Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 2
S kjótt skipast veður í lofti. 14. febrúar síðastliðinn birtist í Morgun- blaðinu frétt undir fyrirsögninni „Smithætta hér á landi lítil“ og var þar vísað í nýja stöðuskýrslu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Byggði sú skýrsla aftur á áhættumati Sóttvarnastofnunar Evrópusam- bandsins. Á fáum vikum breyttist hins vegar allt og í fyrsta sinn í sögunni hafa ríkisstjórnir um veröld víða ákveðið að stöðva með valdboði stærstan hluta hag- kerfa sinna. Síðan þá hefur baráttan staðið yfir, bæði á sviði heilbrigðismála en einnig á vett- vangi atvinnulífsins þar sem fjölmörg fyrirtæki róa lífróður. Sum eru nú þegar sokkin en önnur munu sigla í gegnum brimskaflinn. Í þessu fári öllu höfum við sem samfélag kynnst mikilvægi þess að skima fyrir veirunni. Leita vágestinn uppi og einangra hann. Með því að hvetja þá sem finna fyrir einkennum eða hafa verið í námunda við veikt fólk, má ná utan um vandann og bregðast við með viðeigandi hætti. Það er stórkostlegt að sjá hvernig vísindin virka og hvernig þeim vex ás- megin dag frá degi. Að lokum mun sigur fást. Skimanir og próf fara víða fram og eru ekki nýjar af nálinni í heilbrigðiskerfinu. En svipaða sögu má einnig segja af fyrirtækjamarkaðnum hér á landi. Í rúman áratug hefur Creditinfo gefið út lista yfir þau fyrirtæki sem teljast framúrskar- andi. Þau eru það ekki einvörðungu vegna þess að þau hafa skilað hagnaði og raunar er ekki rýnt sérstaklega í hvort hann sé mikill eða lítill. Litið er til annarra heilbrigðismerkja sem máli skipta. Þau mega ekki vera í vanskilum, eiginfjárhlut- fallið þarf að vera sterkt og eignirnar umtalsverðar. Þá verður fyrirtækið að skila ársreikningi innan þess frests sem reglur kveða á um. Úttekt af þessu tagi, sem Creditinfo hefur haft veg og vanda af að innleiða hér á landi, skiptir sköpum. Fólk hefur lært að treysta því heilbrigðisvottorði sem fylgir því að fyrirtæki teljist framúrskarandi. En áhrif „skimunarinnar“ hafa jafnvel víð- tækari áhrif. Þannig ræddi ég nýverið við stjórnanda fyrir- tækis sem verið hefur í hinum útvalda hópi allt frá upphafi. Spurði ég hann hvort þetta skipti hann máli. Svarið var einfalt: „Fyrstu árin eftir hrun var þetta gríðarlega mik- ilvægt og hjálpaði okkur að komast í gegnum erfiðleikana. Þegar betur áraði var þetta skemmtilegt og gaf okkur tilfinningu fyrir því að við værum að vinna gott starf. Nú mun þetta aftur skipta máli.“ Kannski er það með skimanir á fyrirtækja- markaðnum eins og í heilbrigðiskerfinu að þær skipta fyrst og fremst máli þegar þrengir að. En þá er líka mikilvægt að hafa samanburð frá fyrri árum. Hann er að finna hér og um leið listann yfir þau fyrirtæki sem eiga skilið að bera sæmdarheitið framúrskarandi. Er búið að „testa“ þig? Stefán Einar Stefánsson Mest selda vara Iðnmarks er osta-stjörnupopp. Það stendur fyrir 20% af ársveltunni. Í kjölfarið fylgja Stjörnupopp og Fitness-popp. Ostapopp 20% veltunnar 28 Kórónuveiruárið hefur útheimt mikinn sveigj- anleika. Hótela- og veitingamarkaðurinn hefur skroppið saman en sala á fiski á netinu eykst. Hræringar á mörkuðum 18 Einn liður í að auka tekjur stoð- og hjálpartækjafyrirtækisins Stoðar er að sögn Ásu Jóhannes- dóttur að kynna fyrirtækið betur á almennum markaði. Auka tekjur með betri kynningu 44 Nú styttist í að Garðheimar kynni teikningu að nýrri stórverslun fyrirtækisins sem staðsett verður í Álfabakka. Stefna á uppbyggingu 24 Formaður SA segir að samhent átak þurfi til þess að viðhalda og verja störfin í landinu. Þar þurfi allir að leggjast á eitt á komandi mánuðum. Verja þarf störfin 16 2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Útgefandi Árvakur Umsjón Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Þór- oddur Bjarnason tobj@mbl.is, Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Auglýsingar Berglind Guðrún Bergmann berglindb@mbl.is Grafík Sigurður B. Sigurðsson Forsíðumynd Atli Þór Alfreðsson Prentun Landsprent ehf. Unnið í samstarfi við VIÐSKIPTA Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi? • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3 • Ársreikningi skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo • Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK • Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár • Rekstrarhagnaður (EBIT > 0) síðustu þrjú ár • Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú ár • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár • Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár Listanum er raðað í lækkandi röð eftir ársniðurstöðu í árs reikningi 2019. Allar tölur eru umreiknaðar í íslenskar krónur. Fyrirtækjum er skipt í eftirfarandi stærðarflokka: • Lítið 100-200 milljónir kr. í eignir alls • Meðalstórt 200-1.000 milljónir kr. í eignir alls • Stórt 1.000 milljónir kr. eða meira í eignir alls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.