Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 38
Með hefðir og fastar venjur um jólin
Hanna Þóra segir jólin tíma hefða og vanafestu.
„Matseðlinum á aðfangadag má alls ekki breyta og er
því alltaf það sama í boði. Við erum með humar í forrétt,
hamborgarhrygg í aðalrétt og riśalámand í eftirrétt. Ein
mandla leynist í eftirréttinum og sá sem fær hana á
aukapakka undir jólatrénu.“
Gerir þú piparkökuhús?
„Já, ég geri það en með dyggri leiðsögn móður minn-
ar, Guðfinnu Thordarson arkitekts. Eiginlega hefur hún
séð um mestu vinnuna við það undanfarin 15 ár og við á
heimilinu reynt að aðstoða. Piparkökuhúsið er alltaf eins
og er kastali sem hún hannaði fyrir mörgum árum. Nú
eru krakkarnir mínir að verða það stórir að það er
spurning hvort það sé ekki kominn tími til að keflið fari
yfir til þeirra og þau spreyti sig á kastalanum.“
Hvað með baksturinn?
„Ég baka ekki alltaf það sama. Það fer alltaf svolítið
eftir því hvaða stuði ég er í. Yfirleitt baka ég alltaf sörur
og þá oftast hindberja- eða bláberjasörur og svo einfald-
ar súkkulaðikökur. Svo er algjörlega nauðsynlegt að
baka lúsíubollur á aðventunni en þær eru mjög vinsælar
á heimilinu.“
Skreytir þú með vissum hætti hjá þér?
„Ég byrja að ná í hluta af jólaskrautinu í lok nóvember
og finnst það alltaf jafn gaman þar sem það vekur upp
minningar. Mikið af jólaskrauti heimilisins hefur tilfinn-
ingalegt gildi og á sína sögu sem er sjarmerandi.“
Hvað ætti fólk að gera um jólin sem kann ekki að elda?
„Að fara í mat til mömmu. Að öllu gríni slepptu, þá
mæli ég með því að fólk ætli sér ekki of mikið. Byrji bara
á einhverju einföldu. Einfalt getur verið gott. Ég held að
það ættu langflestir að geta lært að elda. Það er bara
spurning að gefa sér tíma, vera örlátur á þolinmæði og
hafa jákvætt viðhorf. Það getur verið svo skemmtilegt að
búa til stemningu í kringum jólamatseldina. Virkja börn-
in og makann og fá alla með sér í lið. Eldamennska al-
mennt getur gefið svo mikið af jákvæðri samveru. Að
bardúsa saman í eldhúsinu og spjalla. Auk þess sem ég
er sannfærð um að það sé mikilvægt fyrir börn að alast
upp við matseld á heimilinu. Það mun fylgja þeim út í líf-
ið. Eldamennska er bara eins og svo margt annað. Hún
liggur misvel fyrir fólki. Þetta er bara spurning að halda
áfram, bæta sig og læra. Það er engin lausn að fá sér túlk
í hvert skipti sem þarf að tjá sig á ensku bara af því að
maður er ekki góður í ensku. Það eina sem hægt er að
gera er að babla sig áfram og láta það ekki á sig fá hvað
öðrum finnst.“
Þegar kemur að bakstrinum þá er hún á því að einfalt
sé alltaf best.
„Það þarf ekki að baka sjö tegundir af flóknum sort-
um. Ég held að þeir sem vilja ná tökum á að baka ættu að
byrja bara á einhverju einföldu og gefast ekki upp þó svo
að allt lukkist ekki við fyrstu tilraun. Það má alveg baka
mislukkaðar kökur og getur það vel skapað góðar minn-
ingar hjá fjölskyldu þó svo þær séu varla ætar. Má ekki
bara segja að það leynist bakari í okkur öllum? Það þarf
bara að kafa misdjúpt til að finna hann.“
Girnilegur piparköku kastali.
Hanna Þóra raðar
piparkökum upp á
skemmtilegan hátt.
38 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
20 notkunarmöguleikar í einu tæki
og innbyggðar uppskriftir.
Nú geta allir eldað!
Snjalltæki
í eldhúsið
Frábær
JÓLAGJÖF
fyrir fjölskylduna
Thermomix á Íslandi • Síðumúla 29 • 108 Reykjavík • S. 519-5529 & 696-7186
info@eldhustofrar.is • iceland.thermomix.com • Thermomix á Íslandi
30 bollur
Á hverju ári baka ég lúsíu-
bollur – þær eru bæði góðar,
fallegar og svo vekja þær góð-
ar minningar frá æskuárum
mínum í Svíþjóð. Þessi upp-
skrift kemur frá mömmu.
Forvinna
Það er hægt að setja aðeins
minna af geri í deigið og láta
fyrstu hefingu verða í kæli yfir
nótt.
50 grömm pressuger eða bréf
(12 g) þurrger
150 grömm smjör
½ lítri mjólk
½ teskeið salt
2 dl sykur
1 stykki sykurmoli
1 egg – við stofuhita
½ tsk. saffran
12-15 dl hveiti
1 egg – til penslunar fyrir
bakstur
Rúsínur, hakkaðar möndlur
og perlusykur – eða það sem
hverjum og einum finnst
best
Aðferð Mjólk og smjör hitað í
potti (best að bræða smjörið
fyrst og hella mjólkinni út í).
Blandan á að vera 37°C eða að-
eins minna (sjá: Gerbakstur –
góð ráð).
Saffran steytt í mortéli
ásamt sykurmola.
Ger, salt, saffranmulningur
og sykur sett í skál og blandað
saman. Nokkrum matskeiðum
af mjólkurblöndunni hellt í –
blandað saman þar til allt leys-
ist upp. Afgangi af mjólk-
urblöndunni hellt saman við.
Helmingur af hveiti settur í
skálina – blandað saman.
Eggi bætt við – hrært sam-
an.
Afgangi af hveiti bætt við og
hnoðað þar til deigið verður
þannig að hægt sé að koma við
það án þess að það klístrist við
mann – betra að hafa það að-
eins blautara en þurrt.
Hveiti stráð yfir deigið og
látið hefast í 45-60 mínútur eða
þar til það hefur tvöfaldað
stærð sína – hafa rakan klút
yfir skálinni. Sett á stað þar
sem ekki er trekkur.
Deigið sett á hveitistráð
borð og skipt í 30 jafna bita.
Mótaðar bollur eða kransar
– um að gera að nota hug-
myndaflugið. Stundum hafa
börnin búið til stafina sína (sjá
ýmis dæmi hér fyrir neðan).
Skreytt með rúsínum.
Bollunum raðað í ofnskúffu
með bökunarpappír og þær
látnar hefast með klút yfir í
30-45 mínútur. Nauðsynlegt að
hafa gott bil á milli svo að þær
klessist ekki saman.
Ofninn hitaður í 250°C ef
smábollur eru bakaðar, 225°C
fyrir stærri bollur og 225°C ef
bakaðir eru stórir kransar.
Penslað með hrærðu eggi og
skreytt með perlusykri.
Bakað í ofni:
Smábollur í 5-6 mínútur.
Stærri bollur í u.þ.b. 10 mín-
útur.
Stórir kransar í 20-25 mín-
útur.
Lúsíubollur
Lúsíukrans
er fallegur
um jólin.