Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 22
Þ órey vinnur hörðum höndum að því að komanýja fyrirtækinu sínu af stað. Fyrirtækiðstofnaði hún ásamt Dögg Thomsen og Dom-inic Nieper með sérhæfingu í jafnrétt-ismálum. Hún segir forréttindi að fá að
starfa við það sem hún hefur ástríðu fyrir.
Þórey er spennt fyrir jólunum sem hún mun verja með
fjölskyldunni; unnusta sínum Magnúsi Orra Shcram og
börnunum sínum þeim Vilhjálmi Kaldal og Ragnheiði Rík-
arðsdóttur.
Hún segir forréttindi að fá að starfa við
það sem hún hefur ástríðu fyrir og mælir
með því við allar uppteknar konur að minnka
kröfurnar á sig í jólaundirbúningnum.
„Það eru gríðarleg tækifæri í samfélaginu
í jafnréttismálum. Jafnréttismál eru ekki
eingöngu mannréttindi heldur eitt stærsta
efnahagsmál framtíðarinnar. Empower er
eins konar vettvangur jafnréttis, við bjóðum
upp á sérsniðna ráðgjöf, vinnustofur og fyr-
irlestra. Við erum einnig
að fara að halda tvær
alþjóðlegar ráð-
stefnur um jafn-
réttismál
næsta haust,
setja af stað
hlaðvarp og
margt fleira
spennandi.
Við setjum
bara undir okkur
hausinn í þessu
kórónuveiruástandi og
horfum bjartsýn fram á veg-
inn enda fer fyrirtækið vel af stað. Við erum til dæmis að
vinna með Alþingi núna að Jafnréttisvísinum ásamt fleiri
spennandi verkefnum.“
Gjöf að fá soninn til landsins
Ein af stóru gjöfunum fyrir jólin verður að fá elsta son-
inn, Vilhjálm Kaldal, til landsins.
„Ég hlakka sérstaklega til þess að fá frumburðinn heim
um jólin en hann er í námi í Bandaríkjunum. Jólahefðirnar
eru alltaf að breytast hjá okkur. Í samsettum fjölskyldum
eru jólahefðirnar ekki alltaf þær sömu en ég reikna með
því að vera með stórfjölskylduna mína í mat á aðfangadag.
Annars verð ég að viðurkenna að ég geri lítið í eldhúsinu
fyrir jólin. Á aðfangadag í fyrra fór ég meira að segja á
fjallaskíði með vinkonu minni fyrir hádegi. Ég hef verið að
reyna að gera jólin eins einföld og notaleg og mögulegt er.
Enda reyni ég að útiloka stress úr aðventunni.“
Hvernig skreytir þú?
„Mér finnst gaman að skreyta og kaupi mér alltaf eitt-
hvert fallegt jólaskraut á hverju ári. Það er eitthvað við
það að fylla húsið af glitri og kerta-
ljósum í skammdeginu. Ég keypti mér
jólaskraut nýverið á útsölunni í Epal.
Einstaklega falleg keramikjólatré.“
Hvaða ráð áttu fyrir uppteknar kon-
ur fyrir jólin?
„Að endurskoða kröfur og vænt-
ingar um jólaundirbúning. Ég mæli
með að vera ekki að bera sig saman við
aðra heldur finna hvað þú vilt fá út úr
aðventunni. Að fara bara í naumhyggj-
una og njóta samveru með sínum nán-
ustu. Mér finnst gott að stunda útivist
á aðventunni, góða fjallgöngu til dæm-
is, fara í bullandi núvitund og gleyma
stund og stað.“
Jólin minna á ömmu og afa
Aðspurð um fallegar minningar um
jólin svarar Þórey snögg upp á lagið:
„Jólin minna mig svo oft á ömmu
Þóreyju og afa Magnús en ég varði
miklum tíma með þeim þegar ég var
barn. Ég man sérstaklega eftir því
hvað afi var alltaf ánægður með að ég
kunni svo vel að meta rjúpurnar. Við
fengum okkur oft aukaskammt eftir að búið var að opna
pakkana. Ég man nú líka eftir jólum þar sem gasið klár-
aðist klukkan sex á aðfangadag. Það var svona hálfgert
neyðarástand en bjargaðist á endanum.“
Hvaða ilmur minnir á jólin?
„Lyktin af rjúpu og rauðkáli.“
Hvað með jólatónleika?
„Mér finnst mjög notalegt að fara á jólatónleika þótt
það sé kannski ekki beint fastur liður hjá mér. Tónleikar í
kirkjum finnst mér mjög hátíðlegir fyrir jólin. KK og Ell-
en í Fríkirkjunni voru til dæmis dásamlegir tónleikar.“
Heimiliskötturinn
prins Harry er alltaf
sérstaklega uppá-
klæddur á jólunum.
Reynir að útiloka
allt stress á jólunum
Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og eigandi Empower
og útivistarkona, segir mikilvægt að minnka kröfurnar á okkur um
jólin og njóta þeirra með fjölskyldu og vinum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Óli Már
Þórey Vilhjálmsdóttir er
virkilega ánægð með jólin.
Hún leggur stund á útivist
og það að njóta sín með
fjölskyldu sinni.
Þórey á fjalla-
skíðum á að-
fangadag í fyrra.
Þórey ásamt Soffíu Sigurgeirs-
dóttur vinkonu sinni í aðventu-
göngu á jólunum í fyrra.
Þórey leggur
áherslu á að það
sé skemmtilegt á
jólunum.
Mæðgurnar
að hjálpast
að með
piparkökuhús
fyrir jólin.
22 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Jólagjöfin í ár
Rauðagerði 25
108 Reykjavík
Sími 440 1800
www.kaelitaekni.is
Vitamix blandarar
eiga sér fáa jafningja.
Hraðastillir og prógröm
sjá til þess að blandan
verði ávallt fullkomin
og fersk!