Morgunblaðið - 04.11.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 260. tölublað 108. árgangur
INNBLÁSNAR
AF SOVÉSKU
DISKÓI
GPS-NET
FYRIR
VERKTAKA
BYRJA UNDAN-
KEPPNINA
GEGN LITHÁEN
VIÐSKIPTAMOGGINN STEFNA Á EVRÓPUMÓTIÐ 23ULTRAFLEX 24
Hátæknifyrir-
tækið VAXA
Technologies,
sem framleiðir
smáþörunga í
næsta nágrenni
við Hellisheiðar-
virkjun í Ölfusi,
stefnir á skrán-
ingu á Nasdaq-
hlutabréfamark-
aðinn í New York
í byrjun árs 2023. Innan fimm ára er
áætlað að árstekjur félagsins muni
nema um 14 milljörðum króna, en
áætlaðar tekjur yfirstandandi árs
eru til samanburðar 42 milljónir
króna.
Nú stendur þriðja fjármögnunar-
lota félagsins yfir, þar sem fyrir-
tækið hyggst safna nálægt þremur
milljörðum króna.
Eins og Kristinn Hafliðason, fram-
kvæmdastjóri VAXA, segir í samtali
við ViðskiptaMoggann hyggst félagið
sækja tekjur í nokkrar ólíkar áttir,
en félagið er nú þegar byrjað að selja
smáþörunga sína til klakstöðva átta
tyrkneskra fiskeldisfyrirtækja.
Kristinn segir að fyrirtækið eigi í
samstarfi við japanskan matvælarisa
um þróun Omega-3 til manneldis. Þá
séu viðræður í gangi við alþjóðleg
stórfyrirtæki um sölu á vörum fyrir-
tækisins, eins og t.d. bláu litarefni og
próteini.
Á markað í New
York eftir rúm 2 ár
Búast við ævintýralegum vexti
Kristinn
Hafliðason
Allt bendir til að metkjörsókn hafi verið í
forsetakosningum í Bandaríkjunum sem
fram fóru í gær. Nær væri kannski að segja
að þeim hafi lokið í gær en mikill meirihluti
kjósenda eða um 100 milljónir manna höfðu
þegar greitt atkvæði fyrir kjördag, flestir
með póstatkvæðum. Þegar Morgunblaðið
fór í prentun voru kjörstaðir enn opnir víða
um Bandaríkin og fyrstu tölur ekki farnar
að berast. Óvíst er hve greiðlega mun
ganga að telja atkvæðin, nú þegar
utankjörfundaratkvæði eru fleiri en nokkru
sinni. Það, ásamt því hve afgerandi dómur
kjósenda verður, mun ráða því hvenær úr-
slit kosninganna verða ljós en óhætt er að
segja að heimsbyggðin bíði með öndina í
hálsinum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði
til kosningavöku í Hvíta húsinu, en keppi-
nautur hans, Joe Biden, varði kvöldinu í
heimabæ sínum í Delaware.
Samhliða forsetakosningum var kosið til
þings í fulltrúa- og öldungadeildinni en þær
kosningar má ekki vanmeta enda ræður
þingstyrkur flokks forsetans miklu um
möguleika hans á að hrinda eigin stefnu-
málum í framkvæmd.
alexander@mbl.is
AFP
Lokaspretturinn Donald Trump Bandaríkjaforseti og Joe Biden, frambjóðandi demókrata, hafa verið á ferð og flugi síðustu daga og freistað þess að ná síðustu atkvæðunum í hús.
Um 100 milljónir greiddu atkvæði utan kjörfundar Lágstemmdar kosningavökur hjá Biden
og Trump Óvíst hvenær úrslit verða ljós Þingkosningar falla í skuggann en skipta þó miklu
Metkjörsókn í örlagaríkum kosningum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ísland kemur næst Svíþjóð þegar um
er að ræða fjölda umsókna um alþjóð-
lega vernd hér á landi 2015-2019 mið-
að við höfðatölu þjóðanna. Umsókn-
irnar voru 257 í Svíþjóð og 237 á
Íslandi á hverja 100.000 íbúa en 82 í
Finnlandi, 47 í Danmörku og 43 í Nor-
egi, samkvæmt tölum frá evrópsku
hagstofunni Eurostat.
Sömuleiðis erum við næstir Svíum
þegar kemur að jákvæðri afgreiðslu á
umsóknum, miðað við höfðatölu. Þær
voru 115 í Svíþjóð, 106 hér, 80 í Finn-
landi, 38 í Noregi og 31 í Danmörku á
hverja 100.000 íbúa. Umsóknir um al-
þjóðlega vernd hér frá 2016 til loka
september 2020 voru alls 4.410 tals-
ins, samkvæmt upplýsingum frá Út-
lendingastofnun. Þá fengu 1.352 ein-
staklingar vernd, viðbótarvernd og
dvalarleyfi af mannúðarástæðum eða
31% af heildarfjölda umsækjenda.
229 kvótaflóttamenn
Hlutfallið hefur verið breytilegt á
milli ára og farið hækkandi enda mikl-
ar breytingar orðið á því hvaðan um-
sækjendur koma, að sögn Útlend-
ingastofnunar.
Þessu til viðbótar var 229 einstak-
lingum, svonefndum kvótaflótta-
mönnum, veitt vernd í boði stjórn-
valda á þessu sama tímabili.
Nær þriðji hver umsækj-
andi fékk alþjóðlega vernd
Svíþjóð og Ísland efst Norðurlanda í útgáfu dvalarleyfa
Morgunblaðið/Hari
Útlendingastofnun Hlutfall leyf-
isveitinga hefur farið hækkandi.
MÞeim fjölgar sem ... » 6