Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 14

Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 14
Fær útrás fyrir listamanninn á jólunum Hvað ertu þakklát fyrir þessu tengt? „Þetta verkefni hefur ýtt mér út úr þægindahringnum og sett á mig ákveðna pressu. Sem betur fer því annars ætti ég ekki þessar dásamlegu jólamyndir. Ég er alltaf á leiðinni að hætta með þetta. Dætur mínar eru orðnar unglingar og hættar að nenna að sitja fyrir hjá mömmunni, en það er samt svolítið erfitt að hætta og er þetta orðið hluti af jólunum og jólaundir- búningnum hjá mér. Þetta er líka mjög dýrmætt fyrir dætur mínar þegar þær verða eldri að eiga allar þessar ævintýralegu jólamyndir af sér. Svo veitir þetta mér mikla gleði þar sem ég næ að fá smá út- rás fyrir listamanninn í mér og ekki er það verra ef ég næ að gleðja einhverja í leiðinni í desember, því fyrir mér eru jólin ekki bara hátíð heldur tilfinning.“ Jólin eru ævintýralega falleg hjá þér. Hvað getur þú sagt mér um undirbúninginn? „Ég er mikil jólastelpa og byrja snemma að hugsa til jólanna. Ég byrja rólega að skreyta heima hjá mér um mánaðamótin nóvember/desember og bæti smátt og smátt við. Ég er samt mjög meðvituð um það að njóta aðventunnar og hlaða ekki of miklu af atburðum og verkefnum á mig í desember. Ég er einnig mjög meðvituð um að draga úr neysluhyggjunni. Við erum búin að minnka gjafirnar mjög mikið núna seinni árin og það hefur minnkað stressið í des- ember.“ Fær hugmyndir alls staðar frá Hvaðan koma hugmyndirnar þínar? „Ég er ekkert að finna upp hjólið en hugmyndirnar koma alls staðar frá. Stundum er eitthvað sem kemur upp í hugann en mikið kemur af Pinterest eða Instagram. Ég sé oft einhverja skemmtilega hugmynd en geri svo mína útfærslu af henni. Oft- ast er þetta verkefni sem ég tvinna saman við jólamyndadaga- talið mitt.“ Getur þú sagt frá einhverju sem þú gerir alltaf fyrir jólin? „Ég vil hafa desember eins rólegan og ég get og reyni því að gera ekki of mikið. Ég vil helst bara njóta og upplifa. Ég sker alltaf út laufabrauð með fjölskyldunni. Baka lakkrístoppa með stelpunum og geri jólaísinn. Þegar stelpurnar voru yngri var ég alltaf með samveru- dagatal en núna þegar þær eru báðar orðnar uppteknir ung- lingar gerum við bara eitthvað kósí saman sem passar inn í þeirra skipulag.“ Heimalagað Bailey’s 1 peli rjómi 1 dós niðursoðin mjólk 200-400 ml viskí (smekksatriði) 1 tsk. skyndikaffi (duftið) 2 msk. súkkulaðisíróp (Hershey’s) 1 tsk. vanilludropar Setið allt hráefnið í blandara og á mesta hraða í 30 sekúndur. Setjið á lokaðar flöskur og geymið í kæli. Hristið fyrir notkun. Geymist í kæli í um mánuð. Það er ágætt að skrifa dagsetn- ingar á miðann. Ég gerði tvöfalda uppskrift og hún dugði á sex flöskur. Í uppskriftinni, sem ég fann á netinu, var helmingi meira af viskíi. Þegar ég gerði fyrstu uppskrift fannst mér allt of mikið viskíbragð þannig að ég minnkaði það um helming. Þannig að þegar þið gerið uppskriftina þá mæli ég með að þið byrjið á að setja minna viskí og svo bara bæta við eftir smekk. Ég notaði flöskur undan Froosh smoothie og bjó miðana til sjálf. Gerir jóla-lautarferð heima Hvað með skemmtilega kvöldstund með börnunum? „Við fjölskyldan erum með skemmtilega hefð á Þorláks- messukvöldi. Þegar búið er að skreyta allt og þrífa og enginn nennir að elda og óhreinka eldhúsið förum við í lautarferð í stof- unni. Pöntum pítsu, slökkvum öll ljós í húsinu nema jólaljósin og kertaljós og setjum teppi á stofugólfið og borðum pítsuna saman eins og í lautarferð. Svo horfum við saman á skemmti- lega jólamynd. Þetta finnst stelpunum æðislegt og tala um að þetta sé þeirra jólahefð.“ Hvernig skreytirðu pakkana? „Það er mjög misjafnt. Stundum legg ég mikinn metnað í pakkana en stundum er þetta bara mjög einfalt. Það fer svolítið eftir hver fær pakkann.“ Laufabrauðsgerð er hluti af jólahefð fjölskyldunnar. Heimilið breytist í jólaveröld í desember. Dæturnar grilla sér sykurpúða á aðventunni. Hvítur fatnaður á börnin er hátíðlegur litur á jólunum. Fallegt jólahjól hlaðið pökkum og jólavörum. Heimalagaður Bailey’s. 14 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 w w w . l i f s t y k k j a b u d i n . i s G e f ð u s i l k i m j ú k a j ó l a g j ö f
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.