Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 20

Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 20
20 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 arionbanki.is Gjöf sem gleður alla Gjafakort Arion banka er alltaf rétta gjöfin. Nú geta viðskiptavinir pantað gjafakort á arionbanki.is og fengið þau send heim. ilislæknis að eitthvað fór að gerast. Hann sendi hana í greiningu og síðan það lá ljóst fyrir að hún væri með ADHD fékk hún lyf sem ger- ir það að verkum að hún sefur eins og engill. „Í mínu tilfelli virka þessi lyf og ég finn ekki fyrir aukaverk- unum. Ég er enn þá pínu hvatv- ís, gríp fram í fyrir fólki og fer upp á borð að dansa ef ég er í miklu stuði. Ég er enn þá með hraðlest af hugsunum í hausn- um en hef betri stjórn á þeim og þær enda síður úti í skurði en áður. Ég átti alltaf erfitt með að stunda jóga eða hug- leiðslu en eftir að ég fékk lyfin get ég hugleitt og slakað á,“ segir hún og játar að lyfin hafi líka jákvæð líkamleg áhrif því spennustigið í líkamanum er minna og svefn- inn hefur lagað líkamlegt ástand og útlit. Stemning fram yfir stíl Þegar Bjarni kom inn í líf Katrínar fylgdi honum 9 ára sonur og fljótlega eignuðust þau tvíbura sem nú eru 8 ára. Hún segir að líf hennar hafi umturnast á mjög stuttum tíma. „Heimili okkar er svolítið kaótískt, stemn- ing fram yfir stílinn,“ segir hún og hlær og bætir við: „Ég játa að þetta getur verið erfitt fyrir konu sem er kontrólfrík. Að reka þetta heim- ili með mínum yndislega Bjarna gerir þetta þó auðveldara. Þegar mikið er að gera hjá mér í vinnunni þá tekur hann heimilisvaktina og þegar hann þarf að skrifa og vera á Eyr- arbakka þá sé ég um heimilið á meðan. Þetta er fyrirkomulag sem virkar vel fyrir okkur og svo erum við miklir vinir. Það skiptir máli,“ segir hún. Svo eignist þið tvíbura? „Þeir voru mjög planaðir. Þeir voru greini- lega búnir að bíða eftir því lengi að komast til góðrar fjölskyldu. Við vorum mjög tilbúin í þetta og bæði komin á virðulegan aldur. Okk- ur langaði að eignast tvö börn en vissum ekki alveg að þeir kæmu báðir í einu,“ segir Katrín og játar að það sé auðveldara þegar fram í sækir að vera með tvö börn á sama aldri þótt það sé erfiðara fyrstu mánuðina. Rithöfundaangist Talið berst að nýja framanum, rithöfunda- lífinu. En hvernig skyldi henni líða að vera út- gefinn höfundur? „Ég var alltaf ægilega skilningssljó þegar Bjarni fékk þessa rithöfundaangist. Núna skil ég þetta mjög vel. Eitt er að fást við verkefni raunveruleikans hér og nú, annað er að senda út úr hausnum á þér skáldverk. Bjarni glottir þegar hann sér mig í rithöfundaangist. Ég hef aldrei verið svona stressuð yfir neinu sem ég hef sent frá mér,“ segir hún. Aðspurð hvort hún sé byrjuð á næstu bók segist hún vera með hugmynd. Hana langi til að segja meira af lífi Sigurdísar, sem er unga lögreglukonan í Sykri. „Mig langar að gera hennar sögu betri skil. Ég segi stundum í gríni að Sigurdís sé bara 29 ára og hún eigi allt lífið fram undan. Ég tengi vel við Sigurdísi enda er hún á svip- uðum aldri og ég þegar ég byrjaði á þingi. Sigurdís vanmetur sjálfa sig en er örlítið hvatvís í sínum störfum og hlustar á innsæið. Það er ekki alltaf umhverfið eða fólkið í kringum okkur sem heldur okkur niðri heldur við sjálfar. Við þetta tengi ég frá fyrstu ár- unum mínum í stjórnmálum. Mér þykir rosa- lega vænt um hana og mig langar að skrifa meira um hana. Saga Sigurdísar varð miklu stærri í bókinni en hún átti að verða. Það átti ekki að verða svona stór hluti af sögunni. Ég sé hana fyrir mér í umhverfinu og finn stund- um hvernig henni líður. Mér fannst það svolít- ið skemmtilegt. Hún er ósýnilegi vinur minn,“ segir Katrín og brosir.Morgunblaðið/Eggert Katrín hlaut verðlaunin Svartfuglinn fyrir sína fyrstu skáld- sögu, Sykur. Katrín hafði aldrei búið með karlmanni þegar hún hóf sambúð með eiginmanni sínum 35 ára að aldri.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.