Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 12
K ristín er íþróttakennari og áhugaljós-myndari sem býr í Mosfellsbæ. Húnhefur einstaklega gaman af fallegumjólaljósmyndum. „Ég er áhugaljósmyndari og fannst
alltaf svo gaman að skoða fallegar vetrar- og jólamynd-
ir. Mér leið eitthvað svo vel í hjartanu að skoða þannig
myndir. Í október árið 2013 fékk ég svo þá hugmynd að
taka nokkrar ljósmyndir af stelpunum mínum og vera
með jólamyndadagatal í desember þar sem ég myndi
birta eina mynd á dag á aðventunni. Ljósmyndir sem fá
fólk til að gleyma stressinu og ná fram notalegri
„nostalgíutilfinningu“ sem er svo góð. Þessi litla hug-
mynd hefur undið ansi mikið upp á sig og hef ég núna
verið með þetta dagatal síðan eða í sjö skipti.“
Tekur ljósmyndir af dætrum
sínum í alls konar ævintýrum
Kristín hefur tekið myndir af stelpunum sínum í alls
kyns ævintýrum.
„Við höfum skreytt jólatré í Heiðmörkinni, farið í
vetrar-lautarferð, grillað sykurpúða yfir opnum eldi,
rölt um Árbæjarsafn, rennt okkur á gamaldags sleða og
margt fleira. Síðan hef ég líka verið að gera alls kyns
jólaföndur, fallegar vetraruppstillingar, uppskriftir að æt-
um gjöfum og margt fleira. Ég hef náð að framkvæma
mjög mikið af hugmyndum mínum en á ennþá nokkrar
eftir sem ég vonandi næ í framtíðinni.“
Kristín segir ljósmyndadagatalið taka dágóðan tíma.
„Hugmyndavinnan er í gangi allt árið en fer á fullt um
haustið. Ég fæ hugmyndir úti um allt, bæði af Pinterest
og Instagram og svo hef ég sótt hugmyndir í íslenskar
jólahefðir og íslenska náttúru.
Þá fer mikill tími hjá mér í að safna ýmsum hlutum og
fatnaði. Eitt árið lét ég sem dæmi sauma rauðhettuslár úr
gömlu stofugardínunum hennar mömmu. Svo hef ég stað-
ið mig að því að kaupa föt á stelpurnar sem eru bara fyrir
einhverja ákveðna myndatöku og ég veit að þær munu svo
aldrei fara aftur í. En það skiptir miklu máli fyrir heildar-
myndina að vera í réttum klæðnaði.
Svo þarf að útfæra þetta allt saman og finna rétta tím-
ann í myndatökurnar þegar dætur mínar komast og þegar
veðrið er í lagi. Það er ekki alltaf hægt að treysta á veðrið
eða birtuna hér á Íslandi í desember. Stundum hefur ekki
komið neinn snjór í desember og því hef ég tekið mynd-
irnar sem ég var búin að ákveða í janúar og febrúar og
geymt fram að næstu jólum.“
Meðvituð um
að draga úr
neysluhyggjunni
Kristín Valdemarsdóttir hefur í gegnum tíðina lagt mikið
upp úr því að taka fallegar myndir af dætrum sínum, en hún
er áhugaljósmyndari með mikla ástírðu fyrir jólunum og öllu
sem jólastússi fylgir. Síðustu ár hefur hún reynt að draga úr
streitu og það gerir hún með því að draga úr neysluhyggjur
og njóta litlu hlutanna eins og búa til sitt eigið Bailey’s.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Kristín Valdemarsdóttir
Dætur Kristínar á
fallegum degi.
Kristín Valdemarsdóttir tekur
einstaklega fallegar jólamyndir.
Jólatrén
finnast víða
náttúrunni.
Kristín gerir fallega
jólapakka með alls-
konar þemu um jólin.
❄ SJÁ SÍÐU 14
12 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu) - 108 Reykjavík - S. 568 3920
Opið 12.30-18.00
ÞÚ
FIN
N
U
R
A
LLT
FYR
IR
Á
H
U
G
A
M
Á
LIN
H
JÁ
O
K
K
U
R
pingpong.is
pingpong.is
pingpong.is
pingpong.is
ÞÚ
FINNU
ALLT
FYRIR
ÁHUGAM
ÁLIN
HJÁ
O
KKUR
FÓTBOLTASPIL OG POOLBORÐ