Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 90
90 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
F
önn – Þvottaþjónustan er stærsta
einkarekna þvottahús landsins eins og
Ari Guðmundsson, framkvæmdastjóri
og eigandi, útskýrir fyrir blaðamanni.
Þvottahús ríkisspítalanna sem er nágranni
fyrirtækisins í Árbænum er svipað að stærð.
„Það var gott að eiga þvottahús ríkisspítalanna
að þegar kom upp eldur árið 2014 í húsnæði okk-
ar í Skeifunni og allt brann til kaldra kola. Þá
hlupu þau undir bagga og tóku við stóru verk-
efnunum okkar tímabundið,“ segir Ari en
þvottahús ríkisspítalanna annaðist stærstu við-
skiptavini Fannar í fimm mánuði, þar til fyrir-
tækið náði vopnum sínum á nýjan leik.
Ari segir að allt hafi endað vel hjá Fönn eftir
eldsvoðann. „Við náðum að halda áfram að sinna
okkar viðskiptavinum og byrjuðum að sækja
þvott strax tveimur dögum eftir brunann.
Starfsfólkið dreifði sér á sjö staði og við þvoðum
hingað og þangað um bæinn. Þarna sýndi sig
hvað við erum með fábært fólk í vinnu sem var
tilbúið að leggja allt á sig til að halda rekstrinum
gangandi.“
Ari segir að þetta hafi verið erfitt meðan á því
stóð. „Þegar allt fór í gang fimm mánuðum
seinna vorum við komin í nýtt húsnæði í Klett-
hálsi með nýjar vélar. Við vorum vel tryggð og
bankinn stóð vel við bakið á okkur. Við vorum í
eigin húsnæði í Skeifunni sem við seldum síðan í
framhaldi af brunanum eða árið 2017.“
Lömun ferðaþjónustu haft áhrif
Fönn er með breiðan og stóran hóp við-
skiptavina en samt sem áður hefur algjör lömun
íslenskrar ferðaþjónustu haft áhrif á starfsemi
fyrirtækisins. Mörg af þeim hótelum sem eru í
viðskiptum við Fönn eru lokuð í dag. „Við erum
þrátt fyrir það ágætlega sett og erum með mörg
smá og stór fyrirtæki í viðskiptum. Við þurftum
að fækka fólki vegna ástandsins og höfum einnig
nýtt okkur úrræði stjórnvalda að hluta til.“
Síðustu ár, eða frá því að fyrirtækið hóf starf-
semi í nýju húsnæði árið 2014, hefur verið góður
gangur í rekstrinum hjá Fönn. „Það varð mikil
aukning hjá okkur í takti við velgengnina í
ferðaþjónustunni. Við vorum þarna komin með
nýtt hús og ný tæki og náðum að anna aukning-
unni mjög vel. Sú breyting hefur líka orðið að
ferðaþjónustan er orðin heilsársþjónusta en
ekki bara yfir sumarið eins og var áður.“
Spurður að því hvert athafnasvæði Fannar sé,
segir Ari að fyrirtækið starfi á höfuðborgar-
svæðinu og fari einnig á Selfoss og vestur á
Akranes en lengra fari það ekki. Engin ástæða
sé til að raska viðskiptum smærri aðila úti á
landsbyggðinni. Auk þess sem flutningskostn-
aður sé hár.
Byrjaði sem skyrtuþvottahús
Guðmundur Arason, faðir Ara, stofnaði Fönn
árið 1960 í kjallaranum hjá móður sinni á Fjólu-
götu 19b og er því fyrirtækið 60 ára í ár. Ari seg-
ir að upprunalega hugmyndin hafi verið að reka
skyrtuþvottahús. Móðursystir Guðmundar hafi
unnið í þvottahúsi á þessum tíma og Guðmundur
hafi séð viðskiptatækifæri í skyrtuþvottinum,
enda gengu á þeim tíma allir í stífuðum skyrt-
um. „Það var nóg að gera í því í fyrstu en svo
breyttist þetta fljótlega í eitthvað stærra og
meira. Við vorum á Fjólugötunni til ársins 1966.
Þá fórum við á Langholtsveginn, stækkuðum
fljótlega upp á aðra hæð og síðan í kjallarann.
Síðan fluttum við í Skeifuna árið 1981 og að lok-
um hingað í Kletthálsinn árið 2014.“
Fönn hefur alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki
en Ari keypti reksturinn af föður sínum árið
2004. „Ég tók við sem framkvæmdastjóri árið
1991 og kaupin voru því eðlilegt næsta skref
þegar að því kom.“
Spurður hvort það sé gaman að starfa í
þvottabransanum segir Ari að hann þekki í
rauninni ekkert annað, enda hafi hann verið við-
loðandi þetta alla ævi. „Ég er mjög sáttur þegar
ég horfi til baka og hefði í rauninni ekkert viljað
hafa hlutina neitt öðruvísi. Það hefur gengið á
ýmsu og það hefur bara verið gaman að takast á
við þetta.“
Vöxtur Fannar hefur verið 4-5% á ári að með-
altali á undanförnum árum að sögn Ara. „Stund-
um eru þetta stærri stökk eins og 2015 þegar
ferðaþjónustan fór á flug og síðan fer þetta eitt-
hvað niður núna í ár vegna þessa bakslags í
ferðaþjónustunni.“
Ari segir að fyrirtækið sé mjög sveigjanlegt
þegar kemur að því að þjónusta viðskiptavini
þess. „Við erum að þjónusta bæði einstaklinga
sem koma hingað með jakkafötin og einnig mjög
stóra viðskiptavini. Það er enginn viðskiptavinur
of lítill eða of stór hjá okkur. Þegar við berum
okkur saman við þvottahús erlendis þá sjáum
við að þau eru miklu sérhæfðari en við, og starfa
annaðhvort á einstaklings- eða fyrirtækjamark-
aði. Þau sérhæfa sig jafnvel enn meira en það,
og einbeita sér kannski bara að því að þjónusta
hótel eða þvo bara vinnugalla, svo dæmi sé tek-
ið. Á okkar litla markaði höfum við farið þá leið
að þjónusta alla og teljum okkur gera það mjög
vel enda hafa margir af okkar viðskiptavinum
verið hjá okkur í fjöldamörg ár. Við erum einnig
með mottuþjónustu þar sem við komum og
skiptum um mottur hjá fyrirtækjum og hús-
félögum og hefur sá hluti starfsemi okkar geng-
ið mjög vel.“
Framleiðandinn tengist beint
En eru einhverjar markverðar nýjungar í
þvottageiranum? „Almennt séð eru ekki miklar
breytingar en mest hefur breyst á undanförnum
árum með tölvutækninni. Til dæmis eru vél-
arnar okkar tengdar beint til framleiðanda vél-
anna, þannig að ef eitthvað er að þá geta þeir
lesið af þeim og látið okkur vita hvað það er sem
gera þarf við. Þá er öll sápuskömmtun inn á vél-
arnar orðin sjálfvirk og hægt að aðlaga skömmt-
un á sápu fyrir hvern viðskiptavin ef svo ber
undir. Með þessari tækni er hægt að draga úr
ofnotkun á þvottaefnum sem oft á sér stað.“
Starfsaldur hjá starfsfólki Fannar er nokkuð
hár en margir starfsmenn hafa verið hjá fyrir-
tækinu í yfir 10 ár og nokkrir miklu lengur.
„Sumir hafa verið hér lengur en ég eða í 30 ár.
Ég vona að það séu ágætismeðmæli með vinnu-
staðnum.“
En hvað með fjölskylduna, er hún enn með
Ara í rekstrinum? „Systkini mín hafa öll unnið
hér á einhverjum tímapunkti og þau hjálpuðu
mér mikið eftir brunann. Nokkur barna þeirra
hafa svo unnið hér í sumarvinnu og einnig strák-
urinn minn en hann er í háskólanum á veturna.
Maður veit ekkert hvernig það þróast og vil ég
alls ekki stýra því.“
Hlustar á starfsfólk og viðskiptavini
Galdurinn við að reka þvottahús eins og Fönn
með jafn farsælum hætti og Ari hefur gert, er að
hans sögn að vera á staðnum og halda sér á tán-
um öllum stundum. „Þú þarft að hlusta á starfs-
fólkið og viðskiptavinina og sinna hvoru tveggja
mög vel. Ef þú ert með gott fólk og því líður vel í
vinnunni þá ganga hlutirnir miklu betur. Hjá
okkur í Fönn gengur allt út á að viðskiptavin-
irnir séu ánægðir og ef það er þannig þá á rekst-
urinn að ganga vel.“
tobj@mbl.is
Enginn viðskiptavinur
of lítill eða of stór
Morgunblaðið/Eggert
200. sæti
FÖNN
Stórt 162. sæti
Ari Guðmundsson
Starfsaldur hjá starfsfólki Fannar - Þvottaþjónustu er nokkuð hár en margir starfsmenn hafa
verið hjá fyrirtækinu í yfir tíu ár og nokkrir miklu lengur, eða í þrjátíu ár.
„Á okkar litla markaði höfum við farið þá leið að þjónusta alla
og teljum okkur gera það mjög vel enda hafa margir af okkar
viðskiptavinum verið hjá okkur í fjöldamörg ár,“ segir Ari.