk störfum vegna ald- urs. Hann gegndi einnig nokkr- um sinnum störfum bæjarstjóra í forföllum. Valgarður var for- maður Ferðafélags Akureyrar á árunum 1968-1974. Hann starfaði í ýmsum nefndum og ráðum á vegum Akureyr- arbæjar, m.a. sem fulltrúi í leik- húsráði Leikfélags Akureyrar og var hann gerður að heiðurs- félaga í Leikfélagi Akureyrar árið 1998. Útför Valgarðs verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 28. október 2020, og hefst athöfnin kl. 13.30. Streymt verður frá athöfn- inni: https://tinyurl.com/y5cpxdvz Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á https://www.mbl.is/andlat mundsdóttir. Hinn 24. júní 1967 kvæntist Val- garður eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigrúnu Björgu Björgvinsdóttur, kennara á Akur- eyri, fædd 21. jan- úar 1937. Sigrún og Valgarður eignuðust tvö börn: 1) Eydís, fædd 9. ágúst 1968, sjúkraþjálfari, gift Clark McCormick. Börn þeirra eru Sigrún Mary, f. 1996, sam- býlismaður hennar er Daði Freyr Guðjónsson. Bryndís Ann, f. 2000 og Alexander Reid, f. 2010. 2) Baldvin, fæddur 23. maí 1974, matvælafræðingur og gæðastjóri. Börn hans eru Þor- finnur Ari Herrmann, f. 2002, og Valgerður Bára, f. 2006. Móðir þeirra er Kristín Anna Þórarinsdóttir. Elsku afi Valgarður hefur kvatt okkur. Hann skilur eftir sig minn- ingar um góðan mann sem mörg- um þótti vænt um. Ég var fyrsta barnabarn afa Valgarðs og ömmu Sigrúnar og hann var sæll og spenntur fyrir nýja hlutverkinu. Hann átti síðar eftir að verða afi fimm barna og fátt veitti honum meiri gleði en velgengni okkar allra. Í æsku var ég mikið í Álfa- byggðinni hjá ömmu og afa. Ég fór þangað eftir skóla og borðaði oft kvöldmat með þeim. Það besta sem ég fékk voru nýjar afakartöfl- ur úr garðinum. Yfir matnum horfðum við saman á kvöldfrétt- irnar og í hvert sinn sem sást til Boga Ágústssonar sagði ég „sjáið, þarna er afi!“ sem fékk afa alltaf til að hlæja. Ég leit mikið upp til afa og mér fannst skemmtilegt að fá að gera eins og hann. Að leggja mig í afa- herbergi, gera heimanámið inni á afaskrifstofu og svona mætti lengi telja. Ég man sérstaklega vel eftir fuglaskoðunarferðum okkar afa. Þá fórum við í bíltúr inn Eyja- fjörðinn með fuglahandbók og kíki, flettum upp fuglunum sem við sáum og fræddumst um þá. Afa fannst gaman að segja sögur frá því þegar hann var ung- ur og ferðalögum þeirra ömmu. Þær áttu það til að verða ansi langar en afi var ekki þekktur fyrir að tala hratt. Það var samt allt í lagi því ég hafði gaman af sögunum hans og naut þess að hlusta, sérstaklega þegar það sem hann rifjaði upp fékk hann til að brosa. Í hvert sinn sem við kvödd- umst hélt afi fast og lengi í hönd- ina mína. Þegar ég var yngri þótti mér þetta svolítið skrítið en þegar ég eltist skildi ég að þetta var hans leið til að segja mér að hann elskaði mig og var stoltur af mér. Elsku afi minn, ég á þér svo margt að þakka. Ég veit að þú vakir yfir mér og ég ætla að halda áfram að gera þig stoltan. Ég geymi þig og minningarnar okk- ar i hjartanu það sem eftir er ævi minnar. Hvíldu í friði. Þín Sigrún Mary. Afi var afskaplega góðhjartað- ur og umhyggjusamur maður. Hann veitti okkur systkinunum ávallt hvatningu í hverju sem við tókum okkur fyrir hendur og studdi ávallt vel við bakið á okk- ur. Elsku afi gaf okkur allmörg góð ráð í gegnum tíðina, sem án efa munu koma sér vel í framtíð- inni. Minning hans mun seint gleymast og mun hann ávallt eiga stað í hjarta okkar. Valgerður Bára og Þorfinnur Ari Herrmann. Valgarður bróðir minn fæddist á Grund í Eyjafirði þar sem móð- ir okkar var starfandi ljósmóðir. Árið 1930 fluttu foreldrar okkar til Akureyrar og þar fæddist ég 1932 á Hamarstíg 4. Þriggja vikna gamall var ég borinn niður í Munkaþverárstræti 10 og þar ól- umst við bræðurnir upp. Það var gott að vera á Ytri brekkunni. Þar voru bæði klappir og tún þar sem hægt var að leika sér. Einn bóndinn sagði: „Þið megið leika ykkur á túninu bara ekki síðustu þrjár vikurnar fyrir slátt.“ Það fór ekki hjá því að þótt ekki sé meira en fjögurra ára ald- ursmunur á okkur bræðrunum þá lærði yngri bróðirinn margt af þeim eldri og þess naut ég auðvit- að. Valgarður bróðir minn var alla tíð einstaklega vandvirkur maður sama hvað hann fékkst við. Gamall vinnufélagi minn og vinur sem ekki þekkti Valgarð sagði mér frá ferð sem hann fór til Akureyrar og ákvað þar að skoða Menntaskólann. Það var auðvitað auðsótt og hann skrifaði nafnið sitt í gestabók skólans. Eins og flestra er háttur las hann næstu nöfn á síðunni ef vera kynni að hann þekkti einhvern. Sér hann þá ekki skriftina mína á einu nafnanna en þegar betur var að gáð stóð nafnið mitt ekki skrif- að í bókina heldur stóð þar Val- garður Baldvinsson. Þetta varð til þess að hann heilsaði upp á bróður minn sem var þar rétt hjá. Síðan þetta var hefur að vísu rit- hönd mín breyst meira en rit- hönd Valgarðs. Valgarður tók stúdentspróf úr máladeild Menntaskólans 1949, hóf síðan nám í viðskiptafræði við Háskólann og lauk prófi þaðan 1954. Sama ár var hann fastráð- inn hjá Akureyrarkaupstað og gegndi þar ýmsum störfum til starfsloka. Við Nína giftumst í júlí 1956 á meðan ég var enn í fyrri hluta verkfræðináms í Reykjavík. Þá var móðir mín veik á sjúkrahúsi á Akureyri svo að eftir giftinguna fórum við norður til að heim- sækja hana. Þá bauð Valgarður okkur ásamt pabba í ferð í Ópaln- um sínum austur í Mývatnssveit. Við gistum eina nótt í Reykjahlíð og fórum síðan til baka og suður. Mamma dó árið eftir, árið sem ég fór til Kaupmannahafnar í fram- haldsnám. Þegar við Nína komum heim aftur og settumst að í Reykjavík skapaðist sú venja að pabbi og Valgarður komu að norðan og voru hjá okkur um jólin. Þetta lagðist af eftir að Sigrún og Val- garður giftust 1967. Eftir það kom pabbi einn á jólunum meðan hann hafði heilsu til. Eftir að Sigrún og Valgarður fluttu í Álfabyggð 1 gistum við oftast hjá þeim þegar við fórum til Akureyrar. Pabbi dó 1998. Síðan hefur ferðum okkar norður og þeirra suður fækkað. Síðast hittumst við bræðurnir þegar dótturdóttir Valgarðs Sig- rún Mary hélt útskriftartón- leikana sína í Kópavogi í maí í fyrra. Eftir tónleikana komu Sig- rún og Valgarður, Eydís og Bald- vin og fjölskyldur þeirra beggja ásamt okkar börnum og tengda- dóttur heim til okkar. Þar áttum við öll ánægjulega stund og eng- um datt til hugar að nokkur yrði þar kvaddur hinstu kveðju. Við Nína sendum Sigrúnu, Eydísi, Baldvin og öllum hinum innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Baldvinsson. Fyrir réttu ári hafði Sigrún Björgvinsdóttir samband við mig og tjáði mér að eiginmaður henn- ar, Valgarður Baldvinsson, fyrr- verandi bæjarritari á Akureyri, hefði hug á því að hitta mig. Þetta kom ofurlítið flatt upp á mig en að sjálfsögðu bauð ég þau hjartanlega velkomin. Þau góðu hjón, Valgarður og Sigrún, komu skömmu síðar í heimsókn á skrifstofu mína og við Dan Jens Brynjarsson fjár- málastjóri áttum með þeim nota- lega stund yfir kaffibolla. Rifjað- ar voru upp gamlar og góðar sögur af starfinu í Ráðhúsi Ak- ureyrarbæjar á árum áður, Val- garður færði mér falleg blóm og óskaði mér velfarnaðar í starfi. Mér þótti óskaplega vænt um þessa hlýlegu heimsókn þeirra hjóna og undraðist hversu ern Valgarður væri, kominn yfir ní- rætt. Nú er Valgarður Baldvinsson genginn. Gamlir starfsfélagar bera honum afar vel söguna; hann hafi verið hvers manns hugljúfi, svo kurteis alla tíð að eftir var tekið, sannkallaður herramaður. En þrátt fyrir afar ljúfmannlega framkomu var Val- garður jafnan fastur fyrir og fylginn sér. Mér er sagt að stundum hafi virst sem svo að hann bæri hag sveitarfélagsins fremur fyrir brjósti en sinn eigin hag, enda hafði hann starfað hjá Akureyrarbæ allan sinn starfs- aldur. Valgarður var afar ná- kvæmur og vandvirkur í öllum sínum störfum. Hann hafði ákaf- lega fagra rithönd og íslensku- kunnáttu hans var við brugðið. Um sína tíð ritaði hann ótal fund- argerðir og fáheyrt var að hrófla þyrfti við einhverju sem frá hans hendi kom. Valgarður kom til starfa fyrir Akureyrarbæ árið 1954 þegar hann hafði lokið prófi í viðskipta- fræði frá Háskóla Íslands, fyrst var hann aðalbókari en síðan bæjargjaldkeri. Árið 1964 tók hann við starfi bæjarritara en í því fólst að vera einnig staðgeng- ill bæjarstjóra og því starfi gegndi hann til ársins 1998 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Valgarður sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfé- lagið og sat meðal annars í leik- húsráði Leikfélags Akureyrar. Hann var um síðir gerður að heiðursfélaga þess. Við leiðarlok vil ég fyrir hönd Akureyrarbæjar þakka Valgarði fyrir trygglyndi sitt og trúfestu í störfum fyrir Akureyrarbæ og er þakklát þeim hjónum fyrir að hafa átt frumkvæðið að því að eiga með mér fund á síðasta ári. Fjölskyldu Valgarðs sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. Valgarður Baldvinsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALDIMAR JÓNSSON skipasmiður og fv. yfirlögregluþjónn, lést í faðmi ástvina sinna á heimili sínu í Hafnarfirði föstudaginn 23. október. Útförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Halldórsdóttir Jóhanna Valdimarsdóttir Grétar Örn Marteinsson Anna Valdimarsdóttir Guðmundur Örn Jónsson Halldóra K. Valdimarsdóttir Jónatan Guðnason Margrét G. Valdimarsdóttir og fjölskyldur Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RANDVER GUNNAR KARLESSON, Norðurgötu 35, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 13.30. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður steymt á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - Beinar útsendingar. Elísabet Randversdóttir Ólafur Steinarsson Karles Randversson Kristbjörg Egilsdóttir Inga Randversdóttir Sævar Björnsson Arnbjörn Randversson Þorgerður Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, Laugarási, lést fimmtudaginn 22. október. Arngrímur Fr. Ólafsson Ásta Ólafsdóttir Vignir Jónsson Einar Ólafsson Gunnhildur Stefánsdóttir Sveinn Ólafsson og barnabörn Okkar ástkæri, RÓBERT TRAUSTI ÁRNASON, fv. sendiherra og forsetaritari, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 23. október. Útför verður auglýst síðar. Klara Hilmarsdóttir Kristján Þórðarson Soffía Rúna Jensdóttir Hilmar Þórðarson Rannveig Jóhannsdóttir Klara Rún Hilmarsdóttir Friðrik Þór Hjálmarsson Baldur Freyr Hilmarsson Embla Rós Friðriksdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JUDITH JÚLÍUSDÓTTIR frá Atlastöðum í Fljótavík, lést á heimili sínu á Seljahlíð 22. október síðastliðinn. Jarðarförin fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 30. október klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður útförinni streymt í gegn um mbl.is/andlat. Þóra Stefánsdóttir Anna Stefánsdóttir Ronald Símonarson Margrét Stefánsdóttir Jóhann H. Albertsson Ólafur Stefánsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær móðir okkar, SIGFRÍÐUR E. INGVARSDÓTTIR, Litlu-Brekku, Garðabæ, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 13. Gunnlaugur I. Ólafsson Elín L. Rúnarsdóttir Fjóla S. Ólafsdóttir Ingvar G. Ólafsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskulegur frændi okkar og vinur, STEFÁN G. STEFÁNSSON frá Kalastöðum, lést þriðjudaginn 20. október á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 29. október klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir, en athöfninni verður streymt frá Akraneskirkju á slóðinni www.akraneskirkja.is. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.