Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Á
bænum Úthlíð í Skaftártungu, þar
sem Mýrdalsjökull gnæfir yfir
landslaginu, reka hjónin Elín Heiða
Valsdóttir og Guðmundur Ingi Arn-
arsson meðalstórt sauðfjár- og kúabú. Starf-
semin gengur prýðilega og náði Hlíðarból ehf.
þeim árangri í ár að komast á lista Creditinfo
yfir framúrskarandi fyrirtæki.
Elín Heiða er fædd árið 1977 og hefur búið á
Skaftártungu alla sína tíð ef undan eru skilin
þau ár sem hún menntaði sig en hún útskrif-
aðist sem búfræðikandídat frá Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri. Hún tók við
hluta af býlinu af foreldrum síum árið 2001 og
árið 2009 var rekstrarformi fyrirtækisins
breytt í einkahlutafélag. „Það er allur gangur
á því hvaða rekstrarform bændur velja. Sumir
nota sína eigin kennitölu, aðrir kjósa að reka
svokallað félagsbú, en með einkahlutafélaga-
forminu er á margan hátt gert auðveldara að
leyfa nýrri kynslóð að taka við. Mér líkar
ágætlega við þetta rekstrarfyrirkomulag enda
gagnsætt og heppilegt á marga vegu,“ segir
hún.
Fer ekki í frí hvenær sem er
Eins lengi og hún man eftir sér hefur Elínu
Heiðu langað að vera bóndi. Hún segir starfið
geta verið mjög krefjandi á köflum en um leið
fjölbreytt og gefandi. „Bústörfin eru þannig að
hvert verk þarf að vinna á réttum tíma, fram-
leiðsluferillinn langur, og þess vegna ekki
hægt að hlaupa í frí hvenær sem manni sýn-
ist,“ segir Elín Heiða en það er einkum um há-
veturinn sem hún og Guðmundur láta það eftir
sér að taka gott frí. Síðast skutust þau til
Bandaríkjanna í byrjun árs, rétt áður en kór-
ónuveirufaraldurinn varð til þess að öllu var
skellt í lás.
„Ein manneskja getur haldið öllu gangandi
yfir veturinn en það falla samt alltaf til einhver
verk til viðbótar, eins og viðhald á húsakosti og
viðgerðir á tækjum, sem við reynum náttúru-
lega að sinna mest sjálf,“ segir Elín Heiða en
Valur faðir hennar býr enn á bænum og hjálp-
ar til við bústörfin.
Í Úthlíð eru rösklega 400 vetrarfóðraðar
kindur og um 160 nautgripir – þar af 60 mjólk-
urkýr. Starfsemin á býlinu er ósköp hefð-
bundin og hafa þau Elín Heiða og Guðmundur
t.d. ekki haft mikinn áhuga á að reyna fyrir sér
í þjónustu við ferðamenn eða matvæla-
nýsköpun. Í staðinn leggja þau þeim mun
meiri metnað í að hlúa að búfénaðinum og fara
sér í engu óðslega í daglegum rekstri. Þessi
nálgun hefur skilað þeim árangri að á síðasta
ári var rúmlega 10 milljóna króna hagnaður af
rekstri býlisins. „Árangurinn ræðst að miklu
leyti af ytri aðstæðum og vandasamt að spá
fyrir um hvaða verð fæst fyrir afurðina.
Nautakjötið seljum við í gegnum afurðastöð-
ina og ræðst af markaðsverði hverju sinni.
Stjórnvöld greiða að auki sláturálag en það
nemur aðeins örfáum krónum á hvern naut-
grip.“
Elín Heiða segir það flækja áætlanagerð og
ákvarðanir í rekstri bóndabýlis hvað eftir-
spurn og verð geta verið sveiflukennd. Um tvö
ár taki að rækta holdanaut upp í sláturstærð
og á þeim tíma geti mikið breyst. „Nýlega
lækkaði það verð sem bændur fá fyrir nauta-
kjöt og getur það leitt til þess að greinin dreg-
ur úr framleiðslu, sem svo kemur fram í
minnkuðu framboði eftir tvö ár sem gæti vald-
ið kaupendum vanda. Bændur og þeir sem að
greininni koma þurfa að gæta þess að sem
mestur stöðugleiki sé í rekstrarumhverfi land-
búnaðar svo að framboð og eftirspurn fylgist
að. Við þurfum jú öll að borða, framleiðsluferl-
arnir langir, og ekkert sem heitir að ætla að
rækta í dag það sem fer á diskinn á morgun.“
Neytandinn þarf betri upplýsingar
Spurð hverju hún myndi helst vilja breyta til
að styrkja íslenskan landbúnað segir Elín
Heiða að harðnandi samkeppni við erlendan
innflutning sé verulegt áhyggjuefni. Hún segir
vandann einkum felast í því að lítið gagnsæi sé
um það hvernig erlendir aðilar stunda sína
framleiðslu og neytendur eigi erfitt með að
bera saman þá valkosti sem þeim standa til
boða enda allur gangur á þeim vinubrögðum
sem tíðkast í landbúnaði annarra þjóða. „Bæta
mætti það eftirlit sem haft er með þeirri land-
búnaðarvöru sem flutt er inn til landsins og
ljóst að verið er að selja íslenskum neytendum
vöru frá landbúnaðarsvæðum þar sem ástand-
ið er ekki nægilega gott. Það er styrkur ís-
lensks landbúnaðar að neytandinn getur stólað
á það að sú vara sem hann fær er framleidd í
góðri sátt við fólk, fénað og umhverfi og t.d.
mikill munur á notkun sýklalyfja á Íslandi og
víðast hvar annars staðar,“ útskýrir Elín
Heiða og minnir á að bæði regluverk og staðl-
ar séu með strangasta móti í íslenskum land-
búnaði og gagnsæi mikið.
Elín Heiða bendir á að það væri strax til
mikilla bóta ef að neytandinn hefði aðgang að
meiri upplýsingum þegar hann t.d. gerir upp á
milli pakkninga við kjötborðið í stórmark-
aðinum, skammtar sér á disk í mötuneyti eða
þegar hann pantar af matseðli veitingastaðar.
„Það væri strax mikil framför ef tækist að inn-
leiða einhvers konar upprunamerki og ef neyt-
andinn gæti séð það svart á hvítu hversu mikið
magn stera og lyfja var notað við framleiðsl-
una.“
Kynbætur gætu breytt rekstrinum
Hún minnir á þá sérstöðu Íslands að vera
laust við marga alvarlega búfjársjúkdóma og
að halda verði áfram að gæta vel að smitvörn-
um. Að því sögðu þá er Elín Heiða mjög
áhugasöm um tilraunir sem gerðar hafa verið
til að kynbæta íslenska búfjárstofna, þar sem
ýtrustu varkárni hefur verið gætt. Það hafi
skert samkeppnishæfni íslenskra nautgripa-
bænda að innlendi stofninn vex ekki með sama
hætti og vinsælustu holdnautastofnar erlendis,
og afköst mjókurkúa ekki eins mikil og í sum-
um löndum. „Það gæti verið mjög gaman að
vinna með búfjárstofna sem gæfu meira af sér,
og myndi skapa allt aðrar forsendur í rekstr-
inum að ala naut sem að vaxa tvöfalt hraðar,
eða kýr sem mjólka tvöfalt betur,“ segir hún.
„Allt þarf þó að vera gert með öruggum hætti
og alls ekki bera óvart nýja sjúkdóma inn í
landið.“
ai@mbl.is
Langir framleiðsluferlar kalla
á sem mestan stöðugleika
704. sæti
HLÍÐARBÓL
EHF.
Lítið 145. sæti
Elín Heiða Valsdóttir
Í sveitasælunni. Meðal þess sem veitir íslenskum landbúnaði sérstöðu er lítil lyfjanotkun.
Elín Heiða ólst upp í sveitinni og sonur
hennar fær að njóta sömu forréttinda. Starf
bóndans er í senn gefandi og krefjandi.