Morgunblaðið - 04.11.2020, Page 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
„AÐ HORFA Á KVIKMYND ER GÓÐ
SKEMMTUN. ÞESSI MYND ER EKKI EIN
AF ÞEIM.”
„FRÚ BRIMRÚN, ÉG HELD AÐ ÞETTA
SAMSTARF EIGI EKKI EFTIR AÐ GANGA
UPP.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fatta að hann er
fallinn fyrir þér.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVENÆRÆTLARÐU AÐ
NÁ ÞESSUM MÚSUM?
ÞAÐ ER Í
VINNSLU
HENTAR NÆSTI
ÞRIÐJUDAGUR?
ÞÁ EROSTA-
KYNNINGIN.
HVAÐ MEÐ
MIÐVIKU-
DAGINN?
ÉG RÉÐ ATVINNULAUSA
PERLUKAFARA FYRIR
LANGFERÐINA!
ALLT Í LAGI,
EN KUNNA
ÞEIR AÐ
RÓA?
JÁ OG ÞEIR GETA HALDIÐ NIÐRI Í SÉR
ANDANUM LENGUR EN ALLIR AÐRIR!
Hólmfríður Bjartmarsdóttirskrifar á Boðnarmjöð: „Ef
menn eru leiðir á Trömp-vísum get
ég gert eina um vanda okkar rjúpna-
veiðimanna vegna ferðatakmark-
ana“:
Ég ákvað að gá upp í eik.
Þar var einhver smáfugl að leik.
Í snatri ég þaut
og þröstinn ég skaut.
30 í jólasteik.
Góður vinur sendi mér: „Hinn
landskunni hagyrðingur, Jóhann
Pétur Guðmundsson, Jói í Stapa, lést
hinn 20. október, 96 ára að aldri. Jói
var annar tveggja upphafsmanna að
árlegum landsmótum hagyrðinga
sem hófust árið 1989. Árið 2006 gaf
hann út bókina Axarsköft og var
hún endurútgefin 2011 með kvæðum
hans og vísum. Það er við hæfi að
birta nokkrar vísur hans nú:
Hæfileika guð mér gaf
af göfgum vilja sínum.
En langmest þekktur er ég af
axarsköftum mínum.
Tólf ára gamall orti Jói sína fyrstu
stöku:
Vítt þó gjalli vindurinn
og vonum halli að sinni.
Samt ég allan aldur minn
el á fjallsbrúninni.
Í göngum:
Eigum leið um auðn og grjót
öldur, skeið og fláa.
Frjálsan breiðir faðminn mót,
fjalla heiðið háa.
Hestavísa – frelsi
Frjálst er sporið, frjáls er lundin,
frjálslegt taumhald, frjálst er val.
Frjáls er knapinn, frjáls er stundin,
frjálst er enn í hugarsal.
Stakan
Meta ljóðin menn og fljóð,
menntafróð og efld af móð.
Sálargróður ekta óð,
þar íslensk þjóð á drjúgan sjóð.
Vetur
Þó frostið hart með hríðarbyl,
herji um svartar nætur.
Geymi ég bjartan unaðsyl,
innst við hjartarætur.
Að hausti
Bóndans lund er björt og hlý,
böli öllu gleymir.
Þegar heimahaga í
hjörðin frjálsa streymir.
Réttargleði
Fer ég mund um flöskuháls,
frá mér skundar tregi.
Meðan lundin leikur frjáls,
litla stund úr degi.
Við áningu í Austurdal
Lindin hjalar kvæði kátt,
hjá klettsins svalariði.
Á grænum bala sitjum sátt,
í sól og dalafriði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Jólasteikin og vísur Jóa í Stapa
EMDR-meðferðina og þar af eru 3
handleiðarar og um 10 við-
urkenndir meðferðaraðilar. Auk
þess að reka EMDR stofuna sinnir
Gyða handleiðslu annarra meðferð-
araðila, heldur námskeið og fyr-
irlestra og vinnur í verkjameðferð.
„Mér finnst ótrúlega gaman í
vinnunni, hún er gefandi og gleðj-
andi og hreint út sagt yndislegt að
sjá breytingarnar sem verða á
skjólstæðingum. Ég hef verið svo
heppin að fólk sækist eftir að
koma til mín í viðtöl, og ég hef
haft nóg að gera.“
Fjölskylda
Eiginmaður Gyðu er Jón Kjart-
ansson, f. 9.6. 1971, rafvirkjameist-
ari. Foreldrar hans eru hjónin
Kjartan Ólafsson, f. 5.5. 1924, d.
24.4. 2012 og Ingibjörg Jóhann-
esdóttir, f. 5.8. 1926, d. 10.5. 2010,
bændur á Hlaðhamri í Hrútafirði.
Börn Gyðu og Jóns eru 1) Gréta, f.
16.6. 1998, BA í myndlist frá
Listaháskóla Íslands með Zuzanna
Marciniak, sálfræðinema; 2) Erik
Oddur, f. 9.12. 2002 nemi og 3)
Lára Elín, f. 15.12. 2006. Þau búa
öll í Reykjavík. Systkini Gyðu eru
Sigurður Ragnar, f. 1.12. 1973,
knattspyrnuþjálfari í Kópavogi, og
Hildur, f. 17.2. 1976, heilbrigð-
isgagnafræðingur í Reykjavík.
Hálfbræður Gyðu, samfeðra, eru:
Georg Þorkelsson, 29.9. 1965, flug-
virki í Mosfellsbæ, og Egill Sig-
urður Þorkelsson, f. 28.5. 1968, d.
9.11. 2006.
Foreldrar Gyðu eru Eyjólfur
Þór Georgsson, f. 5.5. 1945, blikk-
smíðameistari í Reykjavík, og
Halldóra Ólafsdóttir, f. 28.4.
1948, vann í bókhaldi, býr í
Reykjavík. Þau skildu.
Gyða
Eyjólfsdóttir
Jón Ólafur Þorkelsson
Reykjavík
Guðmunda Línberg
Brandfríður Óladóttir
húsmóðir á Snæfellsnesi
Georg Jónsson
blikksmíðameistari í Reykjavík
Gyða Eyjólfsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Eyjólfur Þór Georgsson
blikksmíðameistari í Reykjavík
Eyjólfur Einar Jóhannsson
rakarameistari í Reykjavík
Jónína Þórunn Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Jóhann Karl Hjálmarsson
póstmaður og bóndi
Bakka, Kaldrananeshreppi
Ragnheiður Benjamínsdóttir
húsmóðir í Bakka,
Kaldrananeshreppi
Ólafur Jóhannsson
bóksali í Árneshreppi síðar Kópavogi
Oddlaug Valdimarsdóttir
umönnun,Vestmannaeyjum, síðar Kópavogi
Valdimar Árnason
sjómaður
Halldóra Ólafsdóttir
húsmóðir Hellissandi,
Vestmannaeyjum, síðar Kópavogi
Úr frændgarði Gyðu Eyjólfsdóttur
Halldóra Ólafsdóttir
bókhald í Reykjavík