Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 6
6 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Ný netverslun á jackandjones.is
Jólafötin og jólagjafir fyrir hann
Guðrún Líf Björnsdóttir jógakennari er
spennt fyrir jólunum enda verður hún á
nýjum stað á jólunum. Hún klæðir sig
vanalega upp á um jólin og leyfir sér
ýmislegt þegar kemur að mat.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ætlar að skreyta
pálmatrén í
garðinum með
jólaljósum
Guðrún Líf er
mikið fyrir fallegt
skraut í hárið.
Hún lærði jóga á Balí
og sér ekki eftir því.
Ljósmynd/Þorgeir Ólafsson
G uðrún Líf segir ástandið í dag krefjandi en hún hefur reynt aðnota tímann eins vel og hún getur til að læra meira í ljós-myndun. „Hvað varðar jóga, þá hef ég iðkað það heima í stofu alltþetta ár, eða frá því ég kom heim úr jógakennaranámi á Balí
rétt fyrir síðustu jól. Þegar kemur að ferðalögum, þá finnst mér ekki verst að
geta ekki ferðast sjálf heldur það að geta ekki tekið á móti ferðalöngum til Ís-
lands. Við kærastinn minn, Víkingur Heiðar Arnórsson, erum með ferða-
þjónustufyrirtækið Exclusive Reykjavík sem tekur á móti hópum frá útlönd-
um.“
Nýtir öll tækifæri til að halda upp á þau
„Já, hef alltaf verið algjört jólabarn og afmælisbarn og alltaf nýtt hvert
tækifæri til að halda upp á hvað sem er.“
Hvað gerir þú alltaf á jólunum?
„Ein af mínum helstu jólahefðum er að setja eina til tvær gjafir undir jóla-
tréð í Kringlunni. Það er frábær söfnun fyrir þá sem fá engar gjafir á jól-
unum. Síðastliðin ár höfum við mamma gert það að hefð að fá okkur jóla-
platta í Hannesarholti. Það er eitthvað svo jólalegt við að rölta Laugaveginn
og fá jólamat. Svo þetta hefðbundna eins og að baka sörur, skreyta jólatréð
með litla bróður og fjölskylduboðin.“
Ertu dugleg að leyfa þér góðmeti um jólin eða ertu á heilsulínu að gera
jóga þá líka?
„Ég leyfi mér alltaf um jólin. Það er partur af jólastemningunni.“
Hefur tvisvar upplifað jólin á erlendri grundu
Hefurðu ferðast um jólin?
„Ég hef tvisvar ferðast um jólin. Annars höfum við alltaf haldið okkur
heima.
Í fyrra skiptið sem ég fór til útlanda var ég 17 ára skiptinemi á Ítalíu, þar
sem ég eyddi jólunum í fjallakofa á snjóbretti í frönsku Ölpunum. Seinna
skiptið var ég með fjölskyldunni á Flórída. Bæði skiptin voru skemmtileg til-
breyting en mér finnst best að halda jólin heima.“
Skreytir þú mikið heima hjá þér á jólunum?
„Nei, við setjum yfirleitt bara upp jólatréð og næstum ekkert annað. Ég er
hins vegar mjög spennt fyrir næstu jólum þar sem við verðum nýflutt og
planið er að setja jólaseríu á pálmatrén sem eru úti í garði.“
Hver er besta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
„Fyrsta sem kemur í hugann er hjólið sem kærastinn minn gaf mér í jóla-
gjöf fyrir nokkrum árum. Ekki endilega út af hjólinu heldur hugsuninni á
bak við það. En pabbi minn hjólar mikið og hann gaf mér það svo ég gæti
hjólað með honum.“
Hvað með verstu gjöfina?
„Ég man ekki eftir að hafa fengið slæma jólagjöf nema þá kannski stærð-
fræðibók frá mömmu þegar ég var krakki. Ég var svo léleg í stærðfræði og
átti að nýta jólafríið í að læra. Mér fannst það alls ekki skemmtilegt.“
Er eitthvað á óskalistanum hjá þér fyrir þessi jólin?
„Já, það er tvennt sem mig langar í. Vatnsheldir gönguskór og soda
stream-tæki. Annars er ég að reyna að tileinka mér reglu varðandi gjafir fyr-
ir fjölskylduna, en það er að gefa upplifanir í staðinn fyrir hluti.“
Ljósir litir eru í
miklu uppáhaldi.