Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Side 13
25.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Norðurlöndum, að það yrði jafnvel ekki önnur
bylgja, eða þá einungis litlar,“ segir hann.
Thor segir það ekki hafa verið markmið að
að spá fyrir um næstu bylgju.
„Það var reyndar búið að spá því fyrir okkur
hjá Imperial College í London. Þeirra hugmynd
var að fyrsta bylgjan væri stærst og svo kæmi
minni haustbylgja. Þess vegna vorum við svolít-
ið hissa þegar önnur bylgjan kom í lok júlí, en
hún varð ekki neitt neitt. Svo þarf oft ekki nema
smá óheppni, eins og stórt hópsmit, til að breyta
hlutum eins og gerðist núna í haust. Í sept-
ember var meiri hreyfanleiki í þjóðfélaginu og
það er eins og þegar maður kveikir lítinn neista,
þá getur orðið bál. Þeir hjá Imperial College spá
svo fjórðu bylgju um jólin,“ segir Thor.
„Kannski þurfum við bara að búast við því
og undirbúa okkur með það í huga, svo það
þyrfti mögulega ekki að loka öllu aftur. Er
hægt að hugsa jólahlaðborðin þannig að fólk
smitist ekki? Ég veit það ekki.“
Hópsmit skekkti myndina
Thor fann sig fljótt í vor á bólakafi í vinnu fyrir
sóttvarnalækni og stendur sú vinna enn yfir.
„Við höfum unnið í þessu jafnt og þétt, en
við erum fáliðuð. En við erum mjög heppin
með fólk og nemarnir okkar í tölfræði og
stærðfræði eru frábærir. Það þurfa svo margir
að koma að þessu; og fleiri en faraldsfræðingar
og líftölfræðingar.“
Thor hefur búið til spár sem lýsa því hvernig
faraldurinn hegðar sér, en eins og með aðrar
spár, rætast þær ekki alltaf. Fjöldi smitaðra
nú í október var meiri en spáð hafði verið.
„Það var stórt hópsmit í hnefaleikastöðinni í
Kópavogi sem skekkti myndina. Svona er erf-
itt að sjá fyrir,“ segir hann og nefnir að í spá-
líkani er ekki gert ráð fyrir frávikum, eins og
hópsmiti.
„Við erum að bregðast við þessu og sjáum að
þessi bylgjuhugsun á kannski ekki við ástandið
núna. Við sjáum ekki núna að við séum að ná
að sigra þetta, eins og í fyrstu bylgju, heldur
að halda þessu niðri. Þetta verða misstórar
bylgjur og stundum tökum við ekki eftir að það
sé bylgja ofan í bylgju. Við erum að bakka svo-
lítið núna því við sjáum að við getum ekki verið
að spá svona með þessum hætti lengur heldur
þurfum við að líta til skemmri tíma í senn. Við
erum búin að stytta spár niður í tíu daga; þetta
er eins og tíu daga veðurspár. Við sættum okk-
ur við það að þetta er orðið flóknara.“
Ertu svekktur þegar spárnar klikka?
„Það er eiginlega ekki hægt að segja að þær
klikki. Ef við náum að halda faraldrinum niðri
eins og að hlutirnir séu undir stjórn, þá mun
faraldurinn ganga svona. Það gerðist í fyrstu og
annarri bylgju en svo ekki núna. En það er vís-
bending; það bilaði eitthvað hjá okkur. Svona
hópsmit setur okkur af leið. Það brást eitthvað í
umhverfinu. Spálíkanið segir okkur bara hvað
hefði gerst ef allt hefði verið undir stjórn,“ segir
hann og líkir þessu við vaxtarkúrfu barna.
„Börn vaxa eftir kúrfunni. Þegar við sjáum
barn fara út af leið er ekkert að vaxtarkúrf-
unni, heldur áttum við okkur á því að þarna
þarf að grípa inn í hjá þessu barni.“
Að setja okkur þolmörk
Annað sem Thor vinnur að í faraldrinum er að
reikna út smitstuðul veirunnar, sem þýðir
hversu margir einstaklingar smitast út frá
einni manneskju.
„Þá reiknum við út hraðann á smitum.
Hvort það séu að greinast óvenjumörg smit.
Við erum að fara meira inn á þá braut að gefa
upplýsingar um smitstuðulinn, en gefum líka
út spá um fjölda. Ef smitstuðullinn er hár, seg-
ir það manni að þetta er að fara mjög hratt
um,“ útskýrir Thor.
Sem líftölfræðingur, hvernig sérðu þetta
fyrir þér enda?
„Ég hef áhyggjur af því að það sé langt í
land. Við eigum eftir að fá bóluefni og svo á
eftir að dreifa því. Við verðum ekki komin
með hlutina í lag fyrr en seint á næsta ári. Ég
spái því. Þess vegna verðum við að fara að
hugsa hlutina öðruvísi. Mögulega verðum við
að setja okkur markmið með það fyrir augum
að það verði alltaf einhver smit. Við þurfum
að ákveða hvað við þolum mörg smit; setja
okkur þolmörk. Það gengur vel hjá spít-
alanum núna að halda utan um þetta,“ segir
hann.
„Smitrakningin verður líka að halda í við
faraldurinn. Það er lykilatriði. Við erum alltaf
að læra betur á þetta. Hvernig er hægt að
halda skólum opnum? Það er erfið tilhugsun að
halda skólum lokuðum fram á vor. Eins með
íþróttir, við vitum hvað það gerir börnum gott
að vera í íþróttum. Við þurfum kannski að
sætta okkur við smit á ákveðnum fjölda og
grípa svo inn í ef fjölgar of mikið.“
Hvað með að loka öllu algjörlega í tvær vik-
ur og drepa alveg niður veiruna?
„Ég hef áhyggjur af því að hún laumi sér
alltaf inn aftur, einhvern veginn. Ég held að
það sé ekki hægt að stoppa þetta. Við þurfum
frekar að taka þá stefnu að lifa með aðgerðum
gegn veirunni. Fram á næsta sumar.“
Thor nefnir að smitrakning og sóttkví sé að
skila góðum árangri.
„Með því tökum við ansi marga út fyrir
sviga sem hefðu annars smitað aðra, þannig að
í heildina er smitstuðullinn lægri. Þeir sem eru
í sóttkví eru ekki að smita. Þetta er grundvall-
araðgerð, annars værum við búin að missa tök-
in.“
Stefnum í nýjar áttir
Hefurðu gert einhverja útreikninga um mátt
sóttvarna, eins og grímunotkun?
„Já, nú er einmitt verkefnið að taka nýja
stefnu. Nú hefur safnast saman reynsla síð-
ustu mánaða, frá mörgum löndum. Hvaða að-
gerðir hafa verið notaðar og hvernig smitin
breyttust í takt við það. Til að geta gert eitt-
hvað vitrænt eru menn núna að rannsaka
hvaða aðgerðir virka best. Það er stundum erf-
itt að toga þær í sundur, því að margar aðgerð-
ir eru í gangi á sama tíma. Við erum að reyna
að finna út hvaða samsetningar virka best;
getum við sleppt einhverju? Getum við haft
grímuskyldu og þá farið í fimmtíu manna
hópareglu? Eða er það samt ekki nógu gott?
Getum við haft opna skóla? Vinnustaði? Þetta
verkefni er núna að fara á flug. Við erum að
vinna þetta með finnskum fræðimanni í
Bandaríkjunum og ætlum að vera þar í sam-
floti með að vega og meta áhrif aðgerða. Við
erum að finna góðar samsetningar á aðgerðum
sem við getum sætt okkur við. Þá getum við
vegið og metið nokkra mismunandi kosti. Ég
er að fara af stað að rannsaka þetta núna. Við
stefnum í nýjar áttir,“ segir Thor.
„Það er mjög erfitt að finna einhverja eina
leið núna sem virkar, en finnska módelið
komst mjög fljótt að þeirri niðurstöðu að við
eigum bara að vera heima. Fólk á bara að
halda sig heima. Við höfum aldrei reynt þá
leið, eins og hefur verið prófað á Spáni og fleiri
stöðum. Það kýlir niður faraldurinn, en við
hljótum að geta rannsakað hvort hægt sé að
skipta út einhverjum möguleikum í staðinn
fyrir þennan. Það er það sem þessar rann-
sóknir beinast að.“
Ekki með í næsta faraldri
Þú nefndir að fjórða bylgjan myndi skella á um
jólin. Verður hún jafn slæm og sú þriðja?
„Það er ómögulegt að segja. Það er hreyfi-
leikinn í þjóðfélaginu sem setur allt af stað og
þá er hættan fyrir hendi. Við höfum verið að
rannsaka þetta í líkanagerð, þennan hreyfi-
þátt. Hann er algjör áhrifavaldur.“
Er fólk þá of mikið á ferðinni?
„Já, það var það. Við erum núna minna á
ferðinni og erum núna líka með grímur.
Kannski getum við ráðið við þetta um jólin ef
við hugsum þetta fyrirfram. Við verðum að
gera það, ekki vill maður hafa allt lokað um jól-
in.“
Burtséð frá leiðindum veirunnar, hefur
þetta ekki verið spennandi verkefni fyrir líftöl-
fræðing?
„Jú, og sérstaklega eru þetta spennandi
tímar fyrir samstarf á milli fagsviða. Það eru
alls kyns möguleikar að birtast okkur og þetta
er nokkuð sem við þurfum að kunna. Þetta fag,
faraldsfræði smitsjúkdóma, var svolítið að
gleymast af því að faraldrar komu ekki mikið
til Íslands, þeir voru oft í fjarlægum löndum.
En þetta er ekkert síðasti faraldurinn. Segjum
að það kæmi annar heimsfaraldur eftir tíu ár,
þá verður unga fólkið sem er að vinna að þessu
núna fljótt að bregðast við og það er mikilvægt
að vinna í samstarfi við önnur lönd. Þá verð ég
eldri og verð ekkert með í því, nema mögulega
sem ráðgjafi,“ segir Thor og brosir.
„Þegar bóluefnið kemur sný ég mér að öðru
og þá tekur einhver annar við. Ég ætla ekki að
vera í næsta faraldri, það er alveg á hreinu. Ég
á það samt til að segja alltaf já þegar ég er
beðinn um eitthvað.“
Thor segir smitrakningu og sóttkví
vera lykilatriði í baráttunni við veiruna.
„Þeir sem eru í sóttkví eru ekki að
smita. Þetta er grundvallaraðgerð, ann-
ars værum við búin að missa tökin.“
Morgunblaðið/Ásdís
’Ég hef áhyggjur af því að húnlaumi sér alltaf inn aftur,einhvern veginn. Ég held að þaðsé ekki hægt að stoppa þetta. Við
þurfum frekar að taka þá stefnu
að lifa með aðgerðum gegn veir-
unni. Fram á næsta sumar.