Morgunblaðið - 26.11.2020, Page 76
M ikið er lagt í flekklausa húð og er ekkertverið að reyna að búa til sólkysstarkinnar á þessum árstíma heldur er föl-ari húðlit gert hátt undir höfði. Andlitiðer þó skyggt örlítið með Illuminating
Blush Powder sem tilheyrir jólalínunni í ár.
Í augnförðun er það eye-linerinn sem setur punktinn yfir
i-ið. Hann rammar inn augun en í jólalínunni er til dæmis
gylltur augnskuggi sem fer brún- og græneygðum vel. Gull-
augnskugginn er notaður neðst á augnlokin í kringum augn-
hárin en svo er augnlokið skyggt með bleikbrúnum lit.
Augabrúnir fá að flæða eins eðlilega og hægt er enda fúlsa
förðunarfræðingar Chanel við stimpluðum allt of dökk-
um skinku-augabrúnum. Þeim þarna í París finnst það
bara ekki vera nægilega vandað og fágað að ýkja auga-
brúnir um of. Þegar búið er að farða augu og auga-
brúnir þurfum við örlítinn kinnalit og svo þurfum við
varalit. Þótt við nennum kannski ekki að vera með
rauðar eða vínrauðar varir allan ársins hring þá er
desember mánuðurinn til þess að láta það eftir sér.
Mestu skutlur heims í kringum 1989 hefðu hrein-
lega aldrei sleppt dökka varalitnum. Ef við viljum
vera svolítið eins og klassapíur þess tíma tökum
við þetta alla leið.
Chanel kemur með jólin til þín!
Franska tískuhúsið Chanel leitar aftur í tímann
í jólalínu sinni í ár. Ef við vissum ekki betur
myndum við halda að við hefðum spólað aftur
til ársins 1989 eða áranna þar um kring.
Marta María | mm@mbl.is
Kinnaliturinn í línunni er
mildur og sérlega fallegur.
Varalitirnir í jólalínu
Chanel eru hátíða-
legir. Þeir fara út í
vínrautt og svo má
finna hinn fullkomna
rauða varalit sem
fer vel við tennurnar.
Hér sést hvernig gyllti augnskugginn
mætir kórallitaða á augnlokinu. Augn-
förðuninni er svo pakkað endanlega
inn með meðalþykkri eye-liner línu.
76 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Verið velkominá Árbæjarsafná aðventunniEngin jóladagskrá í ár vegnaCOVID-19.
w
w
w
.b
o
rg
a
rs
o
g
u
sa
fn
.i
s
Ú
rin frá JS Watch co. Reykjavik eru íslensk. Þau
eru hönnuð á teikniborði JS. Allir íhlutir úrsins
eru sérframleiddir eftir þeirra hönnun í mörg-
um sérhæfðum verksmiðjum í Þýskalandi
og Sviss og settir saman hér á landi
undir ströngu gæðaeftirliti Gilberts
Ó. Guðjónssonar úrsmíðameistara.
Hann nýtir áralanga þekkingu og
reynslu sína af úrsmíði til að tryggja
að hvert og eitt úr standist ströngustu
kröfur.
„Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við
að sameina glæsilega hönnun, gæði, fyrsta flokks úr-
verk og falleg armbönd. Vönduð úr eru munaðarvara
og fylgihlutir sem bæði karlmenn og konur njóta þess
að velja, bera og eiga. En úr er ekki bara skartgripur.
Það er nytjahlutur sem hjálpar okkur að gegna
skyldum okkar, halda loforð og skapa
góðar minningar,“ segir Gilbert.
Fágæti úranna er það sem gerir
þau eftirsóknarverð, en á skífu
allra úranna stendur Reykja-
vík. Það, ásamt vönduðu verki,
framleiðslu og sígildu útliti, ger-
ir úrin fágæt og einstök.
Íslensk hönnun nýtur vinsælda
Úr er sígild jólagjöf sem klikkar seint
enda bæði skart og nytjahlutur, en í einu
minnsta verslunarrýminu við Laugaveg
eru smíðuð hágæðaúr fyrir dömur og
herra sem vakið hafa verskuldaða
athygli víða um heim.
JS-úrin eru fáanleg með
mörgum mismunandi skífum
auk þess sem hægt er að
velja um fjölmargar ólar.
JS-úrin eru öll sjálftrekkt.