Morgunblaðið - 28.10.2020, Page 28

Morgunblaðið - 28.10.2020, Page 28
Kvartettinn Brim er tilnefndur til Dönsku tónlistarverð- launanna í ár sem nýliði ársins fyrir djassplötuna Anthro- pocene. Örn Ingi Unnsteinsson stofnaði kvartettinn í Köln í Þýskalandi þar sem hann bjó og stundaði nám við Hochschule für Musik und Tanz og er Brim rafmagnaður djasskvartett skipaður Erni Inga, sem er bassaleikari og lagahöfundur, Stefan Karl Schmid saxófónleikara, Jan Philipp trommara og Yannis Anft, píanó- og hljómborðs- leikara. Kvartettinn hefur leikið saman í nokkur ár og gaf út frumraun sína, Anthropocene, 1. júní síðastliðinn en Örn Ingi er búsettur í Kaupmannahöfn. Kvartettinn Brim tilnefndur til Dönsku tónlistarverðlaunanna sambönd hafa þessa töfra að koma manni á óvart. Þau verða aldrei leið- inleg því allt getur gerst. Það er skemmtilegt.“ Þráinn bætir við að hann hafi lært mikið af Theobald. „Ekki síst að reyna að hvíla glaður í líðandi augnabliki og meta tiltölulega ein- falda hluti, sem eru í kringum mann og eru í raun og veru dásamlegir.“ Hreyfingin sé drifkrafturinn og það að vera úti með dýri sé mikið ævin- týri. „Það tvöfaldar upplifunina sem maður fær út úr því að vera úti í náttúrunni, sem er mjög gefandi, auk þess sem alltaf er gaman að vera með góðum félaga einhvers staðar, hvort sem hann hefur tvo fætur eða fjóra.“ Hundar eru jafn ólíkir og þeir eru margir, en Þráinn ber þeim almennt vel söguna. „Heilt yfir finnst mér þeir miklu skemmtilegri og heil- steyptari en gengur og gerist með manneskjur. Þetta er ágætur fé- lagsskapur.“ Hann leggur áherslu á að mikil ábyrgð fylgi því að eiga hund og hann mæli ekki með því að fólk fái sér hund, ef því til dæmis leiðist, og bíði eftir því að hann geri eða segi eitthvað skemmtilegt. Þannig virki hundalíf ekki heldur sé um samstarf að ræða. Dýr séu ekki rafknúin heldur lifandi skepnur með þeim kvöðum sem því fylgir. „Að eiga hund er ákveðið uppeldis- og ábyrgðarhlutverk sem maður fær endurgoldið með nærveru, væntum- þykju og skemmtilegheitum.“ Það er sannkallað hundalíf. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Samband manns og hunds er með ýmsum hætti og í bókinni Hunda- líf … með Theobald, sem JPV út- gáfa gefur út og er samvinnuverk- efni hunds og manns, segir Þráinn Bertelsson frá lífi sínu með frönsk- um fjögurra ára gömlum bolabít í dagbókarformi. Tildrög bókarinnar má rekja til óreglulegra færslna Þráins á Face- book um samskipti þeirra Theo- balds. Hann segir að margir, sem gleðji aðra en fjölskylduna „á bók allra bóka“, séu hvattir til að gefa efnið út í bók og hann hafi fundið fyrir því. Hann hafi samt tekið því þung- lega, þar til koll- egar og virtir menn í rithöfundastétt hafi lagst á árarnar. „Þá hugsaði ég með mér að kannski væri einhver glóra í því að gefa út bók um samskipti okkar.“ Í blíðu og stríðu Theobald og Þráinn fara í nokkra göngutúra daglega og þar af í eina langa göngu úti í náttúrunni, ganga eða hlaupa þrjá til tíu kílómetra eft- ir veðri. Tengslin hafa styrkst með hverjum deginum og þótt talsam- bandið sé án orða hefur Þráinn skráð samskiptin á skemmtilegan, hnyttinn og oft heimspekilegan hátt. „Sambandið er líkt því þegar börn eiga ósýnilegan vin, sem talar við þau,“ segir reyndur höfundurinn með þeim fyrirvara að hann muni ekki eftir samtölum við ósýnilega vini. Eins megi líkja sambandinu við það sem myndast á milli rithöfundar og persóna hans í bók eða kvik- myndahandriti. „Þá gerist stundum sá dásamlegi hlutur að persónur í verkinu fara að tala sjálfstætt, segja eitthvað sem maður reiknar ekki með að þær myndu segja, og það er óskaplega skemmtileg upplifun, eitthvað skylt sambandinu við Theo- bald, því hann segir oft furðulegustu hluti, sem mér sjálfum hefði trúlega aldrei dottið í hug að hugsa. Öll góð Talsamband án orða  Þráinn Bertelsson og Theobald upplifa lífið saman  Bók félaganna er samvinnuverkefni hunds og manns Ljósmynd/Ágúst Elí Ágústsson Útivera Theobald og Þráinn Bertelsson eiga góðar stundir saman. STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- DUCA model 2959 L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,- L 241 cm Leður ct. 10 Verð 549.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- GOLF model 2945 L 176 cm Áklæði ct. 70 Verð 239.000,- L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,- L 244 cm Leður ct. 10 Verð 489.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Anton Sveinn McKee er í áttunda sæti yfir þá sund- menn sem náð hafa bestu tímum í heiminum frá upp- hafi í 200 metra bringusundi í 25 metra laug. Eins og Morgunblaðið greindi frá synti Anton Sveinn á 2.01,73 mínútum þegar hann sigraði í greininni í atvinnu- mannadeildinni í Ungverjalandi á laugardaginn. Ein- ungis sjö hafa náð betri tíma í greininni í 25 metra laug en heimsmetið á Rússinn Kirill Prigoda frá því í Kína 13. desember árið 2018. Mettími hans er 2:00,16 mínútur. Nánar er fjallað um stöðu Antons í blaðinu í dag. »23 Einungis sjö hafa synt 200 metrana hraðar en Anton í 25 metra laug ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.