Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 78
„Ég ákvað að gera nokkuð ein-
falda hátíðarförðun með fáum
vörum frá Chanel. Blautur kopar-
gylltur augnskuggi yfir allt augn-
lokið, þykkur dökkbrúnn augn-
blýantur með spíss til að ná fram
örlítið dramatísku yfirbragði,“
segir Kolbrún og játar að hún vilji
hafa ljómandi húð, svolitla skygg-
ingu og highlighter og Nude bleik-
ar varir.
Hverju ætlar þú að klæðast við
þessa förðun?
„Jóladressið er litríkara en
vanalega. Kjóllinn er frá danska
merkinu Ganni sem fæst í Geysi.
Sniðið er einstaklega kvenlegt og fallegt
og efnið teygjanlegt silki svo það verður
þægilegt að vera í honum og borða á sig
gat yfir hátíðarnar,“ segir hún.
Glossaðar varir
við silkikjólinn
Kolbrún Anna
Vignisdóttir
ætlar að
klæðast kjól
frá Ganni
um jólin.
Kolbrún Anna Vignisdóttir, förðunarfræðingur og
starfsmaður í Geysi, er búin að ákveða hvernig hún ætlar
að klæða sig um jólin. Hún er ekki bara búin að ákveða
kjólinn heldur er hún búin að ákveða förðunina líka.
Marta María | mm@mbl.is
Kolbrún Anna leggur áherslu á glansandi
húð og velur Chanel til að ná fram ljómanum.
78 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
K atrín Sif er einn af eigendumSprey Hárstofu. Hún stofnaðinýlega veftímaritið Bubbleþar sem hún sýnir lesendumallt það nýjasta í sambandi við
hár og greiðslur.
„Jólagreiðslurnar verða lifandi og í 70’s-stíl
þar sem bylgjur, krullur og hárskraut verður
vinsælt. Allir geta verið með bylgjur sama
hvort hárið er stutt eða sítt. Hárið getur ver-
ið slegið, sett í lágt tagl eða poppað upp með
fallegum spennum. Snúðar eru líka alltaf
mjög vinsælir; lág tögl og lágir snúðar.“
Katrín Sif segir að þegar búið er að und-
irbúa hárið með bylgjum eða krullum þá sé
svo auðvelt að gera meira við það. Hreyfing
gerir mikið fyrir greiðsluna.
Hárskraut hefur verið mjög vinsælt. Það
er nauðsynlegt að hafa spennur í hárinu á jól-
unum, perlur eða eitthvað sem glitrar smá-
vegis á.
Þeir sem velja að vera með slétt hár eru
gjarnan með smávegis vængi, sem er í anda
70’s-tímabilsins. Það finnst mér mjög sætt.
Hægt er að setja spennu eða spöng í hárið til
að gera aðeins meira fyrir útlitið. Lágir snúð-
ar eru alltaf mjög smart og stílhreinir. Við er-
um bæði að sjá mjög einfaldar greiðslur og
svo líka þar sem til dæmis bylgjur eru settar
í hárið og svo spennt í lítinn úfinn snúð.“
Katrín segir að fólki líði betur ef hárið er í
lagi.
„Við eigum öll skilið að líta vel út og gera
okkur til. Það skiptir ekki máli þótt þú sért
ekki að fara út eða á meðal fólks. Við vitum
öll að þegar við klæðum okkur upp á; förum í
kjólinn eða nýju skyrtuna, þá líður okkur vel.
Þar að auki vilja allir eiga flottar ljósmyndir
af sér um hátíðirnar.“
Hvað með efni í hárið?
„Mitt uppáhaldsefni er frá Kevin.Murphy
og heitir Anti.Gravity Sprey. Það er bæði
hægt að blása hárið upp úr því og þá verður
hárið viðráðanlegra og með meiri fyllingu og
svo er hægt að nota það í þurrt hárið og sem
dæmi krulla hárið.“
Hvers vegna ákvaðstu að gera hártímarit?
„Ég vildi ekki sitja aðgerðalaus á meðan
hárgreiðslustofan okkar var lokuð og tók þá
skrefið og byrjaði með veftímarit.Vinkona
mín, Ása Bergmann, sem er hönnuður í Dan-
mörku, hjálpaði mér að setja upp síðuna og
bjó til vörmerkið. Hún hjálpaði mér með
verkefnið. Tímarit-
ið er bæði fyrir
fagmenn og áhuga-
fólk um hár og
tísku.
Planið er að gefa
út blað í hverjum
mánuði og hægt er
að kaupa vörur
mánaðarins sem
nefndar verða í
hverju blaði. Ég
hef mjög gaman af
því sem ég geri og
læri ekki síður
mikið á því að
skrifa um hár. Mig
langar að hvetja alla til að skoða það sem ég
er að gera á bubblemagazine.is og á
Instagram.“
Við eigum skilið
að vera með fallegt
hár um jólin
Katrín Sif Jónsdóttir er lífsglaður hárgreiðslumeistari sem hefur
endalausan áhuga á hári. Þegar hárgeiðslustofum var lokað
vegna veirunnar tók hún sig til og gerði veftímarit um hár.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Katrín Sif
Jónsdóttir sit-
ur aldrei auð-
um höndum.
Hún stofnaði
nýverið vef-
tímarit um hár.
Það er fallegt að greiðslan vinni
með skartgripunum. Hér má sjá fal-
legan lokk og hár greitt í stíl við það.
Hér má sjá hvað gerir mikið fyrir
hárið að vera með fallega lokka
áður en hárið er sett í lágt tagl.