Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 46
46 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Þ essi hnetusteik er alltöðruvísi en við erum bú-in að vera að gera hingaðtil. Í grunninn notum viðsvipað hráefni en bætum
baunaprótíni og reykefni út í hana.
Þannig verður áferðin á hnetu-
steikinni þéttari og skemmtilegri,“
segir Valentína.
Hún segir að þessi nýja
hátíðahnetusteik sé allt öðruvísi en
annar grænmetismatur sem seldur er
á Íslandi og markmiðið sé að hand-
verkið og heimalagaða bragðið haldi
sér í gegnum alla framleiðsluna. Við-
skiptavinir Móður náttúru hafa sann-
arlega kunnað að meta það enda hefur
fyrirtækið verið í fararbroddi á sínu
sviði frá því það var stofnað árið 2003.
„Auk baunaprótínsins og reykefn-
isins er grænmeti, krydd, baunir og
bygg í nýju hátíðahnetusteikinni. Fólk
fær því góða næringu með því að
borða hana. Hún er prótínrík og það
eru góðar trefjar í henni svo eitthvað
sé nefnt og ég verð nú bara að játa að
við erum mjög stolt af þessari nýsköp-
un hjá okkur,“ segir hún.
Nýja hátíðahnetusteikin verður ein-
ungis fáanleg í kringum jól og áramót
og mun leysa gömlu hátíða-
hnetusteikina af hólmi. Valentína seg-
ir að þessi nýja hafi orðið til eftir ít-
arlegar prófanir en þau hafi verið
undir mikilli pressu að koma með
þessa vöru á markað.
„Við höfum gert margar tilraunir
og höfum við leyft mörgum að
smakka. Þessi nýja hnetusteik þykir
mikið lostæti,“ segir hún.
Aðspurð hvers vegna þau hafi far-
ið út í að gera hnetusteik með reyktu
bragði segir hún að það hafi verið
mikil spurn eftir því.
„Þeir sem eru hliðhollir grænmet-
ismat hafa saknað þess að fá reyktan
mat. Þarna komum við sterk inn með
það.“
Hvað borðar fólk með hátíða-
hnetusteikinni?
„Allt hefðbundið hátíðameðlæti
passar vel með hnetusteikinni, þetta
klassíska eins og heimagert rauðkál,
grænar baunir, sveppasósa og fleira í
þeim dúr. Ég hlakka til að borða
hana með uppstúfi og grænum baun-
um en ég ætla að hvíla hangikjötið í
ár. Það hefur fylgt mér frá því ég var
barn að borða hangikjöt á jóladag en
í ár verður það þessi hátíða-
hnetusteik.“
Er fólk farið að borða meiri græn-
metismat en áður?
„Við hjá Móður náttúru höfum
upplifað mikla söluaukningu á okkar
vörum. Sífellt fleiri kunna að meta
grænmetisfæði, sem er gott, því við
þurfum að huga meira að því að
minnka kolefnissporið og það getum
við gert til dæmis með því að borða
meira úr jurtaríkinu og hugsað vel
um heilsuna í leiðinni.“
Reykt
hnetusteik á
hátíðarborðið
Valentína Björnsdóttir forstjóri Móður náttúru
segir að fólk sé farið að borða miklu meira af
grænmetismat en áður. Til að mæta þörfum fólks
setti fyrirtækið á markað reykta hátíðahnetusteik
sem þykir mikið lostæti. Valentína segir að hún
henti vel á hátíðarborðið og hægt sé að borða
hana með hefðbundnu jólameðlæti og svo geti
hún líka komið í staðinn fyrir hangikjöt en þá er
uppstúf og baunir haft með.
Marta María | mm@mbl.is
Reykta hátíðahnetusteikin frá
Móður náttúru þykir mikið lostæti.