Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
E
ins og hjá mörgum öðrum verslunum
með íþróttavörur hefur salan gengið
vel hjá TRI ehf. það sem af er þessu
ári. „Fólk þyrstir í að hreyfa sig en
líkamsræktarstöðvarnar hafa verið lokaðar út
af faraldrinum og því sjá margir sér þann kost
vænstan að kaupa sér útivistarbúnað. Ástand-
ið er svipað í öðrum löndum og mikill meðbyr á
reiðhjólamarkaði en framleiðendur hafa rekið
sig á að aðfangakeðjurnar halda ekki í við
eftirspurn.“
Þetta segir Róbert Grétar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri TRI, en fyrirtæki hans er núna í
fyrsta skipti á lista Creditinfo yfir framúrskar-
andi fyrirtæki. „Áhuginn er slíkur að framleið-
endur gætu selt tvöfalt eða þrefalt það magn
sem þeir framleiða alla jafna, og þeir hafa get-
una til að auka hjá sér afköstin, en íhluti vant-
ar og er það að skapa flöskuháls sem mun taka
tíma að leysa úr.“
Með áherslu á reiðhjól eingöngu
TRI opnaði þegar viku vantaði í jólin árið
2011. Þá um sumarið höfðu félagarnir Ólafur
Baldursson og Bergþór Jóhannsson fengið þá
flugu í höfuðið að setja á laggirnar verslun sem
skyldi bjóða upp á vörur fyrir iðkendur þrí-
þrautar og því með allt sem þarf til að stunda
sund, hlaup og hjólreiðar. „Verslunin var rekin
í þeirri mynd fyrstu þrjú árin en þá var ákveð-
ið að breyta um áherslu og að TRI skyldi ein-
göngu verða reiðhjólaverslun,“ segir Róbert
og lætur það fljóta með að mörgum hafi þótt
nokkuð djarft teflt að stofna fyrirtæki af þessu
tagi skömmu eftir að fjármálahrun hafði sett
hagkerfi landsins á annan endann. „Fyrr en
varði vorum við komnir með húsnæði á leigu
án þess þó að vera með umboð frá nokkrum
framleiðanda eða vera búnir að tryggja okkur
vörur til að selja.“
Salan fór samt vel af stað og TRI landaði
umboði fyrir þýska reiðhjólaframleiðandann
Cube. Einnig selur fyrirtækið reiðhjólafatnað
frá kanadíska merkinu Louis Garneau og
ítalska framleiðandanum Castelli. Í vetur
starfa níu manns hjá versluninni en þegar
mest er um að vera á sumrin fer starfs-
mannafjöldinn upp í 24.
Sérhæfing einfaldar reksturinn
Það kann að koma lesendum á óvart að fyrir-
tæki sem er helgað reiðhjólasölu skuli hafa svona
marga starfsmenn yfir vetrarmánuðina en Ró-
bert segir að reiðhjólamenningin á Íslandi hafi
núna náð því stigi að hjól seljast allt árið um kring
og að auki sé í nógu að snúast á veturna við að
setja saman ný hjól og gera klár fyrir sölu þegar
sól tekur að hækka á lofti, auk þess að yfirfara
reiðhjól viðskiptavina sem vilja vera klárir fyrir
sumarið. „Hjólin koma til okkar í kössum og þarf
að setja þau saman, stilla og gera ýmislegt við
þau áður en kúnninn fær þau í hendurnar. Margt
er í gangi baka til sem viðskiptavinir sjá ekki þeg-
ar þeir koma í sýningarsalinn.“
Margir aðrir seljendur reiðhjóla hafa brugðið á
það ráð að selja aðra vöru með, s.s. skíði eða lík-
amsræktarbúnað, og þannig jafna betur út þær
árstíðabundnu sveiflur sem eru á hjólamarkaði.
Róbert segir það af vilja gert að TRI valdi sér
annað viðskiptamódel og bendir á að salan á
skíðabúnaði geti t.d. verið mjög sveiflukennd eftir
veðri og verslanir setið uppi með birgðir af óseld-
um varningi ef skíðasvæðin opna seint og loka
snemma. Með því að einblína á reiðhjólin einfald-
ast reksturinn og verður á margan hátt fyrir-
sjáanlegri, auk þess sem minna fjármagn er
bundið í vöru sem geyma þarf á lager. „Og þá
selst ágætismagn hjóla yfir háveturinn. Við höld-
um útsölu tvisvar á ári: í lok sumars og í janúar,
og margir búnir að læra á þetta kerfi okkar. Sá
hópur mætir stundvíslega á útsöluna og tryggir
sér vandað hjól á góðu verði um leið og við rým-
um fyrir nýjum módelum.“
Fjölskyldur hjóla saman
Þó að salan hafi gengið einstaklega vel það sem
af er þessu ári þá segir Róbert að allt frá stofnun
verslunarinnar hafi mátt greina stöðuga aukn-
ingu og reiðhjólamarkaðurinn glæðst ár frá ári.
„Hjólreiðar verða sífellt veigameira sport en
kaupendahópnum má í grófum dráttum skipta í
þrennt: Í fyrsta lagi er fólkið sem notar hjólreið-
arnar sem líkamsrækt og þykir jafnvel gaman að
keppa í greininni. Þessi hópur stækkar ört og má
t.d. sjá það að í hjólreiðakeppnum af öllu tagi fer
keppendum fjölgandi. Þá er hópurinn sem notar
reiðhjólið sem samgöngutæki og fer hjólandi í
vinnu eða skóla, og loks þeir sem kaupa reiðhjól
fyrir börnin sín,“ útskýrir Róbert. „Gaman er að
sjá hvernig þriðji hópurinn hefur stækkað í kór-
ónuveirufaraldrinum því margir hafa uppgötvað
hversu gaman það er fyrir fjölskylduna að fara í
hjólreiðatúra saman og útivist sem börn og full-
orðnir geta notið í sameiningu. Að kaupa reiðhjól
á alla á heimilinu er eitthvað skemmtilegt sem
fólk lætur eftir sér og sínum nú þegar ekki er t.d.
lengur að því hlaupið að fara með fjölskylduna í
utanlandsferð.“
Ekki lengur sérviska að hjóla allt árið
Mikil breyting hefur orðið á reiðhjólamenning-
unni á höfuðborgarsvæðinu og ekki óalgengt að
sjá hjólreiðafólk á götum borgarinnar allt árið um
kring. Róbert minnist þess þegar hann tók sig til
í lok 10. áratugarins og hjólaði allra sinna ferða
sex ár í röð. „Þá bjó ég í Vesturbænum en vann
uppi á Höfða og þótti svo óvenjulegt að eitt sinn
var ég stoppaður af fréttamanni á miðri leið til að
veita viðtal,“ segir hann. „Á þessum árum var
maður heppinn ef búið var að ryðja snjó af hluta
leiðarinnar að vetri til og þótti bæði óvenjulegt og
skrítið að hjóla í öllum veðrum.“
Hann segir miklu auðveldara að nota reiðhjól
sem samgöngutæki í dag. Rafmagnsreiðhjól létti
hjólreiðarnar þegar mótvindurinn er sterkur og
sveitarfélögin reyni eftir bestu getu að tryggja að
leiðin sé greið fyrir bæði hjólandi og gangandi
umferð þegar snjóar og frystir. „Stígarnir eru
fleiri og miklu betri en þeir voru og ágætar teng-
ingar á milli bæjarfélaganna. Er vandinn helst að
bæjarfélögin eru misdugleg við að moka á vet-
urna og virðast ekki samræma ákvarðanir um
það hvaða stíga á að hreinsa fyrst. Það veldur því
að fólk sem vill hjóla, t.d. frá Hafnarfirði inn í
Reykjavík, geturrekið sig á að stofnbrautir hjól-
reiðasamgöngukerfisins hafa ekki verið ruddar á
sumum stöðum.“
ai@mbl.is
Nóg að gera í búðinni allt árið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
786. sæti
TRI EHF.
Lítið 194. sæti
Róbert Grétar Pétursson
Morgunblaðið/Kristinn
Sprenging hefur orðið í vinsældum hjólreiða og margir sem hjóla allt árið um kring.
„Stígarnir eru fleiri og miklu betri en þeir voru og ágætar tengingar á milli bæjarfélag-
anna. Er vandinn helst að bæjarfélögin eru misdugleg við að moka á veturna og virð-
ast ekki samræma ákvarðanir um það hvaða stíga á að hreinsa fyrst,“ segir Róbert.