Morgunblaðið - 04.11.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 04.11.2020, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is KRINGLUKAST á casa.is 4. – 9. nóvember Frábært tækifæri til að hefja jólainnkaupin Frí heimsending um allt land 15% afsláttur af völdum gjafavörum Margrét Þóra Þórsdóttir Eyjafirði Stór hluti þeirra sem greindust með kórónuveiruna í gær býr á Norður- landi, en alls bættust 12 ný smit við á svæðinu, samkvæmt Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra, af alls 26 sem greindust á landinu. Smit- um hefur sérstaklega fjölgað ört á Akureyri og Dalvík undanfarna daga. Þau hafa sem dæmi komið upp hjá tveimur grunnskólum á Akureyri, Brekkuskóla og Lundarskóla, og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Einnig hjá íþróttafélögum og í fisk- vinnslu og leikskólanum á Dalvík, sem og í sjúkraþjálfun. Þá kom smit upp í gær í skammtíma- og frístunda- þjónustu við Þórunnarstræti á Akur- eyri. Þá var siglt með skipverja á Núpi til Akureyrar í gær vegna gruns um smit, voru þeir sendir í skimun. Þrír sjúklingar liggja inni á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Þyngra en tárum taki „Það er þyngra en tárum taki að komið sé upp smit í skammtímaþjón- ustu við fatlaða hér á Akureyri. Þetta er afar viðkvæmur hópur sem við höf- um lagt höfuðáherslu á að verja með öllum tiltækum ráðum en vegir veir- unnar eru órannsakanlegir og nú hef- ur hún sett allt úr skorðun í þeim úr- ræðum sem bærinn hafði að bjóða í Þórunnarstræti 99,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. Starfsmaður í skammtíma- og frí- stundaþjónustunni greindist með kórónuveirusmit og hefur starfsemi þar verið lögð af á meðan smitrakn- ing fer fram. Um eða yfir 30 starfs- menn og notendur þjónustunnar þurfa af þeim sökum að fara í sóttkví að minnsta kosti út þessa viku. Allir sem hafa verið í beinum samskiptum við starfsmanninn þurfa að fara í sóttkví og teygir smitrakning sig einnig í þjónustukjarna í Klettaborg, Kjarnagötu og Sporatúni og mun því hafa áhrif á starfið þar en vonast er til að þau verði óveruleg. Ásthildur bæt- ir við að þriðja bylgjan hafi nú náð norður en besta vörnin felist í per- sónulegum sóttvörnum, hvert og eitt okkar verði að fara eins varlega og kostur er, nota andlitsgrímur úti á meðal fólks, þvo hendur, spritta og gæta þess að fara ekki með óhreinar hendur í andlit. „Við erum stödd í brekkunni miðri og verðum bara að bíta á jaxlinn til að sigrast á óværunni. Ef við stöndum öll saman þá ætti það að taka styttri tíma að ná smitunum aftur niður,“ sagði Ásthildur. Mikil samkennd á Dalvík „Íbúar hafa verið áhyggjufullir sem eðlilegt er, aðallega vegna þeirra sem eru veikir, þeir eru í hugum okk- ar og bænum okkar allra. Þetta er lít- ið samfélag þar sem allir þekkja alla og það er mikil samkennd í gangi og hörð samstaða um að kveða þennan óvelkomna gest í kútinn,“ segir Katr- ín Sigurjónsdóttir, bæjarstjóri í Dal- víkurbyggð. Í byggðalaginu voru alls 19 í einangrun í gær með staðfest smit og 173 í sóttkví, samkvæmt stöðulista lögreglunnar á Norður- landi eystra. Hópsmit í leikskólanum Krílakoti á Dalvík skýrir þann mikla fjölda sem er í sóttkví í Dalvíkur- byggð, en alls hafa fimm starfsmenn greinst með staðfest smit. Þar af leið- andi eru öll börn og starfsmenn í sóttkví og er leikskólinn lokaður út þessa viku að minnsta kosti. Aukin- heldur er fjöldi foreldra í fylgdar- sóttkví með börnum sínum þannig að margir eru heima eða heimavinnandi þessa dagana. Rafrænn upplýsingafundur fyrir íbúa var haldinn í fyrradag þar sem helstu viðbragðsaðilar veittu upplýs- ingar og sátu fyrir svörum. Hátt á fimmta hundrað manns skráði sig inn á fundinn og má ætla að mun fleiri hafi fylgst með útsendingunni á heim- ilum í sveitarfélaginu. Katrín segir að íbúar hafi borið fram fjölda spurninga en helsta gagnrýni þeirra hafi snúið að því hvers vegna grunnskólanum hafi ekki verið lokað fram yfir næstu helgi. Hún segir að í Dalvíkurbyggð sem og annars staðar á landinu sé mikil áhersla lögð á að sú grunnþjónusta og stoð við börn og fjölskyldur verði sem minnst skert þrátt fyrir ástandið. „Í miðri brekku en verð- um að bíta á jaxlinn“  Smitum í Eyjafirði fjölgar ört  Siglt með veikan skip- verja á Núpi í land  Hátt hlutfall Dalvíkinga er í sóttkví Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Skammtíma- og frístundaþjónustu fyrir fatlaða við Þórunn- arstræti 99 var lokað en starfsmaður þar greindist með Covid-19. Heimilt er að hafa allt að 50 við- skiptavini í einu inni í lyfja- og mat- vöruverslunum og allt að 10 við- skiptavini samtímis í öðrum verslunum, að því gefnu að hægt sé að hafa að minnsta kosti tvo metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nán- um tengslum. Þetta kemur fram í til- kynningu frá heilbrigðisráðuneytinu vegna reglugerðarbreytingar varð- andi fjölda viðskiptavina í verslun- um. Matvöru- og lyfjaverslunum sem eru yfir 1.000 m² að stærð er þó heimilt að hleypa til viðbótar einum viðskiptavini inn fyrir hverja 10 m² umfram 1.000 m², þó að hámarki 100 viðskiptavinum. Starfsmenn í þessum verslunum mega ekki vera fleiri en 10 í sama rými og samgangur á milli rýma starfsmanna er óheimill. Öllum er skylt að bera andlitsgrímu í versl- unum. Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að með reglugerð ráðherra séu tekin af tvímæli um að fjöldatak- markanir í verslunum séu bundnar við fjölda viðskiptavina, óháð fjölda starfsmanna. ,,Áfengi er samkvæmt lögum skil- greint sem matvæli og því gilda til- mæli um matvælaverslanir um Vín- búðirnar,“ segir í frétt á vef ÁTVR í gær. Fram kemur að eftir seinustu reglugerðarbreytingu hafi stærstu vínbúðirnar að jafnaði ekki hleypt inn fleiri en 35 viðskiptavinum og þær minni færri. „Alls staðar er tveggja metra reglan í hávegum höfð og það er hún sem ræður fjölda við- skiptavina á hverjum stað. Til að koma til móts við óskir sóttvarna- yfirvalda hefur ÁTVR ákveðið að leyfður hámarksfjöldi viðskiptavina verði 25,“ segir í fréttinni. Allt að 100 í lyfja- og matvörubúðum  Hámarksfjöldi viðskiptavina í Vín- búðunum verður 25 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sóttvarnir Röð fyrir utan vínbúð. Alls hafa sjö látist af völdum kór- ónuveirunnar frá því þriðja bylgjan hófst. Allir hafa þeir látist á Land- spítalanum á rúmum tveimur vik- um en tilkynnt var um fyrsta and- látið í þessari bylgju 16. október eða fyrir 19 dögum. Þá hafa 17 látist af völdum veir- unnar á Íslandi, tíu í fyrstu bylgju faraldursins og sjö nú í þeirri þriðju. Landspítalinn vottaði að- standendum samúð á vef spítalans í gær Fjöldi starfsmanna Sex kórónuveirusmit meðal eldri borgara sem búa í Hvassaleiti 56-58 í Reykjavík komu upp í síðustu viku. Einn þeirra smituðu lést á Landspítala um helgina. Að auki veiktust tveir starfsmenn sem sinna félagsstarfi á neðstu hæð hússins. Bryndís Hreiðarsdóttir, starfandi verkefnastjóri félagsstarfs Reykja- víkurborgar, sagði í samtali við mbl.is í gær að enn ætti eftir að senda hluta íbúa í skimun en allir íbúar hússins eru nú í sóttkví. Meðal starfsmanna Landspítala eru 60 nú í einangrun smitaðir af kórónuveirunni og 216 í sóttkví. Forsetinn í sóttkví Þá greindust tveir lögreglumenn á Vesturlandi fyrir rúmri viku með kórónuveiruna eftir að hafa smitast af ökumanni bíls sem þeir stöðvuðu en ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna. Smituðust lögreglumenn- irnir þrátt fyrir að báðir hefðu ver- ið með grímu og hanska og unnið í samræmi við verklagsreglur og eru þeir nú í einangrun. Þjóðhöfðingjar eru ekki undan- skildir sóttvarnareglum og tilkynnti skrifstofa forseta Íslands að Guðna Th. Jóhannessyni forseta hefði ver- ið gert að fara í sóttkví. Ástæðan er veirusmit hjá starfsmanni á Bessa- stöðum. Forsetinn er án einkenna en þarf að vera í sóttkví til mánu- dags 9. nóvember. Aðrir í fjöl- skyldu forseta þurfa ekki að vera í sóttkví. Kórónuveirusmit á Íslandi Fjöldi andláta í viku 12 til 16 Fjöldi andláta frá viku 42 4.931 staðfest smit H ei m ild : c ov id .is 74 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 4 á gjörgæslu 27 ný inn an lands smit greindust 2. nóvember 357.664 sýni hafa verið tekin Nýgengi innanlands 2. nóvember: 188,4 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa Nýgengi, landamæri: 21,5 14 daga nýgengi 1.384 eru í skimunar-sóttkví2.083 einstaklingar eru í sóttkví 859 eru með virkt smit og í einangrun 1 1 4 2 2 16.-22. mars 23.-29. mars 30. mars - 5. apríl 6.-12. apríl 13.-19. apríl 1 5 1 12.-18. okt. 19.-25. nóv. 26. okt. - 1. nóv. 2.-8. nóv. 9.-15. nóv. 17 einstaklingar eru látnir Enn tekist á við kórónuveiruna  17 hafa látist frá upphafi faraldurs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.