Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 94
94 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
ó mýtan um ferhyrningslaga endur-
skoðandann lifi góðu lífi þá er margt
spennandi að gerast innan geirans
eins og Margrét Pétursdóttir, for-
stjóri EY, skýrir frá.
Hún segir að þegar farið er aftur í tímann
komi í ljós að mat á fyrirtækjum hafi breyst
mikið á síðari tímum. Áður fyrr hafi verðmæti
að mestu leyti endurspeglast í eignum á efna-
hagsreikningi í formi fastafjármuna, en sú þró-
un hafi átt sér stað að óefnislegar eignir líkt og
þekking og mannauður taki þar aukið rými.
Á sama tíma hafi átt sér stað hugarfarsbreyt-
ing á grundvallarspurningum um tilgang fé-
laga. Því hafði alltaf verið auðsvarað: að skapa
hluthöfum sínum arð.
Í dag segir Margrét að fókusinn sé ekki leng-
ur eingöngu á hluthafann (e. shareholder), held-
ur einnig á öðrum sem kunna að hafa beina eða
óbeina hagsmuni af starfsemi og tilvist félags
(e. stakeholders).
Með aukinni áherslu á það síðarnefnda verði
félög og fyrirtæki að aðlaga sig að þörfum og
væntingum fleiri en þröngs hóps hluthafa og
viðskiptavina. Kröfur samtímans horfi mun víð-
ar, t.d. á samfélagslega ábyrgð og umgengni við
náttúruna. Þessa nýju, stærri og óefnislegri
mynd þarf að verðmeta og endurskoða og „EY
er allt í þessu,“ segir Margrét.
Endurskoðun og nýsköpun
Sem dæmi um ný og spennandi verkefni
nefnir Margrét að EY sé í samvinnu Meniga
sem hafi hannað hugbúnað sem gerir notendum
sínum kleift að meta kolefnisspor sitt út frá
þeim upplýsingum sem liggja fyrir um persónu-
leg fjárútlát. Notandinn getur svo nýtt upplýs-
ingarnar til að kolefnisjafna eða draga úr eigin
fótspori.
„Þetta er ótrúlega spennandi verkefni,“ segir
Margrét og gott dæmi um fyrirtæki sem skapar
verðmæti á grunndvelli umhverfisvitundar. En
slík nýjung er ekki án áskorunar, því spurn-
ingin sé hvernig skuli lýsa slíkum verðmætum
og hvernig á að votta að upplýsingarnar sem
koma úr kerfinu séu réttar?
Þar kemur EY til sögunnar og nýtir þá þekk-
ingu sem er til innan samstæðunnar, bæði hvað
varðar staðla og aðferðafræði. Þannig má segja
að EY sem endurskoðunarfyrirtæki sé orðið
þátttakandi í nýsköpun, þ.e. með því að þróa að-
ferðir endurskoðunar til þess að meta verðmæti
og votta ferla á sviði sem enn er ungt og í stöð-
ugri þróun. Magrét bendir á að margir stórir
aðilar, t.d. lífeyrissjóðir, leggi aukna áherslu á
gildi eins og sjálfbærni og ábyrgar fjárfestingar
og þurfi því áreiðanlegar upplýsingar til að
styðjast við í sinni starfsemi.
Hugsa út fyrir boxið
Í framhaldi af þessum hugleiðingum segir
Margrét að eðli endurskoðunar sé að breytast.
Í grunninn hafi hún snúist um að staðfesta
sögulegar fjárhagslegar upplýsingar um við-
komandi félag, en í dag sé það ekki nóg og fyrir
því sé minni áhugi, einfaldlega þar sem gildi
slíkra upplýsinga hafi minna vægi. Á tíma sem
einkennist af hraða og örum breytingum hafi
upplýsingar úr ársreikningi ekki sama spágildi
um framtíð félags eins og það áður hafði.
Lagalegar kröfur um hefðbundin reiknings-
skil séu og verði til staðar, en þess utan verði að
finna ramma til að meta og endurskoða aðrar
upplýsingar sem skipta máli. Þar koma hinir
ýmsu staðlar til sögunnar og ákall sé um sam-
ræmingu á því sviði. En slíkar upplýsingar
verða að hafa gildi og ekki vera of froðu-
kenndar, segir Margrét og því þurfi stöðugt að
horfa út fyrir boxið til þess að miðla slíkum upp-
lýsingum á gagnlegan hátt til þeirra sem þurfa
á þeim að halda.
Frjálsleg í faraldri
Spurð um áhrif faraldursins á rekstur EY
segir Margrét að endurskoðun sé í eðli sínu
þannig að ef varúðar er gætt í rekstri sé auðvelt
að aðlagast sveiflum með því að draga saman
seglin. Þörf fyrir endurskoðun sé til staðar á öll-
um tímum en þó í mismiklum mæli.
Hún segist ekki fara varhluta af því að marg-
ir rekstraraðilar eigi í erfileikum og EY þurfi að
sigla milli skers og báru í því að laga reksturinn
að því ástandi: standa með rótgrónum við-
skiptavinum, en jafnframt reyna að tryggja af-
komu sína. Einnig segir Margrét það áskorun
að afla nýrra verkefna í núverandi umhverfi, en
EY hafi hingað til ekki þurft að grípa til veru-
legs samdráttar eða uppsagna.
„Það eru allir að aðlagast og gera sitt besta,“
segir Margrét og mesta breytingin sé kannski
sú að geta ekki hitt viðskiptavini sína, sem ann-
ars er snar þáttur í starfi endurskoðenda. Hún
segist merkja aukið umburðarlyndi hjá fólki,
þar sem fullkomnunaráráttan hefur vikið fyrir
afslappaðra umhverfi. Nú vinni fólk aukna fjar-
vinnu þar sem heimili renni saman við vinnuna
og enginn kippi sér upp við geltandi hund eða
grátandi barn á netfundi með viðskiptavini eða
vinnufélaga.
Enginn afsláttur af gæðum
Spurð um fyrirtækjamenningu EY segir
Margrét að eitt einkennið sé mikil samþætting,
sem birtist í því að samtal milli deilda og innan
samsteypunnar sé mikið og auðvelt sé að nálg-
ast upplýsingar og aðila þar á milli.
Teymisvinnu segir hún mikla og áherslu á að
allir hafi rödd og tilvist. „Hér tala allir saman og
enginn er merkilegri en aðrir,“ segir Margrét
og segir að andrúmsloftið innan EY einkennist
af ákveðnum léttleika. Sem dæmi nefnir hún að
forstjóri samsteypunnar í Ameríku birtist
gjarnan í mislitum sokkum á netfundum.
Hún segir þetta enga tilviljun, heldur hluta af
innri stefnumótum félagsins sem leggur m.a.
áherslu á að betri einstaklingur skapi betri
heild (better me, better us).
En hvernig skyldu þessar andstæður, þ.e.
ímyndin um hinn formfasta endurskoðanda og
frjálslegri útgáfu hans, mætast? Margrét er
fljót til svara og segir: „Það þýðir á engan hátt
afslátt af gæðum, sem eru í algerum forgrunni.“
Til frekari útskýringar bendir hún á að báðar
útgáfurnar geri mistök sem séu óumflýjanlegur
hluti af starfinu. Spurningin sé frekar hvernig
lært sé af þeim og hvernig kröfurnar til starfs-
manna eru settar fram. Á að líta á starfsfólk
sem vélmenni eða breyskar verur? spyr Mar-
grét og bendir á að taugatrekkjandi umhverfi
geti ýtt undir mistök í starfi og þjóni þar með
ekki tilgangi sínum.
sighvaturb@mbl.is
Afslappað án afsláttar af gæðum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
321. sæti
EY
Meðalstórt 113. sæti
Margrét Pétursdóttir
Skrifstofur EY eru í Borgartúni. Hjá fyrirtækinu starfa um 70 manns með fjölbreytta reynslu.
Endurskoðunarfyrirtækið EY er hluti af alþjóðlegri sam-
steypu. Margrét Pétursdóttir segir að mikil gróska sé í faginu
sem taki sífelldum breytingum í hröðum takti atvinnulífs.