Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Qupperneq 2
Hefurðu sýnt áður á Mokka?
Já, ég hélt mína allra fyrstu ljósmyndasýningu á
Mokka árið 1998. Ég hef lengi verið með það á bak
við eyrað að sýna þarna aftur, en það er ekki hvað
sem er sem passar þarna inn. Mér fannst loksins
myndir mínar frá Oaxaca í Mexíkó passa inn í and-
rúmsloftið þarna.
Bjóstu í Oaxaca?
Nei, en ég dvaldi þarna í fjóra mánuði. Þessar myndir
eru hluti af miklu stærra verkefni sem ég hef verið að
vinna að í 27 ár. Það eru myndir frá suðurhluta Mexíkó
sem enda einn daginn í bók. Mér fannst skemmtilegt að
taka smá stikkprufu og sýna smá hluta á Mokka. En ég
byrja á öfugum enda og sýni nýjustu myndirnar fyrst.
Hver er þín hugsun á bak við myndirnar?
Ég vinn aldrei með neitt konsept í huga heldur fálma mig í
gegnum aðstæður með myndavél á lofti. Eftir á reyni ég að
vera næmur fyrir því sem myndirnar segja mér og móta úr
þeim efnivið. Ég tók eftir alls kyns hlutum þegar ég kom heim
og fór að prenta myndirnar, en ég tek allt á svarthvíta 35 mm
filmu.
Hverju ertu að beina linsunni að?
Það er umhverfið, bæði manngert og náttúrulegt. Ég sá að þetta
tvennt speglaði hvort annað meira en ég áttaði mig á. Það er fátt
um fólk á myndunum.
Hverju öðru ertu að vinna að?
Ég er að vinna heimildamynd um vin minn og tónskáld Jóhann Jó-
hannsson, ásamt ýmsu öðru.
Ég vinn sem listamaður, með öllu því basli sem því fylgir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ORRI JÓNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Oaxaca
á Mokka
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Sími 555 3100 www.donna.is
Heildsöludreifing
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk
andlitsgríma
Andlitshlíf
móðufrí
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Það var landsleikur í Laugardalnum, Ísland og Skotland. Við vorumklárir á hliðarlínunni, upphitaðir og vel skóaðir, undirritaður,Konsertmeistarinn og Maran. Það kom á hinn bóginn fát á okkur fé-
laga þegar hægri-bakvörður íslenska liðsins kom haltrandi af velli snemma
leiks. „Skiptiði við mig, skiptiði við mig,“ grátbað hann þjáður. Við horfðum
hver á annan og enginn tók af skarið. Ég meina, staða hægri-bakvarðar var í
boði. Á endanum tók Konsertmeistarinn á sig rögg og hljóp inn á – enda van-
ur að láta hlutina passa.
Ég hygg að þessi viðbrögð okkar
félaga endurspegli afstöðu fólks al-
mennt. Bakverðir hafa aldrei verið
sætasta stelpan á ballinu. Við þann
sem átti að leiða dansinn í The Full
Monty var ekki sagt: „Þú ert Dix-
on!“ Eða: „Þú ert Winterburn!“ Með
fullri virðingu fyrir þeim góðu
drengjum. Sagt var fullum hálsi: „Þú
ert Adams!“ Þið skiljið hvað ég er að
fara? Bakvörðurinn stýrir ekki að-
gerðum, hann rúllar bara með.
Margt bendir til þess að þetta sé
nú loksins að breytast. Alltént aug-
lýsir íslenska heilbrigðiskerfið á tím-
um kórónuveirunnar hvorki eftir
stormsenterum né útherjum með skæri. Það auglýsir eftir bakvörðum. Og
fleiri bakvörðum. Það hefur meira að segja verið stofnuð sérstök „bak-
varðasveit“. Öðruvísi mér áður brá. Rík ástæða er til að gleðjast yfir þessari
umpóluðu afstöðu til bakvarða enda eru þeir þegar allt kemur til alls fólk eins
og við hin. Eftir heilu mannsaldrana í skugganum eru þeir loksins komnir
fram í ljósið. Öld bakvarðarins er upp runnin.
Séu lesendur hugsi yfir landsleiknum sem ég vísaði til hér að ofan skal tek-
ið fram að ekki var um forframaða atvinnumenn að ræða, heldur starfsmenn
fjölmiðla. Adolf Ingi Erlingsson var einvaldur og boðaði okkur Moggamenn á
staðinn. Þegar á reyndi var hann hins vegar hvurgi. Nema þá að Víðir Reyn-
isson hafi verið búinn að koma honum vandlega fyrir í glerbúri, þaðan sem
hann fylgdist agndofa með dýrðinni.
Við íslensku fjölmiðlamennirnir unnum þennan leik næsta örugglega, 4:1
að mig minnir, og allt kom fyrir ekki þótt Skotarnir tefldu fram sjálfum Alan
Rough, sem varði mark þjóðar sinnar á HM 1982. Það vann að vísu með okk-
ur Íslendingum að hann stóð ekki í markinu, heldur var í fremstu víglínu,
eins og markvarða er siður eftir að þeir leggja hanskana á hilluna. Man ekki
hverjir voru í stöðum bakvarða.
Upp er runnin
öld bakvarðarins
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Alltént auglýsir ís-lenska heilbrigðis-kerfið á tímum kórónu-veirunnar hvorki eftir
stormsenterum né útherj-
um með skæri. Það aug-
lýsir eftir bakvörðum.
Sædís Lilja Ísaksdóttir
Bara ágætlega. Maður verður að
vera jákvæður og bíða eftir að
ástandið klárist.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
leggst
veturinn
í þig?
Johannes Dolven
Ég er bjartsýnn. Ég er að spila hér
körfubolta og þetta er okkar tími.
Eleanor M. Vagnsson
Ég er bara bjartsýn.
Grétar Þorsteinsson
Bara vel, ég held að þetta verði
ágætis vetur.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Listamaðurinn Orri Jónsson sýnir ljósmyndaverk frá Oaxaca í Mexíkó
á Mokka. Sýningin Oaxaca stendur frá 15. október til 2. desember.