Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 52

Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 52
Karamellusósa er góð út á ís, út á kökur og svo er líka hægt að drekka hana (ef maður er alveg stjórnlaus í jólastemningunni). Það dásamlega við karamellusósu er að hún er ofureinföld, sem er eitt- hvað svo frábært. 50 g ósalt smjör 100 g síróp frá Good Good 4 dl rjómi örlítið salt Aðferð Byrjið á að setja smjör og síróp á pönnu og látið það bráðna saman. Þá er rjómanum bætt út í. Þegar áferðin er orðin eins og þið væruð að fara að brúna kartöflur er karamellusósan tilbúin. Klístruð karamellu- sósa Þ að sem notið hefur vinsælda hjá þeim semvilja ekki hvítan sykur er að nota náttúru-lega sætu eins og stevíu og erythriol. Ís-lenska vörumerkið Good Good sérhæfirsig í framleiðslu á sykurlausum vörum sem eru einstakar á bragðið. Choco Hazel er súkku- laðismyrja sem minnir á Nutella nema hið fyrrnefnda er án hvíts sykurs. Heima hjá mér er þessari súkku- laðismyrju smurt á nánast allt nema soðna ýsu. Þótt smyrjan sé góð ein og sér eða út á vöfflur, pönnukökur eða út á heilsuskálina þá er hún líka sniðugur kostur í bakstri og vel hægt að nota hana í gamlar klassískar uppskriftir í stað súkkulaðibráðar. Auðvitað er hnetu- bragð sem er ekki þegar dökkt súkkulaði er hitað yfir vatnsbaði en ég mæli eindregið með því að þið prófið ykkur áfram. Það er til dæmis ógurlega ljúffengt að nota súkku- laðismyrjuna í súkkulaðibúðing sem margir tengja við jólin. Þess má geta að þessi uppskrift var prófuð á nokkrum vel völdum starfsmönnum Morgunblaðsins og fékk algera toppeinkunn. Verði ykkur að góðu! Marengsbombur, sykurlaus bláberjaís og klístruð karamellusósa Jólin eru tími til að baka, útbúa deserta og leggja aðeins meira í matreiðsluna en hina daga ársins. Þeim fjölgar ört sem kjósa að setja ekki sykur inn fyrir sínar varir og þá þarf að finna aðrar leiðir til að gera tilveruna sykursæta án þess að nota raunverulegan sykur. Þar að segja ef fólk vill hoppa á sætindavagninn! Marta María | mm@mbl.is ❄ SJÁ SÍÐU 54 52 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is – Erum við símann kl. 12-17 virka daga Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA GULL- OG SILFURSMIÐJAHönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 21.500 Hönnuður Ösp Ásgeirsdóttir Verð kr. 8.500 Jólaskeiðin & jólabjallan 2020 Frí heim- sending Ef það eitthvað sem Íslendingar eru sólgnir í þá er það marengs. Í heiminum er talað um þrjár gerðir af mar- engs; franskan, ítalskan og svissneskan marengs. Ef það er eitthvað sem við gætum kallað íslenskan mar- engs þá er það það að nota stevíu í staðinn fyrir sykur. Íslendingar eru nefnilega svo góðir í að finna leiðir til að halda áfram að gera vel við sig þótt heilsufarið leyfi kannski ekki hvítan sykur í bílförmum. Sweet Like Sugar frá Good Good er dæmi um aðra góða vöru sem er sniðug fyrir þá sem eru að mastera sykurleysi sitt. Þetta duft má nota á marga vegu en það er til dæmis fullkomið í marengs og viti menn, hann er nánast al- veg eins og hefðbundinn. Bara örlítið önnur áferð! 4 eggjahvítur 6 msk. Sweet Like Sugar frá Good Good ½ tsk. vanilludropar ¼ tsk. cream of tartar örlítið salt Aðferð Það skiptir máli að hafa eggjahvíturnar við stofuhita þegar bakað er úr þeim. Það á ekki bara við í þessari uppskrift heldur almennt þegar bakað er. Áður en þið byrjið að þeyta eggjahvíturnar skuluð þið stilla ofninn á 120°C og setja smjörpappír á bök- unarplötur. Þeytið eggjahvíturnar og þegar þær eru stífþeytt- ar bætið þið sætunni út í ásamt cream of tartar, salti og vanilludropum. Ef þið viljið hafa fallegt lag á mar- engstoppunum er gott að setja deigið í sprautupoka og búa til kökur líkt og þið væruð að setja ís í brauð- form í ísbúð. Þegar þið eruð búin að setja deigið fal- lega á bökunarpappírinn er marengsinn bakaður í um það bil 20 mínútur. Þá er lækkað á ofninum og hann settur í 90°C og kökurnar bakaðar í 20 mínútur í viðbót. Best er að gera þetta á kvöldin og leyfa mar- engsinum að kúra inni í ofninum þegar búið er að slökkva á honum. Marengsbombur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.