Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Side 24
Þrátt fyrir aukna umræðu er bein dán-araðstoð eða læknisaðstoð við sjálfsvígóvíða leyfð. Í Evrópu eru það einkum Holland, Belgía, Sviss og Lúxemborg. Utan Evrópu eru það síðan helst Kanada, ákveðin ríki Bandaríkjanna og Viktoríufylki í Ástralíu. Í umræðunni um dánar- aðstoð er æskilegt að horfa til þess hvernig þjóðir sem hana leyfa hafa lögfest hana og hver reynsla þeirra sé af því. Í þessari grein verður lauslega litið til þess hvern- ig Holland, Belgía og Sviss hafa borið sig að. Þó skal nefna að fleiri og ítarlegri skilyrði þarf að uppfylla til að geta hlotið dánaraðstoð en unnt er að fjalla um í stuttri grein. Ber að lesa greinina í því ljósi. Hollendingar voru fyrstir Dánaraðstoð í Hollandi á sér langa sögu. Árið 1886 var slík aðstoð gerð refsiverð samkvæmt hegningarlögum. Þrátt fyrir það mun hún hafa verið veitt að einhverju marki átölulaust allt til ársins 1952 þegar læknir var fyrst ákærður fyrir dánaraðstoð og síðar dæmdur til eins árs skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir að hafa veitt bróður sínum beina dánaraðstoð. Um 1970 fór að bera á gagnrýni meðal almenn- ings á að verið væri að halda dauðvona sjúk- lingi á lífi í stað þess að veita honum aðstoð við að deyja. Það hefur verið álitinn ákveðinn upp- hafspunktur umræðunnar sem leiddi síðar til þess að Holland varð fyrst allra landa til að lögleiða beina dánaraðstoð árið 2002. Samtímis því var lögleidd læknisaðstoð við sjálfsvíg, sem er þó mun sjaldgæfari í Hollandi en bein dánaraðstoð. Með dánaraðstoðarlögunum í Hollandi var ekki lögfest skylda lækna til að veita sjúklingi aðstoð við að deyja, heldur réttur sjúklings til að óska hennar, að uppfylltum lagaskilyrðum. Var bæði lögfestur lagabálkur um dánaraðstoð og undanþágum aukið við þau hegningarlaga- ákvæði sem áður lögðu við því bann. Er bein dánaraðstoð því lögleg ef læknir fylgir þeim reglum í þaula áður en meðferðin er veitt og tilkynnir síðan um andlát sjúklings, svo að rannsaka megi hvort andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Uppfylli læknir ekki skyldur sínar samkvæmt lögunum gæti hann þurft að sæta ákæru á grundvelli hegningar- laga, en vart virðist þó mega finna dæmi þess síðan dánaraðstoð var lögleidd árið 2002. Í Hollandi nær rétturinn til að óska dánarað- stoðar til sjúklinga sem upplifa bæði óbærilega þjáningu og vonleysi. Óbærileg þjáning er skil- greind sem sú þjáning, andleg eða líkamleg, sem engin meðferð getur linað með fullnægj- andi hætti. Vonleysi er síðan skýrt sem það þegar sjúklingur hefur ekki réttmætt tilefni til að vonast eftir bata. Samkvæmt tölfræði frá 2016 má rekja nærri 4% árlegra dauðsfalla í Hollandi til dánaraðstoðar. Dánaraðstoð í Hollandi nær einnig til barna allt frá tólf ára aldri. Í þeim tilfellum þarf auk almennra lagaskilyrða um dánaraðstoð, m.a. að liggja fyrir samþykki forráðamanns. Þá er dánaraðstoð ungbarna fram til eins árs aldurs lögleg í sérstökum aðstæðum. Til þessa hefur dánaraðstoð barna á aldursbilinu eins til tólf ára ekki verið lögleg en samkvæmt fréttum frá seinustu viku virðist sem ríkisstjórn Hollands hyggist leiða í lög dánaraðstoð langveikra barna á þeim aldri í ákveðnum tilfellum. Verði sú raunin mun dánaraðstoð í Hollandi, þó með misströngum skilyrðum, ná til allra aldurs- hópa. Þess ber þó að geta að dánaraðstoð barna er fátíð í Hollandi og má sem dæmi nefna að árin 2017 og 2018 hlutu aðeins fjögur börn beina dánaraðstoð. Engar aldurstakmarkanir í Belgíu Eftir að dánaraðstoð var lögfest í Hollandi, fylgdi Belgía fljótt á eftir með lögleiðingu laga um dánaraðstoð í maí 2002 sem tóku gildi í september sama ár. Ólíkt Hollandi ákvað Belgía þó einungis að lögleiða beina dánarað- stoð, en ekki læknisaðstoð við sjálfsvíg. Í Belgíu mega þeir sjúklingar óska beinnar dánaraðstoðar sem eru í læknisfræðilega von- lausu ástandi (e. medically futile condition) vegna stanslausra og óbærilegra líkamlegra eða andlegra þjáninga sem eru afleiðing veik- inda eða slyss og ekki er hægt að lina. Dánaraðstoðarlögunum í Belgíu hefur tví- vegis verið breytt. Fyrst árið 2005 þegar tryggt var réttaröryggi þeirra lyfjafræðinga sem útvega lyf sem nauðsynleg eru til að veita aðstoðina og aftur árið 2014 þegar Belgía rýmkaði lögin þannig að þau næðu einnig til barna og varð þar með fyrst landa til að heim- ila slíkt. Rýmkun réttarins fór fram í kjölfar skoðanakönnunar meðal lækna þar sem meiri- hluti þeirra studdi hana. Enginn aldur var til- greindur með lagabreytingunni, heldur var kveðið á um að ungmenni sem sé dómgreind- arbært geti óskað dánaraðstoðar. Erfitt er að meta hvenær barn getur talist hafa dómbærni til að taka slíka ákvörðun og hefur sú rýmkun þannig ekki verið án gagnrýni. Í tilfellum barna eru heimildir til að óska eftir dánarað- stoð þrengri og þurfa fleiri aðilar að sam- þykkja og staðfesta að aðstoðin skuli veitt og þá takmarkast hún við líkamlegar þjáningar og nær þannig ekki til andlegra veikinda. Árið 2016 hafði einungis tvívegis verið tilkynnt um dánaraðstoð barna í Belgíu. Lögin veita einstaklingum heimild til að óska fyrirfram eftir dánaraðstoð missi þeir meðvitund sem afleiðing af sjúkdómi eða slysi. Er það gert með sérstakri yfirlýsingu sem gildir í fimm ár, en til samanburðar má geta að sambærileg yfirlýsing í Hollandi gildir ótíma- bundið. Þrátt fyrir slíka yfirlýsingu ber lækni að ganga úr skugga um að sjúklingur sé sann- anlega meðvitundarlaus, að ástand hans sé óafturkræft miðað við læknavísindin hverju sinni og skilyrði dánaraðstoðar séu að öðru leyti uppfyllt. Svissneska leiðin Ólíkt Belgíu og Hollandi er bein dánaraðstoð ólögleg í Sviss. Að aðstoða annan við sjálfsvíg er hins vegar löglegt og sérstaklega undan- þegið refsingu í hegningarlögum þar, svo fremi sem það er ekki vegna eigingjarnra hvata. Lagaheimildin er óbreytt allt frá því að svissnesku hegningarlögin tóku gildi 1942. Til umræðu hefur komið að lögleiða einnig beina dánaraðstoð en því verið hafnað. Þrátt fyrir að litlar skorður séu reistar við því að aðstoða við sjálfsvíg, gilda strangari reglur gagnvart læknum. Hafa þeir einir heimild til að skrifa upp á lyfið pentóbarbítal sem almennt er notað til verksins og ber þeim að ganga úr skugga um að sjúklingur uppfylli allar kröfur laga áður en aðstoðin er veitt, þ.m.t. að meta hæfni sjúklings til að óska að- stoðarinnar og staðfesta að hann sé haldinn sjúkdómi sem sé banvænn eða ólæknandi og alvarlegum geðsjúkdómi sem ekki sé mögu- legt að lækna. Slík aðstoð í Sviss fer almennt fram í gegnum samtök sem starfa gagngert í þeim tilgangi að aðstoða aðra við sjálfsvíg. Mega samtökin ekki vera rekin í hagn- aðarlegum tilgangi enda bryti það gegn fyrr- nefndu hegningarlagaákvæði. Þeirra stærst eru samtökin Exit og Dignitas. Exit-samtökin hafa réttilega orðið fyrir mikilli gagnrýni í gegnum tíðina, enda tekið upp á ýmsu vafa- sömu, svo sem að senda félagsmönnum leið- beiningarbækling um aðferðir til að fremja sjálfsvíg eða til að komast yfir lyf frá læknum. Litlar kröfur eru gerðar um félagsaðild að samtökunum og engar kröfur til þjóðernis þeirra sem vilja fá aðstoð við að deyja í Sviss. Hefur þetta orðið til þess að margir í sjálfs- vígshugleiðingum hafa ferðast til Sviss gagn- gert til að hljóta þessa aðstoð. Hefur það í al- mennri umfjöllun m.a. verið kallað sjálfsmorðsferðalög eða Svissneska leiðin. Læknisaðstoð við sjálfsvíg nær einungis til fullveðja og dómgreindarbærra sjúklinga í Sviss og geta börn og sjúklingar sem skortir getu til að veita gilt samþykki ekki hlotið slíka aðstoð. Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu heilbrigðisráðuneytisins eru sjálfsvíg með að- stoð í dag orsök 1,5% allra árlegra dauðsfalla í Sviss. Þrátt fyrir að margt sé frábrugðið eiga lönd- in þrjú einnig margt sammerkt. Sem dæmi er í öllum þeirra krafist aðkomu fleiri en eins sér- fræðings sem þurfi sjálfstætt að meta ástand sjúklings og hvort aðstoðin skuli veitt. Jafn- framt beri læknum að kynna sjúklingum mögulegar batahorfur og önnur meðferðar- úrræði, svo sem líknandi meðferð, áður en fall- ist er á beiðni sjúklings. Þá er sjúklingum ávallt heimilt að falla frá beiðni sinni á öllum stigum máls og alveg fram að seinustu stundu. Af framangreindu er ljóst að nálgast má lög- leiðingu víðtækari lífslokameðferða með mis- munandi hætti. Ef lögleiða á dánaraðstoð á Ís- landi þarf að hafa lög og reynslu annarra þjóða í huga. Þetta er þriðja grein Arnars um dánaraðstoð. Umfjölluninni lýkur í næsta tölublaði Sunnu- dagsmoggans. Höfundur er lögmaður. Dánaraðstoð í Evrópu Dánaraðstoð hefur ekki verið lögleidd víða, en þó er á nokkrum stöðum komin reynsla á lögleiðingu. Arnar Vilhjálmur Arnarson gerir grein fyrir stöðunni í Hollandi, Belgíu og Sviss, sem lögleiddu dánaraðstoð með ólíkum hætti. Morgunblaðið/Eggert Arnar Vilhjálmur Arnarsson ’Af framangreindu er ljóstað nálgast má lögleiðinguvíðtækari lífslokameðferðameð mismunandi hætti. Ef lögleiða á dánaraðstoð á Ís- landi þarf að hafa lög og reynslu annarra þjóða í huga. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020 LÍFSLOK

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.