Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 58

Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 58
Þessi súkkulaðimús er í algjöru uppáhaldi á heimilinu enda ómótstæðileg og á bæði við sem eftirréttur eða sætur biti á hlaðborðið. Flott er að bera hana fram í litlum glösum, krukkum eða fallegum mokkabollum. Fyrir fjóra til sex 3 dl rjómi 250 g suðusúkkulaði, gróft saxað 3 eggjarauður 1⁄3 tsk. salt 2 msk. smjör, mjúkt 1 msk. kaffilíkjör eða 1 tsk. vanilludropar þeyttur rjómi granateplafræ eða rifsber til skrauts fersk mynta, til skrauts Aðferð Hitið rjómann í potti við vægan hita. Takið af hitanum og hrærið súkkulaðið saman við þar til það bráðnar. Hrærið vel. Pískið í annarri skál vel saman eggjarauðurnar og saltið. Bætið 1 dl af súkkulaðiblöndunni var- lega saman við eggjarauðurnar. Hellið því síð- an í pottinn og hrærið mjög vel. Hrærið svo smjöri og vanilludropum eða líkjör saman við. Hellið í litlar skálar eða bolla og kælið í ísskáp í að minnsta kosti tvo tíma. Á myndinni eru glösin fyllt með léttþeyttum rjóma, granat- eplafræjum og ferskri myntu. Súkkulaðifreisting í hátíðarbúningi 58 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 kakó og hlýtt á upplestur valins rithöfundar. Hafnarfjarðarbær hefur um nokkurra ára skeið fært öllu starfsfólki sveitarfélagsins jólagjöf, í heild um 2.000 gjafir. Þá sækja stjórnendur rúmlega 70 starfsstöðva glaðninginn hingað í ráðhúsið og færa hann með fal- legum kveðjum til alls samstarfsfólksins okkar.“ Mikið fyrir litlu hlutina á jólunum Ertu mikið fyrir jólin sjálf? „Já, ég hef alltaf verið mikið jólabarn og finnst aðventan dásamlegur tími. Undirbúningur jólanna og kærleiksrík samvera er í mínum huga það besta við hátíðirnar. Að njóta tónlistar, fé- lagsskapar við fjölskyldu og vini, góðs matar og almennra kósí- heita er það sem skiptir öllu máli. Gleðin felst í að geta notið litlu hlutanna með þeim sem standa hjarta þínu næst. Að setjast við kertaljós yfir kakóbolla og smáköku með góðum vini eða glugga í nýju jólabækurnar kemur mér í hið eina sanna jólaskap.“ Hvað gerir þú alltaf fyrir jólin heima hjá þér? „Fyrir utan að skreyta heimilið jafnt og þétt fram að jólum baka ég alltaf smákökur, ekki síst til að fá ilminn í húsið. Mér hef- ur alltaf þótt mikilvægt að búa ekki til streitu fyrir jólin og vil hafa aðventuna friðsæla og rólega. Jólalög, kerti og ljós eru nóg fyrir mig. Stemningin í miðbæ Hafnarfjarðar er mjög að mínu skapi og skrepp ég auðvitað allar helgar í jólaþorpið, kíki í versl- anirnar og gjarnan á kaffihús í leiðinni.“ Eftirminnilegt að vera á Flórída um jólin Eru einhver jól eftirminnilegri en önnur? „Við fjölskyldan höfum þrisvar haldið jólin í öðru landi og óneitanlega verða þau eftirminnileg. Í fyrsta skiptið í Tampa á Flórída þar sem við hjónin bjuggum með elstu sonum okkar tveimur um tíma og svo í Laguna Beach í Kaliforníu þar sem mágur minn býr ásamt fjölskyldu. Á báðum stöðum var það fyrst og fremst veðurfarið sem gerði jólastemninguna ólíka því sem maður annars er vanur. Að spóka sig á ströndinni á aðfangadag og standa á stuttbuxum að steikja kalkúnann úti í garði er nokk- uð sem lifir í minningunni. En upp úr stendur að ytri umgjörðin skiptir ekki máli, snjór eða sól, kalt eða hlýtt, lifandi tré eða gervi! Hin sanna jólagleði kemur innan frá.“ Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu? „Góð andleg og líkamleg heilsa er það mikilvægasta í lífinu og að börnunum mínum líði vel og séu glöð og hraust. Að vera í góð- um samskiptum við samferðafólkið mitt skiptir mig líka miklu máli og að geta horft jákvæðum augum fram á við þótt á móti blási. Ég reyni að temja mér það en það er ákvörðun að láta ekki bugast við áföll og þá er mikils virði að geta laðað fram ljósið í hjartanu. Í öllu andstreymi höfum við alltaf eitthvað til að þakka fyrir og með því að leiða hugann að því komumst við í gegnum flesta hluti og getum jafnvel styrkst og vaxið. Þakklæti gerir kraftaverk.“ Er eitthvað sem þig dreymir um í jólagjöf á þessu ári? „Nei, ekkert sérstakt. Við í fjölskyldunni höfum ekki vanið okkur á að panta eitthvað í jólagjafir hvert frá öðru. Jólagjafir eiga að mínu mati að koma á óvart og vera persónulega valdar. Og er það að sjálfsögðu hugurinn að baki sem skiptir öllu máli. Ég neita því þó ekki að það er alltaf gaman að fá einhverja góða bók til að lesa um hátíðirnar. En fyrst og fremst dreymir mig um ást og frið öllum til handa.“ Laxarós á kartöflu er uppáhaldsréttur fjöl- skyldunnar á jólunum og er hann jafnan hafð- ur í forrétt, annaðhvort á aðfangadag eða á gamlárskvöld. Laxarósin er sérlega falleg á diski, afar einföld í undirbúningi og mjög ljúf- feng. Fyrir fjóra 1 stór kartafla 200 g reyktur lax salt sítrónusafi 1 dós sýrður rjómi eða 2 dl grísk jógúrt 2 skalottlaukar, smátt saxaðir 2 tsk. wasabi, japanskt piparrótarmauk, eða 1 tsk. fersk piparrót 4 tsk. silungahrogn dill, til skrauts Aðferð Sneiðið kartöfluna í um 1 cm þykkar sneiðar og sjóðið í 10-15 mín. Takið þær síðan úr pottinum og látið kólna. Saltið kartöflu- sneiðarnar og penslið með sítrónusafa. Hrærið saman sýrðan rjóma, skalottlauk og pipar- rótarmauk. Skerið laxinn í sneiðar og skiptið á fjórar kartöflusneiðar. Skiptið síðan pipar- rótarsósunni á sneiðarnar og setjið eina te- skeið af hrognum ofan á hverja og eina. Skreytið með fersku dilli. Laxarós á kartöflu Súkkulaði- búðingur með karamellu Þ essi súkkulaðibúðingur er löngu orðinn klassískur en oftasthef ég notað hefðbundið suðusúkkulaði í búðinginn eða annaðdökkt súkkulaði. Þar sem nokkrir í fjölskyldunni eru sólgnir íkaramellufyllt súkkulaði frá Nóa Síríus ákvað ég að nota það ístaðinn fyrir hefðbundið suðusúkkulaði og viti menn – það sló í gegn. Búðingurinn var borðaður upp til agna á mettíma og verður borinn aftur á borð um jólin. 200 g Síríus Pralín súkkulaði með karamellufyllingu (tvær plötur) 3 egg 1 og 1/2 dl rjómi Karamellusykur til skrauts AðferðSúkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði. Það getur orðið svolítið skrýtin áferð á því út af karamellunni en hún lagast um leið og eggjarauðurnar eru hrærðar saman við súkkulaðibráðina. Eggin eru sem sagt aðskilin og eggja- hvítan stífþeytt og sett til hliðar. Þegar búið er að stífþeyta eggjahvíturnar er rjóminn þeyttur. Svo eru eggjarauðurnar hrærðar út í súkkulaðibráðina. Því næst er eggjahvítunni blandað varlega saman við súkkulaðibráðina og loks er þeytta rjómanum bætt út í. Þegar búðingurinn er tilbúinn er hann settur í fallegar desertskálar eða glös og svo er gott að strá smá karamellusykri út í og skreyta með berjum eða öðru fíneríi. Ef það er eitthvað sem tilheyrir jólunum þá er það að búa til ekta súkkulaðibúðing. Þá erum við ekki að tala um að hræra saman duft úr pakka heldur búa til hreinræktað lostæti þar sem egg, súkkulaði og rjómi koma við sögu. Marta María | mm@mbl.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.