Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020 HEILSA Rótarmálin eiga hug minn allan,“ segirKristín I. Pálsdóttir yfir kaffibollaeinn fallegan haustdag. Hún hefur menntað sig í vímuefnavanda kvenna, en auk hennar er starfandi í Rótinni góður hópur kvenna sem hafa margar hverjar sérhæft sig í málefnum kvenna, áföllum þeirra og vímu- efnaneyslu. Kristín segir Rótina hafa í upp- hafi orðið til þegar nýjar hugmyndir hafi kviknað hjá konum innan SÁÁ. „Ég var þá í ráði hjá Femínistafélagi Ís- lands og þær báðu mig að halda erindi um jafnréttismál. Ég hafði sjálf hætt að drekka 2007 og farið í gegnum meðferð hjá SÁÁ og þaðan inn í tólfsporasamtök. Ég fékk mjög mikinn áhuga á þessu,“ segir Kristín, sem er nú í hálfu starfi hjá Rótinni. „Mér fannst strúktur tólf spora kerfisins heillandi; valdið kemur neðan frá og upp, en ekki ofan frá og niður. Það er mjög merkilegt hvernig AA-samtökin starfa. Þarna er ókeyp- is stuðningur fyrir fólk sem er kannski búið að loka mörgum dyrum. En mér fannst þau líka fornaldarleg að mörgu leyti því þau eru föst í upprunanum, eru stofnuð af körlum í Bandaríkjunum um miðja síðustu öld og bera þess merki. Auðvitað er þróun en AA-bókin er biblía og henni verður aldrei breytt. Vegna þess er fólk fast í hugmyndum sem eru að mörgu leyti úreltar. Þegar bókin er skrifuð var til dæmis ekki til áfallafræði. Í bókinni eru allt aðrar útskýringar á því hvers vegna fólk drekkur, eins og að alkóhólismi sé með- fæddur sjúkdómur en ekki mótaður að miklu leyti af félagslegum þáttum, eins og við vitum í dag,“ segir Kristín. „Við byrjuðum á að stofna kvenfélag innan SÁÁ en fundum fljótt að það var enginn hljómgrunnur fyrir því þar þannig að við stofnuðum Rótina árið 2013. Við erum núna á fimmta hundrað í félaginu.“ Fíknigen finnst ekki Kristín segir ástæðu þess að konur tóku sig saman og stofnuðu sitt eigið félag hafi verið sú að það vantaði alla hugsun um kynjamun sem er til staðar við fíknivanda. „Það er mjög mikill kynjamunur, hvernig konur fara inn í fíkn og út úr henni. Það hef- ur ekki verið tekið tillit til þess. Þórarinn Tyrfingsson mótaði þennan málaflokk mjög mikið en er með allt annað módel í huga held- ur en við erum með. Það er sannað í dag að fíknivandi er að miklu leyti félagslegur. Kon- ur nota önnur efni en karlar og það er svo margt ólíkt sem þarf að skoða,“ segir hún. „Það er búið að eyða milljörðum í leit að fíknigeninu og það finnst ekki. Þegar talað er um erfðir er yfirleitt verið að vísa í fylgni og hún getur vissulega verið af félagslegum völdum þó að erfðafræðilegir þættir eigi líka hlut að máli. Þetta er þó ekki svart-hvítt. Í dag vitum við til dæmis að alvarleg áföll hafa áhrif á erfðaefnið. Við Rótarkonur notum ekki þetta sjúkdómstungutak en auðvitað verður fólk veikt af mikilli og langvarandi notkun vímuefna.“ Ef þetta er ekki heilasjúkdómur og mann- eskja vinnur sig út úr áföllum, er viðkomandi þá ekki lengur alkóhólisti? „Það fer eftir mörgu. Það er fullt af fólki sem getur drukkið aftur. Það er til fólk sem hefur átt við vanda að stríða á einhverju tímabili í lífi sínu en ekki síðar meir. En við erum ekki með neina meðferð til að kenna fólki að drekka. Það er ekki tilgangurinn hjá okkur. Sýnt hefur verið fram á að vímu- efnaneysla sé viðbragð við einhverju. Ef þú leysir vandann, minnkar þörfin fyrir skaðleg bjargráð.“ Konur voru faldar Nú hefur Rótin starfað í átta ár, hvað hefur áunnist? „Helsta breytingin er umræðan; hvernig við tölum um vímuefnavanda. Hún er allt önnur. Konukot og Frú Ragnheiður hafa ver- ið að berjast fyrir skaðaminnkun sem hefur líka haft mikil áhrif, en við komum inn með umræður um kynjamismun og tenginguna við áföll. Það er straumur núna í heiminum að taka áfallafræðina inn í meðferðarúrræði. Hjá Reykjavíkurborg hefur verið mikil stefnubreyting með skaðaminnkandi aðferð- arfræði. Við verðum að horfast í augu við það að það er ekkert sérstaklega góður árangur af afeitrunarmeðferð. Hún hentar kannski ákveðnum hópi en ekki öðrum. Það er rosa- lega hátt hlutfall kvenna sem fara í meðferð sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi sem börn. Og þær konur eru líklegri til að lenda í ofbeldissamböndum, þannig það bætist alltaf ofan á áföllin. Inni í okkar meðferðarkerfi hefur ekkert verið fjallað um þetta. Fyrir þessar konur er ekki nóg að taka af þeim efn- ið, heldur þarf að skapa öryggi í líf þeirra til þess að þær geti unnið sig út úr sinni stöðu,“ segir hún. „Það kom í ljós þegar við hófum störf að konur voru mjög faldar í kerfinu. Þegar skoð- uð voru úrræði fyrir húsnæðislaust fólk með vímuefnavanda í Reykjavík voru þá 30 pláss merkt konum, en 116 körlum. Þar hefur verið mikil breyting hjá Reykjavíkurborg; konur hafa verið að koma í ljós og meira verið að gera fyrir þær.“ Áföll og vímuefni Rótin breytti um stefnu árið 2018 og ákvað að bjóða upp á meiri þjónustu við konur. „Við byrjuðum með námskeið fyrir konur með vímuefnavanda. Okkur var svo boðið að koma inn í Bjarkarhlíð með okkar sérþekk- ingu á á konum sem lent hafa í áföllum og eru í vímuefnavanda og fórum þar inn með nám- skeiðin og hópana í janúar 2019 og ári seinna byrjuðum við að bjóða þar ráðgjöf. Í fyrra- haust var okkur boðið að taka þátt í nýsköp- unarhraðlinum Snjallræði og þar þróuðum við hugmyndir um hvernig þjónustu við vild- um bjóða og útkoman varð Ástuhús. Þetta er ekki húsbygging, heldur hugmynd utan um okkar starf. Við fengum núna tíu milljónir frá heilbrigðisráðuneytinu og er það fyrsta fjár- magnið inn í verkefnið. Við erum að leita að húsnæði til að hefja starfið, en við hugsum þetta sem göngudeildarþjónustu. Þetta er í startholunum, en í dag erum við inni í Bjark- arhlíð með megnið af okkar starfi,“ segir hún. Kristín telur að Ástuhús muni henta mörg- um konum í framtíðinni og verður þar ólík meðferð en boðin er upp á á Vogi. „Það er mikill þröskuldur fyrir marga að fara á Vog. En það eru líka breytingar hjá SÁÁ og ný forysta.“ Konukot er neyðarathvarf Rótin tók við rekstri Konukots fyrir örfáum vikum. „Við komum inn með mjög stuttum fyrir- vara en við tókum við núna 1. október og stefnum ekki að miklum breytingum til að byrja með heldur viljum kynnast starfsem- inni. Við tökum við góðu búi af Rauða kross- inum og góðum starfskonum. Konukot getur hýst tólf konur eins og er. Það er eitt augljóst vandamál og það er að neyðarathvörf eru ætluð fólki í bráðavanda en þarna eru konur sem hafa verið þarna árum saman. Það er ekki hlutverk neyðarathvarfa,“ segir Kristín og bendir á að þarna sé lokað yfir daginn. „Það eina góða sem komið hefur út úr Covid að mínu mati er að þjónusta við þenn- an hóp hefur verið bætt til muna og vandinn orðið sýnilegri.“ Vogur hentar ekki konum Helmingur kvenna sem lendir í vímuefna- vanda hefur orðið fyrir kynferðisbroti undir átján ára aldri og einn þriðji kvenna lent í kynferðisbroti eftir átján ára aldur, sam- kvæmt grein sem birtist á vef Rótarinnar. Þar segir einnig að konur séu ekki óhultar í meðferð með körlum og verða þær jafnvel fyrir kynferðisofbeldi í meðferð. „Það er þannig, því miður,“ segir Kristín og telur að það ætti að kynjaskipta meðferð við vímuefnanotkun. „Margar konur sem koma í meðferð hafa verið beittar ofbeldi og eru þar með varnar- lausari en aðrar sem ekki hafa orðið fyrir of- beldi. Við vitum líka að hátt hlutfall karla sem kemur í meðferð hefur beitt ofbeldi. Þannig það liggur í augum uppi að þetta er ekki góð blanda, og hvað þá að vera með börn á sama stað,“ segir hún. „Mikilvægasta atriðið á meðferðarstað er öryggi. Án þess skapast ekki meðferðar- aðstæður. Þess vegna er staður eins og Vog- ur ekki góður staður fyrir konur.“ Geta konur í vanda leitað til ykkar? „Já, það sem við bjóðum í dag er ráðgjöf og sjálfshjálparhópa, auk námskeiða og leið- sagnarhópa. Þar er farið yfir hvað séu áföll og við kennum bjargráð; hvernig á að takast á við afleiðingar áfalla. Dagskráin er inni á síðunni okkar, rotin.is. Við höfum þó gert hlé á dagskránni vegna Covid og reynum að fara varlega,“ segir hún. „En markmiðið er að nota fjárstyrkinn frá ríkinu til að koma okkur upp húsnæði og bjóða upp á fjölbreyttari þjónustu. Það er mikið í gangi og margt spennandi fram und- an.“ Ekkert gen sem útskýrir fíkn Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, vill opna á umræð- ur og bjóða sérstök meðferð- arúrræði fyrir konur. Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rót- arinnar, segir fylgni milli áfalla og vímuefnaneyslu. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, telur að meðferð eigi að vera kynjaskipt þar sem vandi kvenna er oft annar en karla. Einnig eru konur oft varnarlausar í blandaðri meðferð og segir hún margar þeirra verða fyrir ofbeldi þar. Morgunblaðið/Ásdís ’Það er rosalega hátt hlutfallkvenna sem fara í meðferðsem hafa orðið fyrir kynferðisof-beldi sem börn. Og þær konur eru líklegri til að lenda í ofbeldis- samböndum, þannig það bætist alltaf ofan á áföllin. Rótin er félag áhugakvenna og eru all- ar konur með áhuga á málefninu vel- komnar til þátttöku. Markmið félagsins eru eftirfarandi: „Markmið Rótarinnar eru að stofna til umræðu um konur, fíkn, áföll, of- beldi og geðheilbrigði og huga að sér- stökum meðferðarúrræðum fyrir kon- ur. Félagið vill að komið sé á samstarfi á milli stofnana, samtaka og annarra fagaðila sem fást við vímuefna- meðferð, ofbeldi og úrvinnslu áfalla. Félagið vill beita sér fyrir öflun upplýs- inga og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna um þessi málefni konum til góða, og stuðla að rannsóknum á þessu sviði. Ennfremur að afla þekkingar, halda fyrirlestra, standa að ráðstefnum og námskeiðum, eitt eða í samstarfið við önnur félög, og efla umræður um fíkni- tengd málefni sem snerta konur sér- staklega.“ Rótin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.