Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
au stukku í raun út í djúpu laugina
árið 2016, hjónin Stefán Stefánsson
og Marta Sigurjónsdóttir, þegar þau
festu kaup á Hirzlunni ásamt Leifi
Aðalsteinssyni. En þau höfðu trú á því að í
kaupunum fælust mikil tækifæri, ekki síst á
markaði með skrifstofuhúsgögn. Þeim fannst
ríkja fákeppni á markaðnum og verðið of hátt.
„Hirzlan er 28 ára gamalt fyrirtæki á næsta
ári. Við fórum hins vegar í miklar breytingar á
því þegar við keyptum það. Við fluttum í 350
fermetra sýningarrými í Síðumúla og höfum
síðan komið okkur upp 1.000 fermetra vöru-
húsi. Við erum núna að vinna innan ramma-
samnings við Ríkiskaup og rétt tæplega nífald-
að veltuna frá því að við tókum við fyrirtækinu.
Fyrir þetta erum við afar þakklát og ánægð,“
segir Stefán þegar hann er spurður út í hvern-
ig aðkoma hans að fyrirtækinu hófst.
Hann segir að nýir eigendur hafi ekki haft
reynslu á þessum markaði en þó séð tækifæri á
honum. Ástæða þess að þau keyptu Hirzluna
voru góð vörumerki sem þau töldu mögulegt
að vinna með á skrifstofumarkaðnum, jafnvel
þótt áherslur Hirzlunnar hafi fram til ársins
2016 fyrst og fremst legið á markaði með
heimilishúsgögn.
Tækifæri í góðum umboðum
„Tækifærin sem við sáum voru einkum í
Topstar og Wagner. Hirzlan hefur átt í við-
skiptasambandi við Topstar í meira en tvo ára-
tugi og er einn elsti viðskiptavinur fyrir-
tækisins í heiminum. Wagner er í eigu Topstar
og það er merki sem við höfðum mikinn áhuga
á og er orðið flaggskipið í okkar starfsemi í
dag. En við höfum einnig bætt við fleiri vöru-
merkjum á borð við Nowy Styl og það eru
skref sem við tökum til þess að vaxa enn frek-
ar.“
Í fyrra nam velta fyrirtækisins um 340 millj-
ónum og Stefán segir að enn sé færi til vaxtar.
Draumurinn sé að Hirzlan sé með um 20%
markaðshlutdeild á sínum markaði og veltan
þá um 500 til 600 milljónir króna á ári.
„Við erum komin til að vera á þessum mark-
aði og það er ein af ástæðunum fyrir því að við
viljum breikka vöruúrvalið. Við ætlum okkur
t.d. stóra hluti í skólahúsgögnum. Það var
planið núna í haust en við höfum ekki enn haft
færi á að heimsækja nýja birginn okkar á Ítal-
íu.“
Stefán segir að markmiðið hafi verið að vaxa
um 10% á þessu ári en kórónuveiran hafi sett
strik í reikninginn.
„Við gefumst ekki upp gagnvart því mark-
miði fyrr en við lokun á gamlársdag,“ segir
hann og hlær. „En eins og þetta lítur núna út
finnst mér sennilegt að við verðum með sömu
veltu og í fyrra.“
Hann viðurkennir að kórónuveiran hafi
reynst áskorun fyrir Hirzluna eins og flest
önnur fyrirtæki.
„Við brugðumst hratt við og þar skiptir máli
að boðleiðirnar hjá okkur eru mjög stuttar. Við
fórum strax að auglýsa heimavinnustöðvarnar
sem seldust mikið í apríl og gera það raunar
enn. Við höfum fundið fyrir minni umsvifum
hjá sveitarfélögunum en stofnanir hafa ekki
minnkað við sig. Það sem hefur farið niður hjá
sveitarfélögunum hefur einstaklingsmark-
aðurinn í raun unnið upp. Fólk þarf núna að
vinna heima og það er nýr veruleiki fyrir
marga. Þar viljum við koma til aðstoðar og
pressa niður verðið til hagsbóta fyrir almenn-
ing.“
Ráðstafanir líkt og fleiri hafa gert
Þá segir Stefán að fyrirtækið hafi þurft að
gera ráðstafanir til þess að tryggja viðgang
starfseminnar. Nauðsynlegt hafi verið að
skilja alfarið milli lagerstarfseminnar og versl-
unarrýmisins og að þau séu ætíð meðvituð um
að fyrirtækið geti ekki lent allt í sóttkví á sama
tíma.
„Við höfum ekki lent í neinum óvæntum
vendingum enn þá. Það hefur auðvitað verið
mikil áskorun að vaxa svona hratt og þegar allt
í einu kemur bakslag þarf að hugsa hratt en
okkur hefur tekist það og fyrirtækið var vel í
stakk búið til þess. Við áttuðum okkur t.d.
snemma á því að það myndu fleiri bylgjur
koma í þessu og þess vegna vorum við fljót að
panta mikið inn eftir að framleiðslan komst
aftur í samt lag í sumar. Við höfum því góða
lagerstöðu inn á haustið og nýja árið.“
Meðal þess sem Hirzlan hefur lagt áherslu á
hin síðustu misseri er rammasamningur sem
fyrirtækið fékk gagnvart Ríkiskaupum. Oft og
iðulega sést auglýsingum bregða fyrir þar sem
stofnunum og ríkisfyrirtækjum er bent á
þennan samning.
„Það skiptir miklu máli að benda á hvar hag-
stæðasta verðið fæst. Rammasamningurinn
hefur reynst okkur mjög mikilvægur en hann
er líka ákveðinn gæðastimpill. Það fær ekkert
fyrirtæki svona samning nema það geti sýnt
fram á ákveðna veltu, að allar vörur séu vott-
aðar og þjónustan sé góð.“
Velgengnin samspil margra þátta
Og þar komum við að spurningunni sem öllu
máli skiptir. Hvernig er hægt að gera fyrir-
tæki eins og Hirzluna framúrskarandi?
„Það er samspil margra þátta. Það skiptir
gríðarlega miklu máli að hafa gott starfsfólk
og hátt þjónustustig og tryggja að verðið líði
ekki fyrir það. Gott samspil milli þessara þátta
skiptir öllu máli. Við sjáum t.d. með þjón-
ustuna að viðskiptavinir geta oftast pantað
vöruna hjá okkur og fengið hana daginn eftir.
Þessi markaður var gjarnan þannig hér áður
að það gat tekið upp undir þrjár vikur að fá
vörur í hendurnar eftir að þær voru pantaðar.
Það er alltof langur tími.“
ses@mbl.is
Vöxturinn reynst lyginni líkastur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
750. sæti
HIRZLAN
Lítið 171. sæti
Stefán Stefánsson
Eigendur Hirzlunnar hafa opnað rúmgott og glæsilegt sýningarrými í Síðumúla.
„Tækifærin sem við sáum voru einkum í Topstar og
Wagner. Hirzlan hefur átt í viðskiptasambandi við
Topstar í meira en tvo áratugi og er einn elsti við-
skiptavinur fyrirtækisins í heiminum,“ segir Stefán.