Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Síða 29
einhver tæknimaður hafði hætt. Þetta var í byrjun árs 1991, þannig að ég er bráðum búinn að vinna í þrjátíu ár á RÚV. Ég sem er rétt fermdur,“ segir hann og hlær. Enda þótt hann væri kominn í hús hafði Ólafur Páll engin áform um að setjast fyrir framan hljóðnemann. „Ég stama og það flögraði aldrei að mér að ég gæti orðið útvarpsmaður. Þegar Lísa Páls vildi losna við dag- skrárlið sem kallaðist Vinsældalisti götunnar tók ég hann að mér enda þurfti lítið að heyrast í mér. Málið snerist um að fara út á meðal fólks- ins og sækja óskalög. Mér þótti þetta mjög gaman en örlögin réðust þó ekki fyrr en á Glastonbury 1995 en mér var boðin sú ferð eftir að allir aðrir voru búnir að segja nei. Svo varð Rokkland til og eitt leiddi af öðru. 1998 var ég kominn í fullt starf sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2.“ Hann kveðst hafa lært margt þessi sjö ár sem hann vann sem tæknimaður, af goðsögnum á borð við Jón Múla Árnason, Svavar Gests og Andreu Jónsdóttur, og búi enn að því í dag. Tók Dylan fram yfir Duran Ólafur Páll man ekki eftir sér öðru- vísi en hlustandi á tónlist. Faðir hans vann um tíma í plötubúð og átti meira af plötum en venjan var á þeim tíma. Ólafur Páll minnist þess með hlýju að hafa spilað þessar plöt- ur og handleikið umslög með lista- mönnum á borð við Bítlana, Led Zeppelin og Deep Purple. Hann þóttist því að vonum hafa himin höndum tekið þegar hann komst í voldugt plötusafn Ríkisútvarpsins. „Minn smekkur mótaðist svolítið af plötusafninu hans pabba og tónlistin í útvarpinu á þessum tíma heillaði mig ekki. Meðan jafnaldrar mínir voru að hlusta á Wham! og Duran Duran þá var ég að hlusta á Bob Dylan. Fátt heillaði mig á eitís- tímanum, einna helst bönd eins og U2, Simple Minds og Big Country. Fimmtán ára tók ég tímabil í hippa- rokki, en þar á undan þungarokki og pönki og fleiru og það var ekki fyrr en ég fór að vinna á Rás 2 að ég fór að opna eyrun almennilega fyrir nýrri tónlist. Síðan opnaðist alveg nýr heimur fyrir mér á Glastonbury ’95, þar sem ég sá sveitir eins og Oasis, Verve og Supergrass.“ – Hvort hlustarðu meira á nýja eða gamla tónlist í dag? „Ætli ég hlusti ekki meira á nýja tónlist, þó ég setji auðvitað gamla kunningja reglulega á fóninn líka. Eitt af mínum áhugasviðum er ný tónlist með eldri listamönnum. Það eru ekki margir að sinna henni í út- varpi í dag. Það er eins og menn séu afskrifaðir eftir sjöundu plötu og fá ekki sama pláss og þeir sem eru splunkunýir og spennandi. Þetta er synd því það eru margir listamenn sem komnir eru um og yfir sjötugt að gera mjög góða hluti.“ Spotify breytti heiminum Nauðsynlegt er fyrir tónlistar- útvarpsmenn að fylgjast vel með og með tilkomu tónlistarveitunnar Spotify segir Ólafur Páll það mun auðveldara en áður. Spotify hafi breytt heiminum. Hann fylgist þó áfram vel með erlendum tónlistar- tímaritum á borð við Uncut og Mojo en harmar hversu lítið sé fjallað um tónlist í íslenskum blöðum nú um stundir. „Það er af sem áður var.“ Hann hlustar alls staðar. „Ég hlusta mikið meðan ég er að vinna, eins þegar ég fer út að ganga, sem ég reyni að gera í klukkutíma á dag. Ég hef líka verið að gera upp hús hérna á Akranesi og hlusta mikið á tónlist á meðan.“ Að dómi Ólafs Páls stendur út- varpið sem miðill styrkum fótum. „Útvarpið er og verður góður félagi í amstri dagsins. Galdurinn við það er sá að þarna er einhver nákvæmlega núna að tala við þig, alla vega á Rás 2, sem er mikið í beinni útsendingu. Síðan er hægt að njóta útvarpsins eftir öðrum leiðum, sem ekki var hægt áður, eins og að hlusta eftir á í RÚV-spilaranum, að ekki sé talað um öll hlaðvörpin.“ – Sérðu fyrir þér önnur 25 ár af Rokklandi? „Ég hef ekki hugmynd. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér en á meðan ég hef gaman af þessu gef ég kost á mér áfram.“ Í Rokklandi dagsins verður fyrsti þátturinn frá 7. október 1995 endur- fluttur, en þar koma við sögu Pulp, Lloyd Cole og fleiri, auk þess sem eitt og annað úr sögu þáttarins verð- ur rifjað upp. Fortíð mætir framtíð í nútíð. Rokkland í hnotskurn. Ólafur Páll Gunnarsson man ekki eftir sér öðru- vísi en hlustandi á tónlist. Morgunblaðið/Eggert 25.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Öryggiskerfi 01:04 100% SAMSTARFSAÐILI Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á firmavorn.is HVARSEMÞÚERT SJÓNVARP Gambítur drottningar (e. The Queen’s Gambit) nefnist ný sex þátta sería sem kom inn á efnis- veituna Netflix í gær, föstudag. Hún byggist á samnefndri skáld- sögu Walters Tevis frá 1983 um munaðarlausa skákséníið Beth Harmon sem þarf að stíga æðis- genginn dans við Bakkus konung á leið sinn að stórmeistaratign í greininni á sjötta áratugi síðustu aldar. Bresk-argentínska leikkonan Anya Taylor-Joy fer með aðal- hlutverkið í þáttunum. Munaðarlaust skákséní Anya Taylor-Joy sest að tafli á Netflix. AFP BÓKSALA 14.-20. OKTÓBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Silfurvængir Camilla Läckberg 2 Vetrarmein Ragnar Jónasson 3 Spegill fyrir skuggabaldur Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir 4 Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir 5 Þegar heimurinn lokaðist Davíð Logi Sigurðsson 6 Blóðrauður sjór Lilja Sigurðardóttir 7 Iðunn og afi pönk Gerður Kristný 8 Randver – geggjað ævintýri Jeff Kinney 9 Sykur Katrín Júlíusdóttir 10 Lygalíf fullorðinna Elena Ferrante 1 Iðunn og afi pönk Gerður Kristný 2 Randver – geggjað ævintýri Jeff Kinney 3 Gullfossinn Sigrún Eldjárn 4 Gullráðgátan Martin Wildmark 5 Klækjabrögð – Mína og Stína Walt Disney 6 Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf Snæbjörn Arngrímsson 7 Sundkýrin Sæunn Eyþór Jóvinsson / Freydís Kristjánsdóttir 8 Svefnfiðrildin Erla Björnsdóttir 9 Ofurhetjan Hjalti Halldórsson 10 Töfralandið Bergrún Íris Sævarsdóttir Allar bækur Barnabækur Ég hef það sem „princio“ að setja mér sjaldnast áramótaheit. Ég lít svo á að ætli ég yfir höfuð að setja mér markmið þá geti ég alveg eins gert það á venjulegum tíma, einhvern annan af hinum 364 dög- um ársins. Í anda þess tók ég mig til og setti mér það markmið 28. desember síðastliðinn að lesa 100 bækur árið 2020. Svo kom Covid og heimurinn breyttist og menn- irnir með og úr varð að ég hafði töluvert meiri tíma aflögu en ég bjóst við. Þess vegna hef ég nú lesið þessar 100 bækur og tíu til þó aðeins sé kom- inn október. Mig langar hér að segja frá örfáum þeirra sem flokk- ast EKKI sem skáldsögur. Bókin SISSY eftir Jacob Tobia var ein fyrsta ævisagan sem ég gat endurspeglað mig í. Bókin segir frá uppvaxtarárum Jacobs sjálfs en hán er aðeins 29 ára gamalt í dag og því rétt tæp 30 ár sem bókin segir frá en hún er samt sem áður sneisafull af lífs- reynslu. Aðra upp- vaxtarsögu kyn- seginmanneskju er svo hægt að finna í myndasög- unni Gender Queer efitir Maia Kubabe. Margir myndu eflaust flokka þessar bæk- ur undir „pólitísk skrif“ en ég kýs að flokka þær sem ævisögur. Á milli þess sem ég fræði mig um fólk innan kynseginsamfélags- ins (verandi sjálft kynsegin þá finnst mér mikilvægt að finna fyr- irmyndir með svipaða lífsreynslu) þá les ég vísindaskáldsögur. Ted Chiang gaf út annað smásagnasafn sitt, Exhalation, í fyrra en saga úr fyrri bók hans Story of Your Life var undirstaða Hollywood- myndarinnar Arrival frá árinu 2016 sem Jóhann Jóhannsson samdi einmitt tónlistina við. Ted hefur einstakan frásagnarstíl. Hver saga hans, hefur inntak á við heila skáldsögu enda gríðarleg rannsókarvinna sem hann leggur í þær. Fræ sagnanna eru allt frá tækninýjung yfir í biblíusögur, distópískar klisjur og útópíska drauma. Sú bók sem hefur vakið mig til hvað mestrar umhugsunar núna í heimsástandinu er þó hvorki vís- indaskáldsaga, ævisaga né skáld- saga. Það er bókin Women Don‘t Owe You Pretty eftir Florence Gi- ven. Florence er tvítug bresk lista- kona sem sigldi með þessari fyrstu bók sinni (sem hún myndskreytti líka) beint inn á the Sunday Times Bestseller-listann, með öðrum orð- um ótrúlega öflug ung manneskja. Í bókinni fjallar Florence um sam- skiptamynstur fólks, valda- dýnamík kynjanna á milli og feminískar hugmyndir nútímans. Þessi bók er eina bókin á þessum lista sem er skyldulestur fyrir alla, því eins og Florence skrifar svo vel í bókinni; „After all, you are the love of your own life.“ Allar þessar bækur er hægt að fá að láni á Borgarbókasafninu. MARS M. PROPPÉ ER AÐ LESA 100 bækur á árinu Mars M. Proppé er eðlisfræðinemi og aktívisti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.