Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 44
Á Instagram-síðu Þyriar má finna fleiri uppskriftir
af náttúrulega sætum molum og öðru meinhollum
en ljúffengum mat.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borðar mikið af súrkáli um jólin
Þyri er vegan og stór hluti af hennar fæðu er hrá-
fæði. Hún borðar venjulega meira af heitum mat í
skammdeginu en krydd eins og kanill, kardimommur,
túrmerik og engifer fær gott pláss í eldhúsinu hennar í
skammdeginu.
„Ég hef aldrei verið mikið fyrir jólamat en ég og
maðurinn minn prufum alltaf eitthvað nýtt á jólunum,
gerum sýrt grænmeti og alls konar skemmtilegt. Það
er líka nauðsynlegt að borða mikið af súrkáli um jólin
þannig að líkaminn eigi auðveldara með að melta allt
þetta góðgæti.
Ég borða lifandi fæði sem snýst um að fylla líkamann
af ensímum til að melt-
ingin sé alltaf í góðu
standi. Ég borða alltaf
spírur, hveitigras,
rejuvelak-drykk og súr-
kál með í jólastuðinu í
bland við alls konar veg-
annammi og veganmat.
Það er alltaf pláss fyrir
sætindi á jólunum en ég
geri það mestmegnis
sjálf, finnst það lang-
best.“
Molarnir hennar Þyri
eru ekki bara náttúrulega sætir þar sem jólaskrautið
er líka náttúrulegt.
„Ég er alin upp við að allt sé skreytt með náttúru-
legum efnum. Jólatré með lifandi kertum og könglum.
Ég fer út í garð hjá mömmu og pabba og klippi greinar
með berjum og alls konar til að skreyta. Ég skreyti
ekki mikið en er alltaf með krans frá mömmu úr greni
og berjum, kaupi kerti með góðum jólailmi, greni, kanil
og negul,“ segir Þyri. Náttúruleg jólalykt eins og
mandarínu- og grenilyktin kemur Þyri alltaf í jólaskap
sem og ilmurinn af rauðkálinu í eldhúsi foreldra henn-
ar.
Karamellan gerir allt betra
Hvað verður í matinn á jólunum?
„Ég er ekki búin að ákveða hvað verður í jólamatinn.
Ég og Hrafnkell maðurinn minn vorum að velta því fyr-
ir okkur að vera með tapasjól. Við elskum smárétti og
að nostra við hvern og einn rétt þannig að það er spurn-
ing hvort það verða ekki bara vegan-tapasjól í ár,“ seg-
ir Þyri.
„Jólamolarnir mínir eru náttúrulega sætir með döðl-
um. Ég nota carob í staðinn fyrir kakó, carob er nátt-
úrulega sætt og inniheldur ekki koffín. Ég set alltaf all-
ar hnetur og fræ í bleyti til að þær verði auðmeltan-
legri. Ég elska að föndra og konfektgerð er í miklu
uppáhaldi. Þetta eru mínir klassísku molar. Ég geymi
þá í frystinum og næli mér svo alltaf í einn og einn,“
segir Þyri og bætir við að molarnir séu fljótir að klár-
ast.
Þyri notar sömu karamelluna sem fyllingu í súkku-
laðimolana sem hún gerði fyrir jólablað Morgunblaðs-
ins og til þess að búa til pekanhnetukaramellu. Hún
segir reyndar þessa karamellu vera í miklu uppáhaldi á
sínu heimili og fjölskyldan fái sér hana út á jógúrt- og
bananaís. „Hún gerir allt betra,“ segir Þyri.
„Jólamolarnir mínir
eru náttúrulega sætir
með döðlum. Ég
nota carob í staðinn
fyrir kakó, carob er
náttúrulega sætt og
inniheldur ekki koffín.
❄
Þyrí Huld skreytir með náttúrulegum
efnum fyrir jólin og býr til sitt eigið konfekt.
44 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Ef þig langar að brjótast út sem einn besti bakari ársins ættirðu
kannski að biðja um bókina hennar Elenoru Rósar Georgsdóttur í
jólagjöf. Bókin er sannkölluð biblía heimabakarans en í bókinni
tekur hún saman sínar uppáhaldsuppskriftir sem spanna allt frá
einföldum súrdeigsbakstri til gómsætra súkkulaðivafninga og allt
þar á milli.
Bókin inniheldur einnig ítarlega kennslu í súrdeigsbrauðgerð
og öll helstu trix sem þarf að kunna til að baksturinn heppnist
sem best.
Elenora vinnur við bakstur í Bláa lóninu og hefur haldið úti vin-
sælu instagramsíðunni Bakaranora um nokkurt skeið.
„Uppskriftirnar í bókinni eru margar hverjar mjög persónulegar
og um leið uppáhalds. Þær eru fjölbreyttar og það ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi. Njótið vel,“ segir Elenora Rós.
Bakaðu frá
þér allt vit
Elenora Rós er höfundur bókarinnar Bakað með Elenoru.