Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 34
34 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
S igrún varð verulega fær í bakstri þegar hún æfði sig ífæðingarorlofum sínum með börnunum tveimur. Hún er einnig mikið fyrir hreyfingu og stundarbardagaíþróttir hjá MMA RVK og æfir einnig blakmeð Aftureldingu.
„Ég legg mikið upp úr því að hafa einfaldleikann í fyrirrúmi og
vil meina að allir geta bakað og skreytt. Ég held úti síðunni Kökur
og Kupkakes á Instagram, þar sem mig langar til þess að sýna
fólki að þetta þarf ekki að vera flókið til þess að vera fallegt og
gott. Einfaldleikinn er oftast bara bestur. Draumurinn minn er að
gefa út bók þar sem ég get sýnt fólki einfaldar og fallegar köku-
skreytingar og sniðugar hugmyndir til þess að gera fallegar veisl-
ur á einfaldan hátt.“
Er á tímamótum í lífinu
Sigrún er á tímamótum í lífi sínu núna, þar sem hún er ný-
lega skilin, er að hefja nýja vinnu og fara í nýtt húsnæði.
„Ég er að hefja alveg nýjan kafla í mínu lífi sem ég hlakka
til að njóta. Lífið er svo magnað, maður veit aldrei hvað það
hefur upp á að bjóða. Mig finnst ég vera mjög heppin að fá
svona glænýjan kafla og ný tækifæri.“
Sigrún hlakkar til jólanna og þá sér í lagi að baka smákökur
sem hún gerir árlega.
„Ég baka mikið um jólin, aðallega smákökur. Ég hlakka til
komandi tíma því nú er stelpan mín komin á þann aldur að hún
getur farið að aðstoða mig og átta sig almennilega á jólunum.
Við fjölskyldan erum mjög vanaföst þegar kemur að jól-
unum. Við erum alltaf með hamborgarhrygg og því verður
ekki breytt. Það er líka barist um að narta í hann kaldan dag-
inn eftir.“
Gerir kökur sem eru listaverk
Það sem Sigrún kann að meta er að baka með börnunum um
jólin.
„Krakkarnir getað bakað með okkur, skorið út og skreytt. Ég
kann að meta að baka, en einnig að skreyta kökurnar. Ég teikna
mikið og fannst svo geggjað að sjá eitthvað svona fallega skreytt
sem væri líka gott verða til. Ég er einnig mikið fyrir að gleðja fólk
og koma því á óvart. Ég geri það með því að mæta með fallega
köku til þeirra eða með því að halda óvæntar veislur. Ef það eru
veislur í kringum mig þá er ég komin með puttana í þær til að
hjálpa til við skipulag og mæti með köku. Það er ótrúlegt hvað ein
kaka getur gert mikið og líka fyrir borðhaldið.“
Þegar kemur að bakstri mælir Sigrún með að fylgja upp-
skriftum.
„Bakstur er ekki eins og eldamennskan þar sem þú getur sett
smávegis af þessu og hinu í matinn. Einnig er gott að hafa hlutina
ekki flókna, því það er ekki endilega betra. Ég ráðlegg fólki bara
að vera öruggt með það sem verið er að gera. Að halda áfram að
æfa sig og prófa sig áfram. Það verður ekkert flókið ef maður lær-
ir að tileinka sér það.“
Á afmæli á jólunum
Sigrún hefur alltaf verið mikið jólabarn í gegnum tíðina.
„Ég er algjört jólabarn og á einnig afmæli 29. desember svo þið
getið rétt ímyndað ykkur gleðisprengjuna í desember. Það var
mikið bakað þegar ég var ung og lék amma stórt hlutverk í því og
gerir í dag. Ég fer ennþá til hennar að baka fyrir jólin. Þá kemur
litla jólastelpan upp í mér.“
Sigrún segir skipta miklu máli að hafa jólin eins róleg og nota-
leg og hægt er.
„Ef það þýðir að maður þarf að undirbúa þau fyrr þá gerir
maður það. Ég mæli sem dæmi með að kaupa gjafirnar jafnt og
þétt yfir árið svo maður fái ekki einn stóran skell í desember.
Það er alltaf hægt að finna leið ef viljinn er fyrir hendi og með
réttu hugarfari kemst maður langt. Það sem mér finnst yndisleg-
ast við jólin er tíminn með fjölskyldunni. Stemningin þegar allir
mæta, fínir og léttir í skapi. Þar sem við borðum saman, spilum og
spjöllum. Jólin eru ómetanlegur tími.
Það er bara eitthvað við jólin sem fyllir mann af kærleik og
gleði. Það er svo notalegt þegar það er dimmt úti, veðrið er stillt
og þú ert inni að baka og hlusta á jólalög. Það er bara eitthvað svo
yndislegt við það.“
Litlu jólin með vinkonunum mikilvæg
Eitt af því sem hún gerir alltaf á jólunum eru litlu jólin með vin-
konunum.
„Við vinkonurnar erum búnar að halda litlu jólin saman und-
anfarin ár. Þar sem allar mæta með einn pakka og svo er dregið
um pakkana. Við föndrum einnig saman og skreytum og fáum
okkur smart drykki. Stundum verður ekki mikið úr verki því við
gleymum okkur í góðu spjalli sem er gaman líka.“
Sigrún lumar á góðum uppskriftum. Hún heldur upp á t.d.
kaffi-Toblerone-ís, kardimommumúffur og toppa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigrún Pálsdóttir, þjónustufulltrúi
hjá Póstmerkt, er mikil áhuga-
manneskja um kökuskreytingar og
bakstur. Hún er með tvö lítil börn
og segir fátt skemmtilegra en að
undirbúa jólin með börnunum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Gerir kökur
um jólin
sem eru eins
og listaverk
Sigrún ásamt börnum sínum, þeim
Ástu Maríu og Baldvin Hrafni.
Kaffi-Toblerone-ís
6 eggjarauður
6 matskeiðar flórsykur
1 teskeið vanilludropar
1 matskeið kaffi
2 matskeið Kahlua-líkjör
500 ml rjómi (stífþeyttur)
100 grömm Toblerone
Aðferð
Hrærið eggjarauður ásamt flór-
sykri vel saman.
Bætið vanilludropum, kaffi og
Kahlua-líkjör við.
Blandið rjóma varlega saman
við.
Skerið Toblerone í litla bita og
bætið við.
Kornflexbitar
(egglaus uppskrift)
150 grömm suðusúkkulaði
150 grömm rjómasúkkulaði
1 matskeið síróp
1 matskeið smjör
150 grömm kornflex
Aðferð
Bræðið súkkulaði og smjörið
saman og blandið sírópi við og
hrærið saman við súkkulaðið.
Blandið svo kornflögunum sam-
an við áður en súkkulaðið harðnar.
Mótið strax áður en súkkulaðið
harðnar.
Kardimommumúffur
200 grömm smjörlíki
2 bollar sykur
500 gr. hveiti
2 teskeiðar lyftiduft
3 dl mjólk
1 teskeið kardimommudropar
Aðferð
Bræðið smjörlíkið
Blandið öllu saman og hrærið vel
Setjið í muffins-form
Bakið við 170°C í 15-17 mínútur
Smjörkrem
250 grömm smjör við stofuhita
250 grömm flórsykur
2 teskeiðar vanilludropar
Aðferð
Hrærið smjörið vel og bætið flór-
sykrinum í skömmtum út í og síðan
eru vanilludroparnir settir út í.
Uppskriftir Sigrúnar