Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 18
18 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
GJ
AF
AB
RÉ
F
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
K atrín er framkvæmdastjóriSamtaka fjármálafyrirtækjaog fyrrverandi alþingismaðurog ráðherra. Þegar hún erspurð að því hvernig það hafi
æxlast að hún hafi geyst fram á ritvöllinn seg-
ir hún að það hafi blundað í henni lengi.
„Ég byrjaði að skrifa þessa bók sumarið
áður en ég hætti á þingi. Ástæðan er sú að ég
er ótrúlega forvitin um hvar geta mín liggur
og hvað ég get fengið út úr þessu lífi. Ef mér
dettur eitthvað í hug hef ég tilhneigingu til að
prófa það. Ég var alltaf að segja Bjarna
manninum mínum einhverjar sögur af fólki
sem hafði framið ódæðisverk eða orðið fyrir
barðinu á slæmu fólki og hef alltaf haft
mikinn áhuga á glæpaefni af ýmsu tagi. Svo
fór ég að spyrja mig og hann hvað ef þessi
eða hin týpan væri bara hér í kringum okkur
og hvað þær kæmust langt. Hann skoraði því
á mig að prófa að skrifa,“ segir Katrín.
Hún skrifaði fyrstu 17 síðurnar og leyfði
eiginmanninum að lesa. Hann heillaðist og
hvatti hana til að halda áfram. Á þessum tíma
var Katrín í miðri kosningabaráttu og þar
sem hún hafði ákveðið að hætta í stjórn-
málum hafði hún örlítið meiri tíma en vana-
lega. Fljótlega hóf hún störf sem fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og
þá neyddist hún til þess að leggja bókaskrifin
til hliðar. Um tveimur árum síðar tók hún
þráðinn upp aftur og kláraði bókina um síð-
ustu jól.
„Þegar ég var búin að með bókina missti ég
algerlega kjarkinn og vildi ekki sýna neinum
hana. En svo komst ég yfir það og sendi bók-
ina inn í samkeppnina Svartfuglinn sem gefur
okkur sem erum ný í þessum bransa tæki-
færi,“ segir Katrín og játar að hún hafi komið
sjálfri sér á óvart með skrifunum.
Fann ástina 35 ára
Lífshlaup Katrínar er áhugavert
fyrir margar sakir. Hún var til
dæmis orðin 35 ára þegar hún fann
stóru ástina en þá var hún einstæð
móðir með 11 ára gamlan son sinn.
Fram að þeim tíma hafði hún aldrei
búið með karlmanni.
„Ég er mikill extróvert en líka
mjög mikill lóner þannig að Bjarni
er fyrsti maðurinn sem ég hóf sam-
búð með. Ég vil hafa hlutina á minn
hátt og er líka pínu snúin týpa. Svo
kom hann inn í líf mitt og hann er
bara svolítið snúin týpa á sinn hátt líka. Hann
þarf sitt pláss og ég þarf mitt pláss. Ég var
orðin efins um að samband væri fyrir mig en
þegar ég kynntist Bjarna var ég viss um að
hann væri sá rétti,“ segir hún.
Er eitthvað í uppeldinu sem gerði það að
verkum að þú sást ekki fyrir þér að þú gætir
tengt við aðra manneskja eða búið með
henni?
„Mögulega. Ég er þetta klassíska skiln-
aðarbarn þótt það hafi ekki verið neitt tráma í
lífinu þannig séð en það mótar mann engu að
síður. Það sem ég held að hafi þó haft meiri
áhrif er að það kemur í ljós þegar ég er orðin
fertug að ég er með ADHD. Það gerði það að
verkum að ég fór að skilja mig betur. Ég las
mér til og komast að því að stelpur með
ADHD eiga það oft sameiginlegt að þeim
gengur gjarnan vel í lífinu, þær fá góðar ein-
kunnir í skóla en samt er alltaf verið að gagn-
rýna þær. Þær hafa of hátt og þykja of fyr-
irferðarmiklar. Þú verður því mjög
sjálfsgagnrýnin og ert mjög upptekin af því
að hafa hemil á þér. Því var sjálfsmyndin
kannski ekki nógu sterk fyrir gott og náið
samband. Ég þarf að vera með ákveðinn
ramma og funkera best innan hans. Til að ég
virkaði best þurfti ég að hafa fullkomna
stjórn á mínu lífi,“ segir Katrín og játar að
það sé ekki auðvelt að hleypa öðrum inn í til-
veru sem er í svona föstum skorðum.
„Ég fékk ekki þessa ADHD-greiningu því
ég funkeraði ekki heldur vegna þess að að ég
svaf ekki. Hvorki ég né nokkur annar hafði
fyrir fram tengt að ég væri með ADHD. Mín
einkenni voru streita og svefnleysi. Þetta
svefnleysi var viðvarandi frá því ég var barn
og unglingur og háði mér mjög mikið og gerði
það að verkum að dagarnir voru misgóðir. Ég
var með hátt spennustig í líkamanum,“ segir
hún en það var ekki fyrr en hún fór til heim-
Morgunblaðið/Eggert
Fann ástina
35 ára og lífið
umturnaðist
Katrín Júlíusdóttir hlaut verðlaunin Svartfuglinn fyrir
sína fyrstu skáldsögu, Sykur. Eiginmaður hennar,
Bjarni Bjarnason rithöfundur, hvatti hana til að byrja
að skrifa. Þegar hún varð fertug greindist hún með
ADHD sem gerði það að verkum að hún fór að skilja
sjálfa sig betur og fór loks að sofa eins og engill.
Marta María | mm@mbl.is
Katrín Júlíusdóttir fór að
skilja sjálfa sig betur þegar
hún greindist með ADHD
eftir fertugt en áralangt
svefnleysi hafði hrjáð hana.
Ég las mér til og
komst að því að
stelpur með ADHD
eiga það oft sam-
eiginlegt að þeim
gengur gjarnan vel í
lífinu, þær fá góðar
einkunnir í skóla en
samt er alltaf verið
að gagnrýna þær.
❄
❄ SJÁ SÍÐU 20